Morgunblaðið - 21.10.1965, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.10.1965, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 21. október 196! island vanþrðað land í prentlist segir HalSdór Laxness nýkominn heim i i i i HALLDÓR Laxness er sem kunnugt er nýkominn heim af þingi evrópska rithöfunda- sambandsins, sem nýlega var haldið ' Rómaborg. Af þessu tilefni, svo og vegna þess, að Laxness hefur ávallt frá ýmsu fróðlegu og skemmtilegu að segja, fór fréttamaður blaðs- ins til fundar við hánn. — Hvert er markmið evr- ópska rithöfundasambandsins? — Markmið sambandsins er að' vinna að gagnkvæmri kynningu meðal evrópskra rit höfunda og nær félagsskapur- inn til allra Evrópuþjóða. — Hefur orðið vart við gagn rýni á einhverjar ákveðnar framúrstefnur á þingum sam- bandsins? — Nei, alls ekki, því við viljum hafa fuiltrúa fyrir sem allra flestar bókmenntastefn- ur innan okkar vébanda, og ræðum um þær af fullu um- burðarlyndi á ráðstefnunum. Þing þessa félagsskapar eru af ýmsu tagi; snemma í haust var haldið í Prag þing sem tileinkað var Kafka og tékk- neskum bókmenntum og fyrir skömmu var einnig haldið þing fyrir ritstjóra tímarita. Þetta nýafstaðna þing í Róm var svo einskonar allsherjar- þing. — Er yður kunnugt um að bækur yðar hafa verið notað- ar við íslenzkukennslu vestan hafs? — Já, bækur mínar hafa verið notaðar í þessum til- gangi í ýmsum stöðum vestra um nokkurt skeið, en ekki er mér kunnugt um það hverjar þeirra eru notaðar. Sjálfur hef ég lesið úr verkum mínum á segulband fyrir háskólann í Wisconsin. — Hvaða verki eruð þér að vinna að þessa stundina? — Ég er að vinna við leík- rit, sem ég vonast til að ljúka við einhverntíma á næsta ári. Annars hef ég of lítinn tíma til ritstarfa. Ýmiskonar full- trúastörf og félagsstarfsemi, eins og t.d .þetta þing í Róm, verður mér tímafrekt. Beiðn- um um ritgerðir rignir yfir mig og reyndar engin leið að sinna nema broti af þeim. Það er mikils krafist af einyrkjum eins og rithöfundar eru. Sum- ir lesendur vilja fá skáldsög- ur, aðrir vilja greinar um allt .milli himins og jarðar og enn aðrir heimta að ég skrifi um dægurþras. Það er engin leið að gera öllum til hæfis. í sam- bandi við félagsmál vil ég minnast á félag, sem nýstofn- að .er fyrir tilstilli franskra manna. Félag þetta hefur á stefnuskrá sinni að sameina fulltrúa fyrir smáþjóðir og þjóðarbrot, sem hafa sjálf- stæð tungumál og bókmennt- ir, en er haldið niðri; gefa út ritverk þeirra og hvetja við- komandi stjórnarvöld til að styðja þessar minnihlutamenn ingar; mikil hætta er á að þessar tungur og menningar deyi út. Félagsskapur eins og þessi á mikið verkefni fyrir höndum; sem dæmi vil ég nefna að" í Frakklandi einu eru um 20 milljónir manna, sem franskan er ekki arfgengið móðurmál; svipaða sögu er að segja um mörg önnur Evrópu- lönd. Mér hefur verið boðin þátttaka í þessum gagnlega fé lagsskap og vilja upphafs- menn hans gera mig að for- manni, ekki sízt af því Xs- lendingar eru einhvef fámenn asti minnihlutahópurinn, sem til er á sviði bókritunar í heiminum. — Berast yður ekki oft beiðnir um fyrirlestra? — Jú, en til þeirrar iðju hef ég engam tíma, það tekur mig um 4—6 vikur að vinna al- mennilega úr efni til fyrir- lestrar, og einyrki hefur ekki efni á að leika sér þannig með tímann. Þar að auki hef ég Þessi mynd af Laxness var tekin í gær. (Ljósm. Mbl.: Sv. Þ). engan áhuga á fyrirlestra- haldi og tel mig ekki hafa það tjáningameðal á valdi mínu. Sjálfur hlusta ég aldrei á fyr- irlestra nema tilneyddur: — Hafið þér kynnt yður hinn mikið umtalaða korta- fund? — Hið eina sem ég veit um það mál enn, er það sem ég hef lesið í blöðum. Einhvern- veginn sýnist mér þetta vera einhverskonar nýr'Kensington steinn. Að því er viðveik útgáfum á verkum hans erlendis, svar- aði Laxness því til, að bækur hans komi út jafnt og þétt á ýmsum málum, bæði frum- prentanir og endurprentanir. Að lokum sagði Laxness: — Fyrir skömmu las ég grein í erlendu blaði um prentlistarsýningu, sem ný- lega var haldin í Kaupmanna- höfn. Þess var getið að ísland væri ekki meðal þátttakenda. Þegar spurt var um ástæðuna fyrir fjarveru fslands, var sú skýring veitt, að ísland væri vanþróað land á sviði bóka- gerðar, því fslendingar kynnu hvorki að setja, prenta né binda bækur. Þegar' handritin i koma heim til fslands og farið verður að vihna úr þeim hér og gefa -c um þau fræðirit, eru íslendingar farnir að prenta vísindárit fyrir allan heiminn. Prentlist okkar er sem stendur ekki fær um að sinna þessum kröfum. jsj. OPIÐ BREF til dómsmálaráðherra Jóhanns Hafstein Reykjavík, 17. október 1965. Dámsmálaráðherra Jóhann Hafstein. ÉG ER yður þakklátur fyrir ávarp yðar í útvarpi í síðastlið- inni viku vegna hinna geigvæn- legu og sívaxandi umferðarslysa í landinu. Það hlaut að koma að því, að jafnvel æðsta mánni dóms og laga hlyti að ofbjóða, og þér er- uð hinn fyrsti dómsmálaráðherra, sem finnur sig knúinn til að ávarpa alþjóð, í tilefni af þessuin þjóðfélagsvanda. Þér segið í ávarpi yðar, að fhargt gott hafi verið lagt til þessara mála, en ljóst er, að betur má ef duga skal — og að því „skal stefnt". Mun það eiga að skilja sem loforð yðar, sem dómsmálaráðherra, og ,þér eigið skilið þökk alþjóðar, ef þér standið drengilega við það. Mér er ekki ljóst, að fyrirrennar- ar yðar í hinu háa embætti hafi yfirleitt hafizt neitt að í þessu máli, sem snertir öryggi lands- manna svo mjög. Þegar ég svo fyrir tveimur dögum, las ávarp yðar í „Vísi“, verð ég að viðurkenna, að mér fannst það veikara en skyldi. Aðeins bón um „að sýna hver öðrum tillitssemi í umferðinni“. En ekki minnzt einu orði á aðal- orsök allra bílslysa hér á landi: Hinn ofsalega drykkjuskap margra manna sem aka bílum. Hér eru drykkjusjúkir menn — alkohólistar — á öðru hverju strái, og ef þeir ná að komast í Ibíla, drukknir og setja þá í gang, þá er voði vís öllum, sem verða á vegi þeirra, líka öðrum þeim, sem sýna „kurteisi og tillitssemi" í umferðinni. Ofdrykkja er geysi- lega útbreidd hér á landi, sjúk- dómur af verstu tegund, mjög erfitt að lækna hann og sjúkling- arnir háskalegir fyrir umhverfi sitt. Þó eru þessir sjúklingar langháskalegastir, ef þeir kom- ast á bílum út í umferðina. Þá sýna þeir enga tillitssemi, og erú of mörg sorgleg dæmi héðan um það. Ég hef á síðastliðnum hálfum mánuði verið í námunda við tvö stórslys, sem urðu af völdum þessara vesalings alkohólista. Hið fyrra varð í Bændahöllinni, og það hafði nær kostað forstjóra Hótel Sögu lífið. Vesalingurinn, sem olli því, var út úr drukkinn og slangraði inn á hæð Búnaðar- félagsins, en var strax leiddur út þaðan. Andartaki síðar reyndi hótelstjórinn að losa húsið við manninn, sem þá brást hið versta við og steypti sér yfir handriðið og tókst að draga hótelstjórann, sem var að reyna að bjarga hon- um, með sér í fallinu, sem hæg- lega gat kostað báða lífið. Blaða- maður frá Morguriblaðinu sagði svo frá þessu morgunin eftir, að þetta hefði verið gestur á hótel- inu og hann hefði verið „eitthvað miður sín“. Um hitt slysið, á Langholts- veginum, get ég ekki rætt, þar sem það snerti mig og fjölskyldu mína djúp og af hlauzt þa,ð tjón, sem aldrei verður bætt. — Það mun hafa orðið orsök til þess að þér, dómsmálaráðherra, gáfuð út ávarp yðar til þjóðarinnar. Það virðist bersýnilegt, að um- ferðarlöggjöf landsins er orðin úrelt með öllu, enda víst upp- haflega miðuð við hægfara farar- tæki, en ekki við þann ofsahraða, sem einkennir umferð nútímans, á landi, sjó og í lofti. Þó væri máske ekki vonlaust, éf alltaf væri um allsgáða menn að ræða í umferðinni, en þegar vesalings drykkjumennirnir eru viða við stýrið í farartækjum, er ekki von að vel fari. Þér eruð nýlega tekinn við hinu háa og ábyrgðarmikla em- bætti yðar, og máske ekki von, að þér hafið enn kynnzt öllum vandamálum í umferðinni t.d. því hve almennt það er að ölvað- ir menn stjórni bifreiðum. Því sneri ég mér, eftir að slysið varð á Langholtsveginum, til lögregl- unnar hér í bæ og bað um upp-) lýsingar um, hve margir bílstjór- ar hefðu verið teknir fastir vegna ölvunar síðastliðin tvö ár. Því var greiðlega svarað. Árið 1964 voru 677 bílstjórar handteknir fyrir ölvun við akst- ur. Það sem af er þessu ári var 7. október, búið að handtaka 403 vegna þessa sama. Yður, dómsmálaráðhera, hlýt- ur að blöskra þessi tala^og þó má vafalaust hækka hana mikið hér í bæ, því lögreglan nær aldrei til allra, sem aka bílum ölvaðir. Frá öðrum kaupstöðum og sveitum er sama sagan, því drykkjuskapurinn er um allt land. Lögreglumenn eru víst flestir af vilja gerðir í að framkvæma 'Skyldu sína í umferðinni, en þeir eru oft lítils megnugir gagnvart þessu, og dag eftir dag eru geymslurnar fullar, þar sem þessir drykkjusjúklingar eru geymdir, unz af þeim rennur og þeim er sleppt út aftur, svo þeir geti á ný komizt á túr. Hafi ökuleyfi verið tekið af ölvuðum bílstjórum, líður oft ekki langur tími, áður en þeir labba upp í sakdómaraembættið eða ráðu- neytið til þess að ná í ökuskír- teini sitt aftur, og virðast ótrú- lega oft fá það fljótlega. Ég veit þess dæmi, að maður var tekinn fastur fyrir ölvun við akstur hér í Reykjavík fyrri part dags og seint að kvöldi sama dag var hann aftur tekinn drukkinn ak- andi bíl í næsta lögsagnarum- dæmi. í slíkum tilfellum verður lögregla og dómsvald að athlægi. Fyrir mörgum árum vissi ég, að flugmaður var tekinn fastur fyr- ir ölvun við akstur og sviptur ökuleyfi. En hann mátti fljúga eftir sem áður, því leyfissvipt- ingin náði aðeins til bifreiða- aksturs, en ekki til flugvélar. Hlutur blaðamanna og blaða er vesæll í þessum málum. Þeirra á að vera að skapa heilbrigt al- menningsálit gagnvart öllu, sem miður fer. í þessum málum, sem snýr að hinum ölvuðu bílstjór- um, er eins og blöð og blaðamenn haldi hlífiskildi yfir þeim, t.d. með því að birta aldrei nöfn þeirra, nema þegar afbrotin eru svo geigvænleg, að með engu móti verður hjá því komizt. Ekki veit ég, hvort þetta eru bein samtök blaðamanna, eða fyrir- skipanir til þeirra frá æðri stöð- um. Að birta nöfn þeirra, sem sviptir eru ökuleyfi vegna ölv- unar, er ekki aðeins sjálfsagður hlutur, heldur bæri einnig að skylda það embætti, sem með þessi mál fer, að auglýsa opin- berlega, þegar hinir dómfelldu fá ökuleyfi aftur. Það vekur ill- an grun, að þegar rannsókn Langholtsslysins var lokið í Sakadómi Reykjavíkur, og Morg- unblaðið óskar að fá nöfn sak- borninganna þriggja til birting- ár, þá er því neitað, og blaðið verður að fá „nöfn þeirra eftir öðrum leiðum“. Slík hlífð við afbretamenn vekur illan grun. Fulltrúi umferðardeildar bæjar verkfræðings, hr. Pétur Svejn- björnsson upplýsir, að ölvun og of hraður akstur, valdi 95% um- ferðaslysa. Öllum heilbrigðum mönnum ætti að vera ljóst, að það þarf að finna ráð til að fjarlægja þessa ofdrykkjumenn úr um- ferðinni, sem eru að flækjast þar fyrir, ýmist fótgangandi á hest- baki eða akandi bílum sínum. Stjórnendur vátryggingafélaga hafa tekið á sig nokkra rögg, því að vonum svíður þeim sárt hið mikla fjárhagslega tjón félaga sinna. Þeir stofnuðu til sýninga rétt eftir að Langholtsvegsslysið varð. Drápsvélarnar, slysabif- reiðarnar, voru fluttar á al- mannafæri. Án þess að ég hefði nokkra hugmynd um þá sýningu, lá leið mín þar um, þar sem bif- reiðin stóð, ötuð blóði náins lát- ins vandamanns og ættingja, en í kringum hana var forvitið fólk á öllum aldri, hlæjandi og fliss- andi. Hefur. mér ekki verið gerð meiri skapraun. Við sýningar- nefnd þessa hefði ég viljað segja: Gerið aldrei slíkt aftur. Slíkar sýningar hafa engin áhrif á þá, sem þeim er ætlað að verka á, en gætu haft hroðaleg áhrif á aðra, máske þá sem sízt skyldi. — Eftir blaðafregnum að dæma hefur ölvun við akstur sjaldan verið meiri en eftir að þessi „sýning“ var haldin. Einn daginn teknir níu alkohólistar úr umferðinni. Nær hefði stjórn- endum vátryggingarfélaganna verið að snúa sér til réttra aðila; Löggjafarvaldsins og yðar, til að knýja fram varnir gegn þessu ægilega böli, sem ég ræði hér um. Dómsmálaráðherra. Ég hef tekið nærri mér að skrifa yður 'þetta bréf. En mér fannst að ég yrði að gera það. Ekki eingöngu mín vegna, heldur einnig vegna allra annarra, sem eiga um sárt að binda vegna bifreiðaaksturs ölvaðra manna. Og þá ekki sízt vegna þeirra, sem lifa og eru í sífelldri hættu á götum og strætum. Aðgerðin gegn þessu þjóðar- böli verður að koma ofan frá, frá Alþingi — og frá yður. Það er von mín, að alþingismenn, sem nú eru nýkomnir til þings, gefi sér tíma til að lesa þetta bréf til enda. Fyrrverandi dóms- málaráðherrar virðast ekki hafa látið þessi mál neitt til sín taka. En nú hefir hin þunga ábyrgð, að tryggja líf og limi saklauss fólks gegn alkóhólistunum í um- ferðinni flutzt yfir á yðar ungu herðar, og það er von allra, að þér bognið ekki undan þyngsl- unum. Að síðustu endurtek ég þökk mína fyrir ávarp yðar, því~eg hygg, að þér séuð maður, sem ekki lætur sitja við orðin tóm. Ragnar Ásgeirsson. Benedik* Blöndal héraðsdómslögmaður Austurstræti 3. - Sími 10223. FELAGSHEIMILI Opið hús í kvöld Kynningarkvöld fyrir verzlunarfólk Gunnar Helgason mætir á funainum HEIMÐALLAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.