Morgunblaðið - 10.02.1966, Page 4
4
MORGU NBLAÐJÐ
Fimmtudagur 10. feb'rúar 1966
BILA
m
MAGIMUSAR
SKIPHOLTI 21 SÍMAR 21190-21185
eftir lokun simi 21037
tÍM'3-íl-G0
mnum
Volkswagen 1965 og ’66.
BÍ LALEIGAN
FERÐ
Daggjald kr. 300
— pr. km kr. 3.
S/Mf 34406
SBN DUM
L I T L A
bilaleigan
Ingólfsstræti 11.
Volkswagen 1200 og 1300.
Sími 14970
Bílaleigan
VAKUR
Sunllaugaveg 12.
Sími 35135 og eftir lokun
símar 34936 oig 36217
Daggjald kr. 300,00
og kr. 3,00 pr. km.
Fjaðrir, fjaðrablöð, hljóðkútar
pústrór o. ÍL varahiutir
margar gerðir bifreiða
Bílavörubúðin FJÖÐKIN
Höfum flutt verzlun vora og
verkstæði að
LAGMÚLA 9
Símar:
38820 (Kl. 9—17)
38821 (Verzlunin)
38822 (Verkstæðið)
38823 (Skrifstofan)
Bræðurnir Ormssonhf.
Vesturgötu 3, Lágmúla 9.
Sími 38820.
■fc Skíðin
Nú eru skíðamótin að hefj-
ast. Ekki vantar snjóinn vestra
nyrðra og eystra, en af honum
er samt ekki allt of mikið hér
syðra — a.m.k. ekki í nágrenni
Reykjavíkur. Nú ættu þeir,
sem eiga skíði og skíðaútbún-
að að nota hverja stund, sem
gefst til skíðaferða. Sleppið
ekki helginni, ef veður verður
gott. í>að er ekki vist, að næsta
helgi verði jafngóð.
Katalína
Útlendingur, nánar tiltekið
Bandaríkjamaður, sem búsett-
ur er hér í borginni og hefur
verið í mörg ár, kom að máli
við Velvakanda og bað hann
að koma því á framfæri við
Landhelgisgæzluna, að hún
léti ekki rífa Katalínuflugbát-
inn, sem hvolfdi í óveðrinu á
dögunum.
„Ég veit, að þessi flugvél er
stjórnarvöldunum verðlaus, en
hún yrði strákuniun mikils
virði, ef flugvélinni yrði kom-
ið á réttan kjöl aftur og hún
bundin niður einhvevs staðar
á borgarsvæðinu þar sem pilt-
ar hefðu aðgang að henni. Ein-
hver klúbburinn mundi taka
þess konar „klúbbhúsi" með
þökkum, ég efast ekki um það,“
sagði maðurinn „Það ætti að
gefa strákunum kost á því að
nota flugvélina — og láta þá
jafnframt halda henni við,
halda henni hreinni, mála hana
— og gera þeim það skiljan-
legt strax í upphafi, að hún
yrði tekin aftur, ef umgengnin
yrði ekki góð.“
Þetta er ágæt tillaga. Strák-
arnir hafa yfirleitt mikinn
áhuga á flugi og flugvélum.
Mörgum yrði þetta kærkomið
tækifæri til að komast í nán-
ari snertingu við flugið.
Maðurinn hafði líka orð á
því, að smávélin, sem líka
fauk í ofviðrinu — og sögð
er fyrsta flugvél Loftleiða —
ætti betur skilið að lenda á
safni, en að verða veðri og
vindum að bráð. Vélin gæti
orðið vísir að flugmálasafni —
og siðar meir mundu margir
sjá eftir að vél þessi var ekki
varðveitt, ef hún verður nú
látin grotna niður.
•fc Leikför til Vesturheims
Frá því hefur verið skýrt
hér í blaðinu, að Leikfélag
Reykjavikur muni fara í leik-
för til Vesturheims og sýna
Fjalla Eyvind. Þetta er
skemmtileg nýbreytni — og
fullvíst er, að við höfum hing-
að til gert of lítið af því að
viðhalda tengslunum við Vest-
ur-íslendinga með því að senda
listafólk okkar þangað vestur.
í þessari fyrirætlun Leikfél-
agsins felst töluverð dirfska,
því að list þeirra, sem flytja
hið talaða orð, nær til mun
færri manna erlendis en list
hinna, sem flytja tónlist — svo
ekki sé meira sagt. — Von-
andi gengur þetta samt vel og
e.t.v. verður það upphaf að
nánari samskiptum við Vest-
urheimsmenn á listasviðinu —
þ.e.a.s. að við miðlum ein-
hverju af því, sem við eigum
og getum miðlað. Frá Norður-
Ameríku fáum við hins vegar
árlega hemisóknir fjölda lista-
manna — og kunnum við vel
að meta það.
-yif Nokkur skrýtin nöfn
Og hér kemur bréf frá fyrrv.
háskólastúdent :
„600 háskólastúdentar hafa
mótmælt erlendu sjónvarpi,
lesum við í blöðunum. Lbtinn
með nöfnum þessara náms-
manna í Háskóla íslands barst
mér af tilviljun í hendur og
ég fór að blaða í honum. Ekki
af því að ég sé áhugamann-
eskja um sjónvarpsmálin,
hvorki með eða móti. Ég hefi
ekki sjónvarp og hefi ekki
hugsað mér að fá það, vil held-
ur sitja með góða bók í tóm-
stundum, en læt svo aðra um
að velja sér sitt tómstunda-
gaman.
En þessi listi kom mér dálít-
ið spánskt fyrir sjónir, því á
honum sá ég fjölda mörg nöfn,
sem ég þekkti frá því ég var
í menntaskóla og háskóla, en
það er bara svo langt síðan,
að mig furðaði satt að segja á
því hve stór hluti af þessu
fólki hefur hlotið þau örlög
að verða svokallaðir eilífðar-
stúdentar. Þetta var þó ekk-
ert óskynsamt fólk á sínum
tíma.
Yfirlýst göfuglyndi
Þetta á sjéilfsagt allt sín-
ar skýringar, hvers vegna þess
ir gömlu kunningjar mínir
hafa verið svona lengi að koma
sér gegnum háskólanám — líf-
ið erfitt. Þó rakst ég þarna 4
eitt nafn að minnsta kosti,
sem ég þóttist vita að væri
komið á listann fyrir einhvern
misskilning, enda hefi ég kon-
unnar eigin orð fyrir því að
hún sé alls ekki háskólastú-
dent og auk þess að hún sé
svo göfuglynd að henni dytti
aldrei í hug að setja nafn sitt
undir það sem ekki væri rétt.
Svo ekki má blanda henni sam
an við okkur hin, sem ekki
höfum lýst sérstaklega yfir
göfuglyndi okkar.
Þetta er Guðrún Helgadótt-
ir, sem 23. janúar sl. skrifaði
ákaflega heiðvirða grein í Þjóð
viljanum, er hún nefndi „Upp
á æru og trú“ og sagði m.a. er
hún hneykslaðist mest á há-
skólanum og óreiðunni þar,
ásamt öllu mögulegu öðru:
„Til frekari upplýsingar get
ég getið þess, að sjálfa mig
fann ég þarna á skrá (í skrá
yfir háskólastúdenta, innskot
bréfritara). Ég tók lítið próf
við skólann vorið 1963, en ég
hefi ekki komið þar síðan. Ég
tek þetta aðeins fram til aug-
lýsingar á göfuglyndi mínu, því
að með þessu afsala ég mér
ska-ttafrádrætti, sem mér bar
ekki síður en öðrum.“
Þetta fannst mér verulega
göfugt af frúnni, jafnvel og
göfuglyndið hefði alls ekki ver
ið það sama, ef hún hefði af-
salað sér skattafrádrættinum
með því að fá sér ekki sér-
sakt vottorð til skatayfirvald-
anna um að hún sæki ekki
tíma, eins og krafizt er. En ég
get ekki að því gert, að mér
finnst svolítið lágkúrulegt af
konu með svo mikið göfug-
lyndi, að hún skyldi nú ekki
herða sig upp í að mótmæla,
þó það sé kannski ekki ein3
fínt sem húsfrú eða ritari. „Vér
háskólastúdentar . . ... .“ var
ekki verulega stórmannlegt að
nota sem ávarp fyrir alvöru-
mótmæli, sem áttu líka að fara
inn á sjálft alþingi. Þama hafa
verið einhver mistök, því hver
vill sigla undir fölsku flaggi á
göfugu plaggi til göfugrar sam-
kundu. Áreiðanlega ekki yfir-
lýst göfuglynt fólk.
1116 eða 500 stúdentar
Annars var það fleira í grein
frúarinnar, sem ekki stemmdi
almennilega við þessar 600 und
irskriftir og þau ummæli að
þetta væru nú ekki allir há-
skólastúdentarnir, sem hefðu
viljað mótmæla. Hún begir
nefnilega í fyrrnefndri grein;
„Það er glæsilegt að tala um
í hátíðarræðum, aðlU6 stúdent
ar séu innritaðir. Ég leyfi mér
að efast um að meira en 500
komi nokkum tíma í skólann..“
Svona getur þetta verið, ekki
eru allir svo göfugyndir sem
frúin, að þeir afsali sér bara
háskólastúdentatitlinum á
prenti.
Þú verður nú að afsaka, Vel-
valkandi minn, þó ég sé að
skipta mér af svona máli, sem
mér kemur í rauninni ekkert
við, eins og það hverjir horfa
á sjónvarp. En þetta er líklega
smitandi. Og líklega hefi ég
komizt í of náin kynni við
þetta vandaða og göfuglynda
fólk, sem ekki má vamm sit
vita og raunar vill bjarga öll-
um hinum frá táli heimsins.
Með þökk fyrir birtinguna.
Fyrrverandi háskólastúdent,
sem er bara húsmóðir.“
Cstanley]
Bílsktirshurbajárn
— fyrirliggjandi —
STANLEY — j á r n
fyrir hurðastærð 7x9 fet.
1
r ludvig STORR J
L Á
með læsingu og handföngum.
Sími 1-33-33.
Bezt á ðugíýsa í IVIorgunblaðinu
Akureyri — IM ær s veitir
HÖFUM OPNAÐ SKYNDISÖLU í HÚSI SJÁLFSBJARGAR.
MIKIÐ ÚRVAL AF MJÖG ÓDÝRUM VÖRUM.
SKYNDISALAN VERÐUR AÐEINS ÚT ÞE NNAN MÁNUÐ.