Morgunblaðið - 10.03.1966, Qupperneq 14
14
MORGUNBLADID
Fimmtudagur 10. marz 1966
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnáson frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 95.00 á mánuði innanlands.
I lausasölu kr, 5.00 eintakið.
FORUSTA UM HÚS
NÆÐIS UMBÆTUR
pott og heilsusamlegt hús-
^ næði er eitt af frumskil-
yrðum mannlegrar vellíðun-
ar. Það sætir þess vegna engri
furðu þótt mikið sé rætt um
húsnæðismál í landi, þar sem
ein eða tvær kynslóðir hafa
orðið að lyfta því Grettistaki
að byggja ný og varanleg hí-
býli yfir heila þjóð. En þetta
höfum við íslendingar orðið
að gera. Mestar og hraðastar
hafa umbæturnar orðið á
þessu sviði síðustu tvo ára-
tugi. En þrátt fyrir stórfram-
kvæmdir er þó mikið verk ó-
unnið í húsnæðismálum
okkar. í kaupstöðum, kaup-
túnum og sveitum er ennþá
töluvert af lélegu húsnæði,
sem ekki samræmist nútíma-
kröfum til þessara lífsins
gæða.
Á þessu hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn glöggan skilning.
Undir forustu hans hefur á
undanförnum árum verið
tekið raunhæfari tökum á
húsnæðisvandamálunum en
nokkru sinni fyrr. Nýjar lána
stofnanir hafa verið byggðar
upp til stuðnings íbúðarhúsa-
byggingum, heilsuspillandi
húsnæði útrýmt í stórum stíl,
almennt veðlánakerfi tekið
upp, verkamannabústaðir
efldir og grundvöllur lagður
að áframhaldandi umbótum.
Stefna Sjálfstæðismanna í
húsnæðismálunum hefur ver-
ið og er sú, að styðja sem
flesta einstaklinga til þess að
eignast góðar og heilsusam-
legar íbúðir. Jafnframt hefur
verið höfð í huga þörf efna-
lítils fólks, sem ekki hefur
bolmagn til þess að ráðast í
íbúðakaup eða húsabygging-
ar af eigin rammleik.
Undir forustu núverandi
ríkisstjórnar hafa stærri skref
verið stigin í þessum efnum
en nokkru sinni fyrr. Það
kemur því sannarlega úr
hörðustu átt, þegar stjórnar-
andstæðingar, Framsóknar-
menn og kommúnistar, hafa
uppi ásakanir á núverandi
stjórnarflokka um seinlæti og
áhugaleysi í þessum efnum.
Kjarni málsins er sá að
húsnæðisumbæturnar hafa
verið unnar svo hratt á síð-
ustu árum, að við borð ligg-
ur að efnahagslegu jafnvægi
í þjóðfélaginu stafi af því
nokkur hætta. Svo miklu fjár
magni hefur verið beint að
byggingaframkvæmdum, að
þær hafa dregið til sín vinnu-
afl í svo Stórum stíl, að út-
flutningsframleiðslan og ým-
iskonar atvinnurekstur hefur
átt í vök að verjast. En þess-
ar umbætur í húsnæðismál-
um hafa verið óhjákvæmileg-
ar.
Mestu máli skiptir að íbúða
byggingar séu sem jafnastar
frá ári til árs, þannig að skipu
legar sé að því unnið að
tryggja öllum landsmönnum
gott og fullkomið húsnæði.
Hinar miklu sveiflur, sem áð-
ur tíðkuðust í byggingarfram
kvæmdum, þegar ýmist ríkti
♦byggingafrelsi eða fjárfest-
í’.ngarhömlur, voru mjög skað
legar fyrir efnahagslegt jafn-
vægi í þjóðfélaginu.
Um það þarf ekki að fara í
neinar grafgötur, að ef verð-
bólgustefna kommúnista og
Framsóknarmanna frá vinstri
stjórnar árunum hefði verið
framkvæmd áfram, hefði lít-
ið orðið úr húsnæðisumbót-
um á síðustu árum. Það er
jafnvægisstefna Viðreisnar-
stjórnarinnar, sem á ríkastan
þátt í hinu mikla uppbygg-
ingarstarfi og húsnæðisumbót
um síðustu ára.
FORSETI í TVEIM-
UR RÍKJUM!
að er sök sér þótt Sekou
Touré, forseti í Gíneu,
vilji sýna Nkrumah, hinum
brottrekna forseta og ein-
ræðisherra í Ghana fyllstu
vináttu og tryggð.
Hitt hlaut að vekja furðu
þegar Touré lýsti því yfir að
Nkrumah væri nú þjóðhöfð-
ingi Gíneu, og hefði umboð
til þess að tala fyrir henn-
ar hönd.
Hvaða vald hafði forseti
Gíneu til þess að gefa slíka
yfirlýsingu?
Vitanlega sýnir.þetta fram
ferði Sekou Touré að hann
lítur á sig sem einræðisherra
í landi sínu, sem ekki þurfi
að standa þjóð sinni reikn-
ingsskil á gerðum sínum.
Nkrumah telur sig nú vera
forseta í tveimur ríkjum,
þrátt fyrir það, þótt hin nýja
ríkisstjórn Ghana hafi hlotið
viðurkenningu fjölda ríkja,
þar á meðal Bandaríkjanna,
Bretlands og Frakklands. En
hætt er við því að hinum
fallna einræðisherra reynist
róðufinn þungur í valdabar-
áttu hans. Hann skildi við
efnahag Ghana í rústum og
hafði um árabil stjórnað land
inu með slíku gerræði að slíks
munu naumast nokkur dæmi,
jafnvel í hinum nýfrjálsu
ríkjum Afríku. En hann naut
öflugs stuðnings lsommún-
istaríkjanna, bæði Sovétríkj-
anna og Kína. Það eru þess
vegna kommúnistar einir sem
harma fall Nkrumali.
w
UTAN ÖR HEIMI
Ulbricht vill treysta sam-
búiina við Kína
— hefur setf allmarga Asíu-
sérfræðinga í ráðherrastóla
Berlín, 8. marz. — AP —
ALLMARGIR menn, sem eru
sérfræðingar í Asíumálum,
hafa verið settir inn í austur-
þýzku stjórnina á seinustu
vikum. Menn þessir hafa all-
ir fengið starifa í utanríkis-
ráðuneytinu. Erlendir stjórn-
málasérfræðingar telja, að
þetta bendi til þess, að aust-
ur-þýzka stjórnin hyggist
treysta sambandið við Kína
og önnur Asiulönd og vera
vel á verði gegn hverskonar
þvingunum, er Sovétmenn
kunna að vilja beita Aust-
ur-Þýzkaland. Vestur-þýzkur
stjórnmálasérfræðingur, sem
stöðugt fylgist með gangi
mála fyrir austan múrinn,
hefur látið þess getið, að
austur-þýzka stjórnin vilji
augsýnilega halda vinskap
við Kínverja, þó vitað sé að
hún sé hugmyndafræðilega
Sovétmegin í kommúnisman-
um.
Tveir fyrrverandi sendi-
herrar í Peking voru skipað-
ir aðstoðarutanríkisráðherrar
24. febrúar s.l.
Annar þessara nýju ráð-
herra, er hinn 58 ára gamli
Josef Haigen, sem var sendi-
herra í Peking á árunum
1961—1964. Hinn maðurinn
er Gunther Kohrt, sá er tók
við sendiherraemibættinu af
Hegen. Kohrt lét af embætt-
inu s.l. mánudaig 7. marz og
flaug samstundis til Berlínar
til að taka við hinni nýju
stöðu. Eftirmaður Kohrts í
Peking, verður Martin Bier-
bach. Hann var sendiherra í
Kína á árunum 1955—1959, en
var þá kallaður heim til
starfa í utanríkisráðuneytinu.
Til viðbótar þessari aukn-
ingu í ráðuneytinu, hefur
Gustav Herzfeld verið skip-
aður þriðji aðstoðarutanríkis
ráðherra. Herzfeld hefur ver-
ið til skamms tíma ræðismað-
ur í Djakarta, en Austur-
Þýzkaland hefur ekki sendi-
ráð í Indónesíu. Með skipun
þessara nýju ráðlherra, eru
Asíu-sérfræðingar í miklum
meiri'hluta í ráðuneyti Ottós
Winzers, sem nú er utanríkis-
ráðherra Austur-Þýzkalands.
Vestur-þýzkir stjórnmála-
sérfræðingar hafa vakið at-
’hygli á því, að Kohrt og
Hegen eru í rauninni ekki
stjórnmálamenn, heldur stjórn
málalegir tæknifræðingar,
með sérþekkingu í málum
Kína og Austur-Asíu. Þeir
hafa engin ítök í miðstjórn
kommúnistaflokksins, þó þeir
séu að sjálfsögðu í honum.
Austur-þýzka stjórnin er sögð
vilja meðhöndla þýzk-kín-
versk mál með mikilli varúð,
og það er talin megin ástæð-
an fyrir þvít að tæknifræðing
arnir hafi verið settir í ráð-
herrastólana.
Vestrænir sérfræðingar, er
fylgjast með gangi mála fyrir
Walter Ulbricht
austan múrinn, telja að hin
auknu viðskipti Kínverja * og
Vestur-Þjóðverja valdi hinni
austur-þýzku stjórn stöðug-
um áhyggjum. Hið sama er að
segja um þær ráðagerðir Kín
verja og Vestur-Þjóðverja að
stofna til gagnkvæmra heim
sókna vísindamanna, stjórn-
málaimanna, viðskiptasérfræð
inga og fréttamanna.
Sérfræðinga^nir hafa einn-
ig vakið athygli á því, að
Austur-Þjóðverjar voru sein-
astir allra kommúnista til að
taka afstöðu til hinnar komm
únisku hugmyndafræðideilu,
er reis upp milli Sovétmanna
og Kínverja. Að síðustu skip-
uðu þeir sér viið hlið Kreml-
búa. Sérfræðingarnir telja, að
Ulbriöht leiðtogi hafi beðið
með þessa ákvörðun eins
lengi og hann gat, m.a. til að
koma í veg fyrir átök við
hina kínversksinnuðu flökks-
menn sína.
Mikill viðbúnaður
Breta á Indlandshafi
Sækja um aðstöðu á Madagaskai til að
hindra olíuflutninga til Rhódesíu
London, 8. marz — AP
GÓÐAR heimildir hermdu hér í
kvöld að Bretar hyggist hafa
mikinn viðbúnað í lofti og á sjó
á Indlandshafi til þess að koma
í veg fyrir að olíuflutningabann-
ið á Rhódesíu verði brotið .—
Verður vakað yfir siglingaleið-
um til portúgölsku nýlendunnar
Mozambique, en frá hafnarbæn-
um Beira þar í landi liggur olíu-
leiðsla til olíuhreinsunarstöðvar
í Rhódesíu.
Orðrómur hefur verið á sveimi
undanfarna daga um að von
væri olíuskipa til Beira. Ekkert
olíuskip hefur þó komið þangað
enn með olíu til Rhódesíu, svo
vitað sé.
Brezka stjórnin hefur farið
þess á leit við stjórn Malagasy-
lýðveldisins (áður Madagaskar)
að fá þar aðstöðu fyrir brezka
flugherinn, þannig að brezkar
flugvélar geti haft eftirlit með
Indlandshafi, og leitað uppi olíu-
skip, sem hyggjast sigla til Moz-
ambique.
Talsmaður brezka utanríkis-
ráðuneytisins staðfesti í kvöld,
að þessa hefði verið farið á leit
við stjórn Malagasi-lýðveldisins,
og hefði sú stjórn málið til yfir-
vegunar.
Tókíó, 8. marz — NTB — AP
JAPANSKIR og brezkir sérfræð
ingar leituðu ákaft í dag að litl-
um kassa úr brezku Boeing-707
þotunni frá BOAC, sem fórst við
fjallið Fuji á Iaugardag. í kassa
Viðskiftajöfnuð-
urinn í janúar
f FRÉTT frá Hagstofu fslands
segir að viðskiptajöfnuður í janú
armánuði hafi verið óhagstæður
um 3,449 milljónir, en á sama
tíma í fyrra var hann óhagstæð-
ur um 20,653 milljónir. í janúar-
mánuði nú voru fluttar út vörur
fyrir 398,116 milljónir, en flutt
inn fyrir 401,695 milljónir. — Á
sama tíma í fyrra var flutt út
fyrir 266,149 milljónir, en inn-
flutningur nam þá 286,802 millj.
Eins og sjá má af þessum töl-
um er út- og innflutningur yfir
hundrað milljón krónum hærri
nú en á sama tíma í fyrra.
þessum, sem á flugmáli er nefnd
ur „svarti kassinn", eru ýmis
sjálfvirk mælitæki, og er talið að
finnist kassinn, kunni hann að
varpa einhverju ljósi á orsakirn-
Fram/halid á bls. 13
Orsakir flugslys-
ins hulin ráigáta
Leitað að sjálfritandi mælitækjum.