Morgunblaðið - 15.01.1966, Side 10

Morgunblaðið - 15.01.1966, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 15. janúar 1966 Umferð og slysahœtta Brýna nauðsyn ber til þess, að ökumenn virði merktar gangbrautir, og aki ekki framhjá stöðvuðum bíl Suðurlandsbrautin er mikil umferðarbraut. Strætisvagnar á austurleið stanza á norðurhlið hennar, og farþegar, sem eiga heima handan brautarinnar verða að komast yfir um þessa miklu og nær sífelldu umferð. Myndin sýnir eitt slysið, sem varð við það, að ökumaður gætti ekki gangbrautarinnar, en gangbrautarmerkið sést hægra megin brautarinnar. í DAG ætlum við að ræða um umferð gangandi fólks í sam- bandi við merktar göngubraut ir yfir götur. Slysahætta af völdum bifreiða, þegar öku- menn virða ekki rétt gang- andi fólks. Á þessum stöðum er gífurleg og fullkomin ástæða til að stinga við fót- um, og skapa betri umferðar- menningu, hvað þessu viðkem ur. GANGBRAUT VDE) MIÐBÆJARSKÓLANN Ein hættulegasta gangbraut yfir götu í Reykjavík er vafa- laust sú yfir Fríkirkjuveginn hjá Miðbæjarbamaskólanum, sérstaklega fyrir þá sök, að þar eiga börn oftast leið um. Margoft hafa þar orðið slys, en oftar hefur þeim verið forð að á síðustu stundu. Mörg dæmi eru til þess, að heiðvirðir bifreiðastjórar hafa stanzað, þegar þeir hafa séð börn vera komin út á gang- brautina, en ekki reiknað með því, að glannar fyrir aft- an þá, aka fram úr hægra megin og skapa þannig stór- fellda lífshættu fyrir þá veg- farendur, sem í góðri trú telja sér óhætt að ganga yfir braut- ina. HVENÆR VERÐUR NÆSTA DAUÐASLYS Þennan glannaskap og ein- staka kæruleysi einstakra bif- reiðastjóra fyrir lífi vegfar- enda verður að stöðva þegar í stað, ef ekki á verra af að hljótast. Hvenær næsta dauða slys eða limlesting verður af þessum sökum, skal engu um spáð, en slíkt hlýtur að vera á næsta leiti, ef ekki er stranglega tekið í taumana. Og enginn veit, hver fyr- ir verður. Við, sem eigum ung börn okkar á götunni, getum ekki talið þau óhult þar, meðan annað eins og þetta viðgengst í umferðar- málum höfuðborgarinnar. BLIKKANDI GANGBRAUTARLJÓS Aðrar borgir hafa lagt á gangbrautirnar miklu meiri áherzlu en við, og gætum UMFERÐ GANGAND/ MANNA. l’ól.grein umferdarlaganna segir: Gangandi menn skulu nota gangstéttir og gangstíga, sem liggja með akbrautum. Skulu þeir að jafnaði ganga á vinstri hluta stéttar eða stígs og víkja til vinstri fyrir þeim, sem á móti koma, en hleypa þeim fram hjá sér á hægri hönd er fram úr ganga. Ef ekki er gangstétt eða gangstígur meðfram vegi, skulu menn að jafnaði ganga á hægri vegarbrún og aldrei fleiri en tveir samhliða. Þar sem merkt er gangbraut yfir veg, skulu menn nota hana, er þeir ætla yfir veginn. Ef ekki er gangbraut, skulu menn ávalt ganga þvert yfir veg með jöfnum hraða. Gangandi menn skulu gæta vel að umferð, áður en farið er yfir veg. við tekið upp aðferðir þeirra á einn eða annan veg. I Lond- on eru brautir þessar, sem ætlaðar eru gangandi fólki til að komast yfir götu, merktar með blikkandi götuvitum, sem í sífellu minna bifreiða- stjórana á, að þeir séu komn- ir að gangbraut, þar sem þeim ber skylda til að gæta fyllstu varúðar, og virða rétt hins gangandi fólks, enda liggur við því ströng refsing að ó- hlýðnast þessu, og vitað er, að þeim er ekki hlíft, sem sek ir eru um svo gróft umferðar brot. Einnig kæmi að sjálfsögðu til mála, að setja upp venju- leg umferðarljós á hættuleg- ustu staðina, svo sem þennan við Miðbæjarskólann og víða á Laugaveginum og Suður- landsbrautinni væri full þörf á slíkum vitum til að tryggja umferð gangandi fólks slysa- laust yfir götu. Annars er það gott ráð, að vegfarenduf rétti út hand- legg til að sýna ökumönnum Verða sett upp blikk- andi Ijós við gang- brautir? vilja sinn að fara yfir göt- una, og hygg ég þá, að flest- ir muni virða þá ábendingu. En svo sem áður segir, eru þeir enn altlof margir, sem annað hvort af kunnáttuleysi eða kæruleysi fara fram úr stöðvuðum bíl við gangbraut, steðja að, meiri gleði ríkir á heimilum landsmanna. Slys. gera ekki boð á und- an sér. Bezt er því að var- ast þau, og byrgja brunninn áður en barnið er dottið of- an í. Fr. S. Á þessari mynd sést greinilega, hvar ekið hefur verið yfir zebrabraut, gangbraut, þar sem fólkið á réttinn. Ef myndin prentast vel, má eflaust sjá bremsuför vörubílsins, sem þarna olli slysi. Ef til vill verður nauðsynlegt að taka upp blikkandi Ijósmerki við svona göngu- brautir, eins og gert er í London, ef ökumenn fara ekki á næstunni að stanza við þær og hlýða settum reglum. og ekki vita þeir, sem slíkt gera, nema reiðarslagið af slíku gáleysi bitni næst á þeim eða þeirra nánustu. AÐ LOKUM Ég eða þú, vegfarandi góð- ur! Enginn veit, hver verður næstur, ef þessa slysaöldu lægir ekki. Sameinumst því um það, gott fólk, að forðast slysin. Ökum varlegar og með meiri athugun og meiri til- litssemi í garð hvers annars, og þá mun það sannast, að slysum fækkar, færri sorgir HÁAR SLYSATÖLUR í REYKJAVÍK Samkvæmt skýrslum lög- reglunnar í Reykjavík yfir slys, sem orðið hafa á gang- andi fólki á árinu 1965, hafa samtals 124 vegfarendur orð- ið fyrir slysum. Af þeim voru 66 börn. Þetta eru alltof há- ar tölur á okkar fámenna landi. Desember var mesti slysamánuðurinn, þá slösuð- ust 15 gangandi menn og konur. Af þeirri tölu voru 5 börn. Júní hafði fæst slys- in eða 7 og þá 6 börn. Gerum allt, sem í okkar valdi stendur til að fækka slysunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.