Morgunblaðið - 14.04.1966, Page 4
4
MORCUNBLAÐIÐ
\
Fimmtudagur 14. apríl 1966
B I LALEIC AN
FERÐ
SÍMI 34406
SENDUM
LITLA
bílaleigan
Ingólfsstræti 11.
Volkswagen 1200 og 1300.
Sími 14970
stH,3-ll-B0
vfmm
Volkswagen 1965 og ’66.
BIFREIÐALEIGAK
VEGFERD
Grettisgötu 10.
Sími 14113.
Nauðsyn — ekki
munaður
í gær var minnzt á vega-
málin hér í dálkunum — og í
rauninni væri þörf á að drepa
á þau daglega. Slæmir vegir
valda ekki aðeins óþægindum
og leiðindum, heldur stórtjóni
— ekki aðeins á farartækjun-
um sjálfum, heldur einnig á
mönnum. Hemlar bila, stýrisút-
búnaður bilar, hnullungar þeyt-
ast undan bílum ú hraðri ferð
og valda skaða á nálægu fólki
og farartækjum. Þetta væri
hægt að rekja endalaust. Góðir
vegir eru ekki munaður, „lúx-
us“, heldur nauðsynlegir til
þess að greiða fyrir samgöng-
um, auka öryggi í umferð og
spara viðhald, útgjöld bifreiða-
eigenda, þjóðarinnar í heild.
Stórt vandamál
Vandamál umferðarörygg-
isins er hinsvegar ekkert einka
mál okkar, eins og allir vita.
Þetta er vandamál alls staðar
þar sem mikið er um bíla, ekki
sízt í Bandaríkjunum. Þing-
nefnd í Washington yfirheyrði
fulltrúa fjögurra stærstu bíla-
framleiðendanna þar í landi —
og varð niðurstaðan sú, að
bandarískir bílar framleiddir
árið 1966 væru öruggustu bílar,
sem hingað til hefðu verið fram
leiddir — og langtum öruggari
en bílar annarra þjóða. Hafa
verksmiðjurnar bandarísku,
sem framleiða samtals fjörutíu
þúsund bíla á dag, lagt síaukna
áherzlu á að gera endurbætur
til aukins öryggis. Niðurstöður
nýlegra ránnsókna sýna, að ein-
stakir hlutir inni í bílnum
valda oftast tjóni á mönnum,
þegar slys verða í umferðinni
— Þ.e.a.s.: Aki bíll á brúar-
stólpa slasast ökumaðurinn e.t.v.
vegna þess að hann rekur höf-
uð í einhvern takka á mæla-
borðinu, eða vegna þess að
stýrishjólið rekst í kviðinn á
honum.
^ Hætturnar
Þessar rannsóknir leiddu í
ljós, að eftirfarandi hlutir inni
í bílnum ollu flestum áverkum
— og er talið i réttri röð, sá
„hættuiegasti" fyrst: Mælaborð,
stýrishjól, framrúða, einstakir
hlutir á hurðum, bakið á fram-
sætinu, þakið, gluggapóstar
(sitt hvoru megin við framrúð-
una), spegill (fyrir framan öku
mann), lokið á hólfi í mæla-
borði, hemlahandfang, gírstöng
— og síðan kemur annað smá-
vægilegra.
öryggisbelti eru talin mjög
mikilvæg — og þau hafa þegar
bjargað mörgum mannslífum,
en forðað enn fleiri frá því að
skrámast eða slasast.
Verzlun í Fríhöfninni
Og hér er stutt svar við
bréfi, sem birtist hér í dálkun-
um í gær:
„Kæri Velvakandi.
Gerðu svo.vel að koma eftir-
farandi orðsendingu til þess,
sem undirritar bréf sitt í dag
með þeim ljómandi ágætu orð-
um: „Tilvonandi farþegi Loft-
leiða“:
Loftleiðir vilja tryggja yður
þægilega ferð frá Reykjavík til
Keflavíkur og nægilegan tíma
til þess að verzla í fríhöfninni
áður en þér hefjið ferð yðar
til útlanda, en hins vegar vill
félagið ekki láta yður eiga >-
þægilega langa viðdvöl í flug-
afgreiðslunni í Keflavík, eftir
að þér hafið gert þar þau kaup,
sem þér teljið hyggileg. Þess
vegna biður félagið yður að
gera svo vel að koma með far-
angur yðar til flugafgreiðslunn-
ar á Reykjavíkurflugvelli 90
mínútum áður en flugvélin fer
frá Keflavík, og er það talinn
hæfilegur fyrirvari til trygg-
ingar því, að þér getið lokið
öllum erindum yðar, og verðið
ekki að bíða brottfarar lengur
en þægilegt er.
Þar sem þér hafið afráðið að
njóta þeirra kostakjara, sem
þeim eru boðin, er mega verzla
í fríhofninni, þá má gera ráð
fyrir, að þér komið réttstundis
til flugafgreiðslunnar í Reykja
vík. Vera má, að einhverjir
væntanlegra samferðamanna
yðar, ætli heldur að kaupa
þann tollfrjálsa varning, sem
boðinn er í flugvélum Loftleiða,
og vilji af þeim sökum eiga
sem allra stytzta viðdvöl í
Keflavík, og komi þess vegna
nokkrum mínútum síðar til
farskráningar í Reykjavík en
ráðgert er. Þess vegna er hugs-
anlegt að brottförinni seinki
nokkuð, en afleiðing þess get-
ur orðið sú, að tíminn, sem
þér hafið ætlað til viðskipt-
anna í fríhöfninni verði of stutt
ur, og þér vérðið fyrir sams
konar óhappi og sú vinkona yð
ar, sem þurfti að fara rakleitt
út í flugvélina eftir komuna til
Keflavikur, og þá er mjög
eðlilegt að þér spyrjið: Hvern-
ig á ég að tryggja mér nægi-
legan tíma til þess að verzla í
fríhöfninni áður en flugvélin
fer frá Keflavík?
Svarið við spurningunni er
mjög einfalt:
Venjulega fer áhöfn flugvél-
arinnar rúmum hálftíma frá
Reykjavík, áður en farþega-
bifreiðin leggur af stað þaðan,
en það er gert til tryggingar
því, að öllu sé lokið, sem gera
þarf, farþegum til þæginda og
öryggis, áður en flugferðin er
'hafin. í áhafnabifreiðunum er
venjulega mjög rúmt, og þeim
farþegum, sem vilja eiga sam-
fylgd með flugliðinu til Kefla-
víkur er það velkomið, en með
því móti geta þeir varið hálfri
klukkustund til þess að verzla
í fríhöfninni áður en hinir
væntanlegu samferðamenn
þeirra koma suður þangað með
farþegabifreiðinni.
Sem sagt: Ef þér viljið fá
hvort tveggja í senn, skemmti
lega samfylgd til Keflavíkur
og nægan tíma til þess að verzla
í fríhöfninni áður en þér hefjið
ferð yðar til útlanda með Loft-
leiðum, þá gerið svo vel að
biðja afgreiðslumenn í Reykja
vík um að fá að fara suður-
eftir í áhafnabílnum. Þeir munu
áreiðanlega leyfa yður það, og
þar með tryggið þér yður
prýðilega samfylgd allt frá
Reykjavíkúrflugvelli til áfanga
staðarins erlendis, og nægan
tíma til þess að njóta þeirra
kostakjara, sem fríhöfnin í
Keflavík býður viðskiptavinum
sínum.
Með beztu kveðjum og full-
vissu um skemmtilega ferð
með Loftleiðum.
Sigurður Magnússon.“
-Jg Umferðin
Og hér er bréf um hægri/
vinstri, enn eitt bréfið um það
mál:
„Alþingi ber að skjóta þessu
„hægri handar“-máli tíl hæsta-
réttar þjóðarinnar — þjóðar-
atkvæðagreiðslu. Það er fyllsta
réttlætiskrafa, að þjóðin sé á
formlegan hátt, í samræmi við
ákvæði Stjórnarskrár íslands,
að því spurð, hvort hún, þjóð-
in, vill kalla yfir sig hægri
handar umferð á vegum lands-
ins. Er þjóðaratkvæðagreiðsla
hefur farið fram um málið, get-
ur Alþingi tekið sína afstöðu
til málsins, vitanlega verður
vilji meirihlutans virtur, hver
sem hann nú er. Engan heil-
skygnan er hægt að sannfæra
um að svo liggi mikið við, að
hamra þetta mál í gegn, að ekki
megi bíða eftir úrskurði þjóð-
arinnar. Hitt mun sönnu nær,
að hægri handar menn óttast
dóm þjóðarinnar. Enda má að
óreyndu gera ráð fyrir, að mik-
ill meirihluti þjóðarinnar geri
sér ljóst, að breytingin frá
vinstri til hægri sé í fyrsta lagi
óþarfa fálm og eftirherma, í
öðru lagi, og sem mikilvægast
er, krefjist hún meiri eða minni
mannfórna og breytingin muni
kosta stóra fjármuni, sem þjóð-
in þarfnast til lífsnauðsynlegra
umbóta og brýnna fram-
kvæmda.
Samkvæmt því fellir þjóðin
sinn dóm. Það óttast hægri
handar postularnir.
Það er undravert og sorgleg
saga, hvað áróðurinn er skefja-
laus og áhrifamikill. Svo á-
hrifamikill, að margir ágætustu
menn þjóðarinnar, fulltrúar
hennar, hafa forblindazt svo,
að þessi háskalega breyting, „tií
hægri“ hefur siglt hraðbyr gegn
um neðri deild. Hvers konar
töfrabrögðum hefur verið
beitt?
Og svo er málið óhugnanlega
vanhugsað, að ætlast er til, að
hér nægi 1—2 ár til að undir-
búa breytinguna, þegar aðrar
þjóðir telja fjögur ár minnsta
undirbúnings tíma til hins
sama hjá sér. Svíar telja sér
mikla ógæfu, að neyðast til
vegna legu landsins, að skipta
yfir til hægri, og sjá m.a. eftir
því fé, sem í það fer, en þó
mun kostnaðurinn hjá þeim 5
—6 sinnum minni á hvern ein-
stakling þjóðarheildarinnar en
hjá okkur.. En Svíar ætla hvorki
að spara tíma né fé til að draga
úr slysahættunni, svo sem kost
ur er. Erum við í tímahraki?
Verði Efri deild ekki svo
gifturík að stöðva þetta vand-
ræðamál algjört að sinni, já
verður að vænta þess, að því
verði skotið til þjóðardóms ,en
bregðist hvort tveggja, þá verði
þó undirbúningstíminn fram-
lengdur til ársins 1970. Ekki
mun af veita.
„Að forðast slysin“ mega
ekki vera orð án kjarna, til
þess að letra á spjöld og lesa i
útvarp, og sem vel er meint.
Fast verður að fylgja eftir, á
öllum sviðum.
Þar sem umrætt mál, er ekki
í eðli sínu stjórnarfrumvarp,
en borið fram vegna fyrri sam-
þykktar Alþingis, og flokksmál
eins eða neins flokks ekki held-
ur, er lítt skiljanlegt það of-
urkapp, sem lagt er á, að hamra
það í gegn. Spakmælið: „Kapp
er bezt með ofrsjá", er enn i
fullu gildi. Látum þjóðina fella
úrskurð.
Andvari."
■jg Hnúðormar
Loks er hér lítil fyrirspurn: ’
„Velvakandi góður, nú lang-
ar mig til að biðja þig um að
gera mér greiða ef þú getur,
en eins og þú veizt að þeir sér-
fræðingar, sem til eru í land-
inu, hverju nafni sem þeir
nefnast, eru í henni Reykjavík
og því erfitt fyrir okkur, sem
utan hennar búum að ná til
þeirra.
Við höfum átt kartöflugarð f
baklóðinni hjá okkur um ára-
bil, sem hefur verið okkur ó-
metanleg búbót. Nú vildi svo
illa til fyrir einum 4—5 árum
að hinn válegi gestur, hnúð-
ormurinn, tók sér þar bólfestu
og lagði garðinn í auðn.
Nú er það, sem mig langar
að vita, hvort garðurinn sé ó-
nýtur um aldur og ævi eða ein-
hvern vissan tíma.
Ég er viss um, að það yrðu
fleiri en ég, sem munu senda
þér þakkir í huganum ef þú
gætir frætt okkur eitthvað uro
þennan óþverra.
Með beztu kveðju.
Húsmóðir í Keflavfk."
Vonandi gefur einhver sér-
fræðingur okkar sér tima til að
senda Velvakanda línu um
málið og segja húsmóðurinni
allan sannleikann.
Barnaleiktæki
★
íþróttatæki
Vélaverkstæði
Bernharðs Hannessonar
Suðurlandsbraut 12.
Sími 35810.
B O S C H
ÞOKULXJKTIR
BRÆÐURNIR ORMSSON
Lágmúla 9. — Skni 36820.
Skrifstofuaðstoð
Lítið iðnfyrirtæki í Holtunum óskar eftir skrif-
stofuaðstoð hálfan daginn. Nokkur bókhaldskunn-
átta, annars almenn skrifstofustörf. — Tilboð send-
ist afgr. Mbl. fyrir 25. apríl, merkt: „Vandvirkni —>
9048“.
Iðnaðarhúsnæði óskast
100—120 ferm. iðnaðarhúsnæði óskast sem
fyrst. — Ekki í úthverfum borgarinnar.
Fjölprent hf
Sími 19909.