Morgunblaðið - 21.01.1966, Síða 28
Langstærsta og
íjölbreyttasta
blað landsins
Helmingi 'fitbreiddara
en nokkurt annað
islenzkt blað
------2275-
lí.eo
00. 3 0
Ca 00. 30
\*V
-3>-------------------?<> ki&MFTRAZ
Þetta kort sýnir tímasetningu þá er fóik taldi sig heyra í fiugvélinni á þriðjudagskvöld og að-
faranótt miðvikudags. Merktur er einnig staður sá er leitarmaður frá Hornafirði taldi sig sjá ijós-
blik í rökkursbyrjun i gær.
Leitin bar engan árangur í gær
Á fimmta hundrað manns taka þátt
í leitinni, sem mun vera ein víðtækasta,
er hér hefur farið fram
LEITIN að Beechcraftflugvél Flugsýnar, sem saknað hefur
verið síðan á þriðjudagskvöld, hafði enn engan árangur borið
seint í gærkveldi. Var í gær leitað á landi frá Borgarfirði
eystra og að Vík í Mýrdal, en auk þess var björgunarsveit frá
Akureyri komin til Herðubreiðarlinda. Þá könnuðu flugvélar
mjög gaumgæfilega allt austanvert miðhálendið. Láta mun
nærri að um 500 manns hafi tekið þátt í leitinni í gær, sem
skipt var niður í marga smærri leitarflokka, en auk þess 15
flugvélar og rúmur tugur báta og skipa. Veður var allsæmi-
legt á leitarsvæðinu í gær — sérstaklega seinni hluta dagsins.
SAMKVÆMT upplýsingum, sem
Mbl. fékk hjá fréttaritara sínum
á Egilsstöðum, en þaðan var leit-
inni á landi stjórnað í gær, fór
80 manna leitarflokkur frá Egils
stöðum, og var leitað í fjöllum
meðfram austanverðu Héraði —
ailt frá Hallormsstað að Ósfjöll-
um við Borgarfjörð. Þá var einn-
ig leitað upp úr allflestum fjörð-
unum.
Menn úr Borgarfirði eystra
leituðu um Beinageitarfjall, Dyr
fjöll og Gatfjall — eða Húsa-
víkurheiði sunnan við Borgar-
fjörð. Einnig leituðu menn írá
Njarðvík í Ósfjöllum. Frá Seyðis
firði fór 40 manna leitarflokkur
upp á fjöllin í kringum Seyðis-
fjörð. Var farið þaðan upp á
Fjarðarheiði og leitað um Staf-
dal. Mætti fiokkurinn Héraðs-
mönnum í Gilsárbotni og var
siðan leitað um Bjólf, en þar var
þá niðdimm þoka, og mjög erfið
færð. Þá var leitað í Vestdal, og
menn af bæjum norðan fjarðar
leituðu í fjöllunum þar fyrir
ofan, og víðar var leitað þar í
kringum fjörðinn.
Um 40 manna leitarflokkur frá
Eskifirði leitaði á Gagnheiði og
Slenjudal, en frá Reyðarfirði fór
flokkur og leitaði á Skagafelli og
í Svínadal milli Eskifjarðarheiðar
og Fagradals. Ennfremur fór leit
arflokkur frá Álftafirði og Lóni,
og leituðu í fjöllum þar fyrir
ofan. Þá leituðu flugvélar og
gaumgæfil'ega á suðurfjörðunum.
Frá Hornafirði fóru leitarflokk
ar inn um Hoffellsfjall, einnig
var leitað á fjallgarðinum milli
Lóns og Nesja, og inn í Staðar-
fell. Þangað var kominn um 15
manna sveit frá björgunarsveit-
um úr Reykjavík og nágrenni,
og leituðu þeir ásamt heima-
mönnum í fjöllum í Suðursveit
og á Mýrum.
Framhald á bls. 27
Litið inn til leitar-
stjóra í Flugturninum
ISiákvæm könnuu gerð á Efosi,
sem sást upp af Hornafirði
ÞAÐ var mikið að gera í Flugturninum á Reykjavíkur-
flugvelli í gær. Fréttamaður blaðsins fékk leyfi til að
vera þar í gærdag og gærkvöld til að fylgjast með því,
sem þar fór fram. Allir þræðir leitarinnar lágu þangað,
en æðstu stjórn þar hefir Arnór Hjálmarsson, yfirflug-
umferðarstjóri. Stöðugt herast skeyti og upplýsingar,
skýrslur leitarmanna og leitarflugvéla, auk fjölda fyrir-
spurna. Allt gengur þó með æðruleysi, festu og ná-
kvæmni.
Vaktstjórinn, Lárus Þórarins
son er nær stöðugt í símanum,
en Valdimar Ólafsson, flugum
ferðarstjóri, tekur niður
skýrslur flugmanna. Aðrir
flugumferðarstjórar eru við
tækjaborð sín, og fylgjast
með umferðinni yfir landinu,
sem er næsta lítil, þegar frá
er talið hið venjulega áætl-
unarflug Flugfélagsins, og
ferðir leitarflugvélanna, sem
voru lö á lofti í gær, flestar
þetta frá rúmum fjórum
stundum upp í sex stundir.
Á milli þess, sem simanum
er sinnt, er rætt um möguleika
þá, sem fyrir hendi eru á
leið hinnar týndu flugvélar.
Allar upplýsingar eru kann-
aðar um, hvar heyrzt hefur í
flugvélinni.
Svona líður síðari hluti
dagsins. Valdimar og Arnór
taka skýrslur af flugmönnum,
sem stöðugt eru að koma
eftir að skyggja tekur, hinn
síðasti um kl. 22 í gærkvöldi.
Erfitt er að gera sér grein
fyrir hvort upplýsingarnar
um, hvar heyrðist í flugvél-
inni eru áreiðanlegar, en
tímasetningu þeirra ber merki
lega vel saman, og gætu að
sögn fróðra manna staðizt,
ef gert er ráð fyrir, að flug-
vélin hafi tekið stefnu upp
úr Seyðisfirði, eftir að lending
var útilokuð í Neskaupstað,
og ef einnig er gert ráð fyrir
að vélin sé radíósambands-
laus.
Það skal fram tekið, að það
sem hér er sagt, eru aðeins
leikmannsþankar, byggðir á
lauslegum upplýsingum. Skal
nú nokkuð rakinn tímasetning
á vélahljóðunum.
Siðast er haft radíó-
samband við vélina á þriðju-
dagskvöld, þegar hún er að
búa sig til lendingar úti fyrir
Norðfirði, og flugmennirnir
sjá niður í sjó. Þá er kl. 22,12.
Næst sjá og heyra 24 Seyðis-
fir’ðingar í vélinni, og getur
þar ekki verið um aðra vél
að ræða, og næsta ómögulegt
að véfengja svo mörg sam-
hljóða vitni. Vélin sést yfir
Seyðisfir’ði kl. 22.30, og flýgur
þá vestur yfir Fjarðarheiði.
Næst heyrist í henni á nokkr-
um bæjum kringum Eiða, en
þar er radióviti, og stefna
jafnan tekin, er fljúga skal
suður beint. É1 gekk yfir
Egilstaði af og til á þessum
tima, og gat það útilokáð lend
ingu þar.
Þá er næst talið að heyrist
í vélinni á Vaðbrekku í Hrafn
kelsdal, sem gengur ofarlega
í suður úr Jökuldal. Þá er
kl. 23.15—23.30.
Nú er að geta þess að þenn-
an dag var talsver'ð ísing í
lofti norður af austanverðum
Vatnajökli, og sé gert ráð
fyrir, að vélin verði að snúa
þar af beinni flugleið suður,
kann að vera, að hún hafi
haldið niður á firði sunnan-
verða, en kl. 23.00—23.30 telur
fólk sig heyra í henni sunnan
Brefðdalsvíkur. Kl. 24.00 telur
fólk sig heyra í henni við sunn
anverðan Álftafjörð, og kl.
00.30'suður á Stafafelli í Lóni,
og loks um svipað leyti í
Nesjum í Hornafirði.
Á þessum tíma getur ekki ver
ið um aðra flugvél að ræða
á þessum slóðurn, því að her-
flugvélin, sem hélt áleiðis til
Noregs þetta sama kvöld, og
fór sunnan við land, fór ekki
frá Keflavík fyrr en upp úr
miðnætti.
Þá er næst til að taka, er
Lárus Þórarinsson tekur nið-
ur skýrslu frá leitarstjóran-
um Jóhannsi Briem í Höfn
í Hornafirði kl. um 18.00. Jó-
hannes skýrir þar frá leit,
sem margir leitarflokkar
gerðu um Lón og HornafjÖrð,
alls um 100 manns. Einn leit-
Framhald á bls. 27
Kronprins Frederik siglir inn á Reykjavíkurhöfn í fyrsta sinn. Ljósm. ÖL K. M.