Morgunblaðið - 10.03.1966, Síða 2
2
MORGUNBLADIÐ
Fimmtudagur 10. marz 1966
Frá skólamálaráðstefnunni í Hagaskóla. Jónas B. Jónsson, fræðslustjóri, setur fund í gær.
Lokið er ráðstefnu skólastjóra
og yfirkennara um skólamál
Alvarlegar launa-
deilur í Svíþjóð
- Yfirvinnubarin gengur í gildi á morgun
ÞRTGGJA daga ráðstefnu skóla-
stjóra og yfirkennara i barna-
og gagnfræðaskólum Reykjavík-
ur ’auk í gær. Hún var haldin
í Hagaskólanum og m.a. fluttu
þar erindi tveir Þjóðverjar, sem
komu til landsins á vegum Efna-
hagsstofnunarinnar, sem um þess
ar mundir vinnur að áætlanagerð
um skóla- og menntamál.
Að ráðstefnunni stóðu Skóla-
stjórafélagið í Reykjavík og
Fræðsluskrifstofa borgarinnar og
fjallaði hún um ýmsa þætti
skólamála, sem efst eru á baugi
í dag.
Hliðstæð ráðstefna var hald-
in fyrir nokkrum árum og þá
var fenginn norskur frummæl-
andi.
Á ráðstefnunni nú fluttu er-
indi dr. Wolfgang Edelstein og
dr. Klaus Bahr. Edelstein talaði
alla dagana og var fyrsta erindi
hans um skólann og samfélagið,
þá breytingar í skólakerfinu og
loks visindarannsóknir í skóla-
starfi.
Kópavogur
DREGIÐ hefur verið í happ-
drætti Sjálfstæðisfélaganna í
Kópavogi. Eftirtalin númer hlutu
vinning: Sófasett nr. 265, sjón-
varp nr. 371, þvottavél nr. 878,
ferð með Gullfossi til Kaup-
mannahafnar nr. 1388 og hræri-
vél nr. 2144.
Vinninganna má vitja í skrif-
stofu Sjálfstæðisflokksins í
Kópavogi. Borgarholtsbraut 6,
sími 40708.
Slökkviliðið
á ferð
í gærkvöldi
SLÖKKVILIÐIÐ var tvisvar
kvatt út í gærkvöldi, en annað
útkallið reyndist vera gabb.
Ekki hefur enn náðst í sökudólg
inn.
Kl. 19:05 var slokkviliðið kvatt
að Bókasafni Reykjavíkurborgar
að Sólheimum 27. Reyndist þar
hafa kviknað í Ijósastæði. en
eldurinn var lítilfjörlegur og
sviðnaði aðeins í kringum ljósa
stæðið. Þurfti aðstoðar slökkvi-
liðsins ekki.með, er það kom á
vettvang.
Klukkustund síðar var sjúkra-
flutningur. Hafði kona hrasað
illa á götu. Konan sem heitir
Guðbjörg Andersen til heimilis
að Víðimel 38 var þegar flutt á
Slysavarðstofuna og þaðan á
Landsspítaiann.
Dr. Klaus Behr, sem er hag-
fræðingur, flutti erindi fyrsta
daginn og nefndi hann það
menntun og hagþróun.
Annan dag ráðstefnunnar
flutti einnig erindi Ragnar Ge-
orgsson, skólafulltrúi, og fjall-
aði það um nýja starfshætti í
bandarískum skólum og sýndi
fyrirlesari kvikmynd með erindi
sínu.
Alla þrjá daga ráðstefnunnar
voru umræður að framsöguer-
indum loknum og fyrirspurnuim
svarað.
Ráðstefnunni stjórnaði Jón-
Fjárhagsáætlun
Húsavíkur
BÆJARSTJÓRN Húsavíkur sam
þykkti á fundi sínum 2. marz sl.
Niðurstöður fjárhagsáætlunar
bæjarsjóðs á greiðsluyfirliti er
16.940,000, sem er 14% hækkun
frá 1965. Útsvör eru áætluð kr.
9.373.000 og hækka um 18%. Að
stöðugjöld eru áætluð kr.
2.650.000 og hækka um 15%. Aðr
ar tekjur hækka um 18%. Rekst
ursgjöld eru áætluð kr. 13.365.000
og hækka um kr. 2.521.000. Þar
af er hækkun til verklegra fram-
kvæmda kr. 817 þús. Alls er var
ið til verklegra framkvæmda og
eignaaukninga 7,6 milljónir. —
Helztu gjaldaliðir eru sem hér
segir:
Félagsmál og tryggingar
kr. 3.417 þús.
Skólar og menningarmól
kr. 2.212 þú.s
Götur og ræsi og skipulags-
mál kr. 3.571 þús.
Heilbrigðis- og hreinlætis-
mál kr. 1.080 þús.
Afborganir lána og vextir
' kr. 1.993 þús.
Eignaaukningar kr. 1.993 þús.
Á sama fundi voru einnig af-
greiddar fjárhagsáætlanir bæjar
fyrirtækja og eru ráðgerðar
verklegar framkvæmdir á veg-
um bæjarsjóðs og fyrirtækja
1966 áætlaðar 13,3 milljónir.
Góður afli á Skaga
Akranesi 9. marz.
Þorskanetabátar fimm að t|>lu
lönduðu hér í gær samtals 68
tonnum. Aflahæstur var Skírn-
ir með 29 tonn, Ólafur Sigurðs-
son 16 tonn, Haförninn 11, Höfr-
ungur I 8 tonn og Rán 4 tonn.
3.000 tunnum af loðnu lönd-
uðu tveir bátar hér í morgun,
Óskar Halldórsson 1900 tunnum
og Höfrungur III 1100 tunnum.
Nú er hann á sunnan suð-vest-
an úti á miðum og ókyrrð í sjó-
inn, þungavindur úti en tiltölu-
lega lygnt í landi
as B. Jónsson, fræðslustjóri
Reykjavíkurborgar, og Guðrún
Helgadóttir, formaður Skóla-
stjórafélagsins, en hana sátu
einnig Helgi Elíasson, fræðslu-
málastjóri, og Magnús Gíslason,
námsstjóri gagnfræðastigsins í
Reykjavík.
Jónas B. Jónsson, fræðslumála-
stjóri, tjáði Morgunblaðinu, að
skólamenn væru sér vel meðvit-
andi í dag um nauðsyn þess að
fylgjast vel með þróun skóla-
mála í nágrannalöndum okkar.
Sýndi aðsóknina að ráðstefnunni
þetta gjörla, því hún hefði verið
um 100%.
Kvaðst Jónas þess fullviss, að
ráðstefnur sem þessar yrðu fleiri
og fleiri í náinni framtíð, enda
hefðu þær tvær, sem þegar
hefðu verið haldnar, gefið mjög
góða raun.
FULLTRÚARÁÐ Sambands ísl.
sveitarfélaga heldur fund í
Reykjavík fimmtudaginn 10. og
föstudaginn 11. marz nk. Fund-
urinn verður í fundarsal borgar-
stjórnar Reykjavíkur að Skúla-
túni 2. Hefst hann kl. 10 árdeg-
is á fimmtudag og lýkur síðari
hluta föstudags. •— Ávörp flytja
Eggert G. Þorsteinsson, félags-
málaráðherra og Geir Hallgríms
son, borgarstjóri.
Á fundinum verða flutt þrjú
erindi: Jónas H. Haralz forstjóri
Efnahagsstofnunarinnar flytur
erindi um byggðaáætlanir,
Hjálmar Blöndal, hagsýslustjóri
Reykjavikurborgar um hagsýslu
mál og Jón Jónsson, jarðfræðing
ur um neyzluvatn og vatnsból á
íslandi.
— De Gaulle
Framhald af bls. 1.
gera í málinu fyrr en öll með-
limaríki NATO hafi haft nægan
tíma til að kynna sér það.
Bandaríski þingmaðurinn Ja-
cob K. Javitz, Republikani frá
New York, sagði í öldungardeild
inni á miðvikudag. að nauðsyn-
legt væri fyrir NATO-ríkin að
hefja nú þegar undirbúning að
því, að flytja aðalstöðvar sam-
takanna frá Frakklandi, til Bret
lands, Hollands eða Belgíu. —
Javitz lagði áherzlu á að Banda
ríkin yrðu að vinna að eflingu
Atlantshafsbandalagsins, hvort
sem Frakkland yrði áfram með-
limur eða ekki.
Stokkhólmi, 9. marz — NTB
ALVARLEGAR launadeilur
hafa staðið yfir í Svíþjóð að
undanförnu og á þriðjudag
sl. sögðu allmörg aðildarsam-
bönd sænska Alþýðusam-
bandsins upp samningum. —
Sambönd þessi höfðu áður
tilkynnt, að frá og með föstu-
degi nk. mundi ganga í gildi
yfirvinnúbann, ef samningar
við atvinnurekendur næðust
ekki fyrir þann tíma. I dag,
fimmtudag, munu fulltrúar
atvinnurekenda koma saman
til að taka afstöðu til yfir-
vinnubannsins. Þar sem yfir-
vinnubann verður mjög baga
legt fyrir ýmsar framleiðslu-
greinar, er talið að til greina
geti komið, að atvinnurekend
ur láti hart mæta hörðu og
setji á algjört verkbann í á-
Dregið í happ-
drætti 8RA
HJÁ bæjarfógetaemibættinu á
Akureyri hafa verið dregin út
vinningsnúmer í Skyndihapp-
drætti S.R.A. Eftirtalin númer
hlutu vinning:
Nr. 698 far til Kaupmanna-
hafnar og vikudvöl.
Nr. 840 far til Kaupmanna-
hafnar og vikudvöl.
Handhafar vinningsnúmera
vitji vinninga sinna hjá Ferða-
skrifstofunni SÓGU á Akureyri,
sem einnig gefur allar nánari
upplýsingar um ferðirnar.
Stjórn sambandsins leggur fyr
ir fundinn allmörg mál. Þar á
meðal er áskorun til Alþingis
og ríkisstjórnar um stækkun
sveitarstjórnarumdæma, tillögur
um breytingar á lögum sam-
bandsins, frumvarp til laga um
Lánasjóð sveitarfélaga, rætt
verður um frumvarp til laga
um Lánasjóð sveitarfélaga, rætt
verður um frumvarp til laga um
breytingar á tekjustofnalögum,
um aðstöðugjöld og landsútsvar
síldarverksmiðja og fleiri ríkis-
fyrirtækja, auk venjulegra fund
arstarfa, skýrslu stjórnar, sam-
þykkt ársreikninga og fleira.
kveðnum starfsgreinum.
Sáttanefnd, skipuð af stjórn-
inni, hefur gert ítrekaðar til-
raunir til að leysa deiluna, en
hvorugur deiluaðilinn hefur
viljað láta sig. Sáttanefndin gafst
algjörlega upp fyrir viku, en
stjórnin bað aefndina að sitja
áfram og skerast í leikinn, ef í
ljós kæmi, að deiluaðilar vildu
halda viðræðum áfram. Nú er
beðið eftir því með óþreyju aS
sáttanefndin taki til sinna ráða,
áður en yfirvinnubannið skelli á.
Talið er að alvarlegt ástand
muni skapast strax í næstu viku
ef atvinnurekendur ákveða að
setja á verkbann. Yfirvinnu-
bannið mun hafa alvarleg áhrif
á margar atvinnugreinar, eink-
um skógarhögg, trjávinnslu og
efnaiðnað landsins. Þótt yfir-
vinnubannið eigi ekki að ganga
í gildi fyrr en á föstudag, hafa
allmargir starsfmenn hjá trjá-
vinnustofnunum neitað að vinna
yfirvinnu. Launadeilan í Sví-
þjóð hefur valdið ýmsum erlend-
um aðilum áhyggjum, því ef hún
leysist ekki' innan skamms er
talið öruggt að Svíþjóð geti ekki
staðið við gerða samninga um
sölu á trjávörum og ýmsu hrá-
efni.
Ný stjórn í Félagi
f rímerk j asaf nara
NÝLEGA var haldinn aðalfund-
ur í Félaigi Frímerkjasafnara og
ný stjórn kosin samkvæmt lö'g-
um þess. Formaður var kjörinn
Gísli Sigurbjörnsson forstjóri og
meðstjórnendur þeir Jónas Hall-
grímsson, Sigurður P. Gestsson,
Sigurður Ágústsson og Þórarinn
Ókarsson. Hin nýkjörna stjórn
hefur þegar haldið stjórnarfundi
og skipulagt starfsemina á kom-
andi mánuðum og hefur félagið
ýms ný áform á prjónunum.
Félag Frímerkjasafnara sem
starfað hefur í hart nær tíu ár,
beitir sér fyrir frímerkjasöfnun
almennt og þá ekki sízt hjá
uniglingum svo og hjá öðru fólki
sem nýbyrjað er söfnun frí-
merkja, ef ske kynni að þessi
vinsæla tómstundaiðja gæti hvatt
það til heil'brigðs lífsstarfs og tii
frekari þekkingar á tungumála-,
sögu-, þjóðfélaigs-, náttúrufræði-
og tæknikunnáttu auk alls ann-
ars, sem frímerki hinna mörgu
landa gefa myndir af, enda hef-
ur félagið í þessu sambandi opna
skrifstofu að Amtmannsstíg 2
'hér í borg hvert miðvikudags-
kvöld, þar sem fólk getur femgið
leiðbeiningar og allar upplýsing-
ar sem við koma frímerkjasöfn-
un.
(Frá Félagi frímerkjasafnara).
Kominn var útsynnimgur sums staðar snjómugga.
með skúrum og éljum um Útlit var fyrir, að lægðin
sunnan- og vestanvert landið vestan við landið mundi verða
um hádegið í gær og hiti þar á svipuðum slóðum og valda
1—3 stig, en norðaustan lands áfram éljagangi í dag.
var SA-gola, vægt frost og
Fulltrúaráðsfundur Sam
bands ísl. sveitarfélaga