Morgunblaðið - 10.03.1966, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 10.03.1966, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 10. marz 1966. .... ... ..-.... —^ .... „ KR-vörnin kom í veg fyrir línuspil Framara Fram mátti því þakka fyrir 23:21 sigur ÞAÐ voru aðeins taepar sjö mín- útur til leiksloka, og staðan var jöfn 20 mörk gegn 20. Það var ótrúlegt, þegar tekiff var tillit til þess, aff þarna ieiddu saman hesta sína efstu liffin í 1. deild karla í handknattleik, Fram, og botnliðiff — KR. En þetta var þó engin tilviljun, því aff mestan hluta leiksins höfðu liðin skipzt á forystunni — og sá maður sem kom nú í fyrsta skipti í Háloga- land til þess aff horfa á hand- knattleik þar, hefði alls ekki get- aff dæmt um þaff, hvort væri efsta liffið í deildinni, og hvort væri þaff neffsta. • Æsispennandi leikur. Framarar skoruðu fyrsta markið, og náði brátt stöðunni 6—2. En KR-ingar skoruðu næstu 6 mörk, komust í 8—6, og í hálifleik var staðan 11—10 KR í vil. Þeir skoruðu síðan fyrsta mark síðari Ihálfleiks, og hélzt eins til tveggja marka munur fram í miðjan hálfleik. Þá náðu Framarar aftur yfirhöndinni með 16—14. Hélzt sá munur þar til um sjö mínútur voru eftir af leik, að Karl Jóhannsson jafnar fyrir KR 20:20. Nú hófust æsi- spennandi mínútur. Guðjón skor aði 21. mark Fram og skömmu síðar bætti Gunnlaugur öðru við. En KR-ingar voru ekki á því að gefast upp og Sigurður Óskarsson skoraði ágætt mark aÆ línu fyrir KR. Framarar höfðu þó ekki sagt sitt síðasta orð, því að skömmu áður en dóm arinn flautaði af komst Frímann inn í vítateigshornið og skoraði síðasta mark leiksins fyrir Fram, svo að lokatölur urðu 23 mörk gegn 21 — fyrir Fram. Úr leik Fram og KR. Sigurður Óskarsson er kominn að lína Fram en Gunnlaugur kemur á vettvang og er líklega full djarf ur í vörninni, ef dæma má afmyndinni. — Ljósm. Sv. Þorm. • Liffin. Fram fékk nú í fyrsta sinn á þessu móti verðuga mótspyrnu, og var engu likara en liðið yrði að gjalti fyrir henni. Liðið var mjög ósamstillt í samleik sín- um, og langskyttum liðsins ge'kk fremur erfiðlega að finna gluifur í hinni tvöföldu vörn KR. í>á var og vörn liðsins mjög glopp- ótt, og sérstaklega átti hún í erf- iðleikum að hafa hemil á línu- spilurum KR. Þó hefur liðið það sér til afsökunar, að Þorsteinn, landsliðsmarkvörður, var ekki Framhald á bls. 27. Jón Þ. Ólafsson reyndi v/ð heimsmeistarahæð en tókst ei Athyglisverður órangur ungra pilta ó innanfélagsmóti IR Hér er Stefán Sandholt (Val) kominn hættulega nálægt marki FH. Örn Hallsteinsson er ekki langt undan og stöðvar skotið, en að því er virffist ekki á sársaukalausan hátt fyrir Stefán. ÍR-ingar héldu innanfélagsmót í frjálsum íþróttum 5. marz sl. tU undirbúnings Meistaramóti ís- lands sem fram fer um næstu helgi. Árangur varff mjög góffur og meðal anniars átti Jón Þ. Ól- afsson ágætar tilraunir viff 1,78 í hástökki án atrennu, en þar er heimsmetiff 1,77. Jón hafði áður flogiff yfir 1,75. é>- Hraði FH opnaði vörn Vals oft og skemmtilega FH vann örugglega 28 : 21 SÍÐARI leikurinn, sem fram fór í 1. deild karla í íslandsmótinu í handknattleik í fyrrakvöld, var milli FH og Vals, Eftir frammi- stöðu Vals fyrr í mótinu, höfffu flestir búizt viff aff liffiff yrffi ís- landsmeisturunum skeinuhætt, en svo varff þó ekki, því aff FH- ingar tóku nær strax forustuna, og tókst hinu unga liði Vals aldrei að ógna henni. 1 hálfleik var staðan 14—10, í síffari hálf- leik uku FH-ingar smátt og smátt viff þessa forustu, svo aff leikum lauk meff öruggum sigri þeirra 28 mörkum gegn 21. FH var í sínu gamla og góða formi í þessum leik, lék mjög hratt fyrir utan vörn Vals, og opnuðu hana oft mjög skemmti- lega. Liðið sýndi nú oft og tíð- um mjög skemmtilegt línuspil, og voru mörg markanna skoruð af línu, sem er nokkuð óvana- legt fyrir liðið, sem yfirleitt skorar nær öll mörk sín með langskotum. Liðið var traust í vörn, og gekk langskyttum Vals — þeim Hermanni og Bergi — erfiðlega að finna glufur í henni. Beztu menn FH í þessum leik voru þeir Guðlaugur, Birgir og Karl í markinu. Lið Vals er skipað ungum og mjög efnilegum handknattleiks- mönnum, sem síðar meira eiga án efa eftir að hljóta íslands- meistaratitilinn, en ennþá skort- ir þá mjög festu og skipulag í leÍK. Lioiö leikur mjög hraöan hanaKnattleik, en ógna alltof MUö, og gengur pví ou erfiölega aö opna varnir andstæðingsins. Uioio reyrur talsvert að íeika inn á linu, og sendingar inn á iínu eru oit akaílega vafasamar, og eins viröist manni sem nokkr- ir imuspiiarar iiðsins hafi ekki enn lært til fullnustu að leika sig „fria“ inn á linunni. Þá er og vorn liðsins ákaflega götótt. Beztu menn liðsins í þessum ieik voru þeir Ágúst,' sem gerði margt fallegt inn á línunni, Her- mann og Stefán Sandholt. Mörk Vals skoruðu: Ágúst 7, Bergur 5, Hermann 4, Stefán 3, Jón Carlsson 1 og Jón Ágústar 7. Mörk FH skoruðu: Páll 8, Örn 5, Jón Gestur 4, Birgir, Auðunn og Árni 3 hvor og Árni 2. En athygli vöktu fleiri en Jón, einkum þeir Ólafur Ottósson í þristökki og Júlíus Hafstein í Iangstökki og þrístökki. Báðir eru þeir í sérflokki í sínum ald- urshópi og mjög efnilegir. Árangur á mótinu varð annars sem hér segir: Hástökk án atrennu 1. Jón Þ. Ólafsson ÍR 1,76 m. 2. Karl Hólm ÍR 1,50. 3. Valbjörn Þorláksson KR 1,50. 4. Erlendur Valdimarsson ÍR 1,45. Júlíus Hafstein og Ólafur Ottós- son stúkku báðir 1,46 m. Langstökk án atrenniu 1. Jón Þ. ólafsson ÍR 3,31 m. 2. ólafur Ottósson ÍR 3,12 m. 3. Júlíus Hafstein ÍR 3,05 m. 4. Valbjörn Þorláksson KR 3,00 -. Þrístökk án atrennu 1. Jón Þ. Ólafsson ÍR 9,65 m. 2. Ólafur Þ. Ólafsson ÍR 9,66 m. 3. Júlíus Hafstein ÍR 8,87 m. 4. Guðmundur Vigfúss. lR 8,77 m. 5. Kristjón Kolbeinss. ÍR 8,74 m. 6. Valbjörn Þorláksson KR 8,72. Kúluvarp 1. Valbjörn Þorláksson KR 12,88. 2. Erlendur Valdimarss. lR 12,80. 3. Jón Þ. ólafsson ÍR 12,77. 79 sveitir skóla kepptu í boðsundi HIÐ SÍÐARA sundmót skólanna 1965—1966 fór fram í Sundhöll Reykjavíkur 3. marz sl. Alls kepptu 19 sveitir frá 10 skólum. Meðal þeirra voru skólar frá Selfossi, Hveragerði, Keflavík og Akureyri. Stigakeppni í sundgreinum stúlkna vann sveit Gagnfræða- skóla Austurbæjar í Rvík., en stigakeppni sundgreina pilta vann sveit Menntaskólans í Reykjavík. Boðsund stúlkna (skriðsund) vann sveit úr Gagnfræðaskóla SeWoss en boðsund pilta vann sveit Menntaskólans á Akureyri. Árangur var góður í öllum greinum. Matthildur Guðmunds- dóttir jafnaði í baksundi met Auðar Guðjónsdóttur úr Gagn- frœðaskóla Keflavíkur. Röð skólanna var þessi: Stúlkur: 1. Gagnfræðask. Austurbæjar, R. 2. Gagnfræðaskóli Selfoss. 3. Gagnfræðaskóli Keflavikur. 4. Verzlunarskóli íslands. 5. Kennaraskóli íslands. 6. Hagaskóli Rvík. 7. Gagnfræðaskóli Hveragerðis. Piltar: 1. Menntaskólinn í Reykjavík. 2. Gagnfræðask. Austurbæjar. R. 3. Menntaskólinn á Akureyri. 4. -5. Kennaraskóli íslands og Verzlunarskóli íslands. 6. Gagnfræðaskóli Keflavíkur. 7. GagnifræðaskóM Vesturlbæjar (Vonarstrætisskólinn) Rvík. 8. -10 Hagaskóli, Rvík., Gagn- fræðaskóli Selfoss og Hvera gerðis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.