Morgunblaðið - 10.02.1966, Side 1
28 síðuí
AIH síðan stjórn Ians Smiths I Ródesiu setti olíubann á grannríkið Zambíu hafa Bretar séð Zam-
híumönnum íyrir olíu loftleiðis. Þessi „olíu-loftbrú“ er dýrkeypt nokkuð, því fyrir hverja smálest
af olíu sem flutt er til Lusaka í Zambíu brennir flugvélin tveimur smálestum eldsneytis þær átta
stundir, sem það tekur að fljúga til Lusaka frá Nairobi í Kenya. Myndin var tekin á flugvellinum
í Nairobi af olíutunnum sem þar bíða flutnings og vélum brezka flughersins, sem þær flytja.
Verður réttur settur í dag
yfir Sinyavsky og Daniel?
Valery Tarsis heldur fund með frétta-
mönnum í London síðdegis í dag
Moskvu, 9. febr. — NTB.
RÉTTARHÖLDIN yfir sov-
ézku rithöfundunum Andrei
Sinyavsky og Yuli Daniel
munu hefjast í Moskvu á
TOorgun, fimmtudag, að því er
haft er eftir áreiðanlegum
heimildum í Sovétríkjunum.
Áður hafði verið fullyrt að
Saragat ger-
réttarhöldunum yrði frestað.
Rithöfundunum tveimur er
gefið að sök að hafa haft um
hönd and-sovézka starfsemi
og eiga þeir á hættu allt að
sjö ára frelsisskerðingu. Þeir
hafa gefið út bækur á Vestur-
löndum undir dulnefnunum
Abram Tertz óg Nikolai Arz-
hak. Dulnefnin munu að öll-
um likindum verða með mikil
vægustu þáttum málsins og
hefur m.a. verið lögð á það á-
ur bókmenntagagnrýnandi og
heíur flutt fyrirlestra um bók-
menntir við Gorki-stofnunina í
Moskvu. Hann hefur jafnan verið
talinn til frjálslyndari mennta-
manna í Sovétríkjunum, en fregn
in um að hann væri hinn kald-
hæðni Abram Tertz kom flatt
upp á bókmenntamenn í Moskvu.
Þekktasta verk Daniels er skáld-
sagan „Moskva kallar“.
TARSIS
Ekkert er enn um það vitað
hvaða ástæður liggja að baki
leyfi Sovétstjórnarinnar til handa
rithöfundinum Valery Tarsis að
fara úr landi og ferðast til Eng-
lands. Tarsis kom til London í
Framh. á bls. 2
Belgíska stjórnin
sögð riða til falls
Spaok hættir við ferð
Brússel, 9. febrúar NTB.
TJtanríkisráðherra Belgíu, Faul
Henri Spaak, hefur hætt við för
sína til Sovétríkjanna, sem hefj-
ast átti á morgun, fimmtudag.
Ástæðan til þess er stjórnmála-
ástandið í Iandinu,' sem nú er
hið versta og hefur einnig haft
af utanríkisráðherranum Dan-
merkurför í fylgdarliði Baldvins
konungs og Fabiolu drottningar,
sem þangað eru komin í opinbera
heimsókn.
Menn höfðu gert sér miklar
vonir um heimsókn Spaaks til
Sovétríkjanna og hefur það vald-
ið vorabrigðum að ekkert skuli
verða af henni. Spaak átti m.a.
að eiga viðræður við ýmsa ráða
menn í Sovétríkjunum, þar á
meðal starfsbróður sinn, Gromy-
ko utanríkisráðherra. Spaak heí-
ur rætt oft við sendiherra Banda
rikjanna í Brússel undanfarna
daga til undirbúnings Moskvu-
förinni.
Komið var í veg fyrir verk-
fall (það í Belgíu í dag er ella
sína til Sovétríkjanna
hefði tekið til allra starfsmanna
gas- og rafveitna í landinu, tæp
um tveimur klukkustundum áð-
ur en leggja átti niður vinnu.
Sættust fulltrúar verkalýðsfélaga
og vinnuveitenda þá á 6,5%
launahækkun á fundi með at-
vinnumálaráðherranum, Leon
Servais.
Miklar deilur eru nú innan
ibelgísku ríkisstjórnarinnar um
það hvort koma eigi á ókeypis
læknisþjónustu í sjúkrahúsum
eða ekki. Hafa 9.000 belgískir
læknar hótað að leggja niður
vinnu verði þessari skipan kom-
ið á. Sósíalistar í ríkisstjórninni
krefjast þess að stjórnin láti tii
skarar skríða þrátt fyrir and-
mæli læknanna, en ráðherrar úr
flokki Kristilegra sósíalista,
flokki Harmels forsætisráðherra,
eru tilleiðanlegir til þess að slá
málinu á frest.
Er það mál margra að stjórn-
in riði nú til falls og t.ilgangs-
laust sé að reyna að lengja lif-
daga hennar.
Humphrey leqqurupp
í ferðtii SA
Washington, 9. febrúar,
NTB, AP.
HUBERT HUMPHREY varafor-
seti Bandaríkjanna hefur nú lagf
upp í langferð sína til S-Vietnam,
Thailands og fleiri SA-Asiulanda
auk Ástraliu. Er för hans
til þess gerð að leggja áherzlu á
hug Johnsons forseta til S-Vi-
etnam og áhuga hans á þvi að
barizt verði áfram í landinu ekki
einasta á sviði hermála heldur og
landsmála.
Á eftir Humphrey munu halda
austur ýmsir sérfræðingar Banda
Asíulanda
ríkjastjórnar í heilbrigðismálum,
kennslumálum og landbúnaðar-
málum til aðstoðar S-Vietnam-
stjórn f baráttunni gegn hungri,
fáfræði og sjúkdómum.
Johnson forseti hefur lýst yfir
því að hann muni ekki hvika frá
þeirri stefnu sinni að leita eftir
friði í Vietnam, Iþrátt fyrir andúð
S-Vietnamstjórnar á því að
semja við fulltrúa Viet Cong og
í trássi við vilja hennar í iþessu
efni. Segir forsetinn að enn
standi opnar dyrnar til friðarins
Framhald á bls. 2.
ir þriðju
tilraun
Róm, 9. febr. — NTB:
GTUSEPPE Saragat, forseti ftal
íu, hóf í dag þriðju tilraun sína
til að leysa stjórnarkreppu þá,
sem nú hefur staðið á Ítalíu í
nær þrjár vikur.
Samsteypuflokkarnir fjórir
segjast allir helzt kjósa nýja
stjórn undir forystu Aldo Moro
fráfarandi forsætisráðherra, en
litlar borfur eru samt á því enn
að saman gangi um stjórnar-
myndun. í fyrri viku strönduðu
samningaviðraeður á hugsanlegri
þátttöku Mario Scelba úr kristi-
lega demókrataflokknum í stjórn
inni. Scelba, sem hefur áður
gegnt embættum forsætis- og
innanríkismálaráðherra, er í
bópi hægrimanna í flokki sín-
um og hefur til skamms tíma
verið mótsnúinn samsteypu-
stjórninni sem var heldur vínstri
sinnuð. Sósíalistar vilja hvorki
heyra Scelba né sjá.
Saragat áformar viðræður við
29 stjórnmálamenn í þessari til-
raun sinni og hyggst ljúka við-
ræðum þessum fyrir helgi, helzt
á föstudag.
herzla í sovézkum blöðum að
rithöfundarnir tveir hafi skot-
ið sér á bak við aðfengin nöfn
er þeir hafi gagnrýnt aðstæð-
ur í Sovétríkjunum en hafi
svo á hinn bóginn komið fram
í Moskvu sem „heiðarlegir
sovézkir rithöfundar“. Er m.a.
bent á að rithöfundurinn Val-
ery Tarsis, sem er höfundur
ýmissa bóka miklu fjandsam-
legri Sovétríkjunum er gefn-
ar hafa verið út á Vesturlönd-
um hafi nú fyrir skemmstu
fengið vegabréfsáritun til
London, en Tarsis hafi alla tíð
ritað undir eigin nafni.
Sinyavsky er rússneskrar ætt-
ar, en dulnefni hans, Abram
Tertz, er með gyðinglegum keim
og er talið að það geti orðið enn
ein ásökunin á hendur honum.
Daniel er Gyðingaættar og hefur
þýtt margar bækur á rússnesku
ai tungum smærri þjóðarbrota í
Sovétríkjunum. Báðir eru þeir
Sinyavsky og Daniel á fertugs-
aldri, kvæntir menn. Þeir hafa
ekki séð fjölskyldur sínar síðan
þeir voru teknir höndum í sept-
ember í fyrra.
Frægasta hók Sinyavskys er
„Réttur er settur". Hann er kunn
dnógar upplýsingar
ennþá um tunglskotiö
Rætt við Þorstein Sæmundsson stjörnufr.
n------------n
Sjá grein um Lunu-9 á bls.
12 og 13.
□_-----------n
í TILEFNI hins mikla af- '
reks rússneskra vísinda-
manna á dögunum, er þeim
heppnaðist að láta tungl-
flaugina Luna 9. lenda
mjúklega á tunglinu, hefur
Morgunhlaðið snúið sér til
Þorsteins Sæmundssonar,
stjörnufræðings, og leitað
álits hans á atburðinum. —
Þorsteinn sagði:
— Þetta var mikið vís-
indalegt aírek og er stórt
skref í áttina til þess að
senda menn til tunglsins.
— Lending tunglflaugar-
innar veitir áreiðanlega
góðar upplýsingar um yfir-
borð tunglsins, þar sem hún
lenti, og nákvæmari hug-
mynd um hina smærri
drætti yfirborðsins.
— Ég vona að Rússar
sjái sér fært að veita þær
upplýsingar, sem vísinda-
menn um allan heim bíða
eftir.
— Þær upplýsingar, sem
nú Mggja fyrir um tungl-
skotið, eru ekki nægjanleg-
ar til að draga endanlegar
ályktanir. Nægilega góðar
ljósmyndir hafa enn ekki
verið birtar né heldur upp-
lýsingar um, hvernig þær
eru teknar, úr hvaða hæð
og yfir hversu stórt horn
Framh. á bls. 3