Morgunblaðið - 05.06.1966, Blaðsíða 5
Sunnuctagur 5. júní 1966
MORCUNBLAÐIÐ
5
i
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
SKEMMDARVERK voru
unninn á uppeldiskerum í
Laxalóni í Mosfellssveit sl.
sunnudagskvöld, og þúsundir
laxaseiða drepin, eins og
skýrt hefur verið frá áður
hér í blaðinu. Eigendur þess-
ara seiða, sem drepin voru, er
fyrirtækið Látravík h.f., en á
Nokkur hinna dauðu seiða í einni þrónnL
„Munum halda ótrauðir
áfram ræktuninni"
segir Jón Sveinssm? einn af forstöðumönnum
Látravíkur hf. sem átti seiðin er drepin voru
bak við það standa um 130
manns, allt áhugamenn um
stangaveiðar og laxa- og sil-
ungarækt, og Skúli Pálsson,
sem býr að Laxalóni. Mun
tjónið af skemmdarverkunum
skipta nokkrum hundruðu
þúsunda króna.
Til þess að fá nánari fregnir
af þessum skemmdarverkum
sneri Mbl. sér til Jóns Sveins
sonar, sem er einn af forstöðu
mönnum Látravíkur h.f. og
rabbaði við hann stutta stund
um þessa uppeldisstöð. Hann
kvað Látravík h.f. hafa verið
stofnað á sl. hausti, og væri
fyrirmyndin að fyrirtækinu
fengin frá Bandaríkjunum.
Fyrirtækið hefði stíflað Lár-
ósinn,skamt frá Grafamesi og
fengið þar ferksvatnsuppi-
stöðu, sem væri að flatarmáli
195—60 hektarar að stærð.
Jón sagði ennfremur, að
fyrst um sinn væri aðeins
ætlunin að sleppa niðurgöngu
seiðum þeim, sem ræktuð
hefðu verið að Laxalóni, í lón
ið og láta þau ganga þar til
sjávar, og myndi þeim verða
sleppt í dag, en þau verða
flutt vestur með þyrlu. En síð
an væri í ráði, þega'r fram liðu
stundir, að hafa þarna eldis-
stöðvar og jafnframt yrði
leyfð stangaveiði í lóninu.
Þetta væri nýjung hér á landi
að fylgzt væri svo nákvæm-
lega með uppeldi laxa- og sil-
ungaseiða, en slíkt hefði gefið
mjög góða raun erlendis.
sem unnin voru á uppeldis-
stöðinni sagði Jón, að þar
hefðu farið forgörðum um 28
þúsund niðurgönguseiði, sem
voru um 1 % árs gömul, og frá
8—17 sm að stærð. Væri sölu
verð þessara seiða um 400
þúsund krónur, en hvað tím-
ann, sem glataðist af þessu,
snerti, væri tjónið óbætanlegt.
Jón sagði ennfremur, að í
vor hefði verið samtals milli
4—500 þúsund laxa og silunga
seiði í stöðinni, og þar af um
100 þúsund af þessari stærð.
Væri nú eftir um 60 þúsund
seiði af þessari stærð, því að
það hefði verið lán í óláni að
einni viku áður en skemmd-
arverkin voru unnin, hefði
verið flutt vestur 12.200 seiði.
— En þrátt yrir þetta tjón
sem við í Látravík h.f. og
Skúli Pálsson höfum orðið
fyrir, höfum við ekki í hyggju
að leggja árar í bát, heldur
halda áfram ótrauðir, sagði
Jón. Við ætlum að reyna að fá
meira af hrognum í haust og
vinna upp tjónið og tafirnar.
Þetta er ennþá á byrjunar-
stigi hjá okkur, en við erum
vongóðir um árangurinn.
Varðandi skemmdarverkin
Loftmynd frá Lárósi I Grundarfirði, þar sem seiðunum sem
eftir eru verður sleppt. f dag verða t.d. flutt þangað 3—4
þúsund seiði með þyrlu.
Til sölu m. a.
Verzlunarhúsnæði við Hverfisgötu.
Einbýlishús í Kópavogi.
Allar stærðir af íbúðum í smíðum.
Höfum kaupanda að 4ra —5 herb. góðri íbúð.
Mikil útborgun.
FASTEIGNASALAN SKÓLAVÖRÐUSTÍG 3«
Símar 23987 og 20625.
Bæjarstjórastaða
Bæjarstjórn Vestmannaeyja auglýsir hér
með lausa til umsóknar stöðu bæjarstjóra
í Vestmannaeyjum. Umsóknir ásamt uppL
um menntun og fyrri störf, svo og kaup-
kröfur sendist bæjarráði fyrir 20. þ.m.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja.
Síldarstúlkur
Viljum ráða nokkrar góðar síldarstúlkur á söltunar
stöðvarnar Borgir á Seyðisfirði og Raufarhöfn.
Stúlkurnar eiga kost á að verða fluttar milli stað-
anna, ef þær óska.
Kauptrygging og ferðakostnaður greiddur.
Hafið samband við okkur strax í síma 2-38-97
(kl. 5—8).
Borgir hf.
Jón Þ. Árnason, sími 3-27-99.
S I N U S - talkerfi heimsþekkt fyrir gæði.
Árs ábyrgð. Orugg þjónusta.
Margra ára reynsla- hérlendis.
Leitið tæknilegra upplýsinga hjá sérfræðingum okkar