Morgunblaðið - 21.01.1966, Síða 3
Föstudagur 21. Janöar 1966
MORCUNBLAÐIÐ
3
☆
KRONPRINS Frederik kom
til Reykjavíkur í fyrsta skipt-
ið í gær, en skipið verður í
Færeyja- og íslandssiglingum
í framtíðinni. Þó mun Kron-
prins Olav verða á þessari
leið mánuðina júní, júlí, á-
gúst nú í sumar og fram í
september.
Skipstjóri á Kronprins
Frederik er Færeyingurinn
Oscar Djurhuus, en hann var
áður skipstjóri á Kronprins
Olav og Dronning Alexand-
erine.
Hann sagði Morgunblaðinu,
að hann hefði komið til ís-
lands í fyrsta skipti árið 1927
sem fiskimaður á skútu og
árið 1938 sem III. stýrimaður
Úr borðsal 1. farrýmis
Kronprins Frederik nærri
sólarhring á undan áætlun
Kronprins Frederik verður
ekki í Islandssiglnigum í
sumar er sú, að hann verður
settur inn á leiðina New-
castle-Esbjerg, því Kronprins
Olav getur ekki siglt sam-
kvæmt hinni ströngu áætlun
þar á leiðinni. Til þess er
hann ekki nægilega hrað-
skreiður. —
— Þess má geta, að Kron-
prins Frederik er stærsta og
bezt búna skipið, sem Sam-
einaða hefur haft í förum
hingað. M.a. eru um borð
lúxus-klefar sem dönsku
konungshjónin hafa oft haft
til afnota. Klefarnir eru sinn
hvorum megin í skipinu og
eru útbúnir sem setustofa og
þeim fylgir stórt og rúmgott
baðherbergi.
— Áhöfnin er 74 í allt yfir
vetrarmánuðina, en 92 á
sumrin. Á Kronprins Frede-
rik verða allmargir, sem störf
uðu á Kronprins Olav og
Dronning Alexanderine —
menn, sem hér eiga marga
vini og kunningja.
Kom í fyrsta skipti til Reykjavíkur
í gær — er með sérstakan útbúnað
til að draga úr veltingi
á Dronning Alexanderine.
Frá því hefði hann verið í
siglingum til íslands á skip-
um sameinaða gufuskipafélag
sins, en með nokkrum hléum
þó, t.d. á stríðsárunum.
Djurhuus sagði,að Kron-
prins Frederik hefði byrjað
siglingar 1950 milli Esbjerg
og Harwich, væri tæp 4 þús-
und brúttotonn að stærð,
tæki 277 farþega, gengi 19]/3
sjómílu á klst. og væri um
15 metrum lengri en Kron-
prins Olav, sem væri um
3.300 tonn að stærð, tæki 310
farþega og gengi um 17 sjó-
mílur á klst.
Skýringuna á því, að Kron-
prins Olav tæki fleiri far-
þega, sagði Djurhuus vera þá,
að Kronprins Frederik hefði
aðeins tvö farrými og því
væri betur að farþegum búið
en um borð í Kronprins Olav.
— Við fengum ágætt veð-
ur á leiðinni til íslands, sagði
skipstjórinn, en íslandssigling
ar geta verið erfiðar á vetr-
um, svona stundum að
minnsta kosti. Á sumrin er
„dejligt' að sigla hingað.
— Ferðin að þessu sinni
gekk mjög vel,. sagði hann,
og við urðum nærri sólar-
hring á undan áætlun til
Reykjavíkur. Við fórum frá
Færeyjum kl. 7 á miðviku-
dagsmorgun og komum til
Vestmannaeyja kl. 5 á
fimmtudagsmorgun. Þar
stönzuðum við í tvo tíma og
settum þar í land um 150
Færeyinga, sem ætla að
vinna þar á vertíðinni. Ferð-
in frá Eyjuim til Reykjavíkur
tók aðeins 6 tíma. Komum
við hér á ytri höfnina um kl.
1 síðdegis.
Vegna hins góða veðurs gát
um við ekki að neinu gagni
reynt nýjan útl/inað sem er
á skipinu og er ætlaður til
að draga úr veltingi. í>að eru
tveir tankar, sem eru sinn
á hvorri skipshlið. Þeir taka
75-80 tonn af olíu og er
leiðsla á milli þeira. Rennur
olían á milli tankanna til
skiptis þegar skipið réttir sig
við úr veltu.
— Ég gæti vel trúað því,
að þessi útbúnaður drægi að
minsta kosti um 30% úr veltu
skipsins. Verkfræðingarnir
segja að vísu, að það sé allt
að 60%, en mér finnst lík-
legt að árangurinn verði
minni við notkun en verk-
fræðingarnir segja.
Með okkur nú eru 5 menn
til að fylgjast með því, hvern
ig útbúnaðurinn reynist, þar
af þrír verkfræðingar. Á
skipinu er einnig hliðarskrúfa
að framan, sem notuð er til
að auðvelda að leggjast að
bryggju.
— Þetta er mín fyrsta ferð
með Kronprins Frederik og
veður var ágætt alla leiðina
en ég held að mér sé óhætt
að segja af mini löngu sjó-
mannsreynslu, að hann sé
mjög gott sjóskip.
— Ástæðan fyrir því, að
Oscar Djurhuus, skipstjóri
Vatnið í Eliiðaám mengast
ekki af völdum hesthúsanna
fyrir í upphafi, en hús þessi yrðu Væri ekki óeðlilegt að staðsetja
flutt burtu jafnskjótt og annað hesthús á slíku svæði, svo framar
ALL miklar umræður urðu í gær
í borgarstjórn um fyrirspurnir
frá Birni Guðmundssyni (F) varð
andi byggingu hesthúsa við ofan
verðar Elliðaár, en Björn kvað
þær fyrirspurnir vera bornar
fram í tilefni fréttar er birzt
hefði í Morgunblaðinu laust fyrir
jól en þar hefði komið fram að
langt væri komið byggingu átta
hesthúsa við ofanverðar Elliðaár,
fast við árbakkann.
Geir Hallgrímssoni, borgarstjóri
svaraði fyrirspurnunum og sagði
hann m.a., að með vaxandi hesta
eign borgarbúa hefðu skapazt
vandamál og erfiðleikar við að
greiða fyrir hesteigendum. Leyfi
fyrir umræddum hesthúsum
hefði verið til bráðabirgða og
eigendum þeirra gert skylt að
fjarlægja þau með tveggja mán-
aða fyrirvara þegar þess yrði
óskað. Ekkj væri um neitt affall
frá húsmium er lenti út í ána,
að ræða. Hitt væri svo annað
fál, að byggingar hefðu orðið
meiri en gert hefði verið ráð
svæði væri tilbúið til þessara
nota, og fyrr ef nauðsyn krefði
vegna heilbrigðisástæðna.
Björn Gúðmundss'om (F) gagn-
rýndi það, að ekki hfði verið leit
að til heildbrigðisnefndar er
leyfi fyrir húsunum var veitt. Þá
kvað hann byggingar þessar vera
í mótsögn við nýja skipulagið,
sem gerði ráð fyrir auðri land-
ræmu meðfram Elliðaánum. —
Alfreð Gíslason (K) tók einnig
í sama streng og sagði borgar-
yfirvöldin vera eftirlátsöm við
hestamenn, en athafnasvæði
þeirra þyrfti að vera 20—30 km.
burt frá borginni.
Geir Hallgrímsson talaði aftur
og sagði að það vatn sem tekið
væri úr Elliðaánum inn á hita-
veitukerfið væri fyrst hitað upp
í kyndistöðinni og þannig hreins
að mjög. í aðalskipulagi borgar-
innar væri gert ráð fyrir, að
hafa auðar landsspildur með-
fram ánni fyrir útivistarsvæði og
lega sem þau væri ekki til
óprýði.
Óskar Hallgrímsson (A) tók
undir ummæli borgarstjóra, að
ekki væri óeðlilegt, að hesta-
menn fengju aðstöðu til iðkun-
ar íþróttar sinnar á útivistar-
svæði borgarinnar við Elliðaár.
Vék hann einnig að blaðagrein
í Tímanum sem greindi frá því
að margir hestar gengju úti í
nágrenni borgarinnar. Sagði
hann að ekki væri það betra,
heldur en þeir væru hýstir í
bráðabirgðahúsum þessum.
Úlfar Þórðarson tók að lokum
til máls og sagði að vatnið í
Elliðaánum væri undir stöðugu
eftirliti og hefðu rannsóknir
leitt í ljós að vatnið væri ekki
meira mengað fyrir neðan hest-
húsin en ofan. Hann gat þess
einnig, að ekki hefðu fundizt nein
ar bakteríur í vatni því sem hit-
að hefði verið upp í kyndistöð-
inni og veitt inn á hitaveitu-
kerfið.
Bygging ráðhúss
hefst ekkiá
þessu ári
í GffiR skýrði Geir Hallgríms-
son borgarstjóri frá því á borg-
arstjórnarfundi vegna fyrirspurn
ar er komið hafði fram frá Al-
freð Gíslasyni að ekki yrði haf-
izt handa við byggingu ráðhúss
í Reykjavík á þessu ári. Borgar-
stjóri sagði m.a., að búizt væri
við því, að teikningar og útboðs-
lýsing yrðu tilbúnar eftir 4—5
mánuði, en framkvæmdir við
undirbúning þeirra hefðu dregizt
úndanfarið vegna skorts á starfs
mönnurn á teiknistofu ráðhúss-
ins. Ekki væri við því að búast/
að hafnar yrðu framkvæmdir
við ráðhúsbygginguna á þessu
ári, en ráðhúsnefnd fengi málið
til frekari meðferðar þegar lok-
ið væri við teikningar og út-.
boðslýsingar.
Alfreð Gíslason kvaðst ekki
harma það þótt málið hefði legið
í lægð að undanförnu og nauð-
syn bæri til að endurskoða af-
stöðu til staðarvals og fleira í
sambandi við fyrirhugaða 'bygg-
ingu.
STAKSTFIMAR
Tveir sjónarhólar
Alþýðublaðið birti í gær for-
ustugrein um alúmínmálið undir
fyrirsögninni „Tveir sjónarhólar"
og þar segir mú.:
„Umræður um alúmínnu\lið
komast senn á lokastig. Ríkis-
stjórnin lagði fyrir ári fram
bráðabirgðaskýrslu, en» síðan hef-
ur margt gerzt, og er lokaskýrsla
væntanleg innan skamms. Stjórn-
arandstöðuflokkarnir hafa ákveð
ið að berjast gegn málinu, hvað
sem tautar. Er það að sjálfsögðú
pólitísk ákvörðun og ef.ast eng-.
nn um, að afstaða þeirra væri
önnur, ef þeir sætu i ríkisstjórn.
Á það ekki sízt við um Fram-
sóknarflokkinn, en jafnvel konvm
únistar mundu tala í öðrum tón,
ef um væri að ræða olíuefnaiðnað
með aðstoð austantjaldsmanna.
Mál þetta er rétt að skoða frá
tveim sjónarhólum.
Hin.n fyrri er hið efnahagslega
sjónarmið og kemur þá til álita,
hvaða áhrif alúmínverksmiðja
mundi hafa á afkomu íslendinga
í framtíðinni. Ljóst er, að n.okkr-
ir erfiðleikar verða á vegi, með-
an virkjunin og verksmiðjan
rísa, ef þensla helzt í efnahags-
láfi þjóðarinnar. En það er engan
veginn víst 2—3 ár fram í tám-
ann. Þetta eru þó aðeins stunidar-
erfiðleikar, sem munu ekki hafa
varanleg áhrif. Að þeim loknum
mun verksmiðjan tvímælalaust
hafa hagstæð áhrif á lífskjör
þjóðarinnar.
Alúmínverksmiðjan mun reyn-
ast ný stoð unidir fjölbreytni í
atvinnuháttum. Hún mun veita
um 450 manns atvinnu, sem er
að vísu ekki mikið, en hefur þó
verulega þýðingu. Þá mun verk-
smiðjan létta svo undir virkj-
unarkostnaði, að munar mörg
hundruð milljónum. Hún mun
og greiða mikla skatta, sem ætl-
unin er að nota til að auka at-
vinnulíf þeirra landshluta, sem
þess þurfa með.“
Heilbrigður
þjóðarmetnaðu,.
„Hinn sjónarhóllinn veitir út-
sýn frá þjóðernislegu sjónarmiði.
Á þeim vettvangi eru íslendingar
stolt þjóð með sterka þjóðernis-
kennd og tortryggni gagnvart er-
lenidum .afskiptum af málum okk-
ar. Ef til vill má ala svo á minni-
máttarkennd í þessu sambandi,
-að þjóðin einangri sig sem mést
hún má og forðist öll skipti við
annað fólk. Hitt er þó heilbrigð-
ara, að þjóðerniskennd veiti okk-
ur styrk til að hafa margvísleg
skipti við aðrar þjóðir, þar á
meðal að notfæra sér erlenit fjár-
magn, þegar okkur hentar. Það
hafa flestar ef ekki allar aðrar
þjóðir gert í stórum stíl. Heil-
brigður þjóðarmetnaður mun
tryggja, að ein alúmínverksmiðja
verður ekki til tjóns á þessu
sviði.
Verði alúmínverksmiðjan reist,
munu báðir aðilar taka á sig
nokkra áhættu. í þeim efnum er
hið svissneska félag ekki síður
hrætt við okkur en við erum
hræddir við það. Meðalhóf mun
tryggja hag beggja af málinu, en
hvorugum stofna í neinn háska.“
Lítill sómi
í forustugrein Alþbl. s.l. mið-
vikudag var vikið að ályktun,
sem gerð var á fundi í Þingeyjar-
sýslu um stóriðjumál og þar
sagði Alþbl. m.a.:
„Virðast Þingeyingar ekki
þurfa upplýsingar um málið,
ekki sjá ástæðu til að bíða eftir
skýrslu ríkisstjórnarinnar eða
hlýða á rök með og móti. Nei,
Þingeyingar hika ekki við að
gera ályktun, sem er lítið nema
uppsuða úr Tímanum. í sann-
leika sagt er þessi málsmeðferð
Þingeyinga þeim til lítils sóma.
Þeir ættu að temja sér að afla
upplýsinga og hlýða á rök allra
aðila í slíku máli, áður en þeir
hlaupa til og gera ályktanir eftir
pöntun frá flokksskrifstofu í
Reykjavík“.