Morgunblaðið - 11.11.1965, Síða 26
28
MORGUNBLADIÐ
Flmmtudagur 11. nóv. 1963
Verður gripið til þess ráðs að
draga allar leiktafir frá?
ÞÓ að knattspyrnukappleikir
standi að nafninu til í 90 mínút-
ur, fá áhorfendur í raun og
veru aðeins að sjá raunverulega
knattspyrnukeppni í 60 mínútur
í mesta lagi Þannig segir í grein
í riti enskra dómara „Knatt-
spyrndómarinn" sem enska
knattspyrnusambandið gefur út.
/
★ Rannsóknir
1 greininni er svo frá skýrt að
gerðar hafi verið athuganir á
því með sérstökum skeiðklukk-
um hve lengi sjálfur leikurinn
standi yfir og hafi athuganir
verið gerðar á þremur „vígvöll-
um“ í leik í 1. deild, í leik í 3.
deild og loks í leik unglingaliða.
Niðurstöður
Niðurstöðurnar urðu þær að
í 1. deildar leiknum fóru 38 mín.
og 13 sekúndur í alls kyns leik-
Hljóp á
móti héra
— og náði betrí
tíma en
heimsmetið
FRANSKI hlauparinn Michael
Jazy náði í gær bezta tíma
heims í 1000 m hlaupi innan-
húss. Hljóp hann á 2:21.4 mín.
í hlaupi sem komið var á fyrir
franska sjónvarpið.
Ekki er hægt að skrá afrek-
ið sem met innanhúss vegna
þess að einasti „keppinautur"
Jazys í hlaupinu var „héri“.
Jazy á hið óopinbera heims-
met sem er 2:21.6 mín. Xil að
heimsmct fáist viðurkennt
verða minnst 3 þátttakendur
að vera í keppninni.
tafir, aukaspyrnur innköst o. fl.
í miðlungsdeildinni töpuðust
40 mín. og 44 sekúndur af leik-
tafirnar og í unglingaleiknum
fóru 30 mín. og 43 sek. í tafirnar.
í greininni er fjallað um leik-
tafirnar og ráð til úrbóta og nið-
urstó'ður bollalegginganna eru
þær að nauðsynlegt sé orðið að
taka upp samskonar fyrirkomu-
lag og er í íshokkí, sundknatt-
leik og körfuknattleik að „tíma-
klukka“ leiksins sé stöðvuð í
hvert sinn er leiktöf verður.
Hægt er farið í spádóma um úrslit
í keppni Clav og Patterson
en Joe Louis virðist hafa
meiri trú á Patterson
K E P P NI þeirra Cassiusar
Clay og Ployd Pattersons um
heimsmeistainatign í þungavigt
í hnefaleikiuim er nú á næsitu
grösium. Leikurinin fer fram í
Las Vegas 22. nóv. n.k. og eru
sérfróðir og leikimenn farnir
að boilaleggja um úrslit og
vega og meta kosti og gaUa
keppendanna.
AP-fréttastofan hefur feng-
ið Joe Louis, sem hélt heims-
meistaraitign lengur em nokk-
ur annar, til að segja sínar
skoðanir á keppendum. *í
fyrstu grein hans af 5 samn-
ingsibundnum segir Louis
m.a.:
„Það er lain.gt síðan a ð tveir
menn hafa mætzt í hnefa-
leikahring, sem eru svo álika
miklum hæfileikium búnir til
•hnefaleika.
i>etta eru menn með óilik-
ain baráttustíl. Clay er
sneggri og treystir fremur á
mistök andstæðingsins en á
eiginhæfileika til að brjóta
vörn hans. Patterson er traust
ur í keppnf og hefur ómetan-
lega reynslu.
Cassius Clay féfll eitt simn
í rot fyrir vinstri hamdar
„húkki“ frá Henry Cooper.
Það eru einmitt beztu hö.gg
Pattersons og þau sem hann
leitar mest eftir. Ég minnist
ekki á Sonny Liston og leikir
Clays og Pattersans við hanin.
Þar er ekkeri af að læra.
Patterson á einnig sitt leyni
vopn. Ef hann setur sér eitt-
hvert markmið í fnllri alvöru
og einlægni er hann mamna
líklegastur til áð ná því. Hann
heíur alveg sérstakan áhuga
á Clay — að vinna Clay. Við
það bætist að hann hefur hug
og .hjarta ailis þorra atoienn-
ings á bak við sig til að ná
því marki. Og slikur stuðn-
ingur hefur mikið að segja í
keppni. Ég þekki það af bit-
urri reynslu frá mín>um ferli,
sagði Joe Louis.
En svo eru aðrir sem ræða
um leikinn frá ýms.um öðr-
um sjónarmiðium en aðeiins
þeim að ræða um kosti og
gaila keppendanna. Hinn
frægi fyrrv. heiimsimeistari,
Gene Tunney, sa,gði í Berlín á
dögunum í viðtali, að nú væri
svo komið að annað hvort
yrði að hreinsa til innan vé-
banda atvinnuhnefaleikanna
í* Bandaríkjunum eða banna
hnefaleika atvinnumannar
Tunney, sem vann heimstitil-
inn af Jack Dempsey 1926,
kom til Berlínar og ávarpaði
blaðamenn á flugvellinum, en
þar tók Max Sohmeling fyrr-
um heimsmeistari á fnóti hen-
um. Talið barst því að leikn-
um 22. nóv. Tunney sagði:
,,Ég held að aivinmuhnefaleik
ar hafi aldrei verið jafnlélegir
og nú og ég held að leikur
þeirra Clay og Pattersons
verði ekki til að toæta þar
um. Patterson hefur tekið
þátt í alltof möirgum lélegum
leikjum undanfarin áratug og
verið sdeginin í gólfið einhvern
tíma í öllum leikjunum. Hann
þolir ekkert högg.“ Tunney
lýsti Clay sem góðum og
snöggum hnefaleikara, sem
hefði þó ekki mikla hæfileika.
Max Sohmeling kvaðst
vonast eftir góðri keppni og
heiðarlegium leik.
Tunney var spurður frekar
um hvað hann ætti við með
„hreinsum“ innan atvinnu-
hnefaleikanma og svaraði.
„Það eru ekki keppendum-
ir sjálfir sem setja blett á
íþróttina. En það eru þeir sem
eigna sér keppendurna í eigin
ágóðaskymi — lýðuxinin sem
■braskar fram og til baka með
fé í ágóðavom við hvem kapp-
leik. Við þurium að losna við
þessi óæskileg.u eiement og
hefja hnefaleika ti'l þess er
þeir voru fyrir 20-30 árum og
þaðan af fyrr.“
30-40 mín. fara í leik-
tafir í knattspyrnuleik
Bœndaglíma og flagga-
keppni hjá Colfkl. Ness
Sennilega hægf oð nofa völl
klúbbsins vetrarlangf
ÞANN 6. okt. síðastl. fór fram
Flaggakeppni á golfvelli Golf-
klúbbs Ness og tóku þátt í henni
19 golfleikarar.
Flaggakeppni er leikin þannig,
að hverjum keppanda er fengið
flagg og gefin 35 högg auk for-
gjafar, til þess að íeika 9 holurn-
ar. Þar sem boltinn nemur stað-
ar, þegar síðasta högg er slegið,
setur keppandi niður flagg sitt.
Sá er' lengst kemst á þessum
gefna höggafjölda, sigrar.
Keppnin var skemmtileg og
spennandi og lauk svo, að Sveinn
Eiríksson, slökkviliðsstjóri, sigr-
aði. Komst hann á 9. flöt, rúman
uneter frá holu. Næstir honum
urðu Pétur Björnsson og Jóhann
Guðmundsson, komust einnig á
9. flöt, en lágu fjær holu.
Völlurinn var í'mjög góðu lagi,
og þykir einstakt að mögulegt
skuli vera að halda golfkeppni
svo síðla hausts og spáir það
mjög góðu um fyrirhugaða vetr-
arstarfsemi klúbbsins.
BÆNDAGLÍMA
Hinn 2. okt. héldu Golfklúbb-
ur Ness og Golfklúbbur Suður-
nesja sameiginlega bændaglímu
á golfvellinum á Seltjarnarnesi.
54 meðlimir frá báðum klúbbun-
um tóku þátt í henni og var þeim
skipt í tvo jafna flokka og gefið
nöfnin JÖTNAR og ÆSIR.
Klúbbarnir áætla að halda i fram
tíðinni glímuna sameiginlega og
er þetta fyrsta árið sem hún er
haldin. Næsta ár mun hún fara
fram á golfvelli Suðurnesja.
Bændur voru að þessn sinni
valdir formenn klúbbanna, Ás-
grímur Ragnars, form. Suður-
nesjaklúbbsins og Pétur Björns-
son, formaður Nesklúbbsins. —
Bændurnir vörpuðu hlutkesti um
flokkana og komu Æsir í hlut
Ásgríms en Jötnar í hlut Péturs.
„Glímt“ var fram eftir degi,
valt á ýmsu og mátti ekki í
millum sjá. Fór svo að lokum,
er rökkva tók að degi, að Jötnar
náðu yfirtökunum og sigruðu
Æsi með tveim vinningum.
Lauk þannig einni fjölmenn-
ustu og skemmtilegustu golf-
keppni, er haldin hefir verið á
Nesvellinum
Evrópubik-
ararnir
Italska liðið Milan komst
s.l. sunnudag í 2. umferð
„borgakeppni" Evrópu í
knattspyrnu. Liðið mætti
Racing frá Strassbourg. Liðin
stóðu jöfn að mörkum eftir
tvo leiki og í aukaléik með
2x15 mín. framlengingu varð
einnig jafntefli 1—1. Hlutkesti
réði því hvort liðið héldi
áfram í keppninni — og Milan
vann hlutkestið.
Hannover ”96“ sigraði FC
Porto frá Portúgal 5—0 í
Hannover í gærkvöldi. Þetta
var fyrri leikur liðanna i 1.
umferð „borgakeppni Ev-
rópu“.
Levski (Búlgaríu) og Bene-
fica skildu jöfn, 2 mörk gegn
2, í fyrri leik liðanna í 2. um-
ferð í keppninni um Evrópu-
bikar meistaraliða. Leikur .*n
fór fram í Sofía.
Borroussia (Dortmund) sigr
aði búlgarska liðið Amgivof
með 3—0 í Dortmund í gær-
kvöldi. Þetta var fyrri leikur
liðanna í 2. umferð í keppn-
inni nm Evrópubikar bikar-
meistara.
Fimmta skdkin
fór í bið
ÞEIR Boris Spassky og Mikhail
Tal tefldu í dag fimmtu ein-
vígisskáik sína um áskorunar-
réttinn á heimsmeistarann i
skák. Fór skákin í bið og verð-
ur hún tefld áfram á morgun,
11. nóv. Leikar standa því nú
þannig, að hvor keppendanna
um sig hefur tvo vinninga og
eina biðskák.