Morgunblaðið - 21.10.1965, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 21.10.1965, Qupperneq 8
8 MORGU N B LAÐIÐ Fimmtudagur 21. október 1995 Hátíiahöld á 1100 ára afmæli Islands byggðar - rædd ú Alþingi í gær Á FUNDI í Sameinuðu Alþingi í gær var til fyrstu umræðu þingsályktunartillaga rikis- stjórnarinnar um 1100 ára af- mæli íslandsbyggðar 1974. Fylgdi forsætisráðherra Bjarni Benediktsson málinu úr hlaði. Forsætisráðherra sagði, að það væri gamall og góður siður bæði hér á landi og annars stað ar að minnast merkisafmæla og mætti raunar segja, að stundum hafi fremur verið ofrausn á slíku en að það hafi verið van- rækt. Sbr. þegar mönnum þótti íyrir því, að ekki skyldi efnt til stórhátíðar á tuttugu ára af- mæli lýðveldisins. Hátíðahöldin í tilefni 1000 ára tslandsbyggðar 1874 og 1000 ára afmælis Alþing is 1930 skildu eftir sig djúp spor í vitund þeirra, sem þar voru. Þær mörkuðu tví- mælalaust tíma mót í sögu þjóðarinnar og alveg er víst, að enginn hefur viljað vera án þeirra minninga, sem við þess- ar hátíðir eru tengdar. Svipað er að segja um lýðveldisstofn- unina 1944, þótt þar hafi raun- ar verið haldið upp á atburð, sem var að gerast. 1100 ára minning Islands- byggðar er ekki eins helg og þessar stórhátíðir, en þó hygg ég, að flestir séu sammála um, að það sé svo merkt afmæli, að rík ástæða sé til veglegra hátíðarhalda. Enn höfum við ekki heillega, frambærilega íslandssögu. Þjóð- vinafélagið og Menningarsjóður hafa unnið þarft verk í þessu efni, en þar ekki ekki um heil- legt sagnfræðirit að ræða, miklu fremur brot úr þessari sögu. Nauðsynlegt er að Ijúka þessu verki og grundvalla á því heillega íslands sögu við al- mennings hæfi. í þessu sambandi er mikill missir af próf. Jóni Jóhannes- syni, sem hefði manna bezt unnið slíkt verk. En áreiðan- legt er, að maður kemur í manns stað í þessum efnum s&m öðrum. Hér er tvöfalt óleyst verk- efni og væri ánægjulegt að ljúka því fyrir afmælið. Þá kemur til álita sýning úr sögu þjóðarinnar eins og var 1944, einnig almenn listsýning og listahátíð og almennings há- tíðahöld, hvort sem það yrði aðallega á Þingvöllum eða í Reykjavík vegna þess hve byggð Reykjavíkur er nátengd byggðasögu landsins. Nauðsyn- legt er að koma upp þjóðhýs- um, alþingishúsi og stjómar- ráðshúsi. Frumdrættir eru til að hinu síðarnefnda en öilu sein- legar hefur gengið með Alþing- ishúsið. Bráðabirgðahúsnæði það, sem þingið hefur fengið til umráða má þó alls ekki verða til að tefja fyrir því. ósam- komulag um staðarval hefur tafið fyrir, en ég vil láta það uppi, að persónulega hneigist ég að hugmynd, sem Benedikt Gröndal mun vera upphafsmað- xu- að, að ætla þinghúsi stað vestur af þessari byggingu í nánum tengslum við hina gömlu Iagólfsbyggð og okkar sögu. Vel færi á því að tengja þessar nauðsynlegu byggingar við slíka stórhátíð. Ég vona, að menn séu sam- mála um þetta mál og geti sezt á rökstóla, þannig að þessi há- tíð verði sem veglegust. Ekki bara til vakningar fyrir okkar þjóð heldur einnig til að styrkja stöðu okkar út á við og vekja athygli á hlut okkar til að við halda menningu vestrænna þjóða. Það hefur komið glöggt fram í sambandi við Vínlandskortið, að menn eru furðu ókunnugir um þær sögulegu staðreyndir, sem þetta kort er raunar aðeins eitt dæmi um. Þessi hátíðahöld geta aukið skilning manna á af- rekum okkar fámennu og af mörgum lítils metnu þjóðar á 1100 ára sögu hennar. Einar Olgeirsson (K) kvaðst vilja taka undir tillögu forsætis- ráðherra. Það væri tvímæla- laust tímabært að hefja undir- Á FUNDI í Sameinuðu Alþingi í gær svaraði menntamálaráð- herra, Gylfi Þ. Gíslason, fyrir- spurn frá Alfreð Gíslasyni um tannlæknakennslu háskólans. Menntamálaráðherra sagði, að lög um tannlæknakennslu hefðu verið sett 1947, en 1945—1947 hefði verið um að ræða tveggja ára námskeið í þessum fræðum. Fyrsti tannlæknirinn hefði verið útskrifaður 1949. Á síðustu tveim ur árum hefðu 19 tannlæknar verið útskrifaðir en næstu þrjú ár á undan 30, eða allt að 50 tannlæknar á síðustu fimm ár- uim. í fyrrahaust hefði háskólinn skrifað menntamálaráðuneytinu bréf þar sem frá því var skýrt, að háskólinn treysti sér ekki til að taka fleiri en 8 stúdenta til náms í tann- lækningum nema fyrirheit yrðu gefin um stuðning við auk ið húsnæði handa tannlækna- kennslu. Óskað var eftir, að inn- rita 15 stúdenta sl. haust og var það heimilað. Á fjárlögum 1965 var fjárveiting til tannlækna- kennslu hækkuð úr 799 þúsund- um í 1599 þúsund eða meira en tvöfölduð. Háskólinn hefði óskað eftir fjárveitingu á þessum fjár- lögum að upphæð 1799 þúsund og hefði verið orðið við þeim óskum á fjárlögum 1966. Árið 1958 hefði verkleg kennsla í tannlækningum verið flutt úr háskólanuim í Landspít- alann og jafnframt hefði námið verið lengt úr 5 árum I sex, Happdrætti háskólans hefði veitt 500 þúsund krónur til hins nýja húsnæðis. Nokkrir stúdentar hefðu kvart- að við borgariækni vegrus þrengsla i þessu húsnæði og hefði borgarlæknir fyrirskipað búning að hátíðahöldum í til- efni 1100 ára af- mæli íslands- byggðar. Einar segist sérstak- lega vilja taka undir nauðsyn þess, að skrifuð yrði heilleg saga Islandsbyggðar. Hann lagði áherzlu á þátt listamanna í þessum hátíðahöld um, ræddi gerð sögulegra mál- verka og varpaði fram þeirri hugmynd, að í sambandi við þessi hátíðahöld yrði boðið hingað til lands þeim fjölmörgu mönnum, háskólakennurum og öðrum, sem legðu fram mikið starf til þess að kynna íslenzka tungu, sögu þjóðarinnar og menningu en hefðu aldrei til landsins komið. Tillögunni var vísað til ann- arrar umræðu og allsherjar- nefndar með samhljóða atkv. að taka 2—3 stóla í burtu og fækka nemendum í verklegri kennslu. Borgarlæknir féllst á, að aðeins einn stóll yrði fjarlægður, en hélt fast við fækkun nem- enda. Hinn 26. júlí sl. hefði háskóla- retkor ritað menntamálaráðu- neytinu bréf vegna vandamála tannlæknadeildar og væri ekki ljóst hvernig þau yrðu leyst. Þrjár leiðir væru fyrir hendi, byggja nýtt hús fyrir tannlækna- kennslu, hafa hana í fyrirhugaðri byggingu læknadeildar eða bráða birgðahúsnæði. Happdrætti háskólans leggði fram fé til nýbygginga á vegum háskólans og hefðu tekjur þess á sl. ári verið nær 10 millj. króna. Nýtt hús ásamt nauðsynlegum tækjúm mundi kosta um 46 milljónir. Líklega yrði ódýrara að ætla tannlæknakennslu hús- næði í húsi læknadeildar, en með slíkum stórbyggingum væri ekki leystur aðsteðjandi vandi. Verið væri að vinna að því að útvega nú þegar húsnæði fyrir teknólogíska kennslu og klíníska kennslu næsta haust. Ennfremur væri verið að at- huga möguleika á að tryggja nemendum á síðari hluta náms- tímabils námsdvöl erlendis. Kvað menntamálaráðherra stjórnina reiðubúna til alls skyn- samlegs stuðnings við útvegun húsnæðis. Tannlæknakennsla væri dýrasta kennsla, sem nú færi fram í háskólanum. Við yrðum að sníða okkur stakk eftir vexti í þessum efnum sem öðruim. Hann kvaðst vonast til, að i framtíðinni yrði auðið að útskrifa nægilegan fjölda tann lækna og að ná góðri samvinnu við erlenda háskóla í tannlækna- kennslu. Alfreð Gíslason (K) sagði, að hér hefðu orðið mistök. Nú væri verið að athuga málið, hvers Tannlæknakennsla til umræöu á Alþingi í gær vegna ekki fyrr? Hvers vegna er 20 stúdentum gefin kostur á að innrita sig í tannlæknadeild- ina í haust, látn- ir bíða eftir end anlegu svari til mánaðamóta sept.-okt. og fá þá neitandi svar? Þetta væri ó- þægilegt fyrir stúdentana og ó- nærgætni af hálfu háskólans. Yfirstjórn háskólans hefði brugð- izt skyldu sinni. Háskólinn ætti að vera öllum opinn, sem til þess hefðu rétt og engum að neita um inngöngu. Hann kvað háskólayfir völd enga frambærilega afsökun hafa í þessu máli. Gylfi Þ. Gíslason (A) kvaðst vilja láta það koma fram, að í samtölum við yfirstjórn háskól- ans hefði verið lögð á það á- herzla, að á síðustu þremur ár- um hefðu verið teknir inn mun fleiri stúdentar en áður í tann- læknadeild eða alls 44. Einar Olgeirsson (K) Sagði, að í þessum efnum hefði ríkt ó- stjórn og fyrirhyggjuleysi. Ekki væri hægt að verja þá menn sem ekki stæðu í stöðu sinni. Það þyrfti að hugsa fram í tímann. Það væri engin afsökun að stúd- entum hefði fjölgað. Sagt væri að peningar væru ekki tiL Það hefðu verið til peningar í Há- skólabíó. Háskólinn ætti að verja sínum peningum til að mennta þjóðina. Svo virtist sem nauðsyn- legt væri að taka allan háskólann til rannsóknar á Alþingi. I GÆR var útbýtt á Alþingi fjórum framvörpum: um verð- jöfmmar- og flutningasjóð síld- veiða árið 1965 samhljóða bráða birgðalögunum 24. júní 1965, um breytingar á lögum um Bún, aðarbanka íslands flutt af Páli Þorsteinssyni o. fl. um breyt- ingu á lögum um aðför flutt af Ólafi Jóhannessyni um raforku- veitur flutt af Skúla Guðmunds syni o. fl. Ennfremur var út- býtt þingsályktunartillögu um undirbúning löggjafar um þjóð- aratkvæði flutt af Ólafi Jóhann- essyni o. fl. Sexfugur / dag Bárbur Isleifsson BÁRÐUR ísleifsson er sextugur í dag og hefir starfað fyrir rík- ið í 30 ár, — samtíða öllum arki- tektum er að byggingarmálum þess hafa unnið fyrr og síðar, að Rögnvaldi Ólafssyni einum undanskildum. Bárður er borinn og barnfædd ur á Akureyri. Foreldrar hans voru ísleifur Oddsson trésmiður og kona hans, Þorfinna Þórðar- dóttir, — bæði af traustum skaft- fellskum stofnum. Bárður lauk prófi við Gagn- fræðaskólann á Akureyri árið 1923, og naut framhaldskennslu hinna framsæknu ágætismanna við þann skóla. Stúdentsprófið sjálft varð að þreyta hér syðra að þessu sinni, — það var árið 1927 — og var einskonar próf- steinn á hinn verðandi Mennta- skóla Norðurlands. Síðan lágu leiðir til Hafnar, og þar lauk hann arkitektaprófi við konunglegu akademíuna árið 1935. Bárður réðst strax að námi loknu til frænda síns, Guðjóns Sámúelssonar, húsameistara rík- isins. Áhrifa Bárðar tók fljótt að gæta á hinni fáliðuðu teiknistofu ríkisins — og hlóðust brátt á hann verkefni, og jafnhliða varð hann G. S. hinn bezti samstarfs- og aðstoðarmaður við mörg hin mestu byggingaverkefni þess tíma. Nú þegar hann stendur á sex- tugu, getur hann horft yfir 30 ára árangursríkt starf að bygg- ingamálum landsins. Enginn maður annar, trúi ég hafi haft svo víðtæk áhrif á þró- un sjúkrahúsabygginga á íslandi — og engan veit ég annan eiga þar jafn stóran hlut. Nægir því til staðfestu að nefna uppbygg- ingu Landsspítalahverfisins, sem enn er megin verkefni Bárðar, — og sjúkrahúsið á Akureyri. Svipað er að segja um gagn- fræðaskólabyggingar. Þar mætti nefna Flensborg í Hafnarfirði og skólana í Vestmannaeyjum og á Akureyri. Á háskólalóðinni bera prófess- orabústaðirnir honum fagurt vitni, en það verkefni hlaut hann að lokinni samkeppni, þar sem hann fór með sigur af hólmi. Þá má nefna byggingu SÍBS í Reykjalundi og þannig mætti lengi rekja, og víst er um það að „skjólstæðingar" hans eru orðnir æði margir um allt ísland. Bárður er maður hávaðalaus og yfirlætislaus og svo heilsteypt- ur þó, hreinlyndur og óáreitinn í annars garð, að það liggur við að maður fagni því ef hann skipt ir skapi, eða á annan hátt bregð- ur af vana sínum. Enginn skyldi þó skilja orð mín svo, að hann sé fáskiptinn um annarra hag — eða sitji hjá þegar réttu máli er hallað; — þá andmælir hann af svo mikilli hægð og lagni að margir taka naumast eftir að hann beitir á- hrifaríkum fortölum. Margir bjuggust við, að Bárð- ur tæki við húsameistaraembætt- inu, þegar Einar Erlendsson lét af starfi, en þeim, sem bezt þekkja hann kom þó ekki mjög á óvart, þegar á daginn kom, að hann var ekki meðal þeirra er sóttu um embættið. Hlédrægni hans og lítillæti hafði hér um ráðið — eins og svo oft áður. Þessir eiginleikar hafa þó ekki dugað honum í félagsmálum arkitekta, þar hefir hann gegnt formannsstörfum og margháttuð- um trúnaðarstörfum frá fyrstu tíð. Sá, sem þessar línur ritar hef- ur átt því láni að fagna, að vera samvistum við Bárð á námsár- unum á Akureyri og í Kaup- mannahöfn, og að eiga hann að vini og samstarfsmanni um ára- tugi án þess að skugga bæri á, eða missætti henti, Bárður er kvæntur Unni, dótt- ur Arnórs heitins Guðmundsson- ar skrifstofustjóra Fiskifélags íslands og k. h. Margrétar Jóns- dóttur, og hefur þeim orðið þriggja barna auðið. Þau urðu að sjá á bak elzta barni sínu, Margréti og var það þeim þung reynsla. Sonur þeirra Leifur er í Menntaskóla og Finnur 12 ára. Þau Bárður og Unnur hafa bú- ið sér unaðslegt heimili, sem ber þeim báðum fagurt vitni, og segja mætti mér að margur sendi þeim hlýjan hug á þessum merkisdegi húsbóndans. Gunnlaugur Halldórsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.