Morgunblaðið - 21.01.1966, Síða 27
Fðstudagur 21. Janúar 1965
MORGUNBLAÐIÐ
27
— Leítin
Framhald af bls. 28
Þá fór björgunarsveitin í Vík í
Mýrdal á snjóbíl austur að Hjör-
leisfhöfða, og leituðu um Hafurs-
ey upp að skriðjöklinum fyrir
ofan og fram með Höfðabrekku-
jökli.
Alls tóku um 15 flugvélar þátt
í leitinni í gær, og var leitað
allt norðan frá Mývatnsöræfum
að Vatnajökli og yfir hann aust-
anverðan að undanteknum aust-
asta. hlutanum frá Eyjabakka-
jökli að norðan og suður, vestan
Lambatungnajökuls. Þá var ekki
hægt að leita á Snæfelli og um
talsvert svæði þaðan norður,
sakir þoku. Loks var leitað tals-
vert rækilega sunnan og vestan
við Vatnajökul.
Blaðið hafðí i gær samband
við Sigurð M, Þorsteinsson, sem
stjórnaði leitinni á landi frá Eg-
ilsstöðum. Hann kvað þetta vera
eitthvert víðáttumesta svæði,
sem hann myndi eftir að hefði
verið leitað á, eða allt frá Borg-
arfirði eystra, inn á Herðubreið-
arlindir, þar sem björgunarsveit
frá Akureyri væri, og allt suð-
ur að Vík í Mýrdal. Gizkaði Sig-
urður á að milli 4—500 manns
hefðu tekið þátt í leitinni í gær,
auk flugvélanna 15, og rúmlega
10 báta og skipa. Sigurður og
Flugbj örgunarsveitarmennirnir
26, sem þarna hafa leitað tvo
undanfarna daga, ætluðu að
halda heimleiðis í gærkveldi.
( L "
- Iþróttir
• Framh. af bls. 26
var ekki a'ðeins það að íslenzku
leikmennirnir notuðu -olnbogana
hvenær sem færi gafst, heldur
hélt einn þeirra fyrir augu mér
allan leikinn, svo ég hafði aldrei
tækifæri til að grípa boltann."
Annar leikmaður Dana, Jörgen
Vodsgaard segir:
„Ef ísl. leikmennirnir urðu
ergilegir yfir að missa knöttinn,
þá gat maður átt von á áð fá
högg í andlitið.“
Sagt er frá því í Ekstrabladet,
að Þorsteinn Björnsson vara-
markvörður ísl. liðsins hafi ráð-
izt á dómarann og tekið í hnakka
drambið á honum. Hafi það þó
ekki sakað dómarann því þrír
leikmenn íslenzkir hafi hlaupið
til og skakkað leikinn.
Ekstrabladet hefur stutt sam-
tal við dómarann Rosmanith og
hann segir þar:
„Það voru ísl. leikmennirnir
sem hófu hörkuleikinn — en
ég get fullvissað yður um,
að danska vörnin var ekki
sein á sér að upphef ja sams-
konar leik. Segið dönsku
landsliðsmönnunum það, að
olnbogaskot í andlit mótherj-
annna verði aldrei leyfð.“
Karl Benediktsson þjálfari
segir við fréttamann Poli-
tiken.
„Við erum neyddir til að
beita slíkri hörku í leik, sem
við beittum í kvöld, til þess
hreinlega að vera gjaldgengir
j á alþjóðlegan mælikvarða.“
Dómarinn Rosmanith segir við
annan fréttamann:
„Leikurinn var kátbroslegur,
næstum of kátbroslegur til þess
að hægt sé að telja hann til al-
vöru-landsleiks. Spili'ð var allt of
hægt og allt of staglkennt. Hið
hraða spil sem Danir eru frægir
fyrir sást ekki“.
Vörður
V arðarf élagar hafa fyrir
nokkru fengið senda happdrætt-
ismiða. Áríðandi er, að fuli skil
verði gerð hið fyrsta. Skrifstofa
happdrættisins í Sjálfstæðishús-
inu er opin daglega, sími 17100.
Landsmálafélagið Vörður
Menn úr Flugbjörgunarsveitinni á fjallgarðinum við Norðfjörð. Ljósm.: Pétur Þorleifsson.
Töldu sig sjá og
heyra í flugvél
ALLMARGIR Austfirðingar töldu sig heyra og jafnvel
sjá til flugvélar á þriðjudagskvöld sl., er Flugsýnarflug-
vélin týndist (samanber kort á bls. 28). Mbl. hafði tal af
nokkrum þeirra og fara lýsingar þeirra hér á eftir:
Heyrði í flugvél um 11 leytið
0 Á Seyðisfirði sáu margir
eða heyr’ðu til flugvélar
þetta umrædda kvöld. Frétta-
ritari Mbl. á Seyðisfirði hafði
tal af noklcrum, sem telja sig
hafa séð eða heyrt til flug-
vélar þetta kvöld. Fer frá-
sögn hans hér á eftir: '
— Fjöldi fólks heyrði hér
e'ða sá til flugvélar á þriðju-
lagskvöld, en í flestum til-
fellum eiga menn erfitt með
að gera sér grein fyrir, um
hvaða leyti það hafi verið,
og ber tímunum víða ekki
saman. Einna greinilegustu
lýsinguna fékk ég hjá Bergi
Tómassyni, ungum bónda í
Fjarðarseli, sem er skammt
fyrir innan kaupsta'ðinn.
Hann sá flugvél fljúga inn
með Bjólfi og inn á Fjarðar-
heiði, en það er vanalegasta
flugleiðin til Egilsstaða. Berg-
ur telur flugvélina hafa flogið
óéðlilegt lágt, því að yfirleitt
fljúga stærri flugvélar í tals-
vert mikilli hæð yfir fjöllun-
um á þessari leið, en ekki
milli fjallanna líkt og þessi
gerði. Bergur athugaði ekki
hvað kukkan var, þegar hann
sá til flugvélarinnar, en getur
sér til, að það hafi veríð rétt
fyrir kl. 11. Aftur á móti
telur faðir Bergs, Tómas
Emilsson, að hann hafi heyrt
til flugvélar rétt fyrir kl. tíu,
en hann sá hana ekki. Telur
hann að hún hafi verið á leið
til Norðfjarðar. — Sveinn.
Heyrðu í flugvél um kl. 23.30
0 Þá hafði blaðið samíband
við Ingunni Gunnlaugs-
dóttur, húsfrú á Kleiif í Breið
dal, en maður hennar, Ing-
ólfur Reinharðsson, var einn
þeirra er heyrðu í flugvél uim
nóttina. Sagðist Ingunni svo
fná:
— Við hjónin vorum bæði
gengin til náða, og ég um það
bil að festa svefn, þegar mað-
urinn minn taldi sig heyra í
flugvél um kl. 23.30. Hann
fór þó ekki út til þess að at-
huga þetta nánar, en telur
alveg öruggt að þar hafi verið
flugvél á ferðinni. Og þegar
hann sagði mér frá þessu,
fannst mér líka sem ég hefði
heyrt í flugvél, en vil þó
ekki fullyrða það, þar sem ég
var, eiris og ég sagði áðan, al-
veg að festa svefn.
Heyrði í flugvél um kl. 00.30
0 Mbl. hafði loks samband
við Guðmund Svavarsson
á Stafafelli í Lóni, en hann
heyrði einnig í flugvél um
nóttina. Fer frásögn hans hér
á eftir:
— Við heyrðum í flugvél
rétt eftir hálf eitt, en mér
virtist hún ekiki vera mjög
nálægt. Mér dabt að sjálf-
sögðu ekkert grunsamlegt í
hug — hafði eklki hugmynd
um, að flugvél væri horfin
fyrr en farið var að spyrja
urn hana á miðvikudag. Ég
fór þá strax að athuga, hvort
ekki hefði heyrzt í henni ann
arsstaðar í grennd, og kom í
ljós að á Starmýri höfðu
menn heyrt í flugvél um kl.
00.15 og á Stórhóli heyrðu
menn "líka í henni skömmu
síðar, og þar taldi einn sig
sjá flugvélaljós, sem stefndu
í suðvestur. Því hefur leit-
inni hér verið hagað mjög
eftir því, og leitað í vcstur,
suðvestur og suður þaðan.
Þá hefur lika verið leitað úr
Álftafirði.
- Litið inn
Framhald af bls. 28
armanna telur sig þá hafa um
kl. 15.30 séð ljós inn undir
jökli, milli Fláajökuls pg Hof
fellsjökuls. Þó ber að geta
þess, að þeta kann að hafa
verið ísglampi, eða flóðanik-
ur, eins og Hornfirðingar
nefna slík fyrirbæri.
Allt um það var ekkert
ákveðið tillit tekið til þessa,
fyrr en allir leitarflokkar
voru fram komnir um kl. 21
í gær, í Hornafirði. Þá kom
í ljós, að engin leitarflokk-
anna gat verið staddur á þess
um stað og því ekki að vænta
ljósagangs frá neinum þeirra.
í þann mund, er við yfir-
gáfum Flugturninn kl. 22.30 í
gærkvöldi, var verið að ráð-
gera að senda á ný leitarflokk
þegar í nótt á fyrrgreindan
stað, og einnig var* verið að
athuga um að senda flugvél,
búna svifljósum, á staðinn,
eða flugvél frá 'hernum með
steri.am ljóskösturum.
Sem fyrr segir, er allt þetta
aðeins óstaðfestur grunur,
enn sem komið er, o^ var-
legt að treysta nokkru í þessu
samibandi. En eins og yfirflug
umferðastjórinn sagði við
okkur. „Við athugum alla
möguleika og leitum af okk-
ur allan grun. Það er það ein-
asta, sem möguilegt og skyn-
samlegt er að gera, eins og
horfir“.
Leitin hefir verið, eins og
annars staðar er frá skýrt,
mjög víðtæk, hefir jafnvel
verið farið eftir bendingum
ofan úr Borgarfirði, en þar
var talið, að sést hefði ljós
í svonafndu Vikrafjalli. Þar
leituðu bæði flugvél og flokk-
ar leitarmanna úr Borganfirði,
en án árangurs.
í dag verður megin-
áherzla lögð á leit á landi og
lofti yfir austurhluta Vatna-
jökuls, þar sem ekki var hægt
að leita í gær, ennfremur
upp úr Hornafirði og
Lóni og á Lónsheiði. Svo
klasinn austan við Egils-
staði. Þá verður enn betur
leituð flugleiðin norðan Vatna
jökuls, allt vestur með hon-
um, og norður á Mývatns-
öræfi, og einnig fjallaklasinn
Veðurspá er yfirleitt góð
fyrir leitarsvæðin.
Frakkar senda
upp loftbelg frá
R.víkurflugvelli
Frönsku vísindamennimir níu,
sem hér hafa dvalið að undan-
förnu sendu fyrsta loftbelginn
upp kl. 22.30 á miðvikudags-
kvöld, en það er fyrsti loftbelg-
urinn af nokkrum, sem áætlað
er að senda á loft til hálofta-
rannsókna.
Ekki fór samt betur en svo,
að Frakkarnir náðu aldrei sam-
bandi við loftbelginn, þar eð
tæki hans unnu ekki. Báðu
vísindamennirnir Bandaríkja-
menn á Keflavíkurflugvelli um
að fylgjast með loftbelgnum í
ratsjá. Gerðu þeir það, unz belg-
urinn var kominn í 89.000 feta
hæð.
Vísindamennirnir frönsku
senda belgina upp frá Reykjavík
urflugvelli og munu senda fleiri
upp við fyrsta tækifæri.
Frakkarnir munu dveljast hér
á landi í u.þ.b. einn mánuð.