Morgunblaðið - 21.01.1966, Síða 26
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 21. janúar 1966
w
Fjör í handknattleBknum
Oukla, DHFK og
PúBand á einni viku
Dukla kemur 6.feb., DHFK 9.
og Pólverjar 13. febrúar
NÆSTU viðfangsefnin hjá hand
knattleiksfólkinu — og stærstu
atburðirnir í íþróttalífinu hér á
landi eru leikir FH og Vals í
átta liða úrslitum í keppni meist
araliða karla og kvenna um
Evrópubikarana íslandsmeistar-
ar FH í karlaflokki drógust móti
tékknesku meisturunum Dukla
frá Prag og meistarar Vals í
kvennaflokki móti DHFK í Leip-
zig. f kjölfar þess að leikir þess-
ara liða fara fram hér á landi
kemur svo landsleikurinn við Pól
verja í heimsmeistarakeppninni,
en hann verður í íþróttahöllinni
í Laugardal sunnudaginn 13. febr.
Staðcm
STAÐAN í hinum 5 riðlum
heimsmeistarakeppninnar í
handknattleik
A riðill:
Tékkóslóvakía 2 2 0 0 50:23 4
Austurríki 2 1 0 1 32:47 2
Noregur 2 0 0 2 20:32 0
B riðill:
V.-Þýzkl.
Sviss
Holland
Belgía
C riðill:
A.-Þýzkl.
Rússland
Finnland
D riðill:
Danmörk
Pólland
ísland
E riðill:
Ungverjaland 1 1 0 0 24:15 2
Frakkland 1 0 1 0 14:14 1
Júgóslavía 2 0 1 1 29:38 1
2 2 0 0 40:19 4
3 2 0 1 62:41 4
2 1 0 1 27:27 2
3 0 0 3 39:81 0
2 2 0 0 50:32 4
2 1 0 1 42:35 2
2 0 0 2 27:52 0
2 2 0 0 39:28 4
2 10 1 43:41 2
2 0 0 2 31:44 0
FH og Dukla hafa staðið í
skeytaviðskiptum til að ákvarða
ieikdaga. Stungu Tékkarnir upp
á að leika hér 13. feb. hér í Rvík
en 20. jan. í Prag. 13 feb. kem-
ur að sjálfsögðu ekki til greina
þar sem ákveðinn er landsleikur
við Pólverja þann dag. FH hefur
því stungfð upp á 6. feb. hér
og er líklegt að sá dagur verði
fyrir valinu. Úti verður senni-
lega leikið þann 20. feb.
Valsmenn fengu fljótlega
skeyti frá Leipzig þar sem stung
ið var upp á leik í Reykjavík
9. eða 16. feb. og 16., 19 eða 20.
feb. í Leipzig. Valur hafði þá
þegar undibúið sínar tillögur og
voru þær um leik í Reykjavík 9.
og í Leipzig þann 20. feb.
Má því fullvíst telja að kvenna
liðin leiki hér miðvikudaginn 9.
feb. og í Leipzig þann 20. feb.,
fyrst óskir félaganna falla svo
vel saman.
Bikararnir sem um er keppt og getið er í greininni.
'xmwiWMí. /m! >
(Ljósm. Mbl. Ól. K. M.]
Keppt er um bikar sem engum
hefur tekizt að eignast í 23 ár
— á skíðamóti IR á sunnudag
Skíðadeld ÍR efnir til síns ár-
lega innanfélagsmóts við skála
félagsins í Hamragili, n.k. sunnu
dag, 23. jan. kl. 1 e.h. Mót þetta
er orðinn fastur liður í starfi
deildarinnar og er nær jafngam-
alt skíðadeild ÍR.
Á mótinu er keppt í svigi í
flokki karla, kvenna, drengja og
stúlkna.
„Segið danska liðinu að olnboga-
skot í andlit verði aldrei leyfð“
— segir dómarinn Rosmanith
FRÉTTARITARI Mbl. í Kaup-
mannahöfn fylgdist með því sem
dönsk blöð skrifuðu um lands-
leik islendinga og Dana í hand-
knattleik. Hann sendi eftirfar-
andi frétt í gær.
Dönsku landsliðsmennirnir í
handknattleik kvörtuðu mjög
yfir því hve íslenzku leikmenn-
irnir væru harðhentir og þeirri
hörku sem liðið beitti í leik sín-
um.
Fyrirliði danska liðsins Gert
Andersen sagði í samtali við
Politiken: „Sjálfur leik ég yfir-
leitt af hörku, en aldrei á mínum
keppnisferli hef ég kynnzt öðru
eins af því tagi og í leiknum
við íslendinga. Það var eins gott
að hafa fulla gát á gerðum sín-
um hverja sekundu til að kom-
ast hjá vinstri handarhöggi eða
höfuðhöggi (upper cut). Það
Framhald á bls. 27.
Bréf sent íþrúttasíðunni:
Landsliiið ruddist í eld-
húsið ai fá óáfenqa drykki
og gat selt ísl. krónur á fimmföldu verði
ÍÞRÓTTASÍÐUNNI barst í
gærkvöld þetta bréf frá Gunn
laugi Hjálmarssyni, frægasta
landsliðsmanni okkar í hand-
knattleik. Hann segir þar
kafla úx ferðasögu ísl. lands-
liðsins og samkvæmt leyfi
hans er bréfið birt:
Varsjá, 14.1. 1966.
Enn á ný verður íslenzka
landsliði’ð í handknattleik
þess aðnjótandi að gista hina
austurænu „sælu“.
Við komum til Varsjá rétt
eftir hádegi þann 14. janúar,
og fengum þá að vita að til
Gdansk yrði ekki haldið fyrr
en að morgni þess fimmtánda,
degi síðar en ætlað var.
Okkur var ráðstafað á Hótel
Varsjá, og má segja að fyrstu
kynni okkar af gæðum þess
hafi verið næsta ömurleg. f
anddyri þess gaus gegn okkur
remma ein mikil, súr og ógeð-
felld í alla staði, þannig að
haustustu menn í okkar hópi
fölnuðu í andliti.
Ekki tók betra við, er til
herbergja skyldi haldið, kom
þá í Ijós að aðeins þrjú þeirra
voru laus, en gestir í hinum
fimm. Voru nú góð ráð dýr.
Varð úr að farangur allur var
settur í þessi þrjú herbegi og
okkur boðið til snæðings með
an uppteknu herbergin yrðu
rýmd.
Snæðingur þessi varð þó
ekki með öllu vankantalaus,
eins og alltaf áður þegar
„austur“ fyrir er haldið. Kom
í ljós að útilokað var að fá
nokkuð drykkjarhæft með
matnum, er þar frátalinn bjór
sem er bannvara í ferðum
okkar, þar til leikjum er lok-
ið. Eftir mikið japl og jaml
og fuður kom þó í ljós er
ráðizt var inn í eldhús hótels-
ins, að gnægð var þar drykkj-
arfanga óáfengra. En pólsk-
um mun hafa þótt þau of verð
mikil, en verð þeirra var
geysihátt. Fór svo að lokum,
að við sem höfðum uppi há-
reysti gegn meðferð þessari,
keyptum sjálfir það - sem
drykkjarhæft var, en hugsuð-
um gestgjöfum okkar þegj-
andi þörfina. Matur sá er fram
var reiddur reyndist síðan
léttur í maga þessara átvagla
(á pólska vísu), enda frekar
lélegur og af skornum
skammti. Það skal tekið fram
að er þessi máltíð fór fram,
voru liðnar sjö klukkustundir
frá morgunverði í Kaup-
mannahöfn.
Eitt er það sem ekki sokrtir
hér í Varsjá, það eru vin-
gjarnlegir náungar sem hjálpa
erlendum ferðamönnum að
drýgja aura sína. Bjóða þeir
fimmfalt gengi fyrir erlendan
gjaldeyri miðað við pólska
skrásetningu, og meira ef um
dollara er að ræða, og eru
íslenzkar krónur þá ekki und-
anskildar. Mikill urmull virð
ist vera af þessum mönnum,
og enginn friður fyrir þeim
á .götum ú.ti. Má segja að þetta
sé góð þjónusta, og allavega
sú bezta „austantjalds“, því
þessari starísemi höfum við
kynnst víðar í þessum ágætu
alþýðuríkjum.
Sem sagt, árla morguns för
um við til Gdansk, en þar
skal hefja orrustu mikla. Má
segja að undir gengi okkar
þar, séu örlög íslenzks hand-
knattleiks á næsta ári komin.
Hópurinn er samstilltur og
mun berjast til loks leiksins
fyrir málstað íslands.
Kveðjur frá öllum.
G. H.
í öllum flokkum er keppt um
veglega bikara og hefur rausn-
arleg verðlaunaveiting jafnan
sett nokkurn svip á mótið.
Hér fylgir mynd af þeim fjór-
um glæsilegu verðlaunagripum
sem nú er keppt um. Lengst t.v.
á myndinni er bikar sem gefinn
var fyrir þetta mót í fyrra. Gef-
andi var Sigrún Sigurðardótir,
sem lengi var bezta skíðakona
ÍR og vann m.a. á þremur árum
veglegan bikar sem 1 upphafi
þessa innanfélagsmóts var gef-
inn til kvennafloks. Bikar Sig-
rúnar er veittur sigurvegara í
kvennaflokki. Handhafi hans nú
er Jakobína Jakobsdóttir.
Næst stendur „Alberts-bikar-
inn“ gefinn af Albert Guðmunds
syni í fyrra. Um hann er keppt
í flokki drengja yngri en 16 ára.
Það ætti að verða keppikefli
allra stráka ÍR að varðveita
þennan fagra grip. Handhafi
hans nú er Eyþór Haraldsson.
Þriðji frá vinstri er svigbikar
karla. Hann var ásamt tveim
öðrum bikurum gefinn 1943 tii
keppni á innanfélagsmóti iR.
Gefendur bikaranna þriggja
voru Ásgarður hf., Eggert Kristj
ánsson og Egill Vilhjálmsson.
Tveir bikaranna unnust fljótt,
en um þennan bikar, sem keppt
er um í karlaflokki, hefur orðið
geysihörð keppni. Margir af
beztu skíðamönnum landsins
hafa unnið bikarinn, en eng-
inn 3 skipti í röð eða 5 sinnum
alls eins og þarf um þennan bik
ar og alla hina til að eignast þá.
Eysteinn Þórðarson er sá eini
sem unnið hefur hann þrisvar,
árin 1952, 53 og 1959. Handhafi
bikarsins rji er Þorbergur Ey-
steinsson.
Lengst t.h. er bikar er Magn-
ús Baldvinsson gaf í fyrra og er
keppt um hann í flokki stúlkna
yngri en 16 ára. Handhafi bik-
arsins er Auður .Björg Sigur-
jónsdóttir.
Allir skíðamenn og konur inn
an ÍR eru hlutgengir keppendur
á þesu móti og má búast við
harðri keppni um svo veglega
gripi nú eins og raunar jafnan
áður. Skráning og nafnakall fer
fram í skála félagsins sunnu-
daginn 23. jan. kl. 12 á hádegi.
Skíðadeild ÍR vonast til þess
að sjá sem flest skíðafólk í
Hamragili um helgina. Skorað
er á ÍR-inga eldri og yngri að
fjölmenna við skálann.