Morgunblaðið - 27.03.1966, Page 5

Morgunblaðið - 27.03.1966, Page 5
sunnudagur 27. marz 1966 MORGUNBLAÐIÐ R ÚR ÖLLUM ÁTTUM ÞRÁTT íyrir langvarandl gæftaleysi hefur afli iþorska- netjabáta í Reykavík verið sæmilegur það sem af vertíð er komið. Stafar það ef til vill af því, að vegna óvenju tregs afla hafa sjómenn hert sóknina á ný mið jafnvel svo að þeir hafa (þurft að „stíma“ allt upp í 16 tíma í vondum sjó til og fró miðum. Of - Aflanum er ekið í hf Sjófang, þar sem hann er gerður að fullunninni útflutningsvóru. (Ljósm. Sv. í>orm.). „Bezti mánuðurinn eftir“ Rætt við Andrés Finnbogason, skipstjóra um aflahorfurnar snemmt er þó að örvænta um aflaleysi. ef gæftir haldast, eins og einn gamalreyndur sjómaður komst að orði í við- tali við Morgunblaðið „við eigum bezta mánuðinn eftir, maður!“. Mánuðurinn, sem hinn aldna sjókempa átti við er að sjálfsögðu apríl, þá kemur páskahro'tan í Vest- mannaeyjum og væntanlega fyllast þá hálftómar lestar bátanna gulum og vænum þorski. Loðnubátar þeir, sem gerð- ix eru út frá Reykjavík mega þó allflestir vel una við sinn hlut. Loðnuveiði hefur verið með afbrigðum góð það sem af er árinu og auk þess stutt fyrir bátana að fara. Má sem dæmi um það nefna, að sl. föstudag var mb. Gullver á leiðinni til lands með 2000 tunnur af loðnu, sem hann hafði fengið 6 mílur út af Gróttu. Sömu sögu er að segja um báta við Faxaflóa- hafnir. Af þorskanetjaibátum í Rvík er nú mib. Helga komin með mestan afla eða um 500 tonn, og sögðu sjómenn er frétta- menn blaðsins hittu við ver- búðarbryggjurnar á föstudag- inn, að mb. Helga væri lang- h æ s t Reykjavíkurbátanna. .Skipstjóri á mb Helgu er Ár- mann Friðriksson. Er við litum niður á ver- búðarhryggjurnar á Granda- garði skömmu eftir miðnætti aðfaranótt föstudags var þar enn iðandi athafnEilíf, þrátt fyrir að borgin væri sofnuð. Mestmegnis voru það þó loðnubátar ,sem komnir voru að og sökum þess, að áhugi okkar beindist öllu meir að þorskanetjaibátunum ákváðum við að bíða tii dags með heimsóknir í þá. Daginn byrjuðum við síðan með heimsókn í Grandaradió, þar sem Jóhannes Halldórs- son sat við talstöðina, svo önnum kafinn, að hann má'tti vart vera að því að líta upp. Reykjavíkurbátar, sem og aðrir kalla upp Grandaradíó, ef eitthvað fer úrskeiðis hjá þeim. í gegnum Grandaradíó panta skipstjórar auk þess all- an þann kost, sem þeir þurfa á að halda í næstu ferð. Tal- stöðvarmaðurinn í Granda- radíó þarf jafnvel að bera frá þeim persónuleg skilaboð til fjölskyldu þeirra eða þá út- gerðarmanna. Urðum við vitni að einu slóku samtali þá stuttu stund, er við dvöldum þar. Það er því auðsætt, að sá sem tekur að sér að svara talstöðinni í Grandaradíó þarf að vera þéttur í lund og æðrulaus. Þó er ekki loku — Ætli þeir séu ekki um þrjátíu. Og af þeim er Helgan hans Á r m a n n s Friðrikssonar langhæst. Eg held hins vegar að þið náið Ármanni ekki núna, en það væri vel tilfallið, ef þið hefðuð tal af Andrési Finn- bogasyni skipstjóra á Svan- inum, og allir Reykvíkingar þekkja. Hann væri vís til að lesa yfir ykkur, piltar mínir! Við tökum hann á orðinu og örkum niður á bryggjuna fyrir neðan Grandaradíó, þar sem Svanur lá. Stiginn um borð í hann var bundinn á dularfulilann hátt í reiðann og greinilega mannskæður en við létum ekkert aftra okkur í því, að ná tali af Andrési Finnbogasyni, þeim góðkunna aflamanni og skipstjóra. Svo vel vildi tii, að Andrés var staddur um borð er okk- ur bar að, og spígsporaði hann um lestarlúgumar, gler- . hálar af slori og ísingu, eins og ekkert væri sjálfsagðara. Andrés var hinn kumpán- legasti, er hann sá, að blaða- manninum hafði tekizt að skreiðast um borð með mikilli fyrirhöfn. Á leiðinni til Andrésar spyrjum við einn háseta hans um aflafréttir af Svaninum, og hann sagði þá háseta mega una sínum hlut vel. Hann sagði, að Svanurinn kæmi með um 35 tonn af fiski úr hvrjum xóðri og stundum meira, og kvaðst alls ekki kvíða sínum hlut. Og loksins komumst við í kallfæri við Andrés skipstjóra Finnbogason. Hann biður okkur að koma nær, hvort við séum hræddir við hann? Nei svörum við af karl- mennsku mikilli, en er hann ekki hræddur við Þessa voða- legu ísingu á bátnum? — Nei, svarar Andrés, — það er er ekki ísingin drengir mínir, sem ég er hrœddur við, það er fiskileysið. — Ykkur hefur þó gengið vel það sem af er vertið? — Já, okkur hefur vist gengið bærilega. En þann fisk, sem við höfum fengið mest af höfum við þurft að sækja á Breiðafjarðarmið, sem í vondum sjó eru um 16 tíma „stím“ frá Reykjavík. Þau mið, sem Reykjavíkur- bátarnir hafa verið á undan- farin ár eru svo til þurrausin og Silvestermiðin líka. Þetta er alvörumál. Ég hef verið skipstjóri á Svaninum síðan ég tók við honum fyrir 21 ári, og ég þykist aldrei hafa séð svo slæmar horfur. En auð- vitað þykir manni hver ver- tíð alira vertíða verst. En við skulum ekki örvænta! Bezti mánuðurinn er eftir, þá kem- ur hrotan í Vestmannaeyjum og þá skulum við vona, að allar okkar tómu eða hálf- tómu lestir fyllist af vænum, spriklandi, gulum þorski. Stoinuð kvennodeild Styrktnr- félngs Inmnðrn og fntlnðrn Við lestun úr mb Svani. Mánudaginn 21. marz sl. var haldinn stofnfundur Kvenna- deildar Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, í Tjarnarbúð. Mætt- ar voru 60 konur. Avarp flutti frú Matthildur Þórðardóttir og sikýrði frá tilgangi með stofnun kvennadeildar innan þess félags- skapar. Frú Jónína M. Guðmunds dóttir, forstöðukona æfingaslfóðv- arinnar að Sjafnargötu 14, sagði frá starfi æfingastöðvarinnar og væntanlegum verkefnum deildar innar. Fundarstjóri var kosin frú Guðlaug Sveinbjarnardóttir og voru kosnar í stjórn: frú Jónína M. Guðmundsdóttir, for- maður, frú Matthildur Þórðar- dóttir, gjaldkeri, frk. Margrét Þórisdóttir, ritari. Varastjórn: Sigríður Stefánsdóttir, fi|ú Guð- laug Sveinbjarnardóttir og frú Ása Pálsdótir. Auk þess var kos ið í bazar- og kaffinefnd. Fram- halds stofnfundur verður hald- inn í Tjarnarbúð, þriðjudaginn 5. apríl kl. 9 e.h. og er þess vænst að þær konur sem áhuga hafa á málefnum félagsins fjöl- menni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.