Morgunblaðið - 29.06.1966, Side 21

Morgunblaðið - 29.06.1966, Side 21
MiðvítcuðafOT‘ i9. júní 1966 21 MORGUNBLAÐID — Kennarar Framhald af bls. 17 ræmi við þroskastig og getu nemendanna, og þyrfti að fást ráðin bót á því. Fræðslustjórn leiti uppi og athugi hentugar handbækur og geri á hverjum tíma lágmarkskröfu um tækja- og handibókakost skóla. 5. Gæta þarf þess, að hverj- um starfsmanni skóla sé ekki eetlað meira starf en svo, að hann geti unnið það svo vel sem þörf krefur. 6. Fræðslumálastjóm gangist fyrir námskeiðum og fræðslu um nýjungar í uppeldis -og fræðslu- málum og sé það gert að hluta úr starfi kennara að sækja slík námskeið, enda sé ferða- og dvalarkostnaður aðkomukennara, sem þau sækja, greiddur úr rík- issjóði. Þingið lýsir ánægju sinni yfir nýskipan fræðslumála-stjórn arinnar á skipun námsstjóra í einstökum greinum og þeim nám skeiðum, sem hún hefur staðið fyrir, og væntir framhalds á þeim. 7. Ef nemendur á fræðsluskóla skyldualdri þurfa að skipta um skóla, bendir reynsla nokkurra skóla til þess, að heppilegast sé, að sú skipting verði um 12—13 ára adur þ.e. í byrjun gelgju- skeiðs. Benda má á það, að ná- grannaþjóðir okkar telja sig hafa góða reynslu af því að hafa börn og unglinga í sama skóla allt að gagnfræðaprófi eða leng- ur. Gefur slíkt fyrirkomulag aukna möguleika til að laga námsskrá eftir getu og þörfum nemendanna. Athugað skyldi, hvort rétt sé að skipta nemendum eftir námsgetu, eins og mest hef— ur tíðkazt. 8. Tekin verði upp tvenns kon- ar lokapróf í íslenzku og reikn- ingi til unglingaprófs, A-próf og B-próf. 9. Gagnfræðapróf verði sam- ræmt. Tegundum gagnfræðaprófs verði fjölgað og valgreinar tekn- ar upp eftir því sem við verður komið. Menntunar- og réttindamál: Takmark Landssambands fram haldsskólakennara í menntunar- og réttindamálum er að kenn- arastéttin verði sem bezt mennt- uð, og allir kennarar hafi full réttindi til starfs síns samkvæmt lögum. Takmarki þessu vill L. S.F.K. ná með því að beita sér fyrir eftirfarandi: a) setningu nýrra laga um menntun framhaldsskólakennara, er kveði skýrt á um náms- kröfur og réttindi, í stað hinna ófrjálsu ákvæða, er nú gilda. b) að auðvelda fólki leiðina til B.A.-prófs eða hliðstæðrar menntunar, m.a. með því að gera því kleift að stunda námið með starfi að einhverju leyti. c) að sett verði á stofn nefnd, er meti nám þeirra umsækjenda um kennarastöður, sem ekki hafa nægilegt nám samkvæmt lögum til að öðlast starfsréttindi. Skal nefndin bæði meta nám nýrra kennara og viðbótarnám það, sem þeir afla sér. Nefnd þessi skal skera úr um það, hvort um nægilegt nám til réttinda sé að ræða og hvað á vanti. Að ríkisvaldið stofni til nám- skeiða, sumarskóla eða kennara háskóla, fyrir framhaldsskóla- kennara, einnig þá, sem um er fjallað í c)-lið. Þingið leggur áherzlu á, að komið verði á fót framhaldsdeild við Kennara- skóla íslands, Kennaraháskóla, sem sinni þessum verkefnum. e) að öll sérgreinakennsla sé metin hliðstætt við aðra kennslu til hæstu launa, og lög um menntun sérgreinakennara verði endurskoðuð. f) að breytingar, er verða gerð ar á reglum um nám og réttindi kennara (sbr. a)-lið), verði ekki látnar ná til þeirra kennara, sem eru í föstum stöðum, þegar breytingarnar taka gildi. Globus hl. í nýjusm húsakynnum Innflutningsfyrirtækið Clobus h.f. flutti á laugardag í ný og mjög nýtízkuleg húsakynni að Lágmúla 5, en það hefur s.l. 4 ár verið tii húsa að Vatnsstíg 3, Sá hluti byggingarinnar sem þegar hefur verið reistur er að flatarmáili 1078 fermetrar eða 4488 rúmmetrar. Byggingin er hins vegar mun stærri sam- kvæmt teikningu, en að því er Árni Gestsson forstjóri Globus tjáði fréttamönnum fyrir skömmu, var ákveðið að byggja ekki stærra, þar sem núverandi húsnæði á að geta þjónað starf- seminni um langt árabil. . í nýju byggingunni er sér- stakur sýningarsalur, þar sem ráðgert er að stilla út og sýna ýmis ný landbúnaðartæki, sem á markaðinn koma, en Globus hefur um langt árabil verið einn helzti brautryðjandinn á sviði innflutnings á nýjum landbún- aðarvélum. Auk sýningarsalarins er í byggingunni stórt húsnæði fyrir varahlutalager og vélalag- er, og á annarri hæð byggingar- innar eru skrifstofur fyrirtækis- ins. Lóð sú, sem nýbyggingin er reist á, er mjög stór eða um 42000 fermetrar og verður því þar í framtíðinni mjög gott at- hafnasvæði ,enda sagði Árni, að ekki væri vanþörf á því, vegna þess að landbúnaðartækin, sem Globus h.f. flytur inn eru mikil um sig, og þarfnast mikils svæð- is. Ennfremur er gert ráð fyrir að reisa síðar á lóðinni vélaverk stæði. Byggingin og innréttingar eru teiknaðar í teiknistofu Gunn- ars Hanssonar og Magnúsar Guðmundssonar. Fyrirtækið Glo'bus h.f. verður 20 ára í janúarmánuði næsta ár. Aðalhvatamaður að stofnun fyrir tækisins mun hafa verið Einar Egilsson, stórkaupmaður, en að- aluppistaða fyrirtækisins var Gilleitteumboðið. Nokkrum ár- um síðar flutti Einar búferlum, og tók þá héildverzlunin Hekla við starfsemi fyrirtækisins. Var það rekið í sambandi við starf- semi Heklu þar til 1956, að Árni Gestsson keypti hlutabréf fyrir- tækisins, og hætti jafnframt starfi hjá Heklu, þar sem hann hafði verið um 18 ára skeið. Hefur fyrirtækið aukið mjög starfsemi sína á undanförnum árum, því að auk þess sem að sjá um innflutning og dreifingu á vörum frá Gilette-verksmiðj- unum, hefur það einnig flutt inn mikið af allskyns landbún- aðartækjum, dráttarvélum og skurðgröfum. í dag er fyrirtæk- ið rekið í tveimur deildum, ann- ars vegar er véladeild og hins vegar heildsöludeild. Hefur véla- deildin umboð fyrir mörg heinx* þekkt fyrirtæki, svo sem: Davtd Brown Tractors, sem framleið- ir dráttarvélar, JCB Ltd., sem framleiðir hjóla- og beltaskurð- gröfur, H. Visser í Hollandi, sem framleiðir múgavélar og kast- dreifara, o.fl. Heildsöludeildin hefur einnig umboð fyrir ýma þekkt fyrirtæki, svo sem Gillette rakblöð og rakvélar, Yardley snyrtivörur, Toni hárliðunar- vökva og MacLeans tannkrem o. fl. Árni kvaðst vona, að í þeitn nýju húsakynnum, sem Globus hefur nú flutt í, væri hægt að hagræða störfum fyrirtækisins á mun skipulegri hátt en áður var unnt, auk þess sem allir möguleikar myndu nú vera á því að gefa viðskiptavinum betri þjónustu. — /jb róttir De Gaulle í Stalingrad Heldur heim á fösiudag Volgograd, 28 júní (AP-NTB) CHARLES de Gaulle, Frakk- landsforseti kom í dag til Volgo grad frá Kiev, og er þetta sið- asti áfangi forsetans. á 10 þús- und kílómetra ferð'alagi hans um Sovétríkin. Var Alexei Kosy gin forsætisráðherra Sovétríkj- anna, í fylgd með de Gaulle þennan síðasta áfanga, og halda þeir til Moskvu annað kvöld. Heim tU Frakklands fer svo de Gaulle á föstudag. Á ferðum sínum hefur de Gaulle marg ítrekað nauðsyn á meiri samvinnu milli Sovétríkj- anna og Frakklands, ög hafa um mæli hans fallið í góðan jarð- veg. Pravda, málgagn kommún- istaflokksins, segir i dag að heimsókn franska forsetans hafi borið góðan ávöxt Enginn hafi búizt við — né geri það nú — að fundin yrði • lausn allra vandamála. „Við vitum“, segir blaðið, „að þótt við lítum sum vandamálin svipuðum " augum, höfum við ólíkar skoðanir á öðr um En það, sem mestu máli skiptir er, að fyrir hendi er gagnkvæm ósk um að útskýra skoðanir beggja aðila.“ — „Margir vestrænir stjóm- málaleiðtogar fjölyrða um að bæta sambandið milli Austurs og Vestúrs,“ heldur blaðið éfram, „og viðurkenna að á því sé þörf En því miður láta þeir sér nægja að tala. De Gaulle forseti lætur framkvæmdir fylgja orðum sínum.“ De Gaulle hefur áður heim- sótt Volgograd. Var þaó árið 1944, en þá hét borgin Stalin- grad, og lá í rúst eftir 'stór- orustur sem þar höfðu geisað, og urðu upphafið að endanleg- um ósigri Þjóðverja á austur- vígstöðvunum. En nafni borgar- innar var breytt árið 1961 þeg- ar verið var að reyna að afmá nafn Stalíns af landakortinu. De Gaulle var ákaft hylltur við komuna til borgarinnar að þessu sinni, og lögðu þeir Kosy- gin blómsveiga að minnisvarða um þá, sem féllu í bardögun- um úm Stalingrad. Artnað kvöld hefur de Gaulle móttöku fyrir leiðtoga Sóvétríkj anna í sendiráði Frakka' j Moskvu. Pillur lézt af voðaskoti UNGUR piltur, Magnús Harðar son frá Sólveigarstöðum í Bisk- upstungum, varð fyrir voða- skoti á sunnudagsmorgun. Var hann með öðrum pilti á gangi niður að Hvítá við Laugarás, og gekk á eflir honum. Mun hann hafa fengið skot í höfuðið úr eigin byssú og lézt samstund- Framhald af bls. 26 Og á 37. mín. batt Magnús Torfason frá Keflavík endahnút á sigur landsliðsins með ágætu skoti utan við vítateigshorn. — Laglega gert. Tækifæri. Pressuliðið átti stangarskot (Björn Lárusson) og ýmis önn- ur tækifæri sem ónýttust áður en lokaskotið reið af. Áttu þar ýmsir mistök, ekki sízt Baldvin, en öðrum mistókst einnig á ör- lagastund. Það spaugilega atvik gerðist að Hörður Markan átti svo fast skot í hliðarnet að netið hélt ekki og lá knötturinn í markinu. Var í fyrstu dæmt mark, en því síðan breytt enda augljóst hvað skeð hafði. Liðin. Landsliðið átti all góðan leik og hvergi var veikur hlekkur. En víða má þó betur til takast ef vænta á góðs árangurs. Éyleifur er langt frá sínu bezta og óþekkj anlegur enn frá fyrra ári. Beitt asta vopnið var hraðinn. Var öll framlínan vel með og að baki standa góðir stuðningsmenn þar sem framverðirnir eru með Magnús Torfason sem bezta mann. Leikur hans er mjög skemmtilegur, ævinlega reynt að byggja upp og iðinn er hana sem maur. Anton Bjarnason er hinn trausti miðvörður sem þó skortir snerpuna. Hann hefur háboltana yfirleitt, yfirvegar vel en gótt væri honum að bæta við kostina snöggum viðbragðs- spretti. Bakverðirnir og mark- vörður komu vel frá leiknum. Pressuliðið náði er á leið ágæt- um leik. Framan af var samstill ingin ekki nógu góð en lagaðist er á leið. Kantarnir voru þó „sveltir“ einkum sá vinstri. Var reyndar leikur framlínuTinar sundurlaus og tilviljanakesnndur, en þar bar Björn Lárusson nokk uð af. Framvarðarlínan var sterkasti hluti liðsins, en bezti einstakling ur þess var markvörðurinn unigi frá Akranesi Einar Guðleifsson, sem varði af mikilli prýði, en. hefur stóran galla þar sem út- hlaupin eru, því mörg þeirra eru alröng og gera ekki annað en opna rnarkið fyrir andstæð- ingunum. Þetta kostaði eitt mark í þessum leik, en gat kostað fleiri. Dómari var Hannes Sigurðs- son og dæmdi vel. — A. SL JAMES BOND James Bond BY IAN FLEMIN6 DRAWINS BY JOHN McLUSKY Eftii IAN FLEMING Kerim þurfti ekki að skjóta nema einu sinni. JUMBO Hann gekk rólegur frá byssunni og nætursjónaukanum. — Það gengur á ýmsu, vinur minn, og -K— ■*■ stundum er okkur nauðugur einn kostur að verða mönnum að bana. Teiknari: J. M O R A Jumbó og skipstjórinn eru sofnaðir og hrotur þeirra heyrast langar leiðir. Vesal- ings Spori stendur á verði fyrir utan tjald- ið og fylgist áhyggjufutlur með tunglkom- unni handan klcttanna. Það angar allt af friði . . . e.t.v. er ótti hans ástæðulaus. Það væri gott að leggj- ast nú fyrir undir nóttina. Hann stendur upp og leggur af stað í áttina til tjalds- ins ... . . . en allt í einu ber dálítið hroðalegt við augum: Stein-mammúturinn er horf- inn. Þar sem hann áður var er nú ekkert.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.