Morgunblaðið - 21.10.1965, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 21.10.1965, Blaðsíða 28
28 MO&GUMBLAÐIÐ Fimmtudagur 21. október 1965 Langt yfir skammt eftir Laurence Payne band um hálsinn, og hárið var vandlega greitt. Ef hún yrði dsemd- til að mæta augnaráði nágrannanna, ætlaði hún að minnsta kosti að gera það með fullum virðuleik. Allt í einu sagði hún: — Ég ætla að fara til hans bróður míns í Hampstead, dálítinn tíma. Ég vona, að það geri yður engin óþægindi? Ég kinkaði kolli. — Það þætti mér mesta ráð. Ef þér viljið bara gefa mér heimilisfangið, ef við þyrftum að hafa samband við yður. Að minnsta kosti þarf að ná í yður í sambandi við réttarhaldið. Hún sneri sér hægt frá glugg- anum og settist á stól gegnt mér. Henni hafði ekki tekizt eins vel með andlitið á sér og klæðaburðinn. Hún var föl org tekin, og illa lögð málning gerði ekki nema illt verra. Dökku skuggarnir undir augunum og svarta strikið kring um ofmál- aðar varnirnar gerðu útlit henn- ar eitthvað óraunverulegt. — Gerið svo vel að fá yður sæti, fulltrúiv Afsakið. Ég settist á röndina á hörð- um stól og kom hattinum mín- um fyrir á borði skammt frá. — Kannski þér vilduð svara fáeinum spurningum? Hún yppti öxlum og starði á vasaklútinn, — Þekkti David Dane dóttur yðar? — Hvaða Dayid? — Dane.... sjónvarpsleikar- inn. — Nú ungi maðurinn í næsta húsi? Hún fór þangað oft í boð, skilst mér. -tt Hann var hérna áðan. — Það var bara til að votta saipúð. Henni þótti svo vænt um litla hundinn hans. Tárin, sem komu í augu hennar ýttu á mig að flýta mér. — Þér segið, að hann eigi heima hérna í næsta húsi? — Já, í hornhúsinu. Hann hef ur íbúð þar. — Hefur nokkur annar haft samband við yður í morgun? — Bara blaðamenn — og Al- bert hringdi til þess að vita, hvernig mér liði. Nú kom að mér að ganga út að glugganum. Gatan var nú □---------------------------n 6 □---------------------------n manntóm, og ég gat séð, að Saunders var að skrafa við lög- regluþjóninn. Hann var nú bú- inn að setja upp hattinn. Hreyf- ingar hans voru eitthvað dul- arfullar. — Frú Twist, sagði ég í til- raunaskyni. — Þér áttuð einu sinni heima í Aylesbury? Ég gat merkt, að hún varð eitthvað óróleg enda þótt hún hefði góða stjórn á sér. — Stendur heima. Fyrir mörg um árum. Ég vissi, að ég var kominn út á hálan ís. — Mér skilst, að þar hafi ver- ið eitthvert óstand með dóttur yðar. Ég sneri mér nú og leit á hana. Hún hélt vasaklútnum fast upp að múnninum, og augna ráðið eins og öskraði á mig að halda 'ekki áfram. En ég lét það ekki á mig fá. — Eignaðist hún barn? Augun lokuðust og hún skalf öll. Ég gekk skref áfram. — Trúið mér, að þetta er ekki af forvitni spurt, en það gæti ver- i ið mikilvægt að vita það í sam- bandi við málið. Eignaðst hún barn? Hún hristi höfuðið, ósjálfrátt eins og liðabrúða. — Það er allt gleymt og graf- ið nú orðið. — Og verður áfram, fullviss- aði ég hana. Köddin í henni var ekki nema hvísl. — Ég varð hrædd. Húij var svo ung. Við ... losnuðum við það. Ég veit, að það var rangt, en ég var svo hrædd.... um hana. Hún leit á mig. — Þér megið ekki segja blöðunum það .... ég gæti ekki þolað það. Hún er nú farin og hverju skiptir það þá nokkurn m^nn? En það er einmitt svona blaðamatur, sem þeir eru að sækjast eftir. — Þeir skulu aldrei fá að vita það frá okkur. En þér skilj- ið, að okkur er áríðandi að vita það. Ég hikaði. — Gætuð þér sagt mér, hver faðirinn var? Svipurinn á henni harðnaði og hrukkurnar við munnvikin dýpkuðu. — Ég fékk aldrei að vita það. Og langaði heldur ekki til þess. Ég horfði rannsakandi á hana, andartak. — Afsakið, að ég segi það ... en svona viðbrögð af hendi móð ur eru óvenjuleg. Ég hefði hald- ið, að þér hefðuð gjarna viljað, að sökudólgurinn hefði fengið makleg málagjöld. Hún tók því fjarri. — Og láta um leið koma upp um Úrsúlu? Nei, það var nú hlutur, sem mig langaði ekki að láta grenja um stræti og torg. Skaðinn var skeður. Þetta var orðið nægi- lega leiðinlegt og ekki við bæt- andi. Það eina, sem hægt var að gera, var að koma sér burt, og það gerðum við líka. — Það er nú hugsanlegt, að maðurinn hefði reynzt henni vel. Kannski hefði hann gengið að eiga hana? Þetta var nú óþarflega til- finningasemi, enda tók hún því fjarri. Hún glennti upp aug- un. — Giftast sextán ára stúlku? Hún var ekki nema sextán ára. Hún var enn í skóla! Ég tók þessu án frekari at- hugasemda og gekk fram og aft- ur um gólfið, en stanzaði að lok um við arininn, þar sem ég fór að horfa á útskorinn skrautgrip úr tré, sem var á arinhillunni. Ég dró andann djúpt. — Haldið þér... sagði ég hik- andi... — haldið þér, að hún hafi sjálf vitað, hver faðarinn var? Það var eins og allur heimur- inn væri hættur að draga and- ann; ég gat heyrt, að armbands- úrið mitt hafði eins hátt og sjálfur Big Ben, en úti fyrir gelti hundur stanzlaust. Þegar hún svaraði, var röddin svo lág, að ég efaðist um, að hún hefði nokkuð sagt. — Hvað eigið þér við með því? — Frú Twist, sagði ég aum- ingjalega, — þér verðið að, gera yður Ijóst, að ég veit talsvert um feril dóttur yðar. Veit meira að segja miklu meira um þetta tímabil ævi hennar en það síð- ara. Ég fékk að vita það fyrir hreina tilviljun og ég fullvissa yður um, að eftir þetta viðtal okkar verður það ekki nefnt á nafn. Hún reis upp úr sæti sníu og állur líkaminn var eins og stjarf ur af reiði. — Nú, það er þessi kennslu- kona, eða hvað? Enginn annar hefði getað sagt yður frá þessu. — Ég er hræddur um, að ég megi ekki skýra frá heimildum mínum. — Það vissi þetta enginn nema hún. Til hvers þurfti hún að vera að sletta sér fram í þetta? Hún bar út allskonar ljót ar sögur um Úrsúlu — lygasög- ur allt saman! Þér verðið að trúa því. Hvernig gæti stúlka á hennar aldri gert neitt svo ljótt? Hún var fullkomlega venjuleg og eðlileg stúlka, en var afvegaleidd...... — Hver gerði það? — Það veit ég ekki. Og hvaða máli skiptir það nú? Hvaða gagn er í þessu öllu? Róta upp því, sem er löngu liðið og gleymt og grafið, og engin man lengur nema ég ein. Ég lagði hönd á handlegg henni til að stilla hana. — Þessi maður hver svo sem hann er, gæti enn verið atriði í lífi dótt- ur yðar ... og líka dauða. Það hljótið þér að skilja. Ef hægt er að finna hann, munum við að minnsta kosti gera það, sem við getum til þess. Ég þagnaði en hélt síðan áfram og vó orðin: — Frú Twist, þó að það kosti það, að óróa yður frekar, þá er ein spurning, sem ég verð að leggja fyrir yður: Hvað er til í því að dóttir yðar hafi verið .... lauslát? Sem snöggvast hélt ég, að hún ætlaði að berja mig, svo mjög blossaði reiðin upp í augnaráði hennar, en loksins þegar hún fékk málið, skalf röddin, rétt eins og hún væri að fá tauga- áfall. — Ég er móðir og einkadótt- ir mín er nýfallin fyrir nendi morðingja .... undir mínu eigin þaki! Ég ætla ekki að hlusta á meira, skiljið þér það? Hún skalf öll og gerði árangurslausar tilraunir til að stilla sig. — Lát- ið þér' mig í friði . . . Kannski seinna, en bara ekki núna! Ég tók upp hattinn minn og ' sneri til dyra, en stanzaði á þröskuldinum. Er yður sama þó að við förum -upp? spurði ég rólega. Hún hristi höfuðið. Ég reyndi aftur. — Viljið þér að við útvegam yður bíl til að komast út í Hampstead? — Bróðir minn kemur í sín- um bíl seinnipartinn, þakka yð- ur fyrir. Ég lokaði dyrunum á eftir mér. Fötin límdust við mig. Ég hefði eins vel getað hafa verið í tyrknesku baði allan fyrri- part dagsins. Gegn um opnar dyrnar athugaði ég rólegan svip inn á Saunders og ofurlitið sjalfs traust kom upp í mér afttfr. Hann sneri sér við og sá mig. — Allt í lagi? Glottið, sem ég sendi honum, var álíka snúið og tappatogari. — Mér líður ágætlega, sagði ég, — nema hvað ég vildi óska, að ég væri steindauður. Hann elti mig þegjandi upp í herbei'gi Úrsúlu, og við horfð- um báðir á það í kaldri dags- birtunni. Allt var í sömu skorð- um og við höfðum skilið við það, krukluð ábreiðan á rúm- inu, blóðið á gólfábreiðunni - og loftið var það sama. Ég hratt upp' glugganum og horfði á út- sýnið hálfblindum augum. Beint á móti var eitt af þessum nýju leiguhúsum sem gáfu til kynna, að allir menn væru jafningjar. Ég fylltist viðbjóði. Ég sneri mér aftur að her- berginu. Lítil kommóða við vegginn, sem fjarst var, dró að sér athygli mína, því að silki- sokkur hékk út úr einni skúff- unni. Ég reif hana upp. Ég bölv- aði í hljóði. Þarna hafði heill her manns verið á undan mér. Og sama var að segja um hinar skúffurnar. Ég ýtti aftur hurð- inni í fataskápnum. Kruklaður kjóll rann niður af herðatrénu sínu, og þvaga af skórh og hand- töskum var um allt gólfið. Ég stökk fram að dyrum og öskraði á lögregluþjóninn, sem verið hafði þarna á verði. Hann kom hlaupandi. — Hver hefur verið hér inni? — Enginn. Ég hef verið hér í allan morgun. — Síðan hvenær? — Klukkan átta. Ég tók við af Burns. — Og hann var hér í alla nótt? — Að því ég bezt veit. Hann leit framhjá mér. — Glugginn er opinn, sagði hannn. — Ég opnaði hann. Ég gekk inn í baðherbergið, en glugginn þar var rammlæst- ur, svo að ekkert stærra en lít- ill maur hefði getað komizt þar inn. Ég sneri mér að Saunders. — Læstir þú þessu herbergi í nótt? — Nei, það var enginn lykill til að því... þess vegna skildi ég Burns hér eftir á verði. Frú Twist ætlaði að útvega honum bedda. hérna fram á ganginn. Ég sendi lögreglu’þjóninn burt og eftir hávaðanum að dæma hefur hann oltið niður allan stigann. — Fari þetta allt til fjandans! öskraði ég. — Þurfti nú þetta að koma fyrir? Hver gat kom- izt hingað inn óséður? — En gamla konan? sagði Saunders. — Vertu nú vænn og hlauptu niður og spurðu hana. Og . . . ég stöðvaði hann við dyrnar....... — fullvissaðu þig um, að hún segi þér satt. Ég stikaði um svefnherbergið, hengdi kjólinn upp aftur og lag- aði ofurlítið til. Hver sem hafði verið þarna, hafði verið svo sem hálfa mínútu að verki. Ég gat ekki trúað því, að hann hefði fundið það, sem hann leit- aði að — við höfum þegar farið vandlega gegn um það og ekki fundið neitt, sem sjálf Viktoría drottning hefði getað hneyksl- azt á, nema byssuna og eina iiæl onsokka, sem eins og héngu við fingurna á mér. En ég gat nú ekki vitað, að hverju hann hefði verið að leita, eða hvað? Ég hélt áfram inn í baðherbergið. Þar virtist ekkert hafa verið fært úr lagi. Ég teygði mig út um gluggann og sá þá að blóma beðið var bælt í miðjunni, þar sem einhver hafði stokkið nið- ur í það. Ég fann, að einhver augu horfðu á mig og er ég leit upp, var þarna komin konan í bað- herberginu á móti, sem horfði á mig í riiestu rólegheitum. — Góðan daginn! kallaði ég, kurteislega. Hún fitjaði upp á trýnið eins og hrædd kanína og ætlaði að forða sér í flýti. — Afsakið andartak, æpti ég. —. Farið þér ekki burt. Ég er lög- reglumaður, og vildi leggja fyr- ir yður nokkrar spurningar. Hún var sveipuð í purpura- rauðan slopp úr súki, með hræðilegum kraga á. Hún hélt að sér frunsukraganum og leit kringum sig, til þess að sjá, hvort nokkur væri að gægjast. (VÖRUORVAL.) HANDABURÐUi ORVALSVÖRUR Ö. JOHNSON & KAABER HF.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.