Morgunblaðið - 09.08.1966, Síða 11

Morgunblaðið - 09.08.1966, Síða 11
Þriðjudngur 9. Sgfist 196B MORGUNBLAÐIÐ II Já, þeir byrja að skemmta sér ungir Vestmannaeyingar. Þessi litli maður er hér á Þjóðhátíð í fyrsta sinn, horfir hér á fullorðna fólkið skemmta sér og langar eflaust til að vera með. Og hver veit, kanski hefur hann fengið lundabita og söl. í Kaplaejótu eins og gert var við hestana í gamla daga. — (Kaplagjóta er utarlega í Her jólfsdainum meðfram Dal- fjalli. Á þeim tímum þegar engir átu hrossakjöt, voru gamlir klárar eða sjúkir leidd ir til Kaplagjótu, þeir skornir á háls og síðan látnir falla í sjó niður'). — Já. tautaði hann, steypa þeim öllum cfan í Kaplagjótu. Hneykslaður á hátterni unga folksins heyrði hann að byrjað var að dansa polka á gömlu dansa pallinum fyrir aftan hann. Gamall glampi kom í gömul augu. Hann brosti aðoins út í munnvikin eins og sá maður aldrei deyr úr öllum æðum og snerist á hæl til að fá sér snúing við eina jafnöldru sína. Uppi í brekku sat annar eldri maður og lét fara vel um sig. Kann var að gæta dótturdóttur sinnar, fimm ára glókollu, seni átti blöðru og hafði fengið kók fyrr um dag- inn. Sér til dægrastyttingar fékk hann sér drjúgan slurk úr næstum tómri viskí flösku. Hann sagði að það væri unun að passa þæga krakka á svona góðum degi. Og sú litla var alveg á sama máli. 1 — Sko bara, sagði hún og benti á flöskuna. Mér þykir bara gúð kók. I Á sunnudag fóru margir að tínast aftur til Reykjavíkur, þreyttir, óútsofnir og flestir timbraðir. Tjöld voru tekin niður í Herjclfsdal, einkum tjöld aðkomumanna, Herjólfs dalur kvaddur og haldið út á flugvöll. En Vestmannaeying- ar voru ekki á því að hætta fyrr en í fulla hnefana. Þegar fréttamaður Morgunblaðsins hélt heim á leið mátti heyra alla leið út fyrir Há söng og harmonikuleik. Þáð voru „inn lendir’* menn, eilítið angur- værir 1 lok þeirra hátíðar, sem setur merki sitt á andlit Eyja búa eins bg sjómennskan set- ur svip sinn á hendur þeirra: hörkuÞga. — Brandur. Þannig var útbúnaður ungu stúlknanna. Ókunnugur gæti haldið að hér væri um að ræða há- vaxnar mexikanskar stúlkur á gönguferð nálægt Acapulco. Nei, þetta eru íslendingar, auð- vitað fylgjumst við með í tízkunni. 'í Vélar Flugfélags íslands fengu lítið næði um helgina. Hér er ein að leggja á stað til Reykja víkur til að ná þar í fleiri óþolinmóða hátíðargestL — S'ildarsölfun Framhald af bls. 28 báta nema Oddgeirs, sem fékk 70 tonn síldar um 190 mílur frá Raufarhöfn. Var það allt dem- antssíld. Virðist því sem síldin sé að færast nær landinu. Veður var fremur óhagstætt á sildarmiðunum sl. sólarhring, en fer batnandi nú í dag. 4 skip til- kynntu um afla, samtals 245 lest- ir: Raufarhöfn Oddgeir ÞH 40 1. Dalatangi Haflþór RE 90 lestir, Jón Þórðarson BA 25 lestir, Æskan SI 90 lestir. — Akurey Framháld af bls 28 Hafði hinn norski útgerðar- maður meira að segia lcgt í tals- verðan kostnað við togarann, t.d. látið mála hann þegar hann hætti svo skyndilega viö kaupin, án þess að gefa nokkra skýringu á því, að því er Jón Ben. Ás- mundsson, bæjarritari, tjáði Mbl. í gær og fór aftur heim til Nor- egs, íslendingunum til mikillar undrunar. — Vietnam Framhald af bls. 1 Vietnam gegnum Laos eftir Ho Ohi Minh leiðinni og hefði ferðin tekið 3 mánuði. Sameinaða Búddatrúarkirkjan í Saigon skoraði enn á ný í dag á Búddatrúarmenn, að þeir virði að vettugi kosningarnar, sem fara eiga fram í september n.k. Segir í áskoruninni að ekki sé hægt að treysta núverandi stjórn landsins, og lagt er til a'ð skipuð verði bráðabirgðastjórn sem hafi eftirlit með kosningunum. Nixon fyrrum varaforseti Bandaríkjanna sagði í Saigon á sunnudag að lokinni 4 daga heim sókn í landinu, að fjölgá þyrfti um Vi hluta í liði Bandaríkja- manna í S-Vietnam. Sagði Nix- on að það, svo og auknar loft- árásir á N-Vietnam væru eina leiðin til að vinna sigur í styrj- öldinni. Sagði hann að áætlanir Bandaríkjastjórnar um aukningu herliðs í Vietnam væru ekki nægilega miklar, og að banda- rísk aiþýða myndi styðja liðs- aukningu, því að hún myndi stytta stríðið og minnka mann- fall Bandamanna. Nú eru alls um 290 þúsund Bandarjkja- menn í Vietnam. — Morðalda Framhald af bls. 1 Ítalíu, sem föður hennar var ekki of vel. En þó samþykkti hann að dóttirin færi á dansleik með vini sínum á sunnudags- kvöld, gegn því að hún kæmi heim fyrir miðnætti. Klukkan varð tólf, og ekki kom stúlkan heim. Fór þá Ghezzi inn í fata- skáp við útidyrnar, og beið þar unz dóttirin kom heim í fylgd með vini sínum. Og Ghezzi var við öllu búinn, því hann hafði hjá sér bæði skammbyssu og haglabyssu. Þegar unga parið opnaði úti- dyrnar, kom faðirinn út úr fata- skápnum og skaut vininn til bana. Dóttirin sneri við og lagði á flótta, en féll fljótlega fyrir skotum föður síns. Þá kom eigin konan óttaslegin niður í nátt- klæðum til að sjá hvað um væri að vera og skaut Ghezzo hana til bana með haglabyssunni. Svo beindi hann skammbyssunni að sjálfum sér og' drap sig. í STUTTU MÁLI Varsjá, 7. ágúst (NTB) • Dómstóll í Danzig hefur dæmt Benediktinamunk og kaþólskan prest til fjögurra og hálfs annars árs fangelsis- vista fyrir tilraun til að smygla tékknes'kri konu og 13 ára dóttur hennar úr landi. — 41 ferst Framhald af bls. 1 klefanum. Tæki þetta er byggt til að standast mikil högg, en ekki er vitað hvort þetta var ó- skemmt. Hefur það verið sent til Washington til rannsóknar og má búast við úrskurði eftir nokkra daga. Flugvélin var sem áður sagði af gerðinni BAC-111 með tvö þotuhreyfla aftan til á skrokkn- um, byggð af Brezku Flugvéla- verksmiðjunum og rúmaði 63 farþega. Þetta er fyrsta flugvél sinnar tegundar sem ferst á á- ætlunarflugi. — Clay Framhald af bls. 26 rísa á fætur, en varð of seinn. Leiknum var lokið. Allir áhorfendur við hringinn og milljónir í sjónvarpi voru á- ánægðir með leikinn. Yfirburðir Clay voru svo miklir að ekki var um keppni að ræða. Clay fékk 90 þús. pund fyrir leikinn auk sjónvarpsfjár og London um 40 þús. pund. „Þið skulið ekki vera óánægð með London" sagði Clay. „Hann stóð fram í 3. lotu. Liston féll í 1. lotu sællar minningar. Þið fenguð því nokkuð fyrir peninga ykkar“. London var utangátta en sagði. „Ef ég á að mæta Clay aftur, verður hann að hafa 14 punda lóð á hvorum fæti. Ann- ars þýðir engum við hann að eiga. Hann er sá mesti“. Clay flaug á sunnudag til Bandaríkjanna og þar segist hann ætla að hefja æfingar und- ir leikinn við þýzka meistarann Mildenberger (10. sept n.k.) „Hann er hættulegur. Hann er örfhentur. Ég tapaði tveim leikj- um í áhugamannstíð minni fyrir örfhentum mönnum — og það ætla ég ekki að gera oftar.“ — KR - Þróttur Framhald af bls. 26. leifur fékk knöttinn á vinstri vallarhelming Þróttara og sendi til Einars ísfelds, sem gaf fyrir markið. Þar náði Jón Sigurðsson knettinum og skoraði auðveld- lega. KR-ingar áttu mörg hættuleg tækifæri eftir þetta, Gunnar Felixsson komst t.d. hvað eftir annað í dauðafæri, en var nú mis tækari en áður. Á 34. mínútu fékk hann t.d. knöttinn í opnu færi, en skaut í Guttorm. Knött- urinn hrökk aftur út til Einars, sem tókst með einhverjum óskilj anlegum hætti að skjóta í Gutt- orm, sem var algjörlega úr jafn- vægi. Knötturinn barst út tál Þórðar Jónssonar, sem skaut í stöng. Eins og áður segir eru nú lík- urnar á því að Þróttur haidi sæti sínu í deildinni orðnar hverfandi litlar. Þrátt fyrir það býr liðið yfir mörgum ágætum einstaklingum, og getur oft náð upp þokkalegum samleik, en virðist gjörsamlega baráttulaust. Beztu menn í þessum leik • voru framverðirnir Ómar og Halldór, og einnig gerði Ólafur Bryn- jólfsson margt laglegt, og bar af þeim framherjunum. Ekki Virtust RK-ingar hafa mikið fram yfir Þrótt að bera í byrjun leiksins, en þegar þeir höfðu náð sæmilegu forskoti fóru yfirburðir þeirra að koma betur í Ijós, enda var mótstaða and- stæðinganna þá á þrotum. Náðu þeir oft upp skemmtilegum sam leik, sem uppskar ríkan ávöxt, eins og áður segir. Gunnar Felixs son var mjög hreyfanlegur og marksækinh í þessum leik, og var hann ásamt Ellert bezti mað ur vallarins. Útherjarnir báðir Hörður og Einar komust vel frá leiknum, en Eyleifur var á hinn bóginn geysilega mistækur upp við markið. Á vörnina reyndi fremur lítið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.