Morgunblaðið - 21.01.1966, Blaðsíða 5
Fostudagur 21. janúar 1966
, MORGUNBLAÐIÐ
5
4ra herb. íbúð
Opinber stofnun óskar eftir að taka á leigu hér
í borginni 4ra herbergja íbúð ásamt eldhúsi og baði
frá 1. marz n.k. Tilboðum óskast skilað til afgreiðslu
blaðsins strax og eigi siðar en 25. janúar n.k. merkt-
um: „íbúð — 1. marz 1966 — 8299“.
Annar mótoristi
óskast á vertíðarbát frá Hafnarfirði.
Upplýsingar í síma 50426.
Skattframtöl
VEITI EINSTAKLINGUM AÐSTOÐ
ÞORSTEINN JÚLÍUSSON, HDL.,*
Laugavegi 22 (inng. frá Klapparstíg)
Viðtalstimi kl. 2 — 5 alla virka daga
nema laugardaga. — Sími: 14045.
VÍSUKORN
UM BJÓRINN
MED:
Bjórinn eykur yndi manns
einnig heilsu bætir,
þar sem hófi ræður ranns
rausn er geðið kætir.
MÓTI:
Bjórinn eyðir aurum mans
einnig heilsu spillir.
Oft hann rænir. auðnu ranns
og raunabikar fyllir.
Ó. H. H.
ORÐSKVIÐA
KLASI
4. Heldur vil ég, hringa þilja,
haga mjér eptir þinum vilja,
en þú sjért á móti mjér.
•r er gjarnt að gleðja rekka
gefa svöngum þyrstum drekka
Vinnur hver það vanur er.
(ort á 17. öld.)
sjBrlútíX-
Ég flýtti mér bara svona mikið, mamma, svo að þú yrðir ekki HRÆDD lun mig, þú sagðir að
ég mætti ekki vera lengur úti en tU HÁLF TÍU! ! . .
Gengið >f-
Reykjavík 18. janúar 1965
1 Sterlingspund .... 120,38 12068
1 Bandar dollar 42,95 43.06
1 Kanadadollar 39,92 40,03
ÍCH Danskar krónur 623,70 625,30
100 Norskar krónur . 601,18 602.72
100 Sænskar krónur 831,70 833,85
100 Finnsk mörk 1.335.20 1 .338.72
100 Fr. frankar .... .... 876,18 878.42
100 Belg. frankar
100 Svissn. frankar .. 993,25 995,80
100 Gyllini 1.189,34 1 .192,40
100 Tékkn krónur .... .... 596,40 598,00
100 V.-þýzk mörk .... 1.070.76 1 .073.52
100 JLírur 6.88 6.90
lOOAustur. sch 166,60
100 Pesetar 71,80
HLÖÐUDANSLEIKUR
DÁTAR LEIKA
FRÁ KL. 8—11,30.
Hinn ofsafegni íslendingur
Um þessar mundir stendur
yfir málverkasýning Sveins
Björnssonar í Bogasalnum í
Þjóðminjasafninu. Sýningin er
opin á hverjum degi frá kl. 2
á daginn til 10 á kvöldin.
Aðsókn á sýningunni hefur
verið sæmileg, og hafa þegar
selzt 7 myndir. Þar af keypti
Listasafn ríkisins eina: Til
minningar um H. C. Andersen
Við spurðum Svein í gær um
nýjasta sýningarferil sinn fyr
ir utan þessa sýningu. Sagði
hann, að hann hefði sýnt á
Charlottenborg í haust, 28. okt*
til 14. nóv. með tveim dönsk-
um málurum. Undayfarin ár
hefur hann sýnt með 4 dönsk
um málurum. Einn þeirra
Niels Vagn Jensen fórst í
hitteðfyrra með skipi við
Grikklandsstrendur, annar er
hættur að mála og farinn að
skrifa.
Sýningu Sveins í Bogasal
lýkur á sunnudagskvöldið kl.
10. Við birtum hér á eftir 4
listdóma um verk Sveins, sem
birtust í dönskum blöðum,
eftir síðustu sýningu hans þar
í landi.
í októb-hefti hins fræga lista
tímarits í París LA REVUE
MODERNE DES ARTS ET
DE LA VIE, birtist nýlega
gagnrýni á verkum Sveins
Björnssonar, en þau voru þá
á sýningu . í Charlottenborg.
Einnig var birt mynd af einu
verka hans.
Gagnrýnin er á þessa leið:
„Smáatriði sögumannsins
hafa litla þýðingu fyrir Björns
son. Fyrir honum táknar mál-
verkið (málaralistin) ofsafeng
inn expressionisma, skapara
myndformanna, og útskýrir
þetta vel skapgerð hans.
í áhrifamestu málverkum
sínum skapar Björnsson
„massa“ á hreyfingu, dum-
bungsbirtu, ólgandi rythma,
en þótt áherzla sé ekki lögð á
smáatriði, útilokar slíkt ekki
eins konar kvíðaþrungna
rómantík, en skin hennar er
endurminning um veröld
í Keflavík
er til leigu 5 herb. íbúð á
mjög góðum stað. Uppl. í
síma 1826.
Húshjálp
Óska eftir húshjálp hálfan
dag, daglega gegn fæði og
stóru herbergi. Tilboð send
ist Mbl. fyrir nk. mánudag,
merkt: „Austurbær 8251“
Blái fuglinn eftir Svein Bjömsson. Eiginlega eru tveir fuglar
á myndinni, þar sem ungur sonur Sveins og Sólveigar er á
þar.
Goya.
Björnsson er íslenzkur að
þjóðerni o.g hefur verið sjó-
maður. Á hinni tómlegu og
drungalegu víðáttu hafjns,
þar sem dagarnir renna út í
eitt, hefur hann vafalaust
skynjað sinfoniskar hreyfing-
ar sjávarins, hvítfyssandi,
drynjandi löðrið ag sorann í
höfnunum.
Fernand Tramier"
LYNGBY TAARBÆKBLAD-
ET. — „Hann er ofsafenginn
íslendingurinn Sveinn Björns
son. Þar getur að líta hraun
og álfa, stór gagnsæ höfuð.
sem gæjast fram undan rauð
um klettunum. Og í myndinni
„Steinarnir. tala“ hefur hann
málað steina eins og þeir séu
lifandi. Hann er athyglisverð
'ur málari. — Guri.“
BERLINGSKE TIDENDE.
„Það er íslenzk glóð í lands
lagsmyndum Sveins Björns-
sonar og í „fantasíum“ hans,
þar sem líta getur fugla, grím
ur og álfa. Tengslin við meist
araverk Kjarvals eru einna
sterkust, og einnig má sjá, að
verk þeirra Svavars Guðna-
sonar og Carls Hennings
Petersen hafa orðið honum
innblástur. Jæja, sleppum því
annars. Sveinn Björnsson er
gæddur ósviknum hæfileikum
Það er líf í litum hans. Þeir
eru þrungnir viðkvæmni og
ofsa, hafa gert sáttmála við
hina furðulegu og stórbrotnu
náttúru fslands, hraunbreiður
og fjallahlíðarnar, klæddar
snjóhjúpi vetrarins. Það er
ástæða til þess að vekja eink-
um athygli á „Hraungrjótum“
hans og hinni draumkendu
mynd „Blár fugl“. Bæði í-
myndunaraflið og steinarnir
tala í beztu verkum hans.
Jan Zibrandsen.“
POLITIKEN.
„Á sýningu þessari getur
einnig að líta verk íslenzka
málarans Sveins Björnssonar,
gerólík verk. Mjög einföld
lýsing íslenzkrar náttúru og
fantasíuverk abstrakt eðlis
skipast þar á. Björnsson vekur
sérstaklega áhuga manns, sem
ævintýrasagnaþulur, en þó
verður manni hugsað til nafns
Carl Hennings Pedersen.
Bertel Engelstoft.“
r *
ARSHATIÐ
s v r*.
Árshátíð S.V.F.R. verður haldin í veitingahúsinu
Lido laugardaginn 29. janúar 1966 og hefst kl. 18,30.
Miðasala og borðpantanir á skrifstofu félagsins
Bergstaðastræti 12 B laugárdag 22. jan. frá
kl. 14.00 — 16.00.
STJÓRNIN. \
GLAUMBÆR
ERNIR og TRÍÓ GUÐMUNDAR
INGÓLFSSONAR SKEMMTA.
GLAUMBÆR swnm