Morgunblaðið - 11.11.1965, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 11. nóv. 1965
MOHGU N BLAÐIÐ
5
,,/Evisagan er búin7/
,,VH) erum búin að þekkjast
lengi og höfum verið góðir
vinir. Við erum svo sem
ekkert að flana að þessu."
Það ér skáldið Kristmann
Guðmundsson sem talar,
þegar blaðamaður og ljós-
myndari heimsótti hann og
hina nýju konu hans í íbúð
þeirra að Tómasarhaga 9, en
þetta er 9. kona hans, eins og
kunnugt er.
Ungu hjónin ljómuðu af
hamingju í vistlegri íbúðinni,
og eftir að við höfðum óskað
þeim til hamingju, leyfðum
við okkur að spyrja þau
nokkurra spurninga, og beind
um taii ókkar að 'frúnni
fyrst.
„Hvað eruð þér gömul og
hvar eruð þér fæddar frú
Hólmfríður?"
„Ég er 27 ára og fædd á
ísafirði, úóttir Mariasar Þor-
valdssonar. Ég fluttist til Hafn
arfjarðar 13 ára gömul, og
heiti fullu nafni Hólmfríður
Hulda. í stuttu máli sagt er ég
mjög hamingjusöm og lít
björtum augum á lífið, og til-
veruna“.
Og brosið í augum þessarar
föngulegu konu leyndi ekki
sannleika orða hennar, og með
það snúum við okkur til
Kristmanns.
„Ætlið þér að halda áfram
að skrifa ævisöguna?“
Skáldið litur á okkur stór-
um augum og segir:
„Ævisöguna? Nei, ævisagan
er búin.
Hvort ég eigi metið á ís-
landi í hjónaböndum? Tja,
ég veit ekki, hef ekkert kapp
lagt á að afla mér upplýs-
inga um það, en mér er sagt,
að einhver prestur hafi
kvænzt 7 eða 8 sinnum. Ég
á miklu barnaláni að fagna.
Ég á 4 dætur, sem allar eru
góðir vinir og góðar systur,
þótt' sumar séu reyndar ekki
nema hálfir íslendingar.
Það er óhætt að segja, að
ég sé mjög hamingjusamur
núna“, og um leið brosir hann
til hinnar ungu konu sinnar.
„Annars er að koma út bók
eftir mig hjá Bókfellsútgáf-
unni, hún kemur raunar út
núna fyrir helgi. Bókin er
rúmar 200 þéttprentaðar síð-
ur og heitir TORGIÐ. Þetta
er nýtízkuleg skáldsaga úr
Reykjavíkurlífinu. Ég er sjálf
ur gamall Reykvíkingur og
hef undanfarið átt heima hér,
gjörþekki Reykjavíkurlífið,
hef „studerað" það ofan í kjöl
inn. Það er svo sem. margur
bletturinn á borgarlífinu, þó
sérstaklega drykkjusýki
ýmissa manna, henni hef ég
kynnzt í mörgum myndum.
Svona á milli eiginkvenna hjá
mér, þá hafa ýmsir menn vilj-
að heimsækja mig, líklega í og
með til að hafa ofan af fyrir
mér, en margir til að rekja
harma sína. Ég hef þá oftast
vísað þeim til séra Arelíusar.
Ég er enginn prestur.
Svo að við víkjum að
bókinni, Torginu, þá er aðal-
persónan í henni fráskilinn
listmálari, og það koma fjöl-
margar persónur við sögu,
mennirnir, sem fráskildir leita
á vit vínstúknanna í borg-
inni, ýmist til að létta á ein-
manaleika sínum, nú eða þá
til að leita að maká, stund-
um aðeins skyndimaka.
Persónurnar í bókinni styðj
ast ekki við raunverulegar
fyrirmyridir utan ein, og það
er Vilhjálmur sálugi frá Ská-
holti. Sá maður átti marga
góða kosti, og sumar ljóðlín-
ur hans eru ógleymanlegar“.
Við vildum nú ekki trufla
nýgiftu hjónin öllu lengur,
óskuðum þeim enn á ný til
hamingju, kvöddum og fór-
um. Myndin, sem fylgir lín-
um þessum er tekin af Sveini
Þormóðssyni í gær af hjón-
unum á heimili þeirra.
Fr. S.
,V/ð erum svo sem ekkert
að flana að þessu"
Vísukorn
M O R G U N N
Hefur gang sinn glóey hlý,
gyllir drang og ögur.
Brekkuvanga bröttum í
blómin anga fögur.
Jóhann Ólafsson.
Akranesferðir: SérleyfisbifreiSlr
b.b.Þ. Frá Reykjavfk alla daga kl.
8:30 frá BSÍ og ki. 6:30 frá BSR,
nema laugardaga kl. 2 frá BSR.
eunnudaga kl. 9 e.h. frá BSR og 11:30
frá BSÍ. Frá Akranesi: kl. 8 og 12
alla daga nema laugardaga kl. 8 og
aunnudaga kl. 3 og 6.
Hafskip hf: Langá er í Kaupmanna-
höfn. Laxá er i hamborg. Rangá er 1
Kvík. Selá fer frá SeySisfirði í dag til
Antwerpen. Tjamme er á leiS til
SeyðisfjarSar. Frigo Prince fór frá
Gautaborg, 10. þ.m. til Rvikur. Sigrid
S fór frá Seyðisfirði 10. þ.m. til Turku.
Skipadeild S.Í.S.: Arnarfell fór 8.
nóv. frá Borgarnesi til Gluceater.
JökulfeU fór i gær frá Keflavik til
Camden. Disarfell fer væntanlega í
dag frá Belfast til I.ondon og Ant-
werpen. Litlafell fór í gær frá Rvík
til Siglufjarðar og Akureyrar. Helga-
fell fór í gær frá Fáskrúðsfirði tU
Finnlands. Hamrafell fór i gær frá
Hafnanfirði tU Kanaríeyja. Lissabon
og Rotterdam. StapafeU fór i gær
frá Rvik til Austfjarða. Mælifell er
væntanlegt tU Bordeaux 13. frá Arc-
hangelsk.
Skipaútgerð rikisins: Hekla er á
Norðurlandshöfnum á vesturleið. Esja
var á Bíldudal í gær á norðurleið.
Herjólfur fer frá Vestmannaeyjum 1
dag til Hornafjarðar. Skjaldbreið kom
tU Bakkafjarðar um hádegi í gær á
norðurleið. Herðubreið er I Rvík.
Þróttur fer til Snæfellsness- og Breiða
fjarðarhafna í dag.
Flugfélag íslands hf. Millilandaflug:
Sólfaxi er yæntanlegur til Rvíkur kl.
16:00 i dag. Frá Kaupmannahöfn og
Glasgow. Innanlandsf lug: í dag er
áærtlað að fljúga tii Akureyrar (2 ferð
ir), Egilsstaða, Vestmannaeyja Sauð-
árkróks, Húsavíkur, Þórshafnar og
Kópaskers.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f. —
Katla er i Rotterdam. Askja fer frá
Gautaborg í dag áleiðis tU Kristian-
sands.
Hf. Jöklar: Drangjökull fór í gær i
frá Felixstowe Ul Rotterdam. Hofs- j
jökuU lestar í Dublin. Langjökull fer
frá London á morgun til Belfast.
Vatnajökull lestar í Hamborg.
KAUPMANNASAMTÖK
ÍSLANDS
KVÖLDÞJÓNUSTA
VERZLANA
Vikuna 8. nóv. til 12. nóv.:
Kjörbúðin Laugarness, Dalbraut 3.
Verzlunin Bjarmaland, * Laugarnes-
vegi 89. Verzlunin Vegur, Framnes-
vegi 5. Verzlunin Svalbarði, Framnes-
vegi 44. Verzlun Halla Þórarins h.f„
Vesturgötu 17a. Verzlunin Pétur
Kristjánsson s.f., Ásvallagötu 19.
S0ebechsverzlun, Miðbæ Háaleitis-
braut 58—60. Aðalkjör, Grensásvegi
48. Verzlun Halla Þórarins h.f., Hverf-
isgötu 39. Ávaxtabúðin, Óðinsgötu 5.
Straumnes, Nesvegi 33. Bæjarbúðin,
Nesvegi 33. Silli & Valdi, Austur-
stræti 17. Silli & Valdi, Laugavegi 82
Verzlunin Suðurlandsbraut 100.
Kaupfélag Rvíkur og nágrennis: Kron
Barmahlíð 4. Kron, Grettisgötu 46.
sá N/EST bezti
Guðni bóndi hafði keypt eyðikot, sem komið var í fulla órækt,
en kom því á fáum árum í ágæta rækt.
Sóknarþresturinn heimsótti eitt sinn Guðna, dáðist að umlbótum
hans og sagði:
„Mikið hefur þér tekizt, Guðni minn, með guðs sjálp að endur-
bæta jörðina þina“.
Þá sagði Guðni:
„Já, þú hefðir bara átt að sjá kotið, meðan guð var einn um
endurbæturnar.“
Eggert ísaksson
HÁDEGISVERÐARFUIMDIJR
verður haldinn laugardaginn 13. þessa mánaðar.
Eggert ísaksson bæjarfulltrúi flytur
eríndi um HAFNARMÁL.
Allt sjálfstæðisfólk velkomið.
Skrífstofuhúsnæði
til leigu í Austurstræti 17 III. (Silla & Valda-húsið)
Upplýsingar gefur:
EINAR SIGURÐSSON
Sími 21400 — 16661.
Sætavísur óskast
Upplýsingar á skrifstofu
Háskólabíó
il sölu
RAMBLER Americari ’64, sem nýr einkabíll.
RAMBLER Classic ’63, 2ja dyra, sjálfskiptur.
Ekinn aðeins 26 þúsund km. Skifti á eldri bílum.
Bílarnir eru til sýnis á staðnum.
Bíla- og búvélasalan
við Miklatorg. — Sími 2-31-36.
Röskur, ábyggilegur piltur eða stúlka
óskast til
afgreiðslustarfa
strax. Upplýsingar (ekki í síma) í
Álfheimabúðinni
Álfheimum 4.
N auðungaruppboð
Nauðungaruppboð á Buick bifreiðinni R-13603 fer
fram við Félagsheimili Kópavogs í dag, fimmtudag-
inn 11. nóvember 1965 kl. 15 samkvæmt kröfu dr.
Hafþórs Guðmundssonar, hdl. til lúkningar haldrétt
arkröfu. — Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Skurðgrafa til sölu
Skurðgrafa Fuchs 301 til sölu. Vélin er rúmlega árs-
gömul í góðu ástandi. —- 9 m. bóma fylgir.
Einnig Bacho grafskófla, ámokstursskófla og
dragskófla.
Skip & fasteignir
• Austurstræti 12 — Sími 21735
Eftir lokun 36329.