Morgunblaðið - 14.04.1966, Side 18
18
MORGUNBLADID
Fimmtudagur 14. april 196<
Auglýsing
frá Bifreiðastjórafélaginu Frama varðandi
gjaldmæla
Vegna óstöðugs verðlags undanfarin ár
hafa orðið nokkuð örar aksturtaxtabreyt-
ingar hjá leigubifreiðum, sem hefir haft
það í för með sér að ógerlegt hefir reynzt
að breyta gjaldmælum í ieigubifreiðum
hverju sinni, þannig að þeir sýndu raun-
verulegt akstursgjald á hverjum tíma. Til
að ganga úr skugga um, hvort fáanlegir
væru gjaldmælar í leigubifreiðir, sem fljót-
virkara væri að breyta, en þeim mælum,
sem nú eru notaðir, þá leyfum vér oss hér
með að leita til allra þeirra, sem möguleika
hafa á útvegun gjaldmæla í leigubifreiðir,
að láta félagi voru í té vitneskju þar um,
og jafnframt um verð og breytingahæfni
þeirra. — Þeir, sem kynnu að óska eftir
nánari upplýsingum varðandi mál þetta,
þá verða þær veittar í skrifstofu félagsins.
Umbeðnum upplýsingum óskast skilað í
skrifstofu Bifreiðastjórafélagsins Frama,
Freyjugötu 26, fyrir 15. maí nk.
Reykjavík, 13. apríl 1966.
Bifreiðastjórafélagið Frami.
Viljum ráða stúlku
hálfan daginn til afgreiðslustarfa í vefn-
aðarvöruverzlun. — Upplýsingar gefur:
Starfsmannahald S. f. S.
íbúðaskipti
Ég vil selja góða 5 herb. íbúð í blokk í Hlíðunum.
í staðinn vil ég kaupa einbýlishús eða stóra hæð,
a.m.k. 140 ferm. — Þeir, sem kynnu að vilja athuga
möguleika á skiptum, leggi upplýsingar inn til
afgr. Mbl. fyrir 21. þ. m., merkt: „íbúðaskipti —
8808“.
Skortur á lögregluþjónum
í FRAMHAL.DI af fregn Morg-
unblaðsins 31. f.m. um skort á
lögregluþjónum, vil ég hér með
skýra að mínu áliti og væntan-
lega flestra starfandi lögreglu-
manna orsakir þess, að svo erfið-
lega gengur að ráða hæía menn
til lögregluþjónsstarfa. Vil ég
þó í upphafi taka fram, að vönt-
un lögreglumanna má í reynd
teljast meiri, en fram kemur í
umræddri frétt, þar eð sífellt
fleiri lögreglumenn komast á
þann aldur, að þeir teljast varla
með fullri sanngirni fullfærir að
inna þá þjónustu af hendi, sem
ætlast er til af lögreglumanni í
erilsömu og oft erfiðu starfi og
komnir yfir þann aldur, sem al-
mennir lögreglumenn eru við
störf í nógrannalöndum okk-
ar. Geta má þess einnig, að
Undanfarið hefur verið farið
út á þá braut, að ráða til
lögreglustarfa unga menn allt
að 18 ára aldri og er ekki
'hægt að ætiazt til þess, að
þeir ungu menn séu orðnir full
harðnaðir og standi jafnfætis
eldri starfsbræðrum, sérstaklega
ef til átaka kemur.
Samkvæmt kjaradómum í vet-
ur er nýráðnum lögreglumönn-
um í Reykjavík greidd laun sam-
kvæmt 13. launaflokki í launa-
kerfi opinberra starfsmanna, en
byrjunarlaun þar eru kr .9.170,
00 auk verðlagsuppbótar. Lög-
regiumenn, sem lokið hafa við-
bótarprófi, fá greidd laun samkv.
14. iaunaflokki, en hámarkslaun
í þeim flokki, þ.e. eftir 15 ára
starf, eru kr. 11.601,00 auk verð-
lagsuppbótar. Lögreglumenn á
vöktum fá 33% vaktaálag á unn-
ar vinnustundir utan venjulegs
dagvinnutíma.
Um áramót í vetur var sam-
þykkt reglugerð um veitingu lög-
reglustarfs, lögregluskóia o. fl.
Fyrsta grein nefndrar reglugerð-
ar hljóðar þannig:
Um veitingu starfs í iögregiuliði.
1. gr.
Þeir, sem sækja um lögreglu-
mannsstöðu, skulu fullnægja eft-
irfarandi almennum skilyrðum:
1. Umsækjandi skal vera ís-
lenzkur ríkisborgari, 21—30 ára,
fjár síns ráðandi og má ekki
standa fjárhagslega höllum fæti.
Hann skal hafa gott mannorð og
vera kunnur að reglusemi og
háttvísi.
2. Umsækjandi skal vera vel
vaxinn, a.m.k. 176 cm hár, með
góða líkamsburði, heilbrigður
andiega og líkamlega og laus við
likamslýti. Hann skal hafa góða
sjón á báðum augum, góða
heyrn og rétta iitaskynjun.
Ákjósanlegt er, að umsækjandi
hafi stundað einhverjar iþróttir
og sé a.m.k. allvel syndur.
Ganga skal umsækjandi undir
læknisskoðun hjá iækni þeim, er
lögreglustjóri ákveður.
3. Umsækjandi skal hafa lok-
ið a.m.k. gagnfræðaprófi með
góðri meðaleinkunn eða öðru
sambærilegu prófi. Sérstök
áherzla skal lögð á góða eink-
unn í íslenzku. Æskilegt er, að
hann hafi nokkurt vald á ein-
hverju Norðurlandamálanna,
ensku eða þýzku. Umsækjandi
skal hafa almenn réttindi til að
stjórna bifreið.
Víkja má frá einstökum skil-
yrðum hér að framan, ef um
lausráðningu í lögreglumanns-
starf er að ræða, eða sérstakar
ástæður mæli með þvi að mati
lögreglustjóra.
Eftir að lögreglumaður er svo
ráðinn til starfa, er honum gert
að stunda all yfirgripsmikið nám
í skóla og við starf næstu tvö
ár.
Fullyrða má, að slík alhliða
inntökuskilyrði til starfa, sem
hér að framan segir, eru ekki
til hjá öðrum starfshópum hér
á landi, enda ekki óeðlílegt, að
þjóðin gera allmiklar kröfur til
hæfni lögreglumanna, þegar litið
á hin persónulegu afskipti þeirra
við einstaklinga þess og svo hins,
að lögreglan er hin eina undir-
staða undir framkvæmdavaldi
þjóðarinnar. Einstök atriði í inn-
tökuskilyrðum hinnar nýju
reglugerðar eru nokkru þyngri,
en áður hefur verið í fram-
SENDLA A SKELLIIMÖÐRIJ EÐA
HJÓLI VAIMTAR - HATT KAUP
Samtök í Revkjavík vantar nokkra duglega sendla
strax, hálfan eða allan daginn í IVz mánuð. —
Hátt kaup í boði. — Frekari upplýsingar í dag og á
morgun í síma 17-807 og 17-100.
ATVINNA
Traustur og ábyggilegur maður óskast til lagervinnu, fram-
leiðslustarfa og aksturs. — Hreinleg vinna og þægileg miðaldra
manni. — Umsóknir sendist afgr. Mbl. fyrir 16. þ. m., merktar:
„Traustur — 8806“.
kvæmd og vil ég þar sérstaklega
til nefna skilyrðin um mennt-
un.
Lögreglumenn flestir eru nú I
hópi þeirra launamanna, sem
skila lengstum vinnutíma eða 44
klst. á viku hverri. Vinnuvöku-
mönnum eru auk þess ekki
tryggðir í fyrrnefndum dómum
neinir kaffitimar í vinnutíma
þeirra, og má því telja, að þeir
eigi að skila þeim mun lengri
vinnutíma en aðrir launamenn.
Engan þarf að undra þótt
erfiðlega gangi að fylla nú
skörðin í lögregluliði borgarinn-
ar á meðan lögreglumenn búa
við þau kjör, sem hér að fram-
an eru rakin miðað við þær
kröfur, sem til þeirra eru gerð-
ar, og hefur nokkuð borið á
þvi í vetur, að reyndir lögreglu-
menn hafa horfið til annarra
starfa.
Ég tel, að eina mögulega leiðin
til þess að halda við hæfu lög-
regluliði í borginni, sé að bæta
verulega þau launakjör og starfs
kjör, sem lögreglumenn eiga við
að búa í dag, þótt launagreiðend-
ur eða dómendur kjaradóms hafi
ekki séð ástæðu til þess við síð-
ustu samninga.
Kristján Sigurðsson
form. Lögreglufél. Reykjavíkur,
ALLTAF FJÖLGAR V0LKSWAGEN
Volkswayen 1300 er fyrirliggjandi
Volkswagen 1300 —
/■fik >r pk-;,
í—]<g>l <Ö)1 1-vQ)-
Votkswagen 1500 er fyrirliggjandi
Volkswagen 1500 —
Volkswagen 1600 TL Fastback
© © ©
Gerið samanbtirð á fráganpi, öllum búnaði og gæSum Volkswagen
og aniutrra bíla. írá Vestur-Evrópuu
© © ©
Komið, skoðið og reynsiuakið
Varahlutaþjónusta Volkswagen er landskunn
HÍILDVIIZLUNIN
HEKLA hf
Laugaveqi
170172