Morgunblaðið - 29.06.1966, Blaðsíða 2
*
M0RGUN8LAÐID
Miðvikudagur 29. júní 1966
Síðastliðinn laugardag 25. þ.m. kom rússneska tankskipið SAMARKAND til Seyðisfjarðar með
11000 tonn af gasolíu til Oliuve rrlunar íslands h.f. í hinn nýja 15004 rúmmetra olíugeymi, sem
Olíuverzlunin I.efir haft i byggingu þar. — í forgrunni er sildarsöltunarstöð Valtýs Þorsteinss.
Skattskráin iögð
fram hér á morgun
Aðalskattskrá Reykjavíkur
árið 1966 liggur frammi í Iðnað-
armannahúsinu við Vonarstræti
og í Skattstofu Reykjavikur frá
30. þjn., til 13. júli n.k., að báðum
dögum meðtöldum, alla virka
daga, nema laugardaga, frá kl.
9:00—16:00.
í skránni eru eftirtalin gjöld:
1. Tekjuskattur
2. Eignarskattur
3. Námsbókagjald
4. Kirkjugjald
5. Kirkjugarðsgjald
6. Almannatryggingargjald
7. Slysatryggingargjald at-
vinnurekenda
— 8. Lífeyristryggingargjald
atvinnurekenda
9. Gjald til atvinnuleysistrygg
ingarsjóðs
10. Tekjuútsvar
11. Eignarútsvar
12. Aðstöðugjald
13. Iðnlánasjóðsgjald
14. Launaskattur
15. Sjúkrasamlagsgjald.
Jafnhliða aðalskattskrá liggja
frammi á Skattstofunni yfir sama
tíma þessar skrár:
Skrá um skatta útlendinga,
sem heimilisfastir eru í Reykja-
vík. Aðalskrá um söluskatt í
Reykjavík, fyrir árið 1965.
Skrá um landsútsvör fyrir ár-
ið 1966.
Innifaliö í tekjuskatti og eign-
^ arskatti er 1% álag til Bygging-
atsjóðs ríkisins. Eignarskattur
er miðaður við gildandi fast-
eignamat sexfaldað, og eignar-
útsvar miðað við matið þrefald-
að.
Þeir, sem vilja kæra yfir gjöld
um samkvæmt ofangreindri aðal-
skattskrá útlendinga, verða að
hafa komið skriflegum kærum í
vörzlu skattstofunnar eða í bréfa
kassa hennar í síðasta lagi kl.
24:00 hinn 13. júlí 1966.
(Frá skattstjórninni í Rvík). i
TJ THANT TIL MOSKVU
New York, 28. júní (NTB)
Skýrt var frá því i dag í
aðalstöðvum Sþ og i Moskvu
að U Thant framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóð-
anna, kæmi i opinbera
heimsókn til Moskvu dagana
25.—28. júlí n.k. Verður þetta
fyrsti fundur U Thants með
sovézkum leiðtogum frá því
er Krúsjeff var leystur frá
embætti.
Framkvæmdanefnd
byggingaráætlunar
— býður út fyrstu verkin i sumar
FRAMKVÆMDANEFND bygg-
ingaráætlunar vinnur af því að
teikna og skipuleggja íbúðir
fyrir meðlimi verkalýðsfélag-
anna. Vinna við það 6 verkfræð-
ingar og arkitektar á teiknistofu
nefndarinnar í íþróttahúsinu i
Laugadal. Er sem kunnugt er
viðfangsefnið að byrja á að
byggja tæpar 300 íbúðir í 6
blokkhúsum 1 Breiðholtinu, og
síðar nokkur einbýlishús og
koma við sem mestri hagræð-
ingu.
Mbl. leitaði frétta af þessu
verki hjá framkvæmdastjóran-
um, Gunnari Torfasyni, verk-
fræðingi. Hann sagði að ætlunin
væri að reyna að bjóða út fyrstu
frainkvæmdir í sumar, en það er
jarðvinna og undirstöðurnar
undir blokkirnar sex í Breið-
holti. Var í vor haft forval á
útboðum, þ.e. auglýst eftir fyrir-
’ júmí/%: ki « I '*/
vwTf:
loop ^. . <T/ 1, & /
t}fu§ý’€>
1 ; ■
í GÆR var norðanattin hæga veður var komið víðast á N-
frá í fyrradag horfin óg farið og Austurlandi, en sólarlaust
að anda af suðaustri á suð- frá Suðvesturlandi til Vest-
vestanverðu landinu. Bjart fjarða. — Þó þurrt.
tækjum, sem mundu vilja bjóða
í verkið. Kom talsvert af svör-
um, sem valið var úr og verður
verkið boðið út meðal þeirra að-
ila einna. Þetta eru allt inn-
lendir verktakar. Má búast við
að það verk verði unnið í haust.
Framkvæmdanefndin átti að
reyna að kortra við sem mestri
hagræðingu í byggingu og sagði
Gunnar að unnið væri að því,
eftir því sem hægt væri. Eru
íbúöirnar í blokkunum sex 2ja,
3ja og 4ra herbergja íbúðir en
flestar þó 3ja herbergja.
Framkvæmdanefndin fékk út-
hlutað nokkrum lóðum undir
einbýlishús. Kemur ekki að
byggingum þeim fyrr en vorið
1967 og er ætlunin að flytja
megnið af þeim inn tilbúin.
Færeysk skip landa
síld á Hjalteyri
TVÖ færeysk cíldveiðiskip hafa
landað á Hjalteyri, Grímur
Kamban landaði 20. júní 213
tonnum og Boðanes 26. júní 285
tonnum. Rýmkað var í vetur
með lagabreytingu um leyfi er-
lendra síldveiðiskipa til lönd-
unar hér. Getur ráðuneytið nú
veitt leyfi til löndunar. Hafa
Eyjafjarðarhafnirnar og Ólafs-
fjörður fengið leyfi til að taka
við síld í bræðslu og söltun af
10 erlendum skipum og voru
þetta þau fyrstu, sem lönduðu
þar.
Mbl. átti tal við Véstein Guð-
mundsson, verksmiðjustjóra á
Hjalteyri. Sagði hann að fær-
eysku skipin virtust hafa áhuga
á að nota þetta leyfi a.m.k. að
einhverju leyti. Þau binda sig
þó ekki til að leggja allan afla
sinn á land hér, sigla stundum
heim með hann. Það fer eftir því
hvar veiðin er og hve löng sigl-
ingin er til hafnar.
Hjalteyrarverksmiðjan hefur
tekið á móti 900 tonnum af síld
og búin að bræða þau. Síldar-
flutningaskipið Askita, er þó
ekki komið. Verður tekið á móti
því í Noregi í dag, en síðan kem
ur bað í flutningana.
Ársþing skurd-
lækna í Reykjavík
ALÞJÓÐLEG samtök nokkurra
þekktra skurðlækna Internatio-
nal Surgical Group halda um
þessar mundir ársþing sitt í
Reykjavík. Forseti samtakanna
er nú próf. Snorri Hallgrímsson,
en hann er eini íslendingurinn
í samtökunum. Meðlimir eru allt
kunnir skurðlæknar víðs vegar
um heim.
19 erlendir læknar sækja árs-
þingið að þessu sinni. Á þinginu
verða flutt 20 erindi um skurð-
lækningar. Meðal fyrirlesara eru
9 íslenzkir læknar. Þinginu lýk-
ur á fimmtudag.
Urslit kosninga í 4
hreppum í Skagafirði
Bæ, 28. júní. —
ÚRSLIT í sveitarstjórnarkosn-
ingunum urðu sem hér segir í 4
hreppum:
I Holtshreppi voru 78 á kjör-
skrá Kusu 31 Kosning var óhlut
bundin Þessir hlutu koningu:
Sveinn Þorsteinsson, Berglandi,
Ríkiharður Jónsson, Brúnastöð-
um, Benedikt Stefánsson, Stein-
grímur Þorsteinsson Stórholti
og Pétur Guðmundsson Hraun-
um. . Sýslunefndarmaður er
Sveinn Þorsteinsson.
1 Haganeshreppi var óhlut-
bundin kosning. Kusu 55%.
Kosnir voru: Svavar Jónsson,
Sólgörðum, Haraldur Hermanns
son Yzta Mói, Þórarinn Guð-
varðarson, Sigmundur Jónsson
og Eiríkur Ásmundsson, Stóru-
Reykjum. Sýslunefndarmaður
er Hermann Jónsson.
í Fellahreppi var einnig óhlut
bundin kosning. Kusu 60,5%.
Kjörnir voru: Pétur Jóhannes-
son, Glæsibæ, Tryggvi Guðlaugs
son, Kjartan Magnússon, Tjörn-
um, Konráð Þorsteinsson, Skál-
á og Stefán Gestsson, Arnastöð
um Sýslunefndarmaður er Pét-
ur Jóhannsson.
Hlutbundin kosning var' I
Hofshreppi, kosið um Framsóka
armenn og Sjálfstæðismenn. A
kjörskrá voru 135 og kusu 112
eða rúm 83% Komust að 3 Fram
sóknarmenn, í stað fjögurra
áður, og 2 Sjálfstæðismenn,
Kosnir voru Kristján Jónsson,
Óslandi, Sigfús ólafsson, Gröf,
Páll Pálmason, Kambi, Halldór
Jónsson, Mannskaðahóli og Hall
dór Jónsson, Þykkvabæ. Sýslu-
nefndarmaður er Kristján Jóns-
son. — Björn.
-<$>
Sl. laugardag átti blaða-
| maður Mbl. leið um Fjarðar-
heiði, á leið til Seyðisfjarðar.
| Vegurinn er nú að verða all-
sæmilega fær hvaða bifreið-
1 um sem er, en enn eru þó
| töluverðar eftirstöð var af
I snjó, eins og sjá má af mynd
inni hér fyrir ofan. — Snjó-
skaflinn mun vera eitthvað á
sjötta metra, þar sem hann
I er hæstur.