Morgunblaðið - 21.01.1966, Blaðsíða 6
8
MORCU N BLAÐIÐ
Fostudagur 21. janúar 1961
•I
Ib Wessmann skammtar einni blaðakonunni af Þorramatnum.
Karlakór Reykjavíkur 40 ára
KARLAKÓR Reykjavikur er 40
ára um þessar mundir, stofnaður
3. janúar 1926 fyrir tilstuðlan
Sigurðar Þórðarsonar, tónskálds,
sem jafnframt var söngstjóri
kórsins frá upphafi og nær
óslitið í 36 ár. Stjórn kórsins
og núverandi stjórnandi ræddu
við fréttamenn í tilefni af-
mælisins og skýrðu m.a. frá
því að í tilefni þessara tíma-
móta og 70 ára afmælis söngstjór
ans fyrrverandi yrði gefin út
minningabók I 1000 tölusettum
eintökum um kórinn, tileinkuð
styrktarfélögum og öðrum vel-
unnurum. Og einnig að haldið
yrði upp á afmælið með fjöl-
mennu hófi 29. janúar.
Ragnar Ingólfsson, formaður
kórsins skýrði fréttamönnum frá
starfsemi hans. Undir forustu
Sigurðar Þórðarsonar ferðaðist
kórinn um þrjár heimsálfur og
hefur haldið talsvert á annað
hundrað hijómleika í 17 lönd-
um. Inn á hljómplötur hefur
kórinn sungið um eitt hundrað
lög og hefur verið beðinn um
að syngja inn á nýja plötu með
16 lögum á þessu ári. Hljóm-
leikar kórsins eru orðnir mörg
hundruð, enda eru árlega haldn-
ir margir konsertar fyrir styrkt-
armeðlimi. Styrktarmeðlimir
eru nú um 1600 og syngur kór-
inn því á hverju vori 5 sinnum
fyrir fullu húsi í Austurbæjar-
bíói. Æfingar hafa kórfélagar
a.m.k. tvisvar í viku í vistlegu
félagsheimili á Freyjugötu.
Minningabókin, sem er að
koma út, verður á annað hundr-
að blaðsíður og að mestu í mynd
um úr sögu kórsins. Kápufor-
síða er prentuð í fjórum litum
og allt efni bókarinnar prentað á
vandaðan myndapappír. Á næst-
unni verður hafizt handa með
áskriftasöfnun að kaupum á bók
inni.
Laugardaginn 29. jan. n.k. held
ur kórinn upp á fertugsafmælið
með hófi að Hótel Borg, sem
verður fjölsótt, og hafa margir
af gömlu félögum kórsins sýnt
mikinn áhuga fyrir 40 ára af-
mælinu og m.a. æft nokkur lög
í vetur undir stjórn Sigurðar
Þórðarsonar, fyrrverandi söng-
stjóra kórsins, sem þeir ætla að
syngja í hófinu.
Karlakór Reykjavíkur æfir nú
að vanda fyrir vorkonserta styrkt
arfélaganna og er Páll Pampichl-
er Pálsson söngstjóri. Æfingarnar
og öll starfsemi kórsins fer fram
í hinu vistlega félagsheimili kórs
ins að Freyjugötu 14.
Stjórn kórsins skipa: Ragnar
Ingólfsson, form.; Helgi Krist-
jánsson, varaform., Höskuldur
Jónsson, gjaldkeri, Margeir Jó-
hannsson, ritari og Andreas Berg
mann, meðstjórnandi.
Fær Karlakórinn 9 þíis. lesta
skip í Miðjarðarhafsferð ?
Þorratrogið í Naustinu
Veitingahúsið Naust hefir nú
1 níu ár heilsað þorra með því
að hafa á matseðli sínum hvers-
konar kræsingar, svið og súrmat,
svo sem hval, bringukolla og
selshreyfa, blóðmör og hangi-
kjöt, hákarl og brennivín, lifrar-
pylsu og hrútspunga, rúgbrauð
og flatbrauð, sviðasultu og rófu-
stöppu svo eitthvað sé nefnt af
hinum fjölbreytilegu réttum. Þá
heyrir til nýmæla að í forrétti
eru marineraður kræklingur og
gratineraðir sniglar ásamt glóð-
arsteiktum humarhölum, allt hin
ir ijúffengustu réttir en næsta
óvanalegir hér á landi og munu
menn lítt kunna á þeim átið.
í tilefni þessa þorrainngangs
Naustsins bauð það blaðamönn-
um til átveizlu á miðvikudaginn
og var það hinn veglegasti fagn-
aður.
Geir Zoega jr., framkvæmda-
stjóri Nausts, ávarpaði gesti og
bað þá njóta veitinganna. Gat
þess, að þetta væri í 9. sinn, sem
Naustið byði upp á þes®a þjóð-
legu tilbreytni, sem jafnan hefði
verið vel tekið.
Eldur í íbúðarhúsi
SLÖKKVILIÐIÐ var kvatt að
húsinu við Melgerði 23 hér í
borg kl. 17,10 síðdegis í gser en
þar logaði mikill eldur. Hafði
kviknað í viðbyggingu við lítið
einlyft timiburhús og komst eld-
ur í íbúðarhúsið frá viðbygging-
unni.
Er slökkviliðið kom á vett-
vang stóð eldur upp úr þaki
hússins en tókst þó fljótlega að
slökkva hann. Talsverðar
skemmdir urðu á íbúðinni af
reyk, vatni og eidi. Eldsupptök
eru ókunn.
Mestur hluti þessara rétta er
tilreitt í eldhúsi veitingastaðar-
ins sjálfs svo sem allur súrmat-
ur og lagraður þar, en að sjálf-
sögðu er hákarl og hangikjöt að-
fengið.
Ib Wessmann yfirmatsveinn
annast alla gerð Þorramatarins.
• Vertíðin
Vertíðarfólkið flykkist nú
hingað úr öllum áttum svo sem
greint hefur verið frá í blö'ð-
unum að undanförnu, jafnvel
Ástralíumenn og S-Afríkumenn
eru komnir í fiskinn.
Eitt er víst: Við þurfum auk-
inn mannafla til þess að fleyta
útveginum yfir mestu aflahrot-
urnar og þessi aðstoð er vel
þegin, þegar hennar er þörf.
Annars skilst mér, að Færey-
ingarnir séu eftirsóttari starfs-
menn en allir áðrir, yfirleitt
traust fólk og iðjusamt.
f Færeyjum líta margir ver-
tíðarvinnu Færeyinga á íslandi
illu auga, enda þurfa Færey-
ingar á öllu sínu fólki að halda,
því að þar er ekki minna óunnið
en hér. Við skiljum þessa af-
stöðu Færeyinga vel, þótt vi'ð
hins vegar kunnum vel að
meta vinnuaflið, sem þaðan
kemur.
• í myrkri
KARLAKÓR Reykjavííkur hefur
um nokkurn tíma unnið að ut-
anlandsferð með skipi. í vitðali,
sem formaður kórsins átti við
fréttamenn vegna 40 ára afmælis
kórsins, kom það fram, að undir-
búningur hefur tekið lengri tíma
en á horfðist og ekki verður
mögulegt að ráðast í ferðina að
vori, eins og ráðgert hafði verið.
Skip það sem kórnum bauðst,
var ekki fáanlegt þegar til átti
að taka og var boðið annað minna
klældur varð fyrir bíl á illa
upplýstri götu í Kópavogi, sagði
hér í bláðinu í gær. Þessi at-
burður ætti að verða öllum ný
áminning um að fara varlega
á umferðargötum í myrkri:
Hafa endurskinsmerki eða
hvíta dulu, ef klæðst er ein-
hverju dökku.
Ekki sakar heldur áð vera
ódrukkinn.
• Að kunna að tapa
Það virðist ijóst, að ís-
lenzka handknattleiksliðið, 6em
lék í Danmörku, tapaði ekki
fyrir Dönunum — heldur dóm-
aranum. Einn af lesendum
blaðsins sendi okkur eftirfar-
andi bréf í tilefni þess:
Undanfarna daga hafa íslend-
ingar há'ð kappleiki við Pól-
verja og Dani í handknattleik
og körfubolta, svo sem kunnugt
er af fréttum. Ekki höfðu land-
ar okkar erindi sem erfiði í
viðureigninni, og er óhætt að
segja, að þeir hafi ekki riðið
feitum hesti frá þeim vi'ðskipt-
skip, sem ekki þótti ráðlegt að
leigja.
Þá var leitað annað og sagði
Ragnar Ingólfsson, að vonir
stæðu til að samningar gætu tek-
izt innan tíðar um 9 þús. smá-
lesta skip, sem tekur á fimmta
hundrað farþega og mundi þá
verða lagt upp í ferðina í
september næstkomandi, ef þátt-
taka fæst. Ekki hefur verið
ákveðið endanleg ferðaáætlun,
en talað er um að koma við í
um. þ.e.a.s ef leikurinn er gerð-
ur eingöngu í því skyni að
vinna hann að stigum eða
markafjölda. Sem sagt við töp-
uðum glæsilega og sitjum nú
eftir með sárt ennfð. En nóta
bene, góðir hálsar, það voru
ekki leikmennirnir okkar, sem
töpuðu, því fer víðs fjarri. Það
voru bannsettir lómarnir, sem
voru á móti okkur og með hin-
um, svo áð öðruvísi gat ekki
farið. Auk þess þurftu okkar
menn líka að fara að ferðast til
útlanda, og allir vita, hversu
erfitt það er að keppa ekki á
heimavelli, fyrir nú utan ferða-
lögin, sem ætla alveg áð drepa
mann (Pólska körfuboltaliðið,
sem keppti í Reykjavík, er ekki
háð þessari reglu, og auk þess
eru Pólverjarnir miklu hærri en
okkar menn, það munar einum
og hálfum sentimetra, svo það
er ekki nema von að okkar
menn töpuðu. En Danir hafa
samt tapáð með miklu meiri
mun fyrir Rússum einu sinni,
Egyptalandi, fsrael, Grikklandi
og jafnvel sigla inn í Svartahaf
og hafa viðkomu í Búlgaríu. —<
Sungið verður á öllum viðkomu-
stöðum. Og loks kemur til greina
viðkoma á Ítalíu í leiðinni heim.
Félagar í kórnum eru nú 46, og
reiknað með að þeir taki konur
sínar með í ferðina. En að öðru
leyti yrði hverjum sem væri selt
far, ef af ferðinni verður.
eða 187 gegn 3 (ef rétt er mun-
að).
En að öllu gamni slepptu:
hvenær ætla íþróttafréttaritarar
dagblaðanna, svo og allir farar-
stjórarnir og þjálfararnir að
hætta að ala á meðalmennsk-
unni í íþróttum með þessum sí-
felldu og kjánalegu afsöknum
til varnar getuleysi okkar
manna? Getum við ómögu-
lega tapað svo leik, að
hægt sé að viðurkenna, að
við vorum lakari aðilinn? Það
er engin skömm áð því að tapa
í leik, en það er mikil skömm
að því að geta ekki tekið tap-
inu eins og leikmanni sæmir.
Almenningi er mjög skemmt 1
hvert sinn, sem þessar heima-
tilbúnu afsakanir eru bornar á
borð á íþróttasfðum blaðanna,
og þær eru alltaf á rei'ðum hönd
um, þegar illa fer. Væri nú ekki
karlmannlegra að hætta þessari
vitleysu og reyna heldur að
læra þá list að kunna að tapa
í stað þess að byrja að vola eins
og krakki. A'ð kunna að taka
tapi jafnt og sigri, það eitt er
íþróttunum samboðið, og það
virðast íslendignar enn eiga
eftir ólært“.
Höfum flutt verzlun vora og
verkstæði að
LÁGMÚLA 9
Símar:
38820 (Kl. 9—17)
38821 (Verzlunin)
38822 (Verkstæðið)
38823 (Skrifstofan)
Bræðurnir Ormsson hf.
Vesturgötu 3, Lágmúla 9.
Sími 38820.
Drukkinn maður og dökk
_ PIB