Morgunblaðið - 21.01.1966, Side 11
iTostudagur 21. janúar 1966
MORGU NBLAÐIÐ
11
Hljómplötur
orðið, og Sinfóníu nr. 2-Sálma
sinfóníunni —, en hún var
frumflutt árið 1964. Verk
þessi eru gefin út af Colum-
bia og flutt af Philadelphia-
hljómsveitinni undir stjórn
Ormandys, og er ekki að efa,
að þeir, sem kynnzt hafa fyrri
hljóðritunum á verkum Yard-
umians, bíða þeirra með ó-
þreyju.
Hljóðritanir Columbia í
Bandaríkjunum berast yfir-
leitt til íslands á CBS merki
frá Englandi, en CBS hefur
mér vitanlega ekki sett þessi
verk Yardumians á Evrópu-
markað. Þannig verða þeir,
sem hug hafa á að kynna sér
þau, að panta þau frá Banda-
ríkjunum, en slíkt mun auð-
velt í sumum verzlunum hér
í bæ.
Ef benda ætti á eitt eða
tvö verk öðrum fremur, sem
gott dæmi um tónsmíðar
Yardumians, er hljómplata sú,
er hefur að geyma fyrstu sin-
fóníu höfundar auk fiðlu-
konsertsins trúlega hvað girni
legust og forvitnilegust. Efn-
islega styðst sinfónían við frá-
sögn Biblíunnar um syndaflóð
ið og Nóa. Engan veginn er
þó um hermitónlist að ræða,
en slíkt fer mjög í taugarnar
é sumum og reyndar kannske
oftast bezt að gleyma pró-
gramminu, þegar hlýtt er á
bermitónlist. Heldur er hér
fyrst og fremst byggt á mann-
legri reynslu og þeim marg-
slungna margbreytileik, sem
í því hugtaki felst. Verkið er
samið eftir tólf-tóna kerfi,
sem tónskáldið sjálft skapaði
sér eða lagaði í hendi sér eins
og honum bauð við að horfa.
Þess skal getið til þess að
fæla sem fæsta frá því, að
hlýða á þétta verk, að það
lætur sennilega allsendis óþol
andi í eyrum þeirra, sem
kompónera með reiknistokk
upp á vasann og með hið sama
instrúment í lúkunum, þegar
þeir hlusta.
Sinfónían er flutt af því
„arómatíska“ litauðgi, sem að
eins Philadelpiahljómsveitin
ræður yfir og hljómsveitarút-
setning tónskáldsins býður svo
ríkulega upp á. Það er ef til
vill hægt að flytja verkið bet-
ur, en ótrúlegt má það teljast.
Hljóðritun er tæknilega með
því bezta, sem heyrist frá
Columbia (CBS). Stereo-dreif
ing mjög nákvæm og glögg,
tóngæði frjáls og óþvinguð
jafnvel, þegar mest á reynir í
Btyrkleik.
Fiðlukonsertinn, sem er
hinum meginn á sömu plötu
er fluttur af sömu hljómsveit
og stjórnanda og sinfónlan, en
einleikari er konsertmeistari
Philadelphiuhljómsveitarinn-
ar, Anshel Brusilow. Eitt sinn
var Piladelphiahljómsveitinn
öðrum hljómsveitum fremur
fræg fyrir góða blásara og er
að sjálfsögðu enn. Þegar við
hlýðum á konsertmeistarann,
Brusilow, leika einleik í þessu
verki, fáum við enn eina skýr-
ingu á því, að það, sern í dag
vekur hvað mesta athygli
okkar, er við hlýðum á leik
Philadelphiahljómsveitarinn-
ar, er hinn safaríki og litauð-
ugi tónn strengjaleikaranna.
Hin skýringin er að sjálfsögðu
Ormandy.
önnur verk Yardumians,
sem þegar eru fáanleg, eru:
Passacaglia, recitativ og fúga
fyrir píanó og hljómsveit.
Öll eru verk þessi ekki síður
forvitnileg, áheyrileg, aðgengi
leg og hlaðin því samblandi
dulúðar og trúhneigðar, sem
einkennir hin verkin tvö, sem
fyrr var getið, þótt þau séu
smærri í sniðum. Öll eru þau
flutt af þeim óaðfinnanlega
glæsibrag og trú á ágæti
þeirra, sem auðkennir við-
horf hljómsveitarstjóra og
hljómsveitar. Hljóðritun er
næstum eins góð og hljóðrit-
anirnar á sinfóníunni og fiðlu
konsertinum. Þó ber þess að
geta að tæknilega reyna þessi
smærri verk ekki eins á getu
þeirra, sem að hljóðrituninni
stóðu. Til glöggvunar fyrir þá,
er kynnu að hafa áhuga á að
kynna sér verk þessi, þá eru
skrásetningarnúmer þeirra
þessL: Sinfónían og Fiðlukon-
sertinn MS 6462 (stereo) og
ML 5862 (mono). Passacaglían
o.fl. MS 6229 (stereo og ML
5629 (mono).
Birgir Guðgeirsson.
Sendisveinn
óskast hálfan eða allan daginn.
i, miionm s nisum ir,
Grjótagötu 7. — Sími 24250.
Vörupallar
Útvegum efni í vörupalla fyrir gaffal-
lyftara í hentugum lengdum, beint frá
sögunarverksmiðjum í Svíþjóð.
Timburverzlunin Völundur hf
Klapparstíg 1 — Sími 18430.
Ödýrt
Borð, Stólar, Margskonar saumavélar,
Hillur á hjólum, Fataslár og fl.
Til sýnis e.h. í HÖFÐAVÍK V./SÆTÚN.
Volkswagen
árgerð 1962
Tilboða er óskað í Volkswagen bifreið eins og hún
nú er eftir veltu.
Bifreiðin er til sýnis hjá Davíð Guðbergssyni,
Bústaðabletti 12.
Tilboðum sé skilað fyrir hádegi mánudaginn 24.
janúar 1966 til Ólafs Árnasonar, Almennum Trygg-
ingum hf, Pósthússtræti 9.
4ro herb íbúðurhæð
d Seltjarnornesi
Til sölu óvenju skemmtileg 4 herb. íbúð á 2. hæð
í 3 býlishúsi við Melabraut á Seltjarnarnesi. 1 herb.
fylgir á jarðhæð. Sér inngangur ,sér þvottahús og
gert er ráð fyrir sér hita. Eignarlóð. Bílskúr. íbúðin
selst fokheld og er tilbúin til afhendingar strax.
s kipa- og 1 fasteignasalan 1
Hafnarfjörður
Til sölu einbýlishús í Vesturbænum 3 svefnher-
bergi á efri hæð og bað, eldhús og samliggjandi
stofur á neðri hæð, 2 herbergi, þvottahús og
geymslur á jarðhæð. — Getur verið laust strax.
Skip & fasteignir
Austurstræti 12 — Sími 21735
Eftir lokun 36329.
I sollsti veneti
hin fræga ítalska strengjaSveit undir
stjórn Claudio Seimone.
Tónleikar
í Austurbæjarbíó föstudaginn 28. janúar kl. 9.
Efnisskrá:
1. VIVALDI: Árstíðirnar fjórar.
2. PERGOLESI: Konsert í f moll nr. 4.
3. ROSSINI: Þriðja sónata fyrir strengi í C dúr.
Ummæli gagnrýnenda um leik þeirra félaga f nóvem-
ber 1963 í Þjóðleikhúsinu:
„ . . . valinn maður í hverju rúmi.“
„Árstfðakonsertar Vivaldis svo geislandi af lífi og fjöri
að minnisstætt mun verða.“
Jón Þórarinsson í Mbl.
....flutningur frábærlega samstilltur frá fyrsta til
síðasta tóns.“
Unnur Arnórsdóttir í Tímanum.
„ . . . tvímælalaust meðal fremstu í sinni röð og
stendur í engu að baki frægustu strengjahljómsveita
eins og t. d. Virtuosi di Roma eða „I Musici."
„Áheyrendur fengu að hlýða á fágaðan samleik
valdra músikanta.“
Leifur Þórarinsson í Vísi.
ATH.: Þetta verða einu tónleikarnir
í Reykjavík.
Aðgöngumiðar seldir hjá Lárusi Blöndal Skóla-
vörðustíg og VesturverL
Pétur Pétursson.
Að gefnu tilefni
skal það tekið fram að þær konur einar, eiga hér
tryggð pláss, sem pantað hafa þau fyrirfram og verið
hér í skoðun á meðgöngutímanum.
Fæðingarheimilið í Kópavogi.
Smíðum allt tréverk
innaní nýbyggingar, bæði íbúðir, verzlanir og annað.
Hurðir og karmar til sýnis á staðnum.
Trésmiðja PÁLS GUÐJÓNSSONAR
Súðavog 24, símar 37454 og 32997.
Fiskibátur til sölu
15 rúmlesta bátur 2 ára gamall með línuspili, Simrad
dýptarmæli (hvít línu). Útborgun 145 þús.
Launakjör eindæma hagstæð. Fasteignaveð ekki
nauðsynleg.
Talið viJ okkur um
kaup og sölu fiskiskipa.
Sími 13339.
HJÁLPARSETT FVRIH FISKISKIP
^ ................................ 1 *
Fyrirliggjandi núna með 11 hestafla loftkældri
Diesel-vél, 4 kílówatta, 32 v., rafal, loftþjöppu og
sjódælu.
STURLAUGUR JÓNSSON & CO., Sími 11754.