Morgunblaðið - 29.06.1966, Síða 3
Miðvikudagur 29 Jún! 1966
MORGUNBLADIÐ
3
Sumarferð Varðar að Skógafossi
HIN ÁRLEGA sumarferð
Landsmálafélagsins Varð-
ar verður farin nk. sunnu-
dag, 3. júlí.
Að þessu sinni er förinni
heitið um hinar breiðu
byggðir Árnessýslu og
Rangárvallasýslu, austur
að Skógafossi, Skóga-
skóla og héraðssafninu í
Skógum, þar sem Þórður
Tómasson, safnvörður, lýs-
ir staðnum.
Svo sem kunnugt er, hafa
skemmtiferðir Varðarfélags-
ins notið mikilla vinsælda á
undanförnum árum. Hafa
ferðir þessar verið mjög eftir-
sóttar og verið fjölmennustu
ferðalög sumarsins.
Varðarförin er orðin hjá
íjölda fólki fastur liður á
hverju sumri. Fólk á hinar
ánægjulegustu endurminning-
ar frá fyrri ferðum félagsins,
svo sem með ferð um sögu-
staði Njálu, vestur Árnessýslu,
vestur í Hítardal, um Stokks-
eyri og Eyrarbakka um Vill-
ingaholt og Skáiholt og um
Borgarfjörð, Gullfoss og Geysi
og ferðin sl. sumar um Þjórs-
árdalinn, en í ferðum þessum
hafa þátttakendur verið frá
600 til 1000 manns.
Það munu því margir hugsa
gott til þessarar ferðar sem
nú verður farin austur að
Skógafossi og um Fljótshlíð-
ina heim.
Lagt verður af stað frá
Reykjavík kl. 8 á sunnudag.
Farið verður austur yfir
Hellisheiði, að Selfossl, en það
an liggur vegurinn austur að
Þjórsátbrú framhjá Hellu um
Rangárvelli yfir Hvolsvöll, en
þar beygir vegurinn suður á
bóginn yfir Þverá, og er þá
komið í Landeyjar. Liggur
svo leiðin yfir sanda að Mark-
arfljótsbrú, hjá Seljalands-
fossi, austur Eyjafjöll um
Hrútafell, og er þá skammt að
Skógafossi, héraðsskólanum og
héraðssafninu í Skógum, en
þar er margt merkilegt að
sjá. Frá Skógum er svo hald-
in sama leið til Reykjavíkur,
þar til yfir Markarfljótsbrú
kemur, en þá er ekið upp
fyrir Dímon og þaðan til
Fljótshlíðar, einhverrar feg-
urstu og blómlegustu sveitar
landsins, að Múlakoti, fram-
hjá Hlíðarendakoti og Hliðar-
enda lijá Sámsstöðum og
Breiðabólsstað um Hvolsvöll,
en síðan er haldið til Reykja-
víkur.
Árni Óla, ritstjóri, verður
leiðsögumaður ' fararinnar,
einnig verður læknir til taks
í förinni, þá verður ferðalagið
kvikmyndað.
Þátttöku í ferðina nú ber að
tilkynna í Sjálfstæðishúsið
uppi, sími 17100, en þar eru
farseðlar seldir til kl. 5 og til
kl. 10 á fimmtudagskvöld, en
fólk ætti ekki að draga það
lengur að tryggja sér miða í
ferðina.
Varðarfélagið mun gera
allt til þess aö ferðin megi
verða hin ánægjulegasta. —
Verði miða er stillt mjög í hóf,
en verð þeirra er 340 krónur
og þar innifalinn hádegisverð-
ur og kvöldverður.
Nokkur hluti bilanna og þátttakenda í Varðarferöinni sumarið 1965
Bryggjuker steypt
á Skagaströnd
ÞESSI mynd af Hallgríms-
kirkju var tekin úr lofti fyrir
skömmu. Hækkar nú turn
hennar óðum og er nú farinn
að sjást víða að úr borgar-
landinu. Húsið aftan við
kirkjuna er nýbygging Góð-
templarareglunnar og efst sést
Landsspítalinn. Neðst til
vinstri er hin nýja álma
Iðnskólans.
ÞÝZKUR EMBÆTTISMAÐ-
UR HJÁ NATO.
París, 28. júní (AP)
Vejfctur-þýzki hershöfðing-
inn !.*ohann Adolf greifi von
Kielmansegg tekur við yfir-
stjórn hersveita Vesturveld-
anna í Mið-Evrópu nú um
mánaðamótin, að því er til-
kynnt var í París í dag. Tek-
ur hann við af franska hers-
höfðingjanum Jean Crepin.
SKAGASTRÖND, 28. júní. —
Ákveðið hefur verið að byggja
hér tvö ker, 12x12 m. á stærð,
en þau eiga að fara til bryggju-
gerðar að Hauganesi við Eyja-
fjörð. Guðmundur Lárusson,
byggingameistari hefur tekið
verkið að sér, og er það hafið.
Skapar þetta nokkra atvinnu á
staðnum og verður unnið við
þetta fram á haust.
Nokkrir menn eru farnir aust-
ur á síld. Og nýlega voru ráðnir
22 menn til að undirbúa sildar-
verksmiðjuna. Vonumst við til að
flutt verði síld hingað, ef eitt-
hvað veiðist, svo verksmiðjan
komist í gang.
Þá er áformað að vinna við
höfnina fyrir 500—800 þúsund
krónur. Mesta vandamálið er þá
að engin vinna er fyrir ungling-
ana hér á Skagaströnd.
Tveir bátar éru byrjaðir drag-
nótaveiðar. Hefur afli heldur
verið rýr, 1—2 tonn á dag.
— Þórður.
Fró HóraroíéL
Beykjavíknr
í TILEFNI af því, að Múrara-
félag Reykjavíkur verður 50 ára
2. íebrúar á næsta ári, hefur
félagið ákveðið að gefa út Múr-
aratal og steinsmiða á íslandi.
Að undanförnu hefur verið unn-
ið af kappi að söfnun heimildar-
gagna og hefur öllum þeim, sem
félaginu er kunnugt um, að nú
stunda þessa iðngrein, hvar sem
er á landinu, verið send eyðu-
blöð til útfyllingar, auk jþess sem
nokkrir menn, víðsvegar á land-
inu, hafa lofað aðstoð sinni við
öflun uppiýsinga um þá, lífs eða
lið.ia, sem einhverntíma hafa
stundað þetta starf. — Að sjálf-
sögðu er félaginu hvergi nærri
kunnugt um alla, sem stundað
hafa þessa iðngrein hérlendis frá
upphafi og óskar því góðfúslega
allra fáalegra persónulegra upp-
lýsinga frá þeim, sem geta látið
þær í té.
Ennfremur skorar félagið á
alla þá, er fengið hafa eyðublöð
til útfyllingar, að senda þau á-
samt mynd, sem allra* fyrst og í
allra síðasta lagi fyrir 15. júlí.
Það skal tekið fram að félagið
ber allan kostnað af útgáfunni,
sem verður á engan hátt tengd
sögu þessa eina félags, heldur
allra þeirra er á yfirstandandi
eða umliðnum tímum hafa unn-
ið að þessum þætti í byggingar-
sögu landsins bæði í bæ og
byggð. Hins vegar leggur félagið
rika áherzlu á, að verkið verði
sem allra nákvæmast, svo iangt
sem það nær.
Allar nánari upplýsingar gefur
Sig. Guðmann Sigurðsson í síma
36890 eða í síma 15256 og skrif-
stofa Múrarafélags Reykjavikur,
Freyjugötu 27. sími 15263.
Afmælisnefndin.
STAKSl I i\AI!
Land hinnar taum-
lausu kröíu
Dagblaðið Tíminn hefur birt
grein eftir séra Arelíus Niels-
son, sem vakið hefur töluerða
athygli. Þar talar hann um Is-
land — land hinnar taumlausu
kröfu Þar segir m.a.:
„Ekkí hefur ísland lengi ver-
ið það alsnægtanna land, sem
æskan hefur kynnzt hina síð-
ustu áratugi. Það hefur verið alla
tíma fagurt og fritt og átt sín
auðævi, en öldum saman var
fólkið snautt og þyrst við gnótt-
ir lífsins linda, en nægjusarat,
sparsamt, ánægt. Við sem eitt-
hvað munum til baka, þótt ekki
sé nema um 30 ár, munum eft-
ir fólki og heimilum, já okkur
sjálfum, sem ekki höfðum neitt
af því, sem nú eru talin sjálf-
sögðustu þægindi bæði í mat og
drykk og öllum aðbúnaði, hús-
næði, húsbúnaði og klæðaburði.
.....Sjálfsagt hugsar unga
kynslóðin og yfirleitt núlifandi
fólk sjaldan eða aldrei um þessa
geysilegu byltingar, sem eru
sjálfsagt meiri en í flestum lönd
um hefur orðið á jafnskömmum
tíma, kannski algjört einsdæmi.
Það ætti að hugsa um þetta og
vera þakklátt, það væri háttvísi,
en það skapaði ofurlítið meiri
grundvöll fyrir framhald þeirra
lífsgæða sem nú eru, ofurlítið
meira af ábyrgðartilfinningu
gagnvart heildinni og hamingju
leitinni.......
Munaðarleysingjum og aumingj
um leið yíirleitt ekki vel, og
ásæður þeirra lítt metnar frá
mannúðarsjónarmiði, trúrækni,
og bænrækni oft víðs fjarri
framkvæmdum í veruleikanum.
En eitt var betra Þetta fá-
tæka fólk var yfirleitt ekki jafn
öfundsjúkt og stjórnmálabarátta
nútimans hefur gert rrpirga nú.“
Krafan — einkeimi
okkar tíma
Síðan segir séra Árelius Níels
son:
„Krafan og þar af leiðandi óá-
nægjan og lifsleiði er því orðin
einkenni okkar tima, þótt við
ættum að syngja lofsöng full
þakklætis og sigurhróss hvern
einasta dag. í stað þess er vart
opnað dagblað eða timarit, að
ckki geti þar að líta nöldur og
ónot, og svo miklar kröfur til
enn meiri lifsþæginda, að ein-
hvern tima hlýtur mælirinn að
verða fullur og gróttakvöm gull
æðisins að mala sjálfa sig í kaf.
Stjórnmálamönnum er kennt
um öngþveitið en það er algjör-
Iega rangt. Fáum löndum hefur
verið betur stjórnað, einkum
hina síðustu áratugi, eins og sjá
má á samanburði á því, sem hér
hefur í fáum orðum verið lýst,
við það sem nú er og allir
þekkja. 1 Dýrtíðin, verðbólgan
svonefnda kemur ekki fyrst og
fremst fyrir óstjóm, gæti frem-
ur verið fyrir undanlátssemi og
festuleysi stjórnenda. Hún kem-
ur fyrst og fremst af krófum
hugsunalitilla e-ða eigingjarna
kvenna og manna, kröfum sem
farið er eftir því miður, stund-
um af háttvísi við kvenfólk
stundum af heimsku og skamm-
sýni“.
Dýrtíðin okkur sjólf-
um að kenna
Og í lok greinar sinnar segir
séra Árelius Nielsson:
„Dýrtiðin er ekki stjórnmála-
mönnum að kenna, nema þá
vegna undanlátssemi þeirra og
misskilinni góðvild. Hún er okk
ur sjálfum að kenna. Meðan við
krefjumst af öðrum eins og
óþekkir og heimtufrekir krakk-
ar, en gleymum öllum aðstæð-
um til uppfyllingar kröfunni,
gleymum að gera fyrst og
fremst kröfu til eigin ábyrgðar
og skynsemi, þá hlýtur allt að
enda i ófarnaði fvrr eða siðar“.