Morgunblaðið - 20.06.1965, Side 21
Sunnudagur 20. júní 19BS
MORGUNBLAÐIÐ
21
- Ræða Ingólfs
Framh. af bls. 13
Árásinni á stofnlánadeildina
hrundið.
Árásinni á Stofnlánadeildina
hefur nú verið hrundið, og er
vonandi að ekki verði oftar
vegið í þann knérunn. Þörf er
á að athuga hvernig finna megi
nýja tekjustofna fyrir Stofn-
lánadeildina og efla hana enn
meira. Þegar lög um Stofn-
lánadeildina voru sett, gátu
menn ekki reiknað með 7 þús-
und hektara ræktun á ári, eða
vélakaupum og framkvæmdum
eins miklum og orðið hafa, enda
farið langt fram úr því sem
menn þorðu að vona. Neitend-
ur borga gjald til Stofnlána-
deildarinnar án þess að mögla
eins og kunnugt er. Sérstakt
fasteignagjald er nú greitt í
húsnæðis- eða lánasjóð þétt-
býlisins. Gjald þetta er lagt á
allar fasteignir nema í sveitum,
þar sem bændur greiða samkv.
lögum gjald til Stofnlánadeild-
ar landbúnaðarins. Húsnæðis-
málasjóður þéttbýlisins er
þannig byggður upp að nokkru
leyti með sérstöku gjaldi af
fasteignum í þéttbýlinu. Lána-
sjóður landbúnaðar, sjávarút-
vegs og iðnaðar eru byggðir
upp að nokkru leyti með fram-
leiðslugjaldi. Stofnlánadeild
lándbúnaðarins fær þó stærst-
an hluta teknanna frá neytend-
um og úr ríkissjóði. Veðdeild-
ina þarf að efla, en hún hefur
eins og kunnugt er, alltaf haft
of lítið fé til ráðstöfunar. Er nú
unnið að athugun þess máls.
Afurðalán landbúnaðarins voru
aukin á síðastliðnu ári, oig var
það rætt sérstaklega við full-
trúa bænda í sexmannanefnd.
Á sl. hausti munu hafa verið
greidd 75% af heildarverði til
bænda, en áður aðei’ns 67%.
Endanlegt uppgjör mun sv.o
fara fram í maímánuði ár
hvert. Það hefur stundum verið
talað um að sjávarútvegurinn
fengi meiri afurðalán tiltölu-
lega en landbúnaður. Samkv.
upplýsingum Seðlabankans er
ekki um það að ræða. Bænda-
samtökin hafa oft talað um að
nauðsyn bæri til að útborgun
gæti miðazt við 90% af heildar-
verði, og get ég tekið undir að
það væri æskileigt. Oft er talað
um tolla af vélum til landbún-
aðarins. Fyrir tveimur árum
voru tollar af land'búnaðarvör-
um yfirleitt lækkaðir í 10%.
Landbúnaðarvélar voru áður
yfirleitt tollaðar um 33%. Ekki
er því að neita, að æskilegt
væri að afnema tolla af land-
búnaðarvélum, en iðnaður og
sjávarútvegur vilja einnig fá
lækkaða tolla. Vélar til sjávar-
útvegsins vöru lækkaðir í tolla
á síðasta þingi og- eru nú yfir-
leitt í sama tollastiga og land-
búnaðarvélar. Iðnaðarvélar eru
yfirleitt í hærra tollaflokki. Ég
tel eðlilegt að þessi mál verði
athuguð eftir því sem ástæður
eru til, og hef síður en svo út
á það að setja, þótt bændafund-
ir beri fram óskir um lækkun
tolla á þessum þýðingarmiklu
tækjum.
Bændur vilja jafnvægi í efna-
hags- og atvinnumálum.
Að lokum er ástæða til að
minna á, að atvinnuvegir lands-
manna hafa eflzt á undanförn-
um árum. Þjóðin hefur eignazt
mikið að nýtízku tækjum í land
búnaði, sjávarútvegi, iðnaði og
aamgöngum. Atvinnan er meiri
en nokkru sinni áður. Tekjur
manna hafa vaxið ag þjóðin
▼eitir sér meira og býr við jafn-
•ri kjör en nokkru sinni fyrr.
Við getum verið sammála um,
»ð mikið hafi áunnizt, að rétt
sé stefnt í aðalatriðum, þó
stundum verði óhjákvæmilega
gerð nokkur mistök. Það er ör-
Uggt að bændur hafa fullan
skilning á því, hversu mikils
virði það má vera að halda
jafnvægi í efnahags- og at-
vinnumálum. Það er öruggt að
bændastéttin í heild vill vinna
að því að það megi takast. Þess
vegna er það von allra, sem
hugsa á raunhæfan hátt um
efnahagsmálin, að samkomulag
megi takast um allt land milli
launþega og atvinnurekenda,
samkomulag, sem ekki raskar
efnahagsjafnvæginu eða leiðir
„Sá einn er sæll, sem á sinn
morgunheim.
Sá einn er tign, sem lýtur
mætti þeim
er getur björgum, líkt og laufi
feykt
og lífsins eld á jörð og himni
kveikt."
•.j-l Davíð Stefánsson.
Þessi orð "þjóðskáldsins komu
mér í hug, er mér barst andláts-
fregn vinkonu minnar, Sigrúnar
Árnadóttur, fyrrum húsfreyju að
Hallbjarnarstöðum á Tjörnesi.
Mér finnst þessar ljóðlínur lýsa
svo vel þessari hjartahlýju, góð-
látu konu, að með þeim sé stór
hluti ævisögu hennar sagður.
Sigrún var skarpgreind kona
og hugsuður meiri en almennt
gerist. Söngelsk var hún ag unni
mjög ljóðum og tónlist, og svo
skyggn var hún á allt hið bjarta
og fagra í tilverunni, að mér er
nær að halda að henni hafi fund-
izt líkt og skáldinu, að
....... það er eins og englar
séu alls staðar á ferð.“
Sigrún var að eðlisfari - fremur
hlédræg og alvörugefin og hafði
mjög fastmótaða lífsskoðun. En
jafnframt því hafði hún glaðá
og létta lund og kunni vel að
meta létta kímni og hafði glöggt
næmi fyrir hinni skemmtilegu
hlið hluta og atburða. Oft sagði
hún snilldarlega frá skemmtileg-
um atburðum, sem hún hafði séð
eða heyrt. Hún var þrekmikil
kona og kunni vel að færa lífs-
reynsluna sér í nyt, enda mun
hún hafa komið styrkari úr
hverri raun.
Heilsubresti og ástvinamissi
mætti hún með þeirri ró og æðru
leysi, sem einkennir alla þá sem
byggja trú sína og vonir á sig-
urmátt lífsins og sjá jáfnan ljós-
ið mikla gegn um songarhúm og
helskugga. Hún trúði á þann heil
aga lífsins mátt, sem breytt get-
ur harmatárum kvöldsins í morg
undögg nýrra vona. Þeim, sem
fengið hafa vorið og sólskinið að
vöggugjöf, verður aldrei dimmt
fyrir augum.
Hún unni gróðri og vaxandi
lífi. Hún elskaði vorið, með
hækkandi sól, nýjum gróðri og
himneskum hljómum. Og ég er
viss um, að ekkert hefur verið
henni kærara en að takast á
hendur förina yfir mærin miklu,
einmitt að vorlagi, þegar sólin
sendir lífgandi og nærandi yl-
geisla til jarðarinnar, gefandi
öllu nýtt líf, — sameinast vorinu,
þegar ilmur gróandi moldar stíig-
ur til himins, eins og reykelsi
heilagrar þakkarfórnar.
Sigrún fæddist 20. júní 1886,
að Þverá í Reykjahverfi, S.-Þing
eyjarsýslu. Foreldrar hennar
voru hjónin Rebekka Jónasdóttir
og Árni Jónsson, er þar bjuggu.
Æska Sigrúnar og uppvaxtar-
ár munu hafa verið áþekk því
til nýrrar skattlagningar og
aukinnar verðbólgu í landinu.
Takist það, mun þjóðarhagur
fara batnandi, landbúnaður
halda áfram að eflast, og hags-
munir allra landsins barna
vera tryggðir.
sem gerðist á þeim tíma. Iðju-
semi og sparneytni töldust til höf
uðdygigða, enda munu þær syst-
ur hafa reynst henni ósvikulir
förunautar í. átökunum við þær
þolraunir lífsbaráttunnar, sem
hún, eins og margar sveitakonur
á hennar reki, hlaut að mæta og
sigrast á, ef vel átti að fara. Ekki
er ólíklegt, að í æsku hafi Sig-
rúnu brunnið þrá í brjósti til
menntunar, einkum á sviði söngs
og tónlistgr, en lífsbarátta sam-
tíðarinnar veitti fæstum sveita-
stúlkum tækifæri til menntunar
yfirleitt, hvað þá til sérmennt-
unar. —
Árið 1906 giftist Sigrún Kára
Sigurjónssyni, bónda og náttúru
fræðingi á Hallbjamarstöðum.
Kári var fjölhæfur gáfumaður,
var meðal annars sjálflærður
náttúrufræðingur. Tók hann
mjög virkan.þátt í málum héraðs
síns og átti um skeið sæti á
Alþingi.
Þeim hjónum varð fimm barna
auðið óg em fjögur þeirra á lífi.
Árni og Sæm-undur Bjarki, báðir
bændur á föðurleifð sinni, Hall-
bjarnarstöðum; Guðný Hulda,
gift Theodóri Lilliendahl, sím-
ritara, Reykjavík og Ásdís, gift
Sigurbérgi Þorleifssyni, hrepp-
stjóra og vitaverði á Garðskaga.
Þriðja systirin, Dagný, lézt árið
1934, ógift. Árið 1949 missti Sig-
rún mann sinn. Brá hún búi og
fluttist skömmu síðar í Garð
suður til dóttur sinnar Ásdísar
og manns hennar, Sigurbergs
hreppstjóra, er þá bjuggu að
Hofi í Garði og síðar að Garð-
skaga. Hjá þeim sæmdarhjónum
átti hún bjarta ellidaga, að öllu
leyti sem í mannlegu valdi stend
ur, og þar dvaldist hún til 24.
mai síðastl., en þá var hún flutt
í sjúkrahús Keflavíkur, þar sem
hún andaðist 2 dögum síðar. Hún
var jarðsungin frá Húsavikur-
kirkju, laugardaginn fyrir Hvíta-
sunnu.
Um mörg seinustu ár ævinnar
var Sigrún sál. heilsutæp og oft
sárlþjáð. En hún möglaði ekki.
Þrautir líkamans náðu ekki að
raska sálarró hennar og andlegu
þreki. Jafnan var hún glaðvær
og létt i viðmóti. Þráin til að
veita gleði var öllu yfirsterkari.
Hún þurfti alltaf að eiga Ijós-
geisla til að miðla öðrum, þótt
hún stæði sjálf i skugga. Slíkar
sálir hafa stundum, í kyrrð sinni
og yfirlætisleysi, hlaðið hæðstu
vörðumar og tendrað björtustu
blysin á leið samferðamannanna,
hvar sem þær eru staddar í mann
félaginu.
Við. sem ennþá stöndum hérna
megan tjaldsins sem skilur
heima efnis og anda, vitum lítið
og sjáum skammt, en lífsvissuna
eigum við og vitum því að þeim,
sem helga hinu góða og fagra
störf hugar og handa í þessari
jarðvist, verður leiðin greið og
flugið létt um ljósheimana dýrð-
legu, ,þar sem aldrei haustar að
né húmar að kvöldi, og þar sem
hann, sem sagði: „Ég lifi og þér
munuð lifa“ tekur á móti ferða
manninum og býður hann vel-
kominn.
í þeirri vissu og með þökk 1
hjarta kveðjum við Sigrúnu Árna
dóttur.
•Blessuð sé minning hennar.
Einar Einarsson.
Sigrún Árnadóttir
frá Hallbjarnarstöðum
Húseignin Heimagata 4
Vestmannaeyjum (áður Hótel Berg) er til sölu.
Húsið er tæpir 140 ferm. kjallari, hæð og ris í kjall
ara er bakarí, á hæðinni eru 8 herbergi, eldhús og
bað, í risi eru 10 herbergi. — Þá er og útigeymsla
og bílskúr. Kjallarinn og brauðgerðin geta selst sér.
Upplýsingar gefur Sigmundur Andrésson, Heima
götu 4, Vestmannaeyjum. Símar 1964 og 1937.
Síldarstúlkur
Til Raufarhafnar vantar okkur nokkrar vanar
stúlkur. — Upplýsingar í síma 40692.
Björg Raufarhöfn
Wolsey
nælon kvensokkar
í sumarlitum.
Net-nælon 15 denier.
Sjúkrasokkar.
Wofsoy
ei gæðavara
Porísarbúðin
Austurstræti 8.
hjólbarðinn hf.
LAUGAVEC 178 SÍMI 35260
INTERNATIONAL
Nygen slriginn I Generol
hjólbörðunum losar yðut
við eftirfarandi óbægindi
Krosssprungur af
miklum höggum
Sprungur af völdum
mikils hita
Strigaþreytift
Aðeins GENERAL hiólbarðar
eru byggðir með NYGEN striga
INTERN ATIONAL