Morgunblaðið - 21.01.1966, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 21. janúar 1966
Reynt að bjarga togar
anum á stðrstreymi
M J Ö G erfið aðstaða er til
björgunar brezka tagarans Wyre
Gonquerer, sem strandaði í
Höfðabrekkufjöru austan við
Vík aðfaranótt þriðjudags síðast
liðinn. Milli togarans og þess
skips, sem mundi reyna að draga
Kann út, eru tvö sandrif og yrði
björgunarskipið að vera í málu-
fjarlægð frá togaranum. Búizt
er við, að varðskip reyni að
draga togarann út á næsta stór-
streymi, en það er nú eftir helg
ina .
Togarinn er nú talsvert farinn
að hallast og er óttazt, að hann
fari að snúast og leggist að
landi. Gerist það, verður mjög
erfitt um vik að bjarga skipinu.
Bkki má mikið breyta veðri til
þess ,að togarinn skemmist
en talið er, að ef svipuð veður-
blíða haldist fyrir gustan geti
togarinn staðið þarna óskemmd-
ur fram að helgi.
Harkalegur árekstur ái
horni Laugav. og Nóatúns
MJÖG harkalegur bifreiðaárekst
ur varð á mótum Laugiavegs og
Nóatúns um 5-leytið í gærdag,
er Opel-bifreið og Branco-jeppi
skullu sa?rean. I Opel-bifreiðinni
voru tvær stúlkur með tvö börn,
og skrámuðust börnin og blæddi
úr, og voru þau samstundis flutt
á Slysavarðstofuna. Munu þó
meiðsli baraanna orðið minni en
á horfðist í fyrstu.
Einnig skaddaðist ökumaður
Opel-bifreiðarinnar óverulega í
auga. Opelbifreiðin er mjög illa
leikin og má heita, að önnur
hliðin hafi farið af við áregstur-
inn. Bronco-jeppinn, sem var
ekki komin á skrá, var einnig
skemmdur, en þó óverulega mið-
að við Opel-bifreiðina. ökumað-
ur jeppans mun hafa sloppið
ómeiddur úr árekstrinum.
Varúðarráðstafanir
vegna gin- og klaufaveiki
Eldur brýzt út, er
kynding springur
liðið var kvatt á vettvang, kom
á tveimur bílum og tók einn og
hálfan klukkutíma að ráða nið-
urlögum eldsins. Þóra Páls kona
Sigurjóns sá eitthvað var að og
stökkva úr kyndiklefanum í sím
ann og á meðan sprakk mið-
stöðin. Peningakassanuim var
bjargað á síðasta augnabliki.
Súkkulaði, sælgæti, kex og
ávextir í söluturninum eyðilögð
ust. ísvélinni, þriggja lita, var
bjargað. Hún er um 80.000 kr.
virði.
Vísitala fram-
færslukostnað-
ar hækkar um
2 stig
KAUPLAGSNBFND hefur reikn
að vísitölu framfærslukostnaðar
í byrjun janúar 1966 og reyndist
•hún vera 182 stig, eða 2 stigum
hærri en í desemiberbyrjun. Vísi
talan er nánar tiltekið 182.1 stig
á móti 180.3 stigum í desember-
byrjun.
Hækkunin stafar aðallega af
hæikkunum á sjúkrasamlags-
gjaldi á gjöldum pósts og síma
og áskriftargjöldum dagblaða.
Kl. 11.15 á miðvikudagskvöld
kom eldur upp í húsinu nr. 6
við Kirkjubraut. í>að á ekki af
Sigurjóni kaupmanni að ganga.
Fyrir tveimur mánuðum var
þarna lokað Stjömukaffi, og eft-
ir það innréttaður söluturn þar
sem við blöstu glæsilegar aug-
lýsingar um Sinalco og fleira.
Kyndingin sprakk og fylltist
allt af eld og reyk. Eldur og
reykur stórskemmdu ekki "aðeins
nýja sölutuminn heldur læsti
reykurinn sig upp um alla íbúð-
ina og skemmdi hana. Slökkvi-
9-12 stiga
frost í
Reykjavík
1 GÆR varð frostharka mest á
Hveravöllum eða um 19 stig, en
kl. 2 e.h. var það komið niður
í 17 stig. Á láglendi var frostið
mest í Dölum og í Skagafirði
18 stig. Minnst frost var í Mýr-
dal, eða um 2 stg.
Spáð er svipuðu frosti norð-
anlands og vestan næstu daga,
en búizt er við að frost fari að-
eins minnkandi við suðurströnd-
I FJÖLRITUÐU fréttablaði sem
gefið er út daglega um borð í
Kronprins Frederik, sem kom til
Reykjuvíkur í gær, er tilkynning
frá skipstjóra, þar sm sagt er að
harðbannað sé að kasta matar-
leifum eða rusli úr Reykjavíkur-
höfn eða á bryggjumar.
Segir í blaðinu, að þefcta sé
vegna hættu á að gin- og klaufa-
veiki berist til landisns.
Mörgunblaðið hafði í gær sam
band við Pál A. Pálsson, yfir-
dýralækni, og spurðist fyrir um
vei'kina. Sagði hann að hún geis
aði nú á meginlandi Evrópu m.a.
í Hollandi, Belgíu og Rússlandi.
Væru víða gerðar varúðarráð-
Albert Guðmunds-
son heiðraður
RÍKISSTJÓRN Frakklands hef-
ur nýlega sæmt Albert Guð-
•mundsson orðnnni „Ordre du
Mérite“. Albert Guðmundsson,
sem verið hefur ræðismaður
Frakka frá 1964, var um árabil
forseti Alliance Francaise og hef
ur ötullega stuðlað að auknum
vináttutengslum milli Frakik-
lands og íslands.
(Frá franska sendiráðinu)
*
Arekstur
í Hafnarfirði
Harður bifreiðaárekstur
varð á Vesturgötu í Hafnar-
firði kl. 16 í gærdag. Rákust
þar á Wolksvagen- og Mosk-
vitsbifreið og skemmdust báð
ir bílarnir mikið.
Ökumennirnir meiddust
báðir lítillega og gerði lækn-
ir að sárum þeirra 1 Hafnar-
firði.
í KVÖLD er síðasta sýningin á hinu þekkta leikriti Ibsens „Aft urgöngur", í Þjóðieikhúsinu og
er það 19. sýning leiksins. Leikrit þetta hefur genigið vel og hlotið ágæta dóma. Myndin er
ai Val Gíslasyni og Guðbjörgu Þorbjamardóttur í hlutverkum sínum.
stafanir til að hindra útbreiðslu
veikinnar og m.a. hér á landi.
Hefði skipa- og flugfélögum ver-
ið bent á, að stranglega sé bann
að að flytja sláturafurðir til
landsins, óniðursoðnar.
Kvað Páll íslenzk yfirvöld
fylgjast rækilega með að þessar
reglur væru í heiðri hafðar hér.
Fjarlægja þarf
hús við Hverfis-
götu
BJÖRN Guðmundsson (F) mælti
í gær fyrir tillögu, er hann flyt-
ur í borgarstjórn þess efnis að
húsin við sunnanverða Hverfis-
götu, er skaga út í götuna, verði
sem fyrst fjarlægð og að undir-
búningi og framkvæmd þess
verks verði hraðað sem mest.
Birgir fsleifur Gunnarsson,
sagði að undanfarin ár hefði ver-
ið unnið að því að hálfu borgar-
stjó*.,ar að kaupa og fjarlægja
þau hús við Hverfisgötun* er
sköguðu út í hana og þrengdu
hana. Hefðu nú verið keypt
fjögur hús og fjarlægð og einnig
væri gert ráð fyrir að rífa eitt
til viðbótar næsta vor. Til að
koma þessum málum fullkom-
lega í lag þyrfti að kaupa sex
hús til viðbótar, og væri bruna-
bótamat þeirra samtals 3.6 millj.
kr. Vonandi væri, að samningar
um kaup þeirra næðust í niáinni
framtíð. Birgir vék síðan að því
að lítið samræmi væri í þessarri
tillögu Björns við tillögu sem
hann bar fram, er fjárhagsáætl-
un borgarinnar var til umræðu,
en hún var þess efnis að minnka
fjárframlög borgarinnar til fast-
eignakaupa um 1. millj. Birgir
bar síðan fram breytingartillögu,
er var samþykkt og fól hún í sér
vil j ayf irlýsingti borgarstjórnar
að hús þessi yrðu fjarlægð.
KLUKKAN um eitt efUr mið-
nætti aðfaranótt fimmtudags
ók leigubifreið á kyrrstæðan
bíl við húsið Eskihlíð 22 hér
í borg, hélt siðan áfram yfir
grindverk og lenti í kjall-
araglugga hússins. Mun öku-
maður leigubifreiðarinnar
hafa misst stjórn á bílnum af
einhverjum sökum, en ekki
var hált á þessum stað. Báð-
ir bílamir, sem myndin er af
eru stórskemmdir og auk þess
húsið, á þeim stað sem bíllinn
lenti á því. Ökumaðurinn
slapp ómeiddur.
Kvikmyndasýiiin^
Varðbergs ojr SVS
Á LAUGARDAGINN 22. janúar
efna Varðberg og Samtök um
vestræna samvinnu til kvik-
myndasýningar í Nýja bíói i
Reykjavík og hefst hún kl. 2 e.h.
Sýndar verða þrjár kvikmynd-
ir: Endurreisn Evrópu; Saga
Berlímar og Yfirráðin á hafinu,
og eru þær allar með íslenzku
tali Bjarna Guðmundssonar blaða
fulltrúa.
Kvikmyndir þsssar hafa verið
sýndar víða um land, við góða
aðsókn, í tilefni þess. að skammt
er síðan liðin voru 20 ár frá
lokum síðari heimsstyrjaldarinn-
ar. Er þetta í fyrsta skipti, sem
myndirnar eru sýndar fyrir al-
menning í Reykjavík og er öllum
heimill aðgangur að sýningunni,
meðan húsrúm leyfir börnum þó
aðeins í fylgd með fullorðnum.
Þyrla Landhelgis-
gæzlunnar laskast
ÞYRLA landhelglsgæzlunnar
varð fyrir smávægilegu hnjaski
í gærdag er hún lenti á þilfari
varðskipsins óðins, til að taka
eldsneyti. en þyrlan tók í dag
þáfct í leitinni að Flugsýnar-vél-
inni.
Lenti annar spaði þyrlunnar I
stélinu og laskaðist nokkuð við
höggið. Vélin er ekki í flughæfu
ástandi og verður hún flutt til
Reykjavikur til viðgerðar.
Akureyringar aðstoða
við leitina að flugvélinni
Akureyri, 20. jan.
11 manixs úr flugbjörgunar-
sveitinni á Akureyri fóru seint í
nótt á fjórum jeppum áleiðis í
Herðubreiðarlindir og auk þes
var með trukkur og sjóbíll úr
Reykjadal. Komið var í Þor-
steinsskála laust eftir kl. 19, í
dag. Foringi leitarflokksins er
Gísli K. Lorenzson. Ekki þurfti
að nota snjóbílinn á leiðinni í
Herðubreiðarlindir en þó var
leiðin þugfær á köflum. Flokk-
urinn hefur útbúnað til þriggja
daga og verður til taks á Öræf-
um ef flugvélar kynnu að finna
hina týndu vél á þeim slóðum.
Flokkurinn hefur með sér tal-
stöð í umsjá Ásgríms Tryggva-
sonar, sem er í jeppa frá Raf-
magnsveitum ríkisins en lítið hef
ur heyrzt í talstöðinni hér en
betur á Vopnafirði og á Blöndu-
ósi. Einnig á að hafa talstöðvar-
bíl á þjóðveginum milli Gríms-
staða og Reykjahlíðar til að auð-
velda sambandið.
Það óhapp varð í dag að
kveikjuhamar bilaði í jeppanum
en annar nýr verður sendur
með bíl héðan í kvöld eða flug-
vél í fyrramálið og varpað nið-
ur í Lindunum. Hér á Akureyri
eru tiltækir 33 menn með öllum
útbúnaði, ef þörf yrði á leitar-
mönnum á öðrum stöðum eða
senda Þorsteinsskálaflokknum
liðsauka. — Sv. P.