Morgunblaðið - 22.03.1966, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 22.03.1966, Qupperneq 32
Langstærsta og fjölbreyttasta blað landsins Helmingi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað Banaslys á Seyðisfirði Seyðisfirði, 21. marz. BANASLYS varð á Seyðisfirði í gær, er tvítugur maður féll nið ur fjögurra metra háan stiga i fiskiðjuveri staðarins og höfuð- kúpubrotnaði. Var hann látinn áður en hann komst í sjúkrahús. Nánari málsatvik voru þau, að maðurinn var nýkominn til Seyð isfjarðar, en hann var skipverji á Björg NK, sem þar var í slipp. Dvaldist hann í verbúðum fisk- iðjuversins meðan beðið var eft- j ir því, að skipið færi úr slipp, ásamt fleiri skipsfélögum sínum. Síðia sunnudagskvöldsins mun hann hafa ætlað út, en hrasaði efst í stiganum og féll niður hann, og er fallið um fjórir metr ar. Enginn var viðstaddur at- burðinn, en véismiður, sem býr í verbúðunum heyrði umgang í stiganum og kom þegar á vett- vang. Var maðurinn fluttur í sjúkrahús Seyðisfjarðarkaupstað ar, en var látinn þegar þangað kom. — Sveinn. BtLAÐIÐ sneri sér í gær til Magnúsar Jónssonar, fjármáia- ráðherra, og spurðist fyrir hvað segja mætti um gang undirbún- ings kísilgúrvinnslunnar við Mý- vatn. — í>ar hefir verið unnið í all an vetur við byggingu starfs- manna'húss og mötuneytis. í>á er stöðugt unnið að því að ganga frá samningum við ameríska fyr- iríækið John Manville um rekst- ur verksmiðjunnar, sagði fjár- málaráðherra. Þá bætti hann við: — Áður en hægt verður að ganga að fullu frá samningum þarf að fá lausn á tveimur tækni legum vandamálum, en annað er hvemig með ódýrum hætti er hægt að ná járninu úr hrá- efninu en hitt, hvernig hægt er að þurrka það á hagkvæman hátt, en þetta er eina verksmiðj an í heiminum sinnar tegundar, sem vinnur efnið undan vatni. Það þykir þó sýnt að þetta sé hvorttveggja auðið, þannig að niðurstaða verði jákvæð og góð- ar horfur eru á að svo fari að leystum þessum vandamálum ná ist samningar við hið ameríska fyrirtæki um samaðild að bygg- ingu verksmiðjunnar og sölu framleiðslu hennar á hagstæðum grundvelli fyrir íslendinga, sagði Magnús Jónsson fjármálaráð- herra að iokum. Jens Otto Krag og frú koma á Pressuballið í Lídó í fylgd með veizlustjóra og frú hans, en for- maður Blaðamannafélagsins tók á móti þeim ásamt konu sinni. Frúrnar ganga á undan upp stig- ann, frú Álfheiður Guðmundsdó ttir, Helle Virkner Krag, sem er í Ijósum blúndukjól og með hið íslenzka víravirkisarmband frá B Iaðamannafélaginu eitt skartgri pa og frú Ólöf Pálsdóttir, mynd- höggvari. Næst á eftir frúnum gengur Jens Otto Krag, forsætis ráðherra. (Sjá fleiri myndir á bls. 10). Var Einar boðflenna? SVO sem kunnugt er af fréttum var um síðustu helgi efnt til ráð- stefnu nokkurra vinstri flokka á Norðurlöndum, sem SF-flokkur- inn í Noregi boðaði til og haldinn var í Osló. 21 tilboð opnað í rafala Búrfellsvirkjunar Hagstæðari en búizt var við í GÆR voru opnuð tiliboð í rafala Búrfellsvirkjunarinnar. — Bárust 21 tilboð frá fyrirtækj- um í 11 löndum. Eru lægstu til- boðin í þrjá rafala, sem notaðir verða ef reist verður 105 þús. kw. stöð, um 28—34 millj. kr. Sagði Jóhannes Nordal, stjórnar- formaður Landsvirkjunar, eftir að tilboð höfðu verið opnuð, að þau virtust hagkvæm, þó erfitt væri að bera þau saman á þessu stigi málsins. Þau lægstu væru ip vi en verkfræðin virkjunar höfðu búizt við. Lægstu tilboðin virðast vera frá japanska fyrirtækinu Mitsui, sænska fyrirtækinu ASEA, fyrir tækinu AEG í Þýzkalandi, og japanska fyrirtækinu Mitsubiski, en ekki er hægt að órannsökuðu máli að gera sér eins góða grein fyrir tilboði þess síðastnefnda, vegna þess að flutningskostnað- ur virðist ekki vera reiknaður í tilboðsverðinu. Þess má geta, að lægsta fyrirtækið, Mitsui, bínurnar en þetta er risafyrir- tæki, með hátt í 200 þús. starfs- menn og fra-mieiðir aiit frá brauðristum upp í járnbrautir. Tilboðin voru útbúin af Harza Engineering Company Initer- national. Var beðið um fast til- boð í tvo rafala, með tiiliti til þess að reist yrði aðéins 70 þús. kw. stöð, en þar lágu lægstu til- boðin í um 20 millj. kr. En til- boðin eru í 11 liðum og þar í viðbótartílboð um allt að 4 raf- aia að auki, sem Landsvirkjun getur fest kaup á innan fjögurra ára, ef hún æskir þess. Var útboðið auglýst á alþjóð- legum vettvangi, enda kom í ljós er tilboðin voru opnuð í fundar- sal á Hótel Sögu í gær, að borizt höfðu 21 tilfooð frá 11 löndum. Það seinasta kom reyndar á fund inn, en stjórnarformaður Lan-ds- Framhald á bls. 31 Tilboð í rafala í Búrfellsvirkjun opnuð. A myndinnj eru, talið frá vinstri: verkfræðingar Lands virkjunar, Jóhann Már Maríusson, Rögnvaldur Þorláksson og dr. Gunnar Sigurðsson, þá skrif stofustjórinn, Halldór Jónatansson, Jóhannes Nordal, stjórnarformaður, Eiríkur Briem framkvæ æmdastjóri Landsvirkjunar og Sigurður Thoroddsen, stjórmarmeðjimur. Ráðstefnu þessa sótti m.a. Einar Olgeirsson, formaður Sós- íalistafiokksins og sagði Þjóðvilj inn í frétt um ráðstefnu þessa, að Einar yrði fulltrúi Alþýðu- bandalagsins á rástefnunni. Það hefur vakið nokkra athygli, að Hannibal Valde- marsson, formaður Alþýðubanda lagsins eða einhver fulltrúi hans skyldi ekki fremur sækja ráð- stefnu þessa, þar sem SF-flokk- arnir á Norðurlöndum eru eng- an veginn sambærilegir við Sós- íalistaflokkinn hér á landi. Mbl. sneri sér í gær til Hannibals Valdemarssonar, formanns Alþ bl. og spurði hann hverju þetta sætti. Hann sagði: „Alþýðubanda laginu barst ekkert boð frá fund- arboðendum, sem var norski SF- flokkurinn. Hins vegar mun ein- hver starfsmanna þess flokks hafa haft samband við Einar OI- geirsson um að koma til ráðstefn unnar. Fyrir ráðstefnuna fékk Alþýðubandalagið vitneskju um hana frá Axel Larsen, formanni danska SF-flokksins og ákvað þingflokkurinn að Ragnar Am- alds sækti ráðstefnuna fyrir hönd Alþbl. Hann gat hins veg- ar ekki farið til ráðstefnunnar.“ Af þessum ummælum for- manns Alþýðubandalagsins er ljóst, að Einar Olgeirsson hefur ekki farið til þessarar ráðstefnu sem fulltrúi Alþbl. og er frétt Þjóðviljans þess efnis því röng. Géður afli á Skaga Akranesi, 21. marz 6 þorskanetabátar komu úr róðri í gær með samtals 1Ö6 tonn. Sólfari var aflahæstur með 47,5 t-onn, Sigurborg með 43.5 Anna 33, Sigurfari 26,5, -Skírnir 24 og Rán 20,5 tonn. — Togari fór í eina trossu Sólfara fuila af fiski, fyrir viku. Voru Sólfaramenn 3 klukkustundir að ná trossuslitr- unum upp. Hingað kom danskt skip og lestar nokkur hundruð pökkum af saltfiski frá Sólfara h.f. M.s. Laxá (tilheyrir Hafskip) kom í morgun O'g lestar 200 tonn af loðnumjöli frá síldar og fiski- mjölsverksmiðjunni. Þeim hefur tekizt í verksmiðjunni að grynnka á loðnuþrónum aftur. Óhemju mikil vinna er í öllum hraðfrystihúsum bæjarins. Hér er kafaldsslydda. — Odd-ur. Ketilsprenging veldur mildu tjóni KETILSPRENGING varð í kjall ara f jölbýlisliússins að Kapla- skjóisvegi 27, sl. laugardags- kvöld. Sprengingin varð í vest- urenda hússins og svo mikil að húsið titraði ailt. Skemmdir uröu talsverðar í kyndiklefanum og nærliggjandi þvottahúsi, en engin slys urðu á mönnum. í þvottahúsinu, sem liggur við hliðina á kyndiklefanum, sem sprengingin varð í, var kona stödd með barn sitt. Sakaði hvor- ugt og má það teljast mildi, því hlaðinn skilveggur brotnaði af þrýstingnum og stór gluggi í klefanum mölbrotnaði. Auk þess brotnaði tvöföld hurð fyrir kyndiklefanum og ýmislegt fleira skemmdist. Slökkviliðið var þegar kvatt á vettvang en eldur kom þó ekki upp, en mikla guíu og reyk lagði frá ket ilhúsinu. Telja menn, að skemmd ir hafi orðið minni en ella, sök- um þess hve stór glugginn fyrir ketilhúsinu var, en þrýstingur- inn fékk útrás gegnum hann. RAÚFARHÖFN, 19. marz — Hér eru menn byrjaöir að leg=Ja grásleppunet. Þorskanetjab...ar hafa yfirleitt aflað fremur vel hér. Það hefur nokkrum smn- um komið fyrir að bátar hér hafi lóðað stórar torfur á 20-30 facma dýpi, og er það áiit flestra að það séu loðnutorfur. Þrjá síðustu daga hefur verið hér hið mesta blíðviðri og giaxup andi sólskin. Unnið af fuilum krafti að undirbúningi kísil- gúrverksmiðjunnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.