Morgunblaðið - 08.07.1966, Page 17

Morgunblaðið - 08.07.1966, Page 17
Föstudagur 8. júlí 1968 MORGUNBLAÐIÐ 17 Erlend tiði ndi 0 Erlend tíði ndi " gosKl Somethings stCll íntactl\ iet me ^et my Karuds oniU/ Erfiðleikar Wilson ) MEÐAN meirihluti brezka I Verkamannaflokksins í Neðri málstofunni var aðeins örfá at- kvæði, var oft haft við orð, að svo erfitt sem það væri stjórn- inni að hafa ekki öflugra fylgi - að baki sér, hefði það þó þann kost, að henni gengi betur en ella að halda róttækari armi flokksins í skefjum. Þetta hefur sannazt áþreifanlega að undan- förnu. — Með 97 þingsæta meirihluta frá 1. apríd sl. hefur vinstri armurinn gerzt Harold Wiison, forsætisráðherra, æ óþægari. Óánægja er með framkomu hans í Rhodesíumálinu, þar seni 'hann hefur undanfarið staðið í samningaumleitunum við stjórn Ians Smiths — en árangur hefur ekki orðið meiri en svo, að nú er í ráði að fresta frekari viðræðum og efna tii ráðstefnu Samveldisríkjanna. Þá hefur stefna Wilsons í land- varnamálum, einkum austan Cousins Súez-skurðar verið mjög um- deild og einnig afstaða hans til Vietnam-málsins. Ráðast þar að honum annarsvegar þingmenn vinstri arms Verkamannaflokks ins og verulegur hluti Frjáis- lyndra fyrir undirlægjuhátt og eftirlátssemi við Bandaríkja- stjórn — og hinsvegar fhalds- menn, sem saka hann um að bregðast skyldum sínum og svíkja Bandaríkjaforseta, þegar hann þurfti mest á stuðningi bandamanna sinna að halda. Var svo komið um miðja vik- una, að um hundrað þingmenn höfðu skrifað undir kröfu um að stefna stjórnarinnar í Viet- íiam-málinu yrði tekin til um- ræðu nú þegar og hófust þær umræður í gær. Ljóst er þó, að Wilson hefur í fullu é við vinstri arminn, að því er varðar Vietnam-málið. Kom það gleggst fram sl. miðviku- dag í atkvæðagreiðslu innan þingflokks Verkamannaf ijkks- ins, þar sem felld var með 214 atkvæðum gegn 46 tillaga vinstri manna um að snúast gegn stefnu Bandaríkjamanna í Vietnam* Þá hefur vinstri armur Verka mannaflokksins verið afar óá- nægður með afstöðu stjónarinn ar í Farmannavrkfallinu á dög unum og keyrði þó fyrst um þverbak, þegar Wilson lét að því liggja á þingi, að kommún- xstum í forystu Farmannasam- takanna væri um að kenna hve verkfallið dróst á langinn. Þá er enn ótalið þyngsta áfallið, sem stjórnin hefur orð- ið fyrir til þessa, — afsögn Frank Cousins, tæknimálaráð- herra, og fyrrum framkvæmda stjóra hins öfluga Félags flutningaverkamanna. Frank Cousins sagði af sér í mótmælaskyni við frumvarp um launa- og verðlagsmál, sern stjórnin hefur lagt fyrir þing- ið. Frumvarp þetta, sem er tal- ið hornsteinn efnahagsstefnu stjórnar Wilsons, kveður svo á, m.a., að launahækkunum skuli haldið innan þess ramma, sem framleiðsluaukning iðnaðarins leyfir, sem áætlað er um 3.5% á ári. Er verkalýðsfélögunum skylf að skýra ríkisstjórninni frá því fyrirfram, hverjar kaup kröfur þau hafi í hyggju að gera, að viðlögðum sektum, allt að 500 £ sé út af brugðið. Þannig vonast stjórnin til að geta gripið inn í vinnudeilur og sætt málsaðila, áður en til verkfalla komi, eins og í Far- mannadeilunni, sem olli 45 daga verkfalli. Sem kunnugt er kröfðust farmenn allt að 17% launahækkunar en sömdu að lokum um hæk'kun er nemur 4.7% á ári. Sú ér skoðun Wil- sons, að með þessu móti einu verði tryggð samkeppnisaðstaða brezka iðnaðarins á alþjóðleg- um markaði og jafnframt gengi sterlingspundsins, sem staðið hefur afar höllum hæti að und- anförnu. f uppsagnarbréfi sínu, 1200 orða bréfi, sem stílað er „Kæri Harold“, sagði Frank Cousins, að frumvarpið^ sem um ræðir væri í grundvallaratriðum rangt og hefði enga þýðingu. Kvaðst hann frá upphafi hafa reynt að telja forsætisráðherra á að breyta stefnunni í efna- hagsmálum, en árangurslaust. Þær tillögur sem fram komi í frumvarpinu séu á engan hátt til þess fallnar að bæta efna- hagsástandið — takmörkun launa geti ekki talizt bót á ástandi sem orsakist af vangetu til að auka framleiðsluna í þeim greinum iðnaðarins, sem gætu jafnað greiðsluhallann við útlönd. Leggur Cousins áherzlu á óskoraðan rétt verka- lýðsfélaga í lýðræðisþjóðfélagi til þess að gera þær ráðstafan- ir, er þau telji nauðsynlegar, tij að bæta hag sinn. Cousins gefur í skyn í bréfi sínu, að afstaða stjórnarinnar í þessu máli byggist á skuldbind- ingum við erlenda fjármála- aðila, þ.e.a.s. að þeir aðilar, sem gert hafa ráðstafanir til bjargar sterlingspundinu hafi krafizt þess, að Wilson haldi fast við stefnu launatakmark- anna. Er búizt við, að róttækir flokksmenn leggi mikla áherzlu á þetta atriði og geri eins mik- ið úr því og kostur er, að Cousins sé fórnarlamb „fyrir- skipana frá Zúrich“. Er og á það bent, að í þingræðu, sem Callaghan, fjármálaráðherra, hélt fyrir u.þ.b. tveimur vikum til varnar efnahagsstefnu stjórnarinnar, hafði hann lagt á það áherzlu, að Bretar yrðu að sannfæra aðrar þjóðir um, að þeim væri alvara með að vilja styrkja sterlingspundið. Langt er síðan stefna stjórn- ar Wilsons í þessum málum varð ljós. Frank Cousins hefur verið andvígur henni frá upp- hafi og víkur að því í upp- sagnarbréfi sínu, að Wilson hafi talið hann á að vera áfram í stjórninni með vilyrðum um einhverjar breytingar á frum- varpinu í samræmi við kröfur hans. En Wilson hafi ekki stað- ið við það, segir hann, og því sé sér nauðugur einn kostur að láta af embætti. í svarbréfi Wilsons kvaðst hann skilja afstöðu Cousins mjög vel enda þótt hann væri ekki sammála henni. Kvaðst forsætisráðherrann ekki sjá ástæðu til að ræða einstök atriði bréfs Cousins, því það hefðu þeir þegar gert, en sagðl að takmarkanirnar í launa. og verðlagsmálum væru aðeins liður í víðtækri efnahagsstefnu. Kvaðst Wilson alla tíð hafa lagt á það áherzlu, að þessi lið- ur stefnunnar væri að sínu áliti neikvæður — en því mið- ur nauðsynlegur og að hin já- kvæða hlið stefnunnar væri aukning framleiðslunnar og hækkun launa í samræmi við þá aukningu. Takist hinsvegar ekki að takmarka launaíhækk- anir við framleiðslugetu iðn- aðarins verði vandamál efna- hagslífsins aldrei leyst án þess til atvinnuleysis komi . Frank Cousins,' sem er 61 árs, tekur nú aftur við sínu gamla starfi hjá Sambandi flutningaverkamanna, — sem hefur verið haldið opnu fyrir hann meðan hann gegndi em- bætti ráðherra. Við ráðherra- embættinu tekur Antíhony Wedgwood Benn, póstmálaráð- herra, hans sæti tekur aftur á móti Edward Short, sem verið hefur einn að leiðtogum þing- flokks Verkamannaflokksins. 1 stað Shorts kemur ungur maður, 43 ára, Jöhn Ernest Silkin að nafni. Cousins hefur frá upphafi verið einn umdeildasti ráð- herrann í stjórn Wilsons. Tald- ist það vel af sér vikið hjá Wilson að fá hann til samvinnu í ríkisstjórninni, því að Cousins er algerlega fylgjandi róttæk- ari armi flokksins, og hefur komið til orða sem forystu- maður hans — en flestir ráð- herranna eru úr hægri armin- um eða nær miðju. „Daily Tele graph“ bendir á, að afsögn Cousins veki mikla atlhygli og geti orðið afdrifarík. — Því enda þótt hann hafi í flestum deilumálum við stjórnina fylgt augljóslega rangri stefnu, hafi ekki verið atkvæða- mikill ráðherra og hvað svo sem líði afstöðu hans til Banaa ríkjastjórnar, Vietnam-málsins og kjarnorkuvopna — hann hefur barizt fyrir því að flokk- urinn hafni öllum kjarnorku- vopnum — sé hann öllum hnút um kunnugur í þessu máli. Hann hafi starfað í verkalýðs- hreyfingunni mestan hluta æf- innar og geri sér eflaust betur en flestir. aðrir grein fyrir frum varpi stjórnarinnar. Með langa reynslu að baki segi hann nú „nei“ og það muni án efa hafa sin áhrif. Leiðtogafundur Varsjárbanda- lagsins Svo sem títt er um viðræður kommúniskra leiðtoga, hefur hvílt mikil leynd yfir leiðtoga- fundi Varsjárbandalagsins, sem haldinn var í Búkarest í vik- unni. Aðild að bandalag- inu, sem stofnað var 14. mai Ceausescu 1955, eiga, sem kunnugt er, Sovétríkin, Pólland. Tékkósló- vakía, Ungverjaland, Rúmenía, Búlgaría og Albanía, en Al'b- anir hafa ekki tekið þátt í fundahöldum bandalagsins frát því upp úr slitnaði milli Rússa og Kínverja'á fundi í Kreml árið 1961 og Albanir tóku af- stöðu með Kínverjum. Þeim var að sjálfsögðu boðið til fund arins nú eins og áður, en þeir sinntu því engu. Þessa fundar hafði verið beðið með nokkurri eftirvænt- ingu, því að staða Rúmeníu meðal kommúnistaríkjanna hefur orðið æ forvitnilegri að undanförnu. Nokkuð má marka mikilvægi fundarins á því að frá Sovétríkjunum koma þrír valdamestu ráðamennirn- ir, þeir Leonid Brezhnev, aðal- ritari sovézka kommúnista- flokksins, Alexei Kosygin, for- sætisráðherra og Malinovsky markskálkur, landvarnaráð- herra. Þeir hlutu hjartanlegar móttökur á flugvellinum i Búkarest, faðmlög og kossa á kommúníska vísu — en haft er fyrir satt, að gestgjafarnir hafi verið hinir ákveðnustu þegar sezt var að samræðu- borði. Fundirnir í Búkarest hafa verið algerlega lokaðir, en haft er eftir góðum heimildum, að þar hafi komið fram alger- lega andstæðar skoðanir sov- ézkra og rúmenskra leiðtoga á því, hvernig haga skuli skipan Varsjárbandalagsins. Ekki er vitað hver afstaða þeirra er í smáatriðum, en i stórúm drátt- um mun málum þannig háttað, að Sovétstjórnin hefur frá því sl. haust barizt fyrir því, að bandalagið verði öflugra og víðtækara, — verði ekki aðeins hernaðarbandalag í framtíð- inni heldur einskonar stjórn- málabandalag, yfirstjórn þess verði jafnframt pólitísk yfir- stjórn kommúnistarikjanna og málsvari þeirra sameiginlega í ýmsum málum, svo sem þeim er varða Þýzkaland og öryggi Evrópu, Vietnamdeiluna og þá yfirleitt afstöðuna til Banda- ríkjanna. Þessu munu Rúmen- ar algerlega andvígir. Þeir eru sagðir telja þessar tillögur Rússa dulbúnar tilraunir til a£ herða betur greiparnar um AusturEvrópu. Leggja Rúm- enar alla áherzlu á, að aðiid- arríki Varsjárbandalagsins fái meira sjálfstæði innan þess og aukna hlutdeild í yfirstjórn- inni — og hvetja jafnframt til þess, að Varsjárbanda- lagið og Atlantshafsbanda- lagið verði bæði lögð níð- ur smám saman og viðskipti og stjórnmálasamskipti aðild- arrikja þessara tveggja hern- aðarbandalaga aukin. Margir hafav líkt afstöðu Rúmena við afstöðu Frakka innan Atlantshafsbandalagsins og hafa báðir látið sér það vel líka. Nýlega heimsótti franski utanríkisráðherrann, Couve de Murville, Búkarest. Hann út- skýrði þá m.a. ákvörðun de Gaulle, forseta, að draga franska herliðið undan yfir- stjórn NATO og dró upp í helztu atriðum þær hugmynd- ir, sem dé Gaulle hefur um vax andi samskipti rikja Vestur- og Austur-Evrópu. Segir í fregn- um frá Búkarest, að ráðherrar Fakklands og Rúmeníu hafi verið á einu máli um, að þeir gerðu rétt í að fylgja sínum sérstefnum og sýna mesta mögulega sjálfstæði. Nicole Ceausescu, hinn ungi leiðtogi rúmenskra kommún- ista hefur frá því hann komst til valda fylgt greinilegri og sívaxandi þjóðernisstefnu. Rúmenar sáu sér leik á borði, þegar deilurnar milli sovézkra og kínverskra kommúnista urðu háværar, að halda þar al- geru hlutleysi, gera sig líklega til að reyna að miðla málum milli þessara aðila, en nota jafnframt tækifærið til að sýna aukið sjálfstæði. Var þá fyrsta skrefið aukið frjálsræði í efna- hagsmálum. Framhald á bls. 20

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.