Morgunblaðið - 27.04.1966, Blaðsíða 30
30
MÖkCÚNBLÁÐIÐ
Miðvikiídagur 27. apríl 1966
Geymsluhusnæði
óskast
má vera óuppliitað.
-S. ^fuÚííí sscn
>lllB>>«IU»tfHI H
SM 1114*
M»MléW INf
Volks-Wagen
bifreiðir til
2 sendibifreiðir eru til sölu nú þegar.
Efnagerð Reykjavíkur hf
Laugavegi 16. — Sími 24054.
Atvinna
Stórt fyrirtæki í Reykjavík óskar að ráða
eldri mann til skrifstofustarfa sem allra
fyrst. — Umsóknir, er greini aldur og fyrri
störf, óskast send afgreiðslu Morgunblaðs
ins fyrir 3. maí nk. — Umsóknir merkist:
„Atvinna — 9673“.
Stulkur óskast strax
í vaktavinnu. — Upplýsingar í síma
17758.
IJtboð
Þeir, sem gera vilja tilboð í stækkun Langholtsskóla,
3- byggingarstig, vitji útboðsgagna í skrifstofu vora,
Vonarstræti 8, gegn 3000 króna skilatryggingu.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar.
Vinna í vörugeymslu
Okkur vantar menn til vinnu í vöru-
geymslu okkar.
Mjólkurfélag Reykjavíkur
Laugavegi 164.
Íbúð tíl leigu
2ja herbergja íbúð með húsgögnum, teppalögð og
með fullkomnum útbúnaði í eldhúsi, ísskápi og
hrærivél leigist frá 1. maí. — Tilboð, merkt;
„Reglusemi — 8656“, sendist Morgunblaðinu.
ísJandsmeistarar Vals í meistaraflokki kvenna ásamt þjálfara sinum.
Handknattleiksmotiðs
Sigri Valsstúlknanna
varö ekki ógnað
VALSSTÚLKURNAR urðu fs-
iandsmeistarar í kvennaflokki,
þær sigruðu F.H. í hreinum úr-
slitaleik á laugardagskvöldið, og
hlutu bikar þann, sem um var
keppt til eignar, en þetta er í
þriðja skipti í röð sem þær hljóta
hann.
ir Góður leikur
Fyrrir hálfleikur var nokkuð
jafn og var staðan í hléi 4:3 fyrir
Val. Síðari hálfleikur var öllu
betur leikinn af báðum liðum,
Valsstúlkurnar komu þó öllu
ákveðnari til leiks að nýju og
eftir skamma stund var staðan
orðin 8:5 og leiktími síðari hálf-
leiks hálfnaður. Valsliðið var frá
upphafi öruggt með sigur af
hóhni og urðu lokatölur leiksins
11:8.
Þetta var að mörgu leyti ágæt-
ur leikur, Valsstúlkurnar léku
oft vel og vörn liðsins var í
sterkara lagi. F.H.-liðið átti
þarna góðan leik miðað við fyrri
leiki þeirra í mótinu.
★
Af Valsstúlkunum skoruðu
þær Sigrún G, Sigrún I. og Sig-
ríður flest markanna en í heild
stóð liðið sig mjög vel.
F.H. liðið átti þarna góðan leik
eins og áður er sagt og beztar
voru þær Valgerður, Guðbjörg
og Jónína. Sylvía var ágæt en
gekk illa að finna glufu í Vals-
vörninni.
Lokastaðan í I. deild kvenna
varð þessi:
1. Valur 5 5 0 0 10 69:34
2. F.H. 5 4 0 1 8 59:40
3. Fram 5 2 1 2 5 38:38
4. Víkingur 5 1 2 2 4 34:47
5. Ármann 5 1 0 4 2 40:50
6. Breiðablik 5 0 1 4 1 39:62
Breiðablik flytzt því niður í
II. deild.
Mól dönsku hnndknnttleiks-
mnnnnnnn n nýjn stigí
M Á L dönsku handknattleiks-
mannanna, sem dæmdir voru ó-
Mutgengir til landsleikja til 1.
febrúar næsta ár, hefur vakið
gífurlegar umræður og athygli í
Danmörku. Segja má að málið
hafi komizt á nýtt stig í gær er
form. handknattleikssambands-
ins, Fredslund Pedersen, viður-
kenndi að orðið hefðu mistök
hjá handknattleikssambandinu
með því að enginn hinna seku
hefðu verið yfirheyrðir áður en
„dómur“ var felldur.
Formaðurinn sagði að stjórn
handknattleikssambandsins væri
reiðubúin til að hlýða á útskýr-
ingar einstakra sekra leikmanna
og hafi verið framið „réttar-
morð“ á einhverjum, myndi
málið þegar í stað tekið upp að
nýju.
Þessi ummæli formannsins
þykja ekki líkleg til að minnka
umræður um þetta umrædda
mál.
Sovétríkin sigruðu Austur-
ríki í landsleik í knattspyrnu
á sunnudag. Leikurinn fór
fram í Vínarborg. Eina mark
leiksins var skorað á 20. mín.
fyrri hálfleiks.
OL 1972 í Miinchen
4UNCHEN í Vestur-Þýzka-
landi varð í gær fyrir valinu
sem aðsetursstaður Olympíu-
leikanna sumarið 1972. Fór
fram atkvæðagreiðsla um
fjórar borgir er sótt höfðu, á
fundi alþjóða OL-nefndarinn-
ar í gærdag.
í fyrstu atkvæðagreiðslu
hlaut Múnchen 21 atkvæði,
Montreal og Madrid 16 atkv.
hvor, em Detroit 9 atkvæði.
1 næstu atkvæðagreiðslu var
yfirgnæfandi meirihluti fund
armanna með Múnchen.
Síðan kom til að ákvarða
hvar vetrarleikirnir 1972
skyldu haldnir. Þurfti aðeins
eina atkvæðagreiðslu til þó
4 borgir hefðu sótt. Sapporo
í Japan hlaut tilskilinn meiri-
hluta þegar í fyrstu atkvæða-
greiðslu.
Avery Brundage form. al-
þjóða OL-nefndarinnar sagði
eftirá, að ástæðan til svo mik-
ils fylgis við Sapporo væri sú
að borgin hefði átt að halda
leikana 1940 en þeir hefðu þá
fallið niður vegna stríðsins.
AUt væri þar til reiðu að
heita mætti. Rorgina byggja
500 þús. íbúar og hún ec á
Hokkaido eyju í N-Japan.