Morgunblaðið - 20.06.1965, Síða 28
28
MORGUNBLADID
Sunnudagur 20. júní 1965
GEORGETTE HEYER
FRIÐSPILLIRINN
1 — Hann var einn ritari hans,
en Augustus er skáld og vitan
lega hefur hann ekkert vit á við-
skiptamálum, og það er einmitt
það, sem Charles finnur honum
hvað mest til foráttu. Við hitt-
umst fyrst á balli í Almack-
klúbbnum og urðum bæði ást-
fangin við fyrstu sýn, eða að
minnsta kosti varð ég það og
hann sagðist hafa orðið eins. En
hvernig gat ég gert ráð fyrir
nokkurri andstöðu gegn þessu?
Fawnhopeeættin, hugsaðu þér.
Hún hefur verið í landinu alla
leið síðan í fornöld. Og ef ég
kæri mig ekki um auð eða óhóf,
þá ætti honum Charles að geta
verið sama.
— Það finnst mér líka. En
elsku Cecilía mín, vertu ekki að
gráta. Segðu mér bara: Er hún
mamma þín andvíg því, að þú
eigir hann Fawnhope?
— Blessuð mamma mín er nú
svo skynsöm, að ég veit alveg,
að hún er mín megin, sagði Cecil
ía og þerraði af sér tárin. En hún
hefur sama sem sagt mér, að hún
þori ekki að setja sig upp á móti
honum Charles. Það er hann, sem
öllu .ræður hér í húsinu.
— Sir Horace hefur alltaf á
réttu að standa, sagði Soffíá um
leið og hún stóð upp og hristi pils
ið sitt. — Ég var að nauða á hon
um að taka mig með sér til
Brasilíu, af því að mér fannst ég
mundi aldrei una mér hér í Lond
on, með ekkert að gera nema
skemmta mér heima hjá henni
frænku minni. Hann fullvissaði
mig um, að ég mundi finna mér
eitthvað til að drepa tímann með
og þarna sérðu, að hann heíur
hitt naglann nákvæmlega á höf-
uðið. Mér þætti gaman að vita,
hvort honum hefur verið kunn
ugt um allt þetta stand! Nei, góða
Cecilía mín — má ég ekki annars
kalla þig Cecy, af því að hitt er
svo fyrirferðarmikið í - munnin-
um — þú skalt alveg treysta mér.
Þú ert faliin í eitthvert þung-
lyndiskast, en til þess er engin
ástæða! Og það er meira að segja
það fráleitasta, sem þú gætir fund
ið upp á, þegar svona stendur á.
Það fær alla til að halda, að þú
sért alveg ráðþrota, en ég þarf
ekkert annað en svolitla ein-
beitni, þá kemst allt í lag. En nú
verð ég að hafa fataskipti fyrir
kvöldverðinn, og það er ekkert
andstyggilegra en gestur, sem er
seinn í matinn!
— Já, en hvað ertu að fara,
Soffía? He'.durðu, að þú getir
hjálpað mér út úr þessum vand
ræðum?
— Ég hef nú enga hugmynd
um það núna en ég hef áreið-
anlega hundrað ráð til þess. Alit
þetta sem þú hefur sagt mér,
hefur sýnt að þið eruð öll fallin
í eitthvert þunglyndi. Bróðir
þinn! Hvernig fóruð þið að því
að gera hann að svona harð-
stjóra? Ég mundi ekki einu sinni
láta Sir Horace þveita mér svona
að eigin geðþótta en það gera nú
annars beztu feður og eiginmenn
ef fjölskyldur þeirra eru svo
heimskar að gefa þeim tilefni til
þess. Og svo gerir það þá svo
hundleiðinlega! Er Charles ekki
einmitt hundleiðinlegur? Það er
ég alveg v.Ls um, að hann er! En
skítt með það —
Ef hann langar til að ná í æski
leg gjaforð, þá getur hann feng
ið að svipast um eftir almennileg
um manni handa mér, og það get
ur leitt huga hans frá þér.
Þegar Soffía hafði farið í
kvöldkjól í staðinn fyrir ferða-
fötin hafði Ceciiía líka lokið við
að klæða sig og beið nú eftir
henni til þess að fylgja henni nið
ur í borðsalinn. Soffía var að
reyna að koma perlubandi um
hálsinn á sér og fölleita þernan
var að áminna hana um að vera
kyrr, en þá kom Cecilía inn, í-
klædd bláum kjól og tók að geta
sér til, að Soffía hefði fengið
alla sína kjóla frá París.
*
— Það er þó sú ein huggun, að
Eugenia hneykslast á þessum
kjóL
— Guð minn góður, hver er
Eugeniá? sagði Soffía og sneri
sér við á stólnum. Hversvegna
ætti hún að hneykslast á honum.
Af því að hann sé svo ljótur?
— Nei, vjtanlega ekki. En Eug
eniá er aldrei í tízkukjólum . . .
Hún segir, að til sé annað mik
ilvægara eti að vera að hugsa um
föt.
— En sú vitleysa. Auðvitað er
til annað mikilvægara, en bara
ekki þegar maður er. að búa sig
til kvöldverðar. Hver er hún?
— Ungfrú Wraxton. Charles
er trúlofaður henni, og mamma
varaði mig .við því fyrir nokkr
um mínútum, að hún ætli að
borða hérna í kvöld. Við vorum
öll búin að gleyma því í öllu
uppistandinu, þegar þú varst að
koma. Ég er viss um, að hún er
komin í borðsalinn, núna, því að
hún er afskaplega stundvís. Ertu
t 'if' Eigum við að fara niður?
— Já, ef hún Jane mín vildi
bara flýta sér ofurlítið, sagði
Soffía og rétti úlnliðinn að þern
unni og horfði glettnislega á
hana um leið. Svo kyssti hún
hana og sagði: — Góða nótt,
Jane, elskan.
Cecilía varð hissa á þessu og
sagði, þegar þær voru á leiðinni
niður stigann: — Hú.n er víst bú
in að vera lengi hjá þér Ég er
hrædd um, að mamma mundi
reka upp stór augu ef hún sæi þig
kyssa þernuna þína.
Soffía lyfti brúnum við þessi
orð. — Virjúlega? Jane var þerna
mömmu minnar og var mér góð
fóstra eftir að mamma dó. Ég
vona, að ég geri aldrei neitt ann
að verra, til að fá mömmu þína
til að reka upp stór augu.
— Auðvitað mundi hún skilja,
hvernig á þessu stendur, flýtti
Cecilía sér að segja. — Mér
fannst það bara svo skrítið, skil
urðu?
Frú Ombersley, eldri synir
hennar tveir og ungfrú Wrax-
ton sátu saman við arininn. öll
litu upp, þegar dyrnar opnuðust
og herrarmr risu báðir á fætur.
Hubert horfði á frænku sína með
ódulinni aðdáun, en Charles
mældi hana og mat með augun-
um.
— Komdu inn, Soffía elskan,
sagði frú Ombersley vingjarn-
lega. — Lofaðu mér að kynna
þig ungfrú Stanton-Lacy, Eug-
eniá mín. Cecilía hefur sjálfsagt
sagt þér, að við munum bráðum
hafa þá ánægju að telja ungfrú
Wraxton með fjölskyldunni
hérna?
— Já, vissulega, svaraði Soffía
brosandi og rétti fram höndina.
— Ég óska yður innilega til ham
ingju, ungfrú Wraxton, og
frænda mlnum sömuleiðis. Hún
sneri sér, er hún hafði lauslega
snert hönd ungfrú Wraxton og
tók í höndina á Charles. —
Komdu sæll!
Hann tók hönd hennar og varð
hissa á þessu en hafði um leið
hálfgaman of því og hann brosti.
— Komdu sæl, frænka. Ekki get
ég nú sagt, að ég muni vel eftir
þér, og ég býst við, að hvorugt
okkar muni hitt.
Hún hló. — Það er nú varla
von, því að Elísabet frænka
mundi víst heldur ekkert eftir
mér . . . Hubert? Er það ekki?
. . . Segðu mér af John Potton og
Salamanca. Ég vona, að þú hafir
komið báðum vel fyrir.
Hún veik ofurlítið til hliðar til
að tala við Hubert. Frúin, sem
hafði horft á son sinn með kvíða
svip, huggaðist, er hún sá hann
vera sæmilega vingjarnlegan á
svipinn og jafnvel, að hann lýsti
velþóknun. Hann var hálfbros-
andi, er hann horfði á'Soffíu og
áttaði sig ekki fyrr en unnusta
hans dró að honum athyglina.
Ungfrú Eugeniá Wraxton var
grannvaxin kona, í hærra meðal
lagi á vöxt, og var því vön, að
henni væri lýst sem hávaxinni,
glæsilegri stúlku. Andlitið vár
höfðinglegt ag hún var venjulega
talin frekar lagleg, en þó heldur
sviplítil. Brjóstið var fremur lít-
ið, enda lítt til sýnis, því mamma
hennar var andvíg flegnum kjól-
um, eins og t.d. ungfrú Stantan-
Lacy var í. Hún var greifadóttir
og enda þótt hún gætti þess vand
lega að sýnast ekki hrokafull,
vissi hún samt alveg af gildi
sínu. Framkoma hennar var
kurteisleg og hún hafði lag á að
láta fólk koma eðlilega fram í
návist hennar. Þannig hafði hún
ásett sér að vera sérstaklega vin-
gjarnleg við Soffíu, en þegar
hún stóð upp til að heilsa henni,
fann hún með sjálfri sér, að það
yrði erfitt. Snöggvast varð hún
ofurlítið óróleg, en jafnaði sig
samt og sagði lágt við Cfharles:
— En hvað hún er stór. Mér
finnst ég alveg eins og dvergur
við hliðina á henni.
— Já, óþarflega stór, sam-
sinnti hann.
Hún gat ekki annað en orðið
því feginn, að hann virtist ekk
ert verða hrifinn af frænku
sinni, því að enda þótt hún sæi
við nánari skoðun, að Soffía var
ekki eins lagleg og hún sjálf, gat
hef þurft að vera mikið á hest-
baki.
í þessu opnuðust dymar, en
Soffía hafði setzt við hliðina á
frænku sinni og nú kom Charles
auga á hundinn hennar, sem
hafði komið inn með þeim,' og
sagði:
— Það er eins og við höfum
fengið tvo gesti. Hvað heitir
þessi?
Hann var að seilast eftir hund
inum, en Soffía sagði: — Ég er
hrædd um, að hún vilji ekki
koma til þín. Hún heitir Tína og
er afskaplega feimin.
— Víst vill hún það, sagði
-hann og smellti með fingrunum.
Þetta kuldalega öryggi hans
fór.ofurlítið í taugarnar á Soffíu
en er hún sá, að hann hafði á
réttu að standa, og sá hundinn
taka atlotum hans vel, fyrirgaf
■hún hohum og komsf að þeirri
niðurstöðu að ef til vill væri
hann ekki eins vondur og hann
var sagður.
— Þetta er fallegur hundur,
sagði ungfrú Wraxton, vingjarn-
lega. — Venjulega er ég nú ekki
hrifin af svona gæludýrum í hús
um . . . og mamma mín blessuð,
frú Ombersley, vill ekki einu
sinni hafa kött á heimilinu . . .
vitið þér, en þessi hlýtur að vera
undantekning.
— Mömmu þykir voða gaman
að keltuhundum, sagði Cecilía.
— Og venjulega höfum við hund
hérna, er það ekki mamma?
— Já, en það eru feitir og gráð
ugir seppar, sagði Charles. — Þá
verð ég að segja, að mér þykir
meira varið í þessa fínu dömu.
— Þetta er nú annars ekki
frægasta sképnan, hennar Soffíu
frænku, sagði Hubert. — Bíddu
bara, Oharles, þangað til þú sérð
hvað ’hún hefur komið með fleira
með sér frá Portúgal.
Fni Ombersley iðaði óróleg í
sætinu því að enn hafði hún ekki
sagt Charles neitt frá apanum
í rauða frakkanum, sem nú var
orðinn einvaldsherra í kennslu-
stofunni. En Charles sagði að-
eins: — Mér skilst, frænka, að
þú hafir komið með hest • með
þér. Hubert getur ekki um annað
talað. Er hann spænskur?
JAMES BOND
Eftir IAN FLEMING
■ — Já, og taminn þar. Hann er
mjög fallegur.
— Ég skal veðja um, að þú ert
öndvegis riddari, sagði Hubert.
— Það veit ég nú ekki, en ég
hún ekki neitað hinu, að hún var
mjög áberandi.
það var ekki brytinn til að til-
kynna, að maturinn væri tilbú-
inn, eins og frúin hafði búizt við,
heldur var það eiginmaður henn
ar, sem sagðist hafa þurft rétt að
líta á hana litlu frænku sína, áð-
ur en hann færi í White-klúbb
inn. Frúnni fannst það nú alveg
nóg, að hann hafði neitað að
borða með þeim, ungfrú Wrax-
ton til heiðurs, þó lét ekki á þvi
bera, heldur sagði: — Jæja, hún
er nú ekki neitt sérlega lítil, eins
og þú getur væntanlega séð.
James Bond fær vitneskju um fleiri
i iUsvitanai tiitæki Le Chiffre. — Hann
stjórnar á snærum Rússa öflugu
verkalýðsfélagi með russnesku fjár-
magni. Til þess að auka fjármagnið
lagði hann peningana í allmarga
vafasama klúbba.
Borgarnes
Umboðsmaður Morgun-
blaðsins í Borgarnesi er Hörð-
ur Jóhannsson, Borgarbraut
19. — Blaðið er : lausasölu á
þessum stöðum í bænum:
Hótel Borgarnesi, Benzinsölu
SHELL við Brákarbraut og
Benzínsölu Esso við Borgar-
braut.
Búðardalur
Utsölumaður MBL. í Búð-
ardal er Kristjana Ágústsdótt-
ir. Blaðið er líka selt í Benz-
inafgreiðslu B.P. við Vestur-
landsveg.
Stykkíshólmur
UMBOÐSMAÐUR Morgun-
blaðsins í Stykkishólmi er
Víkingur Jóhannsson, Tanga
götu 13. Ferðafólki skal á
það bent að í lausasölu er
blaðið selt í benzínsölunni
við Aðalgötu.
AKUREYRI
Afgreiðsla Morgunolaðs-
ins er að Hafnarstræti 92,
sími 1905.
Auk þess að annast þjón-
ustu blaðsins við kaupend-
ur þess i bænum, er Akur-
eyrar-afgreiðslan mikilvæg-
ur hlekkur í dreifingarkerfi
Morgunblaðsins fyrir Norð-
urland allt. Þaðan er blaðið
sent með fyrstu beinu ferð-
um til nokkurra helztu kaup
staða og kauptúna á Norður-
landi, svo og til fjölda ein-
staklinga um allai, Eyjafjörð
Á Egilsstöðum
HJÁ Ara Björnssyni í Egils-
staðakauptúni er tekið á
móti áskrifendum að Morg-
unblaðinu. Þar í kauptún-
inu er Morgunblaðið selt
gestum og gangandi í Ás-
bíói og eins í Söluskála kaup
félagsins.