Morgunblaðið - 21.01.1966, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
FðstuíJagur 21. Janúar 1961
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Auglýsingar:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Áskriftargjald kr. 95.00
í lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
ALVARLEG
STAÐREYND
rins og á hefur verið bent
hér í Morgunblaðinu, er
ástæða til að hafa nokkrar á-
hyggjur af því hvernig sam-
setning sjávarafla okkar á
síðastliðnu ári var. Þorskafl-
inn minnkaði frá árinu áður,
en síldaraflinn reyndist %
hlutar af heildarmagninu.
Sl. miðvikudag birti dag-
blaðið Vísir frétt þess efnis,
að Gylfi Þ. Gíslason hefði
skýrt frá því á fundi í Al-
þýðuflokksfélagi Reykjavíkur
fyrir skömmu, að rannsóknir
íslendinga og annarra þjóða
hefðu leitt í ljós að tæplega
væri hægt að gera ráð fyrir
aukningu þorskaflans við ís-
landsstrendur, þar sem svo
hart virðist hafa verið að hon-
um gengið á undanförnum ár-
um. Talið er, að sókn íslend-
inga og annarra fiskveiði-
þjóða á þorskmiðin hafi auk-
izt um 80%, en samt sem áður
hefur þorskaflinn minnkað.
Dánartala þorsksstofnsins við
strendur íslands er nú að áliti
fiskifræðinga 70%, sem telja
að um minnkun stofnsins sé
að ræða, ef þessi tala fer yfir
65%.
Sú staðreynd, að sveiflu-
kenndur síldarafli er svo mik-
ill hluti heildaraflamagnsins
á síðastliðnu ári og sú stað-
reynd, að þorskaflinn hefur
minnkað og ekki eru líkur á
að hægt sé að auka hann,
hlýtur óhjákvæmilega að
vekja nokkurn ugg um það,
að erfitt sé að byggja á því, að
fiskveiðarnar geti til lengdar
staðið undir sífellt bættum
lífskjörum íslendinga. Síld-
veiðarnar hafa að vísu gengið
mjög vel á síðustu árum, og
enginn vafi er á því, að það
er fyrst og fremst vegna
stærri skipa og betri veiði-
tækni. Margir munu halda því
fram, að þótt síldaraflinn hafi
tekið miklum breytingum á
undanförnum áratugum, muni
nútíma veiðitækni tryggja
veiðarnar í framtíðinni. Menn
minnast þess þó, að á síldar-
árunum eftir stríðið var hið
sama sagt, aukin veiðitækni
mundi tryggja stöðugan síld-
arafla, en öllum er kunnug sú
saga.
Á næstu árum og áratugum
munu lífskjör fólks um heim
allan taka stórbreytingum til
-hins betra. Þetta á ekki sízt
við um hin háþróuðu iðnaðar-
ríki V-Evrópu og Ameríku.
Það gefur auga leið, að erfitt
mun fyrir okkur íslendinga
að tryggja okkur lífskjör til
jafns við nágrannaþjóðir okk-
ar í Vestur-Evrópu og Amer-
íku, ef við verðum sífellt háð-
ir hinum breytilega sjávar-
afla, ekki sízt þegar þær stað-
reyndir eru hafðar í huga,
sem nefndar voru hér að
framan. Ef litið er á málin í
þessu ljósi ætti engum að
dyljast nauðsyn þess að hefja
nútíma iðnvæðingu í stórum
stíl og treysta þar með undir-
stöður þjóðfélags okkar og
búa svo í haginn, að á íslandi
geti menn lifað við ekki lak-
ari lífskjör en í þeim löndum,
sem næst okkur eru.
MERKUR
ATBURÐUR
au tíðindi hafa nú gerzt á
Indlandi, öðru fjölmenn-
asta ríki veraldar, að Indira
Gandhi, dóttir Nehrus, hins
látna og mikilhæfa leiðtoga
Indverja, hefur verið kjörin
forsætisráðherra landsins.
Erfitt er fyrir ókunnuga að
gera sér grein fyrir þeim á-
stæðum, sem legið hafa til
kjörs Indiru Gandhi, en þó
virðist ljóst, að val hennar
hafi stuðlað að einingu í
Kongressflokknum indverska,
og að hún hafi notið mjög víð
tæks stuðnings meðal Ind-
verja af háum stéttum sem
lágum.
Fyrir hina fjölmennu, ind-
versku þjóð, þar sem fátækt
og þekkingarskortur er mik-
ill, skiptir miklu máli, að
landsmenn geti sameinazt um
einn þjóðarleiðtoga, sem jafn-
framt er þjóðartákn þeirra.
Dóttir Nehrus hefur greini-
lega verið talin sú, sem veitt
gæti Indverjum slíka forustu.
Kjör Indiru Gandhi mun
þykja mikil tíðindi um víða
veröld, og enginn vafi er á
því, að fylgzt verður með
störfum hennar af mikilli at-
hygli og hvernig henni tekst
til í hinu vandasama forustu-
hlutverki, sem hún hefur nú
tekizt á hendur, vafalaust
varldasamasta starf sem nokk
ur kona gegnir nú í heimin-
um.
HVER ER MÆLI-
KVARÐINN?
¥ Morgunblaðinu fyr-
ir nokkrum dögum
var frá því skýrt, að Súk-
arnó Indónesíuforseti hefði
upplýst, að 87 þúsund manns
hefðu verið drepnir frá því
að byltingartilraunin var gerð
þar í landi, hinn 1. október
síðastliðinn. Þessi óskaplegu
fjöldamorð, sem að mestu
munu hafa verið framin á
kommúnistum í Indónesíu,
hafa verið unnin á örstuttum
tíma.
Ýmsir, sem fylgjast með
alþjóðastjórnmálum virðast
UTAN ÚR HEIMI
Talar „þjóöfrelsishreyfingin"
fyrir íbúa Suður-Vietnam ?
— eftir Benjamin West
EIN ÞEIRRA hugmynda, sem
stuðningsmenn kommún.ista,
Viet congr, reynir að laeða inn
hjá almenningi, er, að skæru-
liðar og stjórnmáladeild
þeirra, „þjóðfrelsisfylkingin“,
sé raunverulegur fulltrúi og
málsvari íbúa Suður-Vietnam.
Er einhver sannleikur í þess
ari fullyrðingu? Sé uppruni
„þjóðfrelsishreyfingarinnar“,
svo og síðari þróun hennar og
athafnir, athugaður vandlega,
kemur allt annað í ljós, varð-
amdi vinsældir hennar, al-
mennan stuðning, og hvert
hún sækir stuðning sinn og
styrk.
Frá upphafi hefur það verið
kommúnistaflokkur Norður-
Vietnam, Lao-Dong, sem
mestu hefur ráðið innan
„þjóðfrelsishreyfingarinnar".
Fram til ársins 1959 ollu
skæruliðar Vietcong aðeins
minnf háttar óþægindum, því
að þeir gerðu sig aðeins við
og við seka um hryðjuverk,
sem voru fyrst og fremst fólg
in í sprengjukasti í borgum,
og morðum í þorpum landsins.
1959 lýsti forseti N-Vietnam,
Ho Chi Minh, því hins vegar
yfir, að „bylting" kommúnista
yrði að breiðast til S-Vietnam.
Snemma á því ári sagði Vo
Ngyuen Giap, herstjóri, að
Hanoi væri „byltingarmiðstöð
alls landsins". Loks tilkynnti
útvarpsstöðin í Hanoi í des-
ember 1960 í fyrsta sinn stofn
un „þjóðfylkingar til að
frelsa S-Vietnam“, og í fyrsta
ávarpi fylkingarinnar, í Hanoi
útvarpinu 29. janúar 1961, var
sagt að tilgangurinn væri að
steypa af stóli stjórn Suður-
Vietnam.
Það var um þetta leyti, að
nauðsynjar, vopn og mannafli
fóru að streyma frá N-Viet-
nam til S-Vietnam, í vaxandi
mæli. Skömmu síðar kom
fram á sjónarsviðið nýr aðili,
sem reyndist hafa á hendi
stjórn „þjóðfrelsishreyfingar-
innar“, „þjóðlegi byltingar-
flokkurinn“, sem var lýst svo
í útvarpinu í Hanoi, að þann
væri „fulltrúi Marx-Lenin-
isma í Suður-Vietnam“. Skil-
ríki, sem síðan hafa náðst,
hafa leitt í ljós, að „þjóðlegi
byltingarflokkurinn" er aðeins
angi af kommúnistaflokk N-
Vietnam. Hvað varðar stuðn-
ing manna í S-Vietnam við
„þjóðfrelsishreyfinguna“, er
rétt að hafa hugfast, að eng-
inn atkvæðamaður þar í
landi, hvorki stjórnmálamað-
ur né menntamaður, hefur
nokkru sinni tilkynnt stuðn-
ing við þessa fylkingu, þótt
margir þeirra hafi oft verið
á öndverðum meiði við stjórn
ina í Saigon.
Hefur „Þjóðfrelsishreyfing-
unni“ þrátt fyrir sögu sína,
orðið eitthvað ágengt við að
vinna fylgi íbúanna í S-Viet-
nam? Áróðursbrögð hennar
undanfarna mánuði færa
glöggar sönnur á, hvernig tek-
izt hefur til að þessu leyti. Frá
því í ágúst á s.l. ári hefur
fylkingin oft hvatt til vissra
athafna. í hvert skipti hafa
viðbrögð almennings verið
fullkomið hirðuleysi.
2. september s.l. hét fylk-
ingin á háskólastúdenta, sem
voru herskyldir, og búast
máttu við útboði, ,að rísa upp
og steypa lepp- og landsölu-
stjórninni". Enginn stúdent
sinnti þessu kalli kommúnista,
og þremur dögum síða,r gaf
fylkingin þá skýringu, að
þetta tiltæki hefði misheppn-
azt, vegna þess, að „vinir
Bandaríkjanna hefðu smeygt
sér inn í raðir háskólastúd-
enta“.
Síðan gerðist það 7. sept-
ember s.L, að „frelsisútvarp-
ið“ hóf áróðurssókn, og hvatti
menn í S-Vietnam til mót-
mælaaðgerða til að sanna hat
ur þjóðarinnar á Bandaríkja-
mönnum og stjórninni í Sai-
gon. Meðal annars voru menn
hvattir til að hefja allsherjar
verkfall 15. október, yfirgefa
borgir og þorp, svo að þau
yrðu mannlaus, rjúfa samgöng
ur og fjarskipti hvarvetna, og
ganga í hópum í „hersveitir
byltingarsinna", — m.ö.o.
Vietcong. Einu mótmælaað-
gerðirnar, sem áttu sér stað,
fóru fram í þorpum, sem Viet
cong réð yfir. Skömmu síðar
hætti „þjóðfrelsishreyfingin"
slíkum áróðri.
Einu sinni gat þó fylkingin
haldið því fram, að almenn-
ingur hafði sinnt áskorun af
sinni hálfu. Hún hét á menn
að efna til 15 mínútna þagnar
stundar, frá kl. 13.00 til 13,15,
tiltekinn sunnudag. Allt var
hljótt á þessum tíma, því að
þá er ævinlega alit kyrrt í
Saigon, enda hvílast þá borg-
arbúar í mestu hitasvækjunni.
Undanfarnar vikur hefur
fylkingin ekki gefið út neinar
sérstakar áskoranir til almenn
ings. Að vísu hefur hún út-
varpað ávarpi um „að hætta
samskiptum við bandarísku
innrásarherina“, en gætt þess
vandlega, að heimta ekki að-
gerðir eða athafnir, sem hægt
væri að sjá, eða fylgjast með.
Ástæðan virðist augljós:
íbúar S-Vietnam hafa ekki
reynzt uppnæmir fyrir áskor-
unum „þjóðfrelsishreyfingar-
innar“, af því að þeir telja
ekki, að hún sé málsvari
þeirra, eða fulltrú’
leggja undarlegt og harla af-
stætt mat á samtímaatburði.
Atburðirnir í Indónesíu t. d.
virðast hafa vakið harla litla
athygli hér á landi, en Viet-
namstríðið þeim mun meiri,
enda þótt mannfallið í Indó-
nesíu sé tiltölulega miklu
meira. Þannig virðast komm-
únistar hér á landi þafa til-
tölulega lítinn áhuga á að-
gerðunum gegn samherjum
þeirra í Indónesíu þar sem
Súkarnó og fylgismenn hans
hafa ekki enn verið bendl-
aðir við „heimsvaldastefnu“
Bandaríkjanna.
Sótor d línuveið-
or írd Stokhsevri
Stokkseyri, 18. jan.
í FYRRINÓTT reru héðan
þrír bátar með línu í fínu veðri,
en þegar kom fram undir há-
degi gekk í norðan hvassviðri
og stórhríð. Náðu bátarnir ekki
landi fyrr en kl. 12 í nótt vegna
dimmviðris. Afli var dágóður,
4-8 tonn á bát. Engin reri héðan
í morgun vegna hvassviðris.
— St. J.
Forstjórinn
settur af
París, 19. jan. — AP —
FORSTJÓRI rannsóknarlögregl-
unnar og þeirrar stofnunar er
annast njósnir í Frakklandi, hef-
ur verið settur af. Talið er, að
ástæðan sé fyrst og fremst sú,
að stofnun þessi hefur nokkuð
komið við sögu í sambandi við
ránið á Ben Barka, flokksleið-
toga frá Marocco, fyrir þremur
mánuðum. Deilt hefur verið á
frönsku stjómina vegna þess, að
talið var að stofnun þessi hefði
í rauninni staðið á bak við rán-
ið.
Sá er tekur vð emibætti Paul
Jacquier heitir Eugene Guibaud,
og hefur hann starfað í Saigon
um nokkurt skeið. Skömimu eftir
að Jacquier var tilkynnt um for
stjórasikiptin, fór hann til fund-
ar við Louis Zollinger sem ann-
ast hefur alla rannsókn í sam-
bandi við ránið á Ben Barka
Talsmaður frönsku stjórnarinn-
ar, Yvon Bourges, sagði, að
stjórnin bæri fullt traust til
Jacquiers, en hann hefði verið
kominn á eftirlaunaaldur fyrir
6 mán., og því þyrfti þessi breyt
ing eklki að koma neinum á
óvart.
Blöðuim í Frakklandi hefur ver
ið tíðrætt um Ben Barka miálið
og telja mörg þeirra að lögregl-
an hafi gengið slælega fram í
að upplýsa málið. Sá orðrómur
hefur lengi verið á kreiki, að
lögreglan hafi í rauninni verið
viðriðin ránið. Sumar heimildir
telja, að Ben Barka hafi líklega
verið myrtur af einihverjum, sem
eigi vildu að hann kæmist til
Marocoo, en þar hafði hann í
hyggju að taka að sér forystu
stjórnimálaandstæðinga.
Allmörg dagblöð í Frakklandi
'hafa heimtað að stjórnin og lög
reglan gerði hreint fyrir dyrum
í þessu máli, því þessir aðilar
hlytu að vita meira en þeir hefðu
látið uppi til þessa. Blöðin telja
mannrán þetta vera þjóðar-
hneyksli, sem verði að upplýsa.
De Gaulle er sagður hafa gefið
fyrirskipun, um að rannsókn
þessa miáls verði hraðað sem
mest.
Bonn, 18. jan. AP—NTB.
• DR. Konrad Adenauer,
fyrrum kanzlari Vestur-
Þýzkalands hefur orðið aS
fresta fyrirhugaðri ferð sinni
til Parísar, sökum veikinda.
Adenauer, sem nú er níræður,
fékk slæmt kvef fyrir nokkr-
um dögum. Hann ætlaði íil
Parisar á mánudag til við-
ræðna við de Gaulle Frakk-
landsforseta.