Morgunblaðið - 14.04.1966, Side 8

Morgunblaðið - 14.04.1966, Side 8
6 MORGUNBLADIÐ Fimmtuclagur 14. apríl 1968 Sjónvarpsmáliö á Alþingi í gær I gær kom til umræðu tillaga til þingsályktunar frá stjórnar- andstöðunni um takmörkun sjón varpsendinga frá Keflavíkurflug velli. Flutningsmenn tillögunnar eru Gils Guðmundsson, Karl Kristjánsson, Alfreð Gíslason, Sigurvin Einarsson, Lúðvík Jós- efsson og Eysteinn Jónsson. Hljóðar tillagan á þessa leið: Alþingi ályktar að fela ríkisstjórn inni að hlutast til um, að sú breyting verði gerð á tækniút- búnaði sjónvarpsins á Keflavík- urflugvelli, að sjónvarpssending ar þaðan verði framvegis tak- markaðar við herstöðina eina. Skal breyting þessi koma til framkvæmda, um leið og íslenzkt sjónvarp tekur til starfa. Gils Guðmundsson (K) fylgdi tiliögunni úr hlaði og kom m.a. fram í ræðu hans að undirbún- ingur að stofnun íslenzks sjón- varps væri nú langt á veg kom- inn, enda væri gert ráð fyrir því að það tæki til starfa á þessu ári. Hins vegar hefði enn engin ákvörðun verið tekin um það, hvort hinu ameríska herstöðvar- sjónvarpi á Keflavíkurflugvelli yrði aftir sem áður leyft að halda uppi sjónvarpi, er næði til meiri hluta íslenzkra heimila, með sama hætti og nú hefði við- gengist um fullra fj/ögurra ára akeið, síðan leyfi var gefið til stækkunar sjónvarpsstöðvarinnar þar árið 1961. Hefði það heyrzt að ríkisstjórnin hefði þetta mál i athugun og því verið beðið með því að flytja tillögu þessa. M|ú væri hins vegar langt liðið vetrar, og ekkert hefði heyrzt og væri því tillagan flutt. Flutningsmenn tillögunnar litu svo á, að sjálfsagt væri að tak- marka Keflavíkursjónvarpið við herstöðina eina, um leið og ís- lenzkt sjónvarp tæki til starfa. Fjöldi þjóðkunnra manna úr öllum stjórnmálaflokkum, sem léti sig skipta þjóðernis,- upp- eldis- og menningarmálum, hefðu látið sömu skoðun í ljós á ótví- ræðan hátt, enda væri af menn- ingar- og þjóðernislegum ástæð- um með öllú óviðunandi, að rek- ið yxði hér á landi óheft her- stöðvarsjónvarp. Kjarni þessa máls væri ekki sá, hvaða efni sjónvarpssllöðm flytti, heldur hvort við ættuim að þola það að leyfa erlendum aðila að hafa aðstöðu til sjón- varpreksturs hérlendis. Ástand þetta væri óviðunandi og niður- lægjandi. Eysteinn Jónsson (F) sagði það ekki viðunandi að leyfa hér út- sendingu sjónvarps sem væri út- búið í hermálaráðuneyti annarr- ar þjóðar og rniðað við það að stytta hermönnum stundir. Ekki ætti að tengja þetta við dvöl varnarliðsins, heldur ætti að slíta þessa þætti sundur. Hér væri um mikið sjálfstæðis- og menning- armál að ræða. Eysteinn sagði að sjónvarpið skapaði vandamál á hverju því heimili sem það væri komið á. Væri þar sérstaklega um að ræða úm þau átök er sköpuðust á heim ilum um hvort kaupa ætti sjón- varp eða ekki, og hvort heldur ætti að hlusta á íslenzka útvarp- ið eða horfa á sjónvarpið. Sú fjölskylda er tæki síðan þá á- kvörðun að horfa á sjónvarpið flyttist um leið úr íslenzku menn ingarumhverfi yfir í bandarískt menningarumhverfi. Ofboðslegt ástand ríki nú í þessum málum og hefði það verið séð fyrir hefði sjónvarpið aldrei náð til landsmanna. Þá væri sjónvarpið til þess fallið að skapa óvild í garð Bandaríkjamanna, en við því mættum við ekki. Ragnar Arnalds (K) sagði að saga sjónvarpsins hér væri svip- að bandarískum auðmanni yrði veitt aðstaða hér til að byggja og reka skóla, útvarp og gefa út dagblöð. Heimskulegt og hlægilegt væri að tala um frelsi sjónvarpseigenda, heldur ætti að ræða um hvort erlendir aðilar ættu að hafa hér frelsi til rekst- urs slíkrar stöðvar. >á væru full yrðingar um það að tæknifram- farir komandi ára mundu gefa Islendingum tækifæri til þess að velja á milli sUöðva, út í bláinn enda yrði það á engan hátt sam- bærilegt. Hættan stafaði af því að áhrifin kæmu úr einni átt. >eir er horfðu hér á sjónvarp- ið yrðu um leið þátttakendur í bandarísku þjóðlifL Guðlaugur Gíslason sagði að það vekti athygli að flutnings- menn tillögunnar minntust ekki orði á að leggja niður Keflavík- uijútvarpið, þótt þeir viður- kenndu þá stað- reynd að ekki væri eðlismunur á þessum tveim fjölmiðlimar- tækjum. Tveir flutningsmenn þessarar tillögu hefðu verið ráð- herrar síðan útvarpið kom til og hefðu þeir þá enga tilraun gert til þess að loka fyrir sendingar þess. f tillögu þessari fælist van- traust á þjóðina með því van- trauststali á menningu hennar og þjóðerniskennd sem fram kæmi. Þjóðarniskennd og þjóðarmetn- aður íslendinga hefði aldrei staðið fastari fótum en nú, enda væru íslendingar orðnir jafn- okar annarra þjóða og viður- kenndir aðilar á aliþjóðavett- vangi. Hér væri i raun og veru að ræða um það hvort Alþingi færi inn á þá braut að hafa afskipti af því hvað fólk horfði á í sjón- varpi, eða hlustaði á í útvarpi. Varðandi það er fram kom í ræðu Eysteins Jónssonar um Framhald á bls. 31. Tæplegu þörf þess oð sfoino hér til embættis „lögsögumonns“ Einar Ágústsson (F) mælti f gær tfyrir þingályfktunartillögu um stofnun embætti „lögsögu- manns“. Meðflutningsmaður hans að tillögunni er Kristján Thorla- eius. Gat Einar þess, að mál þetta hefði tvívegis áður verið flutt á Alþingi, en í hvorugt skiptið hlotið afgreiðslu. Er til- lagan á þessa leið: Allþingi álykt- ar að fela rí'kis- istjóminni að skipa fimm manna netfnd til þess að undirbúa löggjötf um stofn un embættis lög- sögumanns- með sérstakri hlið- sjón atf löggjötf á Norðurlönd- um embætti „Ombundsmands". Hverjum þingflokki skal gef- in kostur á að tilnetfna einn msinn í nefndina. Hinn fimmti skal tilnefndur af hæstarétti, og verði hann formaður. Framsögumaður sagði tilgang með stofnun embættis lögsögu- manns ætti að vera sá að auka möguleika þes6, að lög og regl- ur þjóðtfélagsins gengju réttlót- lega ytfir alla. Væri þá jötfnum höndum átt við þau hlunnindi. sem þjóðtfélagið veitti þegnum sínum, og þær kvaðir, sem á þá væru lagðar, sem og meöferð refsimála og afplánun refsingar þeirra er brotlegir gerðust. >á gat Einar þess einnig að nokkr- ir hefðu látið í ljós, að heitið lögsögumaður væri ekki heppi- legt í þessu sambandi, og væri sjáltfsagt að taka fram, að flutn- ingsmenn teldu heiti þessa startfs manns ekkert aðalatriði, heldur verkefni þau, sem honum væru ætluð og væru reiðubúnir til samkomulags um annað starfs- heiti etf menn teldu það hent- ugra. Bjarni Benediktsdóttir forsæt- isráðherra, sagði að íhuga þyríti mál þetta betur áður en til fram- kvæmda kæmi. Embættiskostn- aður hériendis væri meiri en víða annars staðar og fara þyrtfti variega 1 þær sakir að gera embættakerfið flóknara og kostnaðarmeira- Ráðherra gat þess að nú væri á dagskrá í Sameinuðu-Al- þingi þingsálykt- unartillaga, sem Björn Fr. Björns son og fleiri flyttu. Fjallaði sú tillaga um að aflhugun færi fram á breyttri héraðsdómaskipun. Sagði ráð- herra að mál það er sú til'laga fjallaði um væri aðkallandi og þýðingarmeira en það er tillaga þessi fjallaði um. Óheppilegt væri það ástand er hér ríkti, það væri að dómsvald og fram- kvæmdavald væri í sömu hönd- um, þótt það hefði getað gengið hérlendis sökum þjóðtfélagsó- stæðna. Fm réttarsjónarmiði væri sjáltfsagt að gera breytingu á þessu. Ýmsar ástæður hetfðu komið til að því hetfði ekki verið hreytft m.a. þær að menn hefðu verið hikandi að færa dóms- ^ , valdið úr strjalbýlinu og ott- ast hetfði verið stjórnmálalegar deilur um það. Það gerði því málið auðveldara, að það væru stjórnarandstæðingar er flyttu það. Gera þyrfti að því gang- skör að kanna hvort ekki væri hægt að ná samstöðu um rann- sókn þess máis. Varðandi embætti „lögsögu- manns“ væri það að segja að minni þörf væri á því hérlendis heldur en í fjölmennari lönd- um. Væri enginn vatfi á því að þörtf gæti verið fyrir slíkt em- bætti í þeim. Embætti þetta hetfði ekki vakið neina sérstaka athygli í Svíþjóð, en hinsvegar hefðu Danir verið mjög heppnir með val embættismanns er þeir stofnuðu þetta embætti- >á lægi reynsla Norðmanna á þessu máli ekki fyrir. >á sagði forsætisráðherra að lokum, að gera yrði sér grein fyrir því að þetta embætti safn- aði alltaf mönnum í kringum sig og athuga þyrfti gaumgæfilega hvers konar mól hetfðu komið til þessarra embætta hjá hinum Norðurlöndunum. Smægð ís- lenzka þjóðfélagsins gerði minni þörtf á milliliðum milli ríkis- valdsins og þegnanna. Einar Ágústsson talaði aftur og einnig tók Ólafur Jóhannes- son (F) til máls. Að lokum tók forsætisráðherra Bjarni Bene- diktsson aftur til máls og gerði að umtalsefni atriði _er fram höifðu komið í ræðu Ólatfs Jó- hannessonar. Málinu var síðan vísað til 2. umræðu og alláherj- arnefndar. Einkarltari Vel þekkt verzlunarfyrirtæki i Reykjavik vill ráða vélritunarstúlku nú þegar. Kunnátta í ensku og enskri hraðritun nauðsynleg. — Umsóknir sendist afgr. Mbl. fyrir 16. þ.m., merktar: „Bréfritari — 9036“. / FERMINGA R VEIZLUNA SMURT BRAUÐ BRAUÐTERTUR SNITTUR FJÖLBREYTT ALEGG MUNIÐ AÐ PANTA TIMANLEGA VIÐ Óf> I N STORG S í M I 2 0 4 9 0 ----------------------—----- j Stúlka Rösk stúlka óskast í bókaverzlun. Góð enskukunn- átta nauðsynleg. — Umsóknir er tilgreini aldur, j menntun og fyrri störf sendist í pósthólf 124. Lóan tilkynnir Nýkomnir ódýrir tvískiptir barnagallar, drengja- blússur (skinnlíki), orlonpeysur, pólóbolir með stutt um og löngum ermum. Drengja- og telpnaúlpur. Ennfremur telpnakjól- ar, stærðir: 1—14 ára, í miklu úrvali. Barnafataverzlunin LÓAN, Laugavegi 20B. Gengið inn frá Klapparstíg, móti Hamborg). 6 herb. íbúðarhæð við Hvassaleiti Til sölu er óvenju glæsileg 6 herb. íbúð (143 ferm.) á 3. hæð í nýlegu sambýlishúsi á bezta stað við Hvassaleiti. 1 herb. fylgir í kjallara, íbúðin er öll teppalögð og sérstaklega hljóðeinangruð. Mikið af innbyggðum skápum, harðviðarhurðir og karmar. Tvöfalt gler, stórar vestur svalir. Bílskúrsréttur. Óvenju fallegt útsýni. Sklþa- og fasteignasalan £ssy„ Mokkrir verkamenn eldri og yngri óskast til afgreiðslustarfa í vörugeymslum Grænmetisverzlunar land- búnaðarins. — Upplýsingar í síma 13-200 á skrifstofutíma. PIERPONT-UR model 1966 Vinsælasta fermingarúrið í ár. 100 mismunandi gerðir Vatns og höggvarin. Garðar Ólafsson úrsm. Lækjartorgi — Sími 10081.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.