Morgunblaðið - 10.03.1966, Page 1
28 síður
iliíP®'5
.... ...... ......... m
Síffastiðinn mánudag magalentl Boeing 707 farþegaþota á flugvellinum í Miami í Florida, en len dingartæki hennar höfðu bilað.
Engan sakaði í vélinni og þótti frammistaða flugstjórans frábæ r. Mynd þessi sýnir hvernig vél in leit út eftir lendinguna.
De Gaulle vill herlið NATO
á brott úr Frakklandi
— fái hann ekki yfirstjórn þess í hendur
Paris, London, Washington,
9. marz — AP-NTB.
EINS og getið hefur verið í
fréttum, barst Johnson
Bandaríkjaforseta bréf frá De
Gaulle þann 7. marz s.l. í
bréfi þessu fór De Gaulle
þess á leit, að hafnar yrðu
viðræður milli stjórnanna
um herlið NATO, sem hcfur
aðsetur á franskri grund. Tal-
ið er víst, að De Gaulle hafi
krafizt þess, að Frakkar
fengju í hendur yfirstjóm
þessa herliðs og kæmi það til
framkvæmda árið 1969 í síð-
asta lagi. Johnson hefur ekki
enn svarað þessu bréfi, en
talsmaður stjórnarinnar hef-
ur sagt, að þetta mál verði
ekki meðhöndlað sem milli-
ríkjamál Frakklands og
Bandaríkjanna, því þessi
beiðni De Gaulles snerti öll
aðildaTriki NATO.
Ýmsar bollaleggingar hafa ver
ið uppi að undanförnu um það, gefið í skyn, að þeir vildu draga
að Frakkar hyggðust ganga úr
NATO, en franska stjórnin tók
af skarið á miðvikudag og til-
kynnti, að Frakkland yrði enn
um sinn áfram í samtökunum.
Stjórnin kvaðst hinsvegar reiðu
búin að ræða við hin aðildarrí’k-
in um afstöðu Frakika til varn-
armála samtakanna. í Frakk-
landi eru staðsettir 26 þúsund
hermenn á vegum NATO, og vill
De Gaulle fá í hendur yfirstjórn
þessa herafla. Flestir hermanna
eru bandarískir og því sneri De
Gaulle sér til Johnson. Banda-
ríkjastjórn hefur hvorki gefið
út opinbera yfirlýsingu varðandi
bréf De Gaulles, né látið uppi
um innihaldið. í>ó hefur það
hvisazt út, að De Gaulle hafi
krafizt þess, að NATO herinn
hverfi frá Frakkiandi, ef hann
fær ekki yfirráð hans í hendur
í siðasta lagi árið 1969.
Franska stórblaðið Le Monde
sagði í ritstjórnargrein, er fregn
ir bárust af bréfi De Gaulles, að
þar sem litlar líkur séu á því,
að beiðni De Gaulles verði tek-
in til gtreina, verði bandarísku
hermennirnir að hverfa af
franskri grund innan fárra mán-
aða. Frakkar hafa margsinnis
sig út úr varnarkeðju Atlants-
hafsríkjanna, án þess að segja
alveg skilið við samtökin. Þessi
afstaða Frakka hefur mælzt illa
fyrir hjá öðrum meðlimaríkjum
sem telja að Frakkland vilji á
ýmsan hátt njóta góðs af sam-
tökiunum án þess að leggja sinn
skerf til sameiginlegra varna
landanna.
McCloskey, talsmaður banda-
rísku stjórnarinnar, sagði á mið-
vilkudag, að stjórnin teldi sig
ekkert leyfi hafa til að ræða við
Frakklandsstjórn um beiðni og
kröfur De Gaulles, því mál þetta
snerti öll aðildarríki NATO, en
ekki aðeins Bandaríkin og Frakk
iand.
Stjórnir Bretlands og Kanada
hafa þegar lýst því yfir, að nauð
syn beri til að taka bréf de
Gauile og yfirlýsingar frönsku
stjórnarinnar til gaumgæfilegrar
athugunar, en þær telja hinsveg
ar, að ekkert verði hægt að
Framhald á bls. 2.
Beatrix
giftir sig
í dag
— Miklar varúðar-
rdðstafonii verða uni
hönd hafðax
Amsterdam, 9. marz — AP-NTB
HIN 28 ára gamla hollenzka
krónprinsessa, Beatrix, mun í
dag ganga í heilagt hjónaband
meö Vestur-Þjóðverjanum Claus
von Amsberg. Þetta væntanlega
hjónaband hefur orðið að stór-
máli í Hollandi og vakið andúð
margra landsmanna. Strax og
það fréttist, að Beatrix hefði í
byggju að giftast Þjóðverja vakti
það mikla óánægju. Ekki bætti
úr skák, er sögusagnir komust á
kreik um að hinn vætanlegi
maki hennar væri fyrrverandi
nazisti.
Miklar varúðarráðstafanir
verða hafðar um hönd meðan á
vígslunni stendur, því mikil ólga
er í landsmönnum. Meir en 10
þúsund lögreglumenn og her-
menn verða staðsettir meðfram
götum þeim, er hjónaefnin munu
aka á leið til kirkjunnar.
Hjónavígslan mun fara fram i
Amsterdam, en ekki í Haag, eins
og venja er þó til með konung-
legar giftingar í Hollandi. Talið
er að með þessari ákvörðun hafi
Beatrix ákveðið að leggja öll
spilin á borðið: Takist hjónaefn-
unum að komast leiðar sinnar
fram hjá hinum háttstemdu íbú-
um Amsterdam, verður það
fyrsta sporið í þá átt að fá al-
menning til að leggja blessun
sina yfir þetta hjónaband, sem
vakið hefur meira umtal og al-
menna óánægju en nokkuð ann-
að mál í Hollandi eftir strið.
D jakarta:
10 þús. stúdentar ráðast inn
í menntamálaráðuneytii
— báru eld að kínverska sendiráðinu
Djakarta, Singapore, —
9. marz — NTB — AP:
ÞÚSUNDIR stúdenta stofnuðu
til óeirða á götum Djakarta á
miðvikudag. Þetta var f jórði dag
urinn í röð, sem stúdentar flykkt
ust út á götnrnar, til að mótmæla
ýmsum gerðum og áformum Su-
Kosningaúrslitin í Danmörku
Jafnaðarmenn og Vinstriflokkurinn töpuðu
fylgi, en Ihaldsflokkurinn og Þjóðar-
ilokkurinn juku verulega við sig
Kaupmannahöfn, 9. marz
— NTB —
f BÆJA- og sveitastjómar-
kosningunum í Danmörku á
þriðjudag misstu jafnaðar-
menn og vinstriflokkurinn
mikið fylgi, en íhaldsflokkur-
inn og sósíalíski þjóðarflokk-
urinn juku við fylgi sitt. Aðr-
ir flokkar höfðu svipaða hlut-
fallstölu og við seinustu kosn-
ingar. Þegar atkvæði höfðu
verið talin í 24 af 25 kjörsvæð
um kom í ljós, að jafnaðar-
menn höfðu 36.4% miðað við
39% í kosningumim árið 1962.
Þrátt fyrir hlutfallslegt fylgis
tap, vann vinstri flokkurinn
40 ný sæti í bæjastjórnum
víðsvegar um landið. fhalds-
flokkurinn vann 22 ný bæja-
stjórnarsæti og sósíalíski þjóð
Framhald á bls 3
karnos. f þetta skiptið hópuðust
þeir að kínverska sendiráðinu,
réðust inn í bygginguna, umturn-
uðu öllu lauslegu og settu síðan
eld í hana. Þetta er í fyrsta skipt
ið, sem stúdentarnir ráðast á
aðra byggingu en stjórnarbygg-
ingu.
Fyrr um daginn höfðu stúdent
arnir ráðist inn í byggingar
menntamálaráðuneytisins, um-
turnað öllu er hönd á festi og
tekið með sér ýmis skjöl. Lög-
reglulið kom skjótlega á vett-
vang, en hafðist ekkert að, þrátt
fyrir skipanir Sukarnos, um að
allar uppreisnir eða óelrðir
skyldu bældar niður með hörku.
Er stúdentarnir settu eld að
kínverska sendiráðinu, skemmd
ist þak þess verulega. Á götunni
fyrir utan veltu þeir og eyði-
lögðu fjölmargar bifreiðir.
Um 10 þúsund stúdenar réðust
inn í byggingar menntamálaráðu
neytisins árdegis á miðvikudag.
Meðan þeir létu hendur sópa um
byggingarnar, hrópuðu þeir:
„Niður með Sumardio!" Sumar-
Framhald á bls 3
Orsök flug-
siyssins í
Japan ófundin
Gotemba, Japan, 10. marz
Flugmáiasérfræðingar hafa
undanfarna daga unnið að
rannsókn braksins úr BOAC
farþegaþotunni, er fórst í Jap
an sJ. laugardag. Vonast var
til þess, að segulbandstæki,
sem staðsett hafði verið í stéli
þotunnar, myndi geta gefið
einhverjar upplýsingar. Þegar
tækið loksins fannst, kom í
ljós að það hafði gereyðilagst.
Stél flngvélarinnar fannst 3
km. frá búknum.
Hin tíðu flugslys í Japan
hafa orðið til þess, að jap-
anska flugmálastjórnin hyggst
láta fara fram nákvæma rann
sókn á öllum flugbrautum og
tækjum flugturna allra stærri
flugvalla í Japan.