Morgunblaðið - 15.01.1966, Síða 13

Morgunblaðið - 15.01.1966, Síða 13
Laugardagur 15. janúar 1966 MORGU NBLAÐIÐ 13 Jón Rögnvaldsson verksíjóri Farþeg:ar stíga upp í þyrluna á þaki Pan American byggingar- innar á Kennedy flugvelli í N ew York. jÞyrlur ttytja Sar- þega Pan Jlwn út i þotur og inn i borg i New York Jón Rögnvaldsson, fyrrv. yfir- verkstjóri, andaðist í sjúkrahúsi hér í borg sunnudaginn 9. jan- úar, 75 ára að aldri. Hann var fæddur hinn 24. júní 1891 í Arney á Breiðafirði. Foreldrar hans voru Rögnvaldur Hannesson, útvegsbóndi, ættað- ur af Mýrum og kona hans Júlí- ana Þorbjörnsdóttir. Eignuðust þau hjónin þrjú börn, sem nú eru öll látin. Jón ólst upp í foreldrahúsum til 19 ára aldurs, en þá hvarf hann að heiman. Fyrst fór hann um skamman tíma í siglingar á norsku skipi, unz hann réðist sem háseti á Steriing, sem þá var stjórnað af Emil Nielsen, síðar fyrsta forstjóra Eimskipa- félags íslands. Jón Rögnvaldsson réðist til Eimskipafélagsins, þegar það var stofnað árið 1914 og starfaði hjá því eftir það, fyrst sem há- seti á e.s. Gullfossi í fyrstu ferð skipsins til landsins, síðan sem háseti og bátsmaður á ýmsum öðrum skipum félagsins. Árið 1928 var honum falin verkstjórn og síðar yfirverkstjóm við skipa og vöruafgreiðslu Eimskipafél- agsins í Reykjavík. Hrátt varð þetta eitt hið umfangsmesta og vandasamasta verkstjórnarstarf í Reykjavík. Við þetta starf vann hann þar til árið 1957, að hann lét af störfum sökum ald- urs. Átti hann þá að baki 43 ára starfssldur hjá Eimskipa- félaginu, þar af um tvo áratugi sem yfirverkstjóri. Jón Rögnvaldsson var mikill mannkostamaður, greindur vel, trúr og heill í starfi. Hann var góður drengur, dugmikill, gæt- inn og laginn verkstjórnandi. Baráttan á litlum opnum bátum í misjöfnum veðrum, við harða strauma og hættur Breiðafjarð- ar hafa ásamt meðfæddum hæfi- leikum og góðu uppeldi mótað þennan dugmikla mann. Jón naut mikils trausts for- ráðamanna Eimskipafélagsins. Hann var virtur af þeim sem hann stjórnaði, o.g naut al- mennra vinsælda allra þeirra, sem honum kynntust. Margar stórfelldar breytingar urðu á öllum starfsháttum, bæði til sjós og lands, á því tímabili sem Jón Rögnvaldsson var yfir- verkstjóri. Skipin urðu fleiri og stærri og verkefnin jukust, ekki hvað sízt á stríðsárunum, þegar leysa varð umfangsmikil og erfið verkefni við ófullnægj- anidi aðstæður. Reyndi þá mjög á þolinmæði, þrautseigju og úr- ræðasemi Jón Rögnvaldssonar. Þeir, sem muna árin fyrir síðari heimsstyrjöldina, minn- ast einnig atvinnuleysis og skorts. Erfiðast átti Jón með að neita mönnum um vinnu. Bezt leið honum, þegar nóg var að starfa. Verkamenn fundu vel hug Jóns í þeirra garð. Þeir kunnu að meta hjartahlýju hans og ósérhlífni. Ég vil fyrir hönd Eimskipa- félagsins minnast með þakklæti, hversu frábært starf Jón heitinn leysti af hendi fyrir félagið. Per- sónulega vil ég þakka margra ára vinátu og gott samstarf. Árið 1918 giftist Jón Rögnvalds son eftirlifandi konu sinni, Jón- friði Ólafsdóttur, ættaðri frá Breiðafirði. Fyrsta hjúskapar- árið var heimili þeirra á Hellis- sandi, en síðan fluttust þau til Reykjavíkur, þar sem heimili þeirra hefur verið síðan. Þau hjónin eignuðust fjögur börn, þrjú þeirra eru á lífi, Júliana og Guðmundur verkstjóri hjá Eim- skipafélaginu, búsett í Reykja- vik, og Björgfríður búsett í Bandaríkjunum, en einn son, Ólaf, misstu þau 17 ára gamlan. Ennfremur ólu þau upp dóttur- son sinn, Ólaf sem búsettur er í Reykjavík. Ég sendi frú Jónfríði, börnum og öðrum ættingjum innileg- ustu samúðarkveðjur mínar. Óttarr Möller. Leopoldville, 12. jan — AP. • Byltingarstjórnin í Mið- Afríkulýðveldinu hefur bann að fjölkvæni í landinu, að því er fréttastofan í Kongó herm- ir. Akvörðun stjórnarinnar tekur þegar gildi en nær ekki til þeirra hjónabanda, sem þegar hefur verið til stofnað. Um 40% ilbúa Mið-Afríku- lýðveldisins eru Múhameðs- trúar en samkvæmf þeirri trú hafa menn leyfi til þess að eiga sér fjórar konur, svo framarlega, se..i þeir geta sýnt fram á að þeir geti séð fyrir þeim. HINN 22. desember s.l. hófust áætlunarferðir með þyrlum milli Pan Am byggingarinnar í miðri New York borg og J. F. Kennedy flugvallarins. Ferðin tekur aðeins 7 minútur en eins og þeir vita sem reynt hafa getur þessi ferð í bil tekið 1—2 tíma og stundum lengur ef umferðin er mikil. Það er flugfélagið „New York Airways" sem annast þetta flug á vegum Pan American. Farnar eru 17 fer’ðir á dag — í sambandi við ferðir Pan American frá J. F. Kennedy flugvelli. Þessi flugferð kostar kr. 300,00 fyrir aðra leiðina en kr. 430.00 báðar leiðir, en það er minna en kostar áð aka leigubil þessa sömu leið. • Farþegar sem fara frá New York aka að sérstakri afgreiðslu í Pan • American byggingunni. Hraðfara lyftur flytja farþegana upp á 58. hæð byggingarinnar, I en þaðan eru nokkur skref út á þak byggingannnar þar sem þyrlan stendur tiibúin til flugs. Þegar þyrlan lendir við bygg- ingu Pan Am á flugvellinum ganga farþegar beint um borð í þotuna sem flytur þá frá New York. Þegar farþegar Pan Am koma til New York og hafa lokið toll- skoðun er þeiln ekið beint að þyrlunni sem flytur þá á 7 mín- útum til miðborgarinnar og lend- ir með þá á þaki Pan Am bygg- ingarinnar á miðri Manhattan. Þess má að lokum geta að ís- lenzkir farþegar Pan Am geta að sjálfsögðu keypt sína þyrlu-far- miða um leið og þeir kaupa far- seðla sína hjá Aðalumboði Pan American, í Reykjavík, eða hjá ferðaskrifstofunum. Ferðir Pan.Am um ísland eru á hverjum fimmtudegi. Þoturnar koma hingað að morgni og fara til Glasgow og Kaupmannahafnar. Flugtíminn til Hafnar er 3 Vi timi og er komið til Hafnar um há- degið á dönskum tíma. Til New York eru svo ferðir á hverju fimmtudagskvöldi kl. 7 og komið til New York sama kvöld kl. 8:30 áe New York tíma. Flugtími um 5 Vz klst. Sukarno ræöst á blaðamenn Djakarta, 11. janúar — AP. SUKARNO, Indónesíuforseti, tilkynnti í dag, að öllum banda- rískum fréttamönnum héfði ver- ið vísað úr landinu. Skýrði for- setinn frá þessari ákvörðun sinni í ræðu, er hann hélt, er hann veitti viðtöku skilríkjum nýs sendiherra Sýrlands, H. M. Sudjono. Sukarno sagði, að hann sæi sér ekki annað fært en vísa öll- um bandarískum fréttamönnum úr landi, því að þeir færu ætíð með rangt mál í fréttaflutningi sínum af innanríkisdeilum þeim, sem nú standa í Indónesíu. Um þessar mundir eru aðeins tveir bandarískir fréttaritarar í Indónesíu, fréttaritari „New York Times“, og fréttamaður United Press International. Llfljótsvatn! LBfljótsvatn! Úlfljótsvatnsvaka verður haldin í Skátaheimilinu, sunnudaginn 16. janúar kl. 3.00, fyrir stúlkur, sem dvöldust á Kvenskátaskólanum að Úlfljótsvatni síðastliðið sumar. — Mætið vel. Foringjar. BÖKHALDARAR! HÖFUM AFTUR FENGIÐ KOR TAKASSA MEÐ OGÁNVAGNA. KASS ARNIR ERU FYRIR A 4. ÁN EFA FALLEGUSTU, VÖND- UÐUSTU OG ÓDÝRUSTU B ÓKHALDSKASSAR SEM HÉR FÁST. EIGUM EINNIG STAFR ÓF, MILLISPJÖLD, RIDDARA OG FLEIRA. ÚTVEGUM EINNIG : SPJALDSKRARKASSA FYRIR FÉLAGASAMTÖK, STÆRÐ A 5 MEÐ EÐA ÁN VAGNS. FYRIRLIGGJANDI: VAGNAR F YRIR RIT- OG REIKNIVELaR. KOMIÐ OG SKOÐIÐ ME ÐAN ÚRVALIÐ ER NÓG! Borgarfell hf. Laugavegi 18 — Sími 11372.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.