Morgunblaðið - 02.07.1966, Side 28

Morgunblaðið - 02.07.1966, Side 28
Helmingi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað Langstærsta og fjölbreyttasta blað landsins Þessi mynd var tekin af hinum eldri yfirmönnum Landhelgisgæzl unnar um borð í Oðni í gær. — Frá vinstri: Guðjón Guðbjartsson, fyrrv. vélstjóri, Jón Kristófersson, Gunnar Gíslason, fyrrv. skip herra, Ottó J. Ólafsson, fyrrv. lof tskeytamaður, Þórarinn Björnsson, skipherra, Hannes Friðsteins- son, fyrrv. skipherra, Kristján Sigurjónsson, fyrrv. yfirvélstjóri, og Eiríkur Kristófersson, fyrrver- ar**\ c-i-:«i,prrí, Bruni að Lauga- landi í Þelamörk Akureyri, 1. júlí. ELDS varð vart á efri hæð íbúð arhússins á Laugalandi á Þela- mörk um miðnætti í fyrrakvöld. Ungur piltur svaf þar í litlu her bergi og vaknaði við reykjar- stybbu. Var þá eldur í timbur- þili og var í þann veginn að læs ast í einangrun í útvegg. Heimamenn báru vatn á eld- inn og höfðu slökkt að mestu, þegar slökkvilið kom frá Akur- eyri og kæfði eldinn að fullu. Tók það skamma stund og skemmdir urðu litlar af eldi, ea nokkrar af reyk og vatni. — Sv. P. Fjalivegir enn varhugaverðir Þyrlur á varðskipum eru framtíðin Vitni óskast í GÆR boðaði Landhelgis- gæzlan til blaðamannafundar um borð í varðskipinu Óðni í tilefni 40 ára afmælis gæzl unnar á vegum íslenzka ríkis ins með eigin skipum. For- saga og útdráttur úr sögu landhelgisgæzlu við ísland er í greinum inni í blaðinu, svo og viðtöl við elstu starfs- menn gæzlunnar. Forstjórinn, Pétur Sigurðsson, sagði frá því á blaðamannafund inum, að um framtíðina væri það helzt að segja, að nærtækasta og stærsta verkefnið væri bygg- ing á nýju, stóru varðskipi, til endurnýjunar á skipastólnum. Jafnframt sagði hann að öll- um undirbúningi væri nú svo langt komið, að í næstu viku væru væntanlegir sérfræðingar hingað frá erlendum skipasmíða- stöðvum, til að gera tilboð í byggingu skipsins. Gert er ráð fyrir að það verði tilbúið til notkunar um áramótin l%'7-’68. Forstjórinn upplýsti að skip þetta myndi verða um 5 metrum lengra en Óðinn og væri það gert svo að það næði meiri gang- hraða, en það verður ca. 1200 tonn að stærð. Gert er ráð fyrir því, að með þessu skipi verði þyrlunotkun stórum aukin, enda eru vonir bundnar við að stærri þyrlur verði fengnar fyrir Land helgisgæzluna á næstu árum, þótt ekki sé enn nein áætlun, eða fjárhagsskinan fengin um þaö má1 Hið nýja skip verður gert með innangengu mastri, svo hægt verði að vinna við viðgerð á ratsjám, loftnetum og öðru, er þurfa þykir við slæmar veður- aðstæður, án þess að út sé farið. Skipinu er ætlað að geta gengið allt að 20 mílum og er lengingin einmitt gerð í því skyni. Fleiri nýjungar eru í skipinu. Forstjóri Landhelgisgæzlunnar lagði á það mikla áherzlu, hve mikils virði væri starfsemi þyrl anna erlendis og hlyti hún að verða svo einnig hér á landi. Aðspurður sagði hann að hið nýja skip myndi kosta sem svar aði verði eins togara á borð við í’ró.mhald á bls. 27 Fjölmenn útför Odds Sveins- sonar I GÆR fór fram frá Akranes- kirkju útför Odds Sveinssonar kaupmanns. Kirkjan var þétt- skipuð. Minningarræðuna flutti sr. Jón M. Guðjónsson, er undir lok ræðu sinnar komst m. a. þannig að orði að Akranes hefði nú séð á bak einum sinna beztu sona. Kirkjukórinn annaðist sálmasöng og einnig sungu í kirkjunni félagar úr Karlakórn- um Svanir. Áður en presturinn kastaði rekunum í kirkjunni, sungu Svana-félagar „Akranes“ lög við Ijóð eftir Odd, óð hans til fæðingarbæjar síns. Rannsóknarlögreglan ítrekar við þá, er urðu vitni að bana- slysinu á Skúlagötu, að þeir komi til viðtals við hana hið allra fyrsta. Einkum biður hún þá, er voru farþegar í strætis- vagninum, svo og aðra vegfarend ur að koma til viðtals að Borg- artúni 7 eða hringja í síma 21100. Mbl. fregnaði í gær, að Halldór Eyjólfsson frá Rauðalæk væri nýkominn úr mælingaferð á veg um Raforkumálaskrifstofunnar austan frá Sóleyjarhöfða á Sprengisandsleið. Blaðið hafði samband við Halldór og spurði hann um færð á hálendinu. Halldór sagði, að vegurinn að haldi væri orðinn þurr og nokk- uð góður fyrir tveggjadrifa bif- reiðar. Hins vegar kvað hann þörf á að vegurinn væri hefl- aður þangað. Hann kvað kláfinn á Tungná vera í því lagi, sem hann gæti verið og á Búðahálsi kvað hann dálitlar bleytur, sem menn yrðu að krækja fyrir, en þær þornuðu nú dag frá degi. Eftir að kæmi inn að Kjalvötn um og að Svartá kvað Haildór sandana orðna þurra og veginn sæmilega góðan allt inn að Sól- Framhald á bls. 27 Hestur særðist af sprengingu !í GÆR varð hestur fyrir, I grjótkasti frá sprengingu í , Fossvogi, er verið var að sprengja þar í'yrir ræsum við J Fossvogsveg. Hesturinn slas- ! aðist það mikið að aflífa varð | hann. | Það var fyrirtækið Ok, sem um framkvæmdir sá við * I sprengingarnar. Félög greiða 26,8% gjald- anna, en greiddu 24% 1950 MORGUNBLAÐID hefur afl- að sér upplýsinga um það, hvernig álögð gjöld til borg- arsjóðs Reykjavíkur skiptist milli félaga og einstaklinga. Og kemur þá í ljós, að félög greiða nú 26,8% gjaldanna, en einstaklingar 73,2%. Gjöld félaganna eru í þrennu lagi, tekjuútsvar, eignaútsvar og aðstöðugjald. Einstaklingar, sem ekki hafa atvinnurekstur með höndum, greiða hinsveg- ar aðeins tekjuútsvar og eigna útsvar, en þess er að gæta að margir einstaklingar stunda atvinnurekstur og greiða gjöld af honum, þannig að gjöld þau, sem atvinnureksturinn greiðir, eru auðvitað mun hærri en gjöld félaganna gefa til kynna. Árið 1960 voru gjöld fé- laga lægri hundraðshluti en nú er, eða 24%, en einstakling ar greiddu þá 76%. Þá voru lögð á félögin tekjuútsvör, eignaútsvör og veltuútsvör en aðstöðugjaldið er nú komið í stað veltuútsvaranna. Heildargjöld félaganna til borgarsjóðs voru núna 202,4 milljónir, en sl. ár T?3,4 millj. og hafa því hækkað um 17%. Er þar um að ræða nokkuð minni hækkun en “heildar- gjöldum einstaklinga. Eins og kunnugt er, er nú fylgt föst- um reglum við álagningu út- svara, og útreiikningurinn byggður á skattvísitölu til leiðréttingar á skattstigum og persónufrádrætti, vegna verð- hækkana. Er sú vísitala nú 112,5 stig. Meiri hækkun út- svara einstaklinga en félaga sýnir því, að tekjur ein- staklinga hafa hækkað meir en fekjur félaga. En í þessu sambandi er þess einnig. að gæta, að útsvar Loftleiða hf er nú mun lægra en sl ár, en þá var það mjög hátt, eins og menn muna. Um skattamálin er rætt í ritstjórnargreinum blaðsins í dag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.