Morgunblaðið - 24.05.1966, Page 32
Helmingi útbreiddaia
en nokkurt annað
íslenzkt blað
Langstærsta og
fjölbreyttasta
blað landsins
Það vannst, er að var keppt
— ittelrífriufi Sjalfstæðismanna í frwgarst|érii
— UmmœBi Ceirs Haligrímssonar borgarstjóra í gœrkvöldi
í FRÉTTAAUKA útvarpsins
í gær ræddi Géir Hallgrims-
son, borgarstjóri, úrrslit borg-
arstjórnarkosninganna í
Reykjavik og sagði:
Úrsiit borgarstjórnarkosn-
inganna í Reykjavík eru
Sjálfstæðismönnum ánægju-
efni að því leyti, að það
vannst sem að var keppt og
megin máli skiptir, áfram-
haldandi meiribluti Sjálfstæð
ismanna í borgarstjórn
Reykjavikur.
l»ví ber þó ekki að Ieyna, að
úrslitin eru Sjálfstæðismönn-
um vonbrigði að því leyti, að
hlutfall fiokksins í greiddum
atkvæðum minnkaði.
Við Sjálfstæðismenn bent-
um raunar á það fyrir kosn-
ingar, að hætta gæti verið á,
Geir Hallgrímsson
að meirihlutinn í borgar-
stjérn glataðist. En bersýni-
lega hafa nógu margir kjós-
endur verið svo bjartsýnir,
að þeir hafa ekki talið það
koma til greina og andstæð-
ingunum tekizt að teija þeim
trú um, að öllu væri óhætt,
þótt þeir að þessu sinni kysu
ekki Sjálfstæðismenn í borg-
arstjórn. En hér hefur ekkert
gerzt, sem ekki er unnt að
bæta að nýju.
Ég vil þakka öllum þeim
fjölda, sem vann að kosninga
undirbúningi Sjálfstæðis-
manna og tók þátt í starfi á
kjördegi fyrir ómetanleg stórf
og öllum stuðningsmönnum
fyrir liðveizlu. Sjálfstæðis-
menn í borgarstjórn munu
halda áfram uppbyggingar-
stefnu sinni og heita á alla
Reykvíkinga til samstarfs um
hag höfuðborgarinnar.
Áreksturinn hefur orðið rétt aftan við brúarhurðina stjórnborðs-
megin á Admiral Burnett, ogskemmdir sjást allt á brúarþak.
Sjá frétt á bls. 2.
SHd veiðist 200
mílur austur i hafi
í G Æ R átti Mbl. samtal við
síldarleilarskipið Hafþór og
spurði frétta af miðunum. —
Var okkur tjáð að lítið væri
að frétta í gær, einkum síðari
fcluta dagsins.
Gluggogægir
handtekinn
í Kópavogi
f FVRRINÓTT tókst að hafa
bendur í hári manns, sem
nefndur hefir verið „glugga-
gægir" meðal fólks í Kópa-
vogi. Hann hefir sýnt sig í þvi
að hræða fólk að næturþeli
alH frá siðustu áramótum.
Hafa ítrekaðar tilraunir ver-
ið gerðar til að ná mannin-
um eftir tilvisan fólks, sem
hann hefir verið að hræða.
Er pilturinn náðist, reynd-
ist hér um að ræða aðeins 14
ára ungling, en hann hefir
játað á sig að hafa verið vald
ur að næturförum þessum.
Þar sem eitthvað er um að
vera hjá flotanum er hann
austur í hafi um 200 mílur frá
landi má segja austur af Glett-
ingi nórðast og móti Gerpi
sunnar, eða frá 66,15 að 65,30
n. br. Skipin færðu sig í gær
heldur norðar og vestar vegna
storms á austurhluta svæðisins.
Veiðifréttir þær sem Hafþór
gaf okkur upp voru, að fyrra
sóiarhring höfðu 19 skip fengið
40080 tunnur en síðasta sólar-
hring 18 skip alls 38900 tunnur.
í gær höfðu hinsvegar aðeins
tvö skip tilkynnt afla sinn,
Óskar Halldórsson með 1800
tunnur og Sólrún 1600.
Síldin er yfirleitt blönduð og
fer að mestu í bræðslu, en eitt-
hvað í frystingu.
Síldartökuskipið „Sildin er nú
fullfermt á miðunum og á leið
til lands.
Neskaupstað 23. maí. í nótt
komu hingað tveir bátar, Barði
með 2400 tunnur og Siglfirðing-
ur með 2500 tunnur. Bjartur er
væntanlegur í kvöld með um
2200 tunnur. Um mánaðamót.in
er talið að bræðsla hefjist í eldri
Framhaid á bls. 31.
Islenzkur sjómaður
ferst í höfn í Irlandi
UM fyrri helgi varð það slys úti
í Cork á írlandi að skipverji af
flutningaskipinu ísborgu fórst.
Ekki er vitað með hverjum hætti
slysið varð. Fyrra sunnudag fór
skipverjinn, Guðjón Karlpson, til
heimilis að Karíavogi 58 hér í
borg, frá borði, en kom siðan
ekki aftur til skips. Fannst lík
hans á þriðjudaginn var í höfn-
inni í Cork.
Gúðjón Karlsson var rúmlega
sektugur að aldri, vél látinn sjó-
maður hér í borg. Hann átti upp-
komin börn.
Skógarvarðarhúsii á Vögl
um brann til kaldra kola
Akureyri, 23. maí.
AÐFARARNÓTT sunnudags, 22.
maí, brann til kaldra kola ibúð-
arhús skógarvarðarins á Vöglum
í Fnjóskadal. í búsinu, sem var
timburhús, ein bæð á steyptum
kjallara, bjó Isleifur Sumarliða-
son skógarvörður ásamt konu
sinni og 6 börnum.
Tvö barnanna voru fjarver-
andi, 15 ára dóttir þeirra hjóna
varð fyrst eldsins vör. Klukkan
5 um nóttina vaknaði hún við að
herbergið, er hún svaf i, ver
orðið fullt af reyk. Komst hún
með naumindum inn í herbergi
foreldra sinna og vakti þau upp.
Gat konan með hjálp dóttur
sinnar, komið börnunum á nátt-
fötunum einum út um glugga.
Einnig gat hún bjargað nokkru
af rúmfötum og fatnaði úx skáp
í herbergjnu.
ísleifur ætlaði að komast í
síma til að gera aðvart á næstu
bæi, en þá var herbergi það, er
síminn var í, orðið svo fullt
af reyk að ófært var þangað
inn. Vakti hann þá vinnumann
sinn, sem er danskur, og sendi
hann að Skógum eftir hjálp. Fór
hann á náttfötum einum í bil
Ísleiís og bjargaðist ekki annað
af fatnaði hans. ísleifur komst
við jllan leik inn á skrifstofu
sina og gat bjargað þaðan nokkru
aí skjölum og öðrum verðmæt-
um. Engu öðru var bjargað.
Skjótt var brugðið við af
naéstu bæjum, en engri hjálp
var við komið og brann húsið til
Framhald á bls. 3
Staða SJálfstæðisflokkéns
í heild mjög $tei<k
Ummœli Bjarna Benediktssonar, formanm
Sjálfstœðistlokksins um kosningaúrslitin
Mbl. sneri sér til Bjarna
Benediktssonar forsætisráð-
herra fomanns Sjálfstæðis-
flokksins og leitaði álits bans
á úrslitum borgar- og sveit-
arstjórnarkosninganna. Komst
bann þá að orði á þessa leið:
Mestu máli skiptir, að meiri
hiuti Sjálfstæðisflokksins i
borgarstjórn hélzt. Bjartsýn-
in um sigur hér var of mik-
ill, þess vegna voru moin
andvaralausir og ánetjuðust
áróðri andstæðinganna. Því er
ekki að neita, að miðað við
máiefnaaðstöðu urðu úrslit
in okkur vonbrigði og er það
þó út af fyrir sig engim aýj-
ung, að flokkurinn fái tæpan
helming atkvæða hér við bæj
arstjórnarkosningar. 1 stjórn
máium er ekki ætíð meðbyr
og þrátt fyrir nokkur áföll,
svo sem menn verða ætíð að
vera viðbúnir, þá er staða
Sjálfstæðisflokksins í beild
mjög sterk. Fljótleg athugun
á úrslitum víðsvegar um land
sýnir, að staðbundnar ástæð-
ur hafa viða ráðið úrslitum.
En ijóst er, að hrundið var
árásinni, sem stjórnarandstæð
ingar reyndu að snúa þess-
um sveitarstjórnarkosningum
upp L Bæði meðhaldsmenn
og andstæðingar munu enn
sanna, að Sjálfstæðisflokkur-
inn er enn sem fyrr lang-
sterkasta stjórnmálaaflið í
landinu."
Bjarni Benediktsson
Hrundið var árás stjórnar
andstæðinga