Morgunblaðið - 12.08.1966, Side 1

Morgunblaðið - 12.08.1966, Side 1
32 síður 53. árgangur 181. tbl. — Föstudagur 12. ágúst 1966 Prentsmiðja Morgunblaðsina Friöarsókn de Gaulle í Vietnam deilunni? Sagður œtla að leita samvinnu við Sihanouk forseta Kambodiu Eldur kom í gær upp í vb. Fram AK 58, er hann var staddur skammt undan Eldey. Ekiki tókst að bjarga bátnum og sökk hann. Sjá frétt á baksiðu. (Ljósm. Finnur Guðmundsson). París, 11. ágúst— (NTB) — HAFT er eftir áreiðanlegum heimildum í París, að de Gaulle forseti Frakklands muni, er hann fer til Kam- bodia síðar í þessum mánuði, reyna að fá Norodom Sian- houk, fursta, forseta lands- ins, til samvinnu um tilraun- ir til að koma á friði í Víet- nam. Er sagt, að forsetinn franski hafi í hyggju að hef ja friðarsókn sína 31. ágúst, á fjöldafundi í Phnom Penh, höfuðborg Kambodiu, þar Stjórnmálasamba nd tekið upp milli Malaysíu og Indónesiu Samkomulag, sem bindur enda ríkjanna undirritað í Djakarta r * a deilur gær Djakarta, 11. á^úst. NTB-AP í DAG var undirritað í Dja- karta samkomulag, sem bind vr opinberlega enda á þriggja ára deilur og nánast óyfir- lýsta styrjöld milli Indónesíu og Malaysíu. Hafa þau átök orðið mörg hundruð manns að bana. Stjórnmálasamhand verður nú tekið upp milli ríkjanna og samkvæmt sam- komulaginu mun íbúum Sarawak og Sahah innan skamms gefinn kostur á að ákveða með almennum lýð- ræðislegum kosningum, hvort heldur þeir vilja teljast til Malaysíu eða Indónesíu. Samkomulaginu hefur verið fagnað víða um heim. Meðal annars lýsti U Thant, fram- Árásin á Truong Thanh: „Hörmuleg mistök ik — segir bandarískur hernaðarráðunautur. — Johnson forseti, krefst skýringar Saigon, 11. ágúst. — (NTB) TALSMAÐUR Bandaríkja- hers í Saigon skýrði svo frá í dag, að Lyndon B. Johnson forseti hefði pfersónulega krafizt skýringar á árás þeirri er gerð var í gærkveldi á þorpið Truong Thanh, með þeim afleiðingum, að 26 ó- hreyttir borgarar létu lífið og 114 særðust, þar af 73 konur og hörn. Bandaríski hernað- arráðunauturinn á Phong Dinh svæðinu, Josiah Wall- ace sagði við hlaðamenn í dag, að árás þessi hefði ver- ið „hörmuleg mistök, sem öll- um hlutaðeigandi þætti mjög fyrir.“ „Við höfum reynt að gera all- ar hugsanlegar varúðarráðstaf- anir til þess að hindra að slíkt komi fyrir, en í styrjöld geta slík ir hörmungaratiburðir alltaf gerzt — þetta er ekki fyrsta stríðið og ekki heldur það síð- asta, þar sem þeir gerast.“ Wallace upplýsti, áð s væðis- stjórinni á Can Tho svæðinu hefði beðið um, að árásin yrði gerð, eftir að honum bárust fregnir um, að heil herdeild Víet Cong skæruliða væri í þorpinu. Hann sagði, að vopnakassi hefði fundizt þar nokkrum dögum áð- ur og 22. júlí sl. hafði könnunn- arflugvél verið skotin þar niður. Drápu skæruliðar flugmennina og rændu öllu lauslegu úr vél þeirra. Flugmaðurinn á könnun- arflugvélinni, sem flaug yfir þorpi'ð á undan sprengjuflugvél- unum staðhæfir, að skotið hafi verið á flugvél hans frá þorpinu. Er hann hafði gefið merki flugu Framhald á b's. 31 kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna yfir ánægju sinni með það og lét jafnframt að því liggja, að Indónesía væri velkomin í sam- tök Sameinuðu þjóðanna á ný. Er búist við að beiðni um aðild landsins að samtökunum, muni lögð fyrir næsta Allsherjarþing, sem hefst 20. sept. n.k. Stjórn Indónesíu hefur þegar lýst því yfir við UNESCO — Menningar cg vísindastofnun Sameinuðu þjóðanna, að hún æski samstarfs við hana á ný. Samkomulagið undirrituðu þeir Adam Malik, utanríkisráðherra Indónesíu og Tum Abdul Razak, varaforsætisráðherra Malaysíu. Kom hann í morgun til Dja- karta í því skyni ásamt fjörutíu manna sendinefnd. Samkomulag ið tekur gildi þegar í stað; Er það talíð mikill ósigur fyrir Sukarno, forseta Indónesiu, sem hóf baráttuna gegn Malaysíu fyrir þrem og hálfu ári og hef- ur síðan haft forystu fyrir henni. Það ákvæði samkomulagsins, að kosningar verði haldnar í Sara- wak og Sabah er, að áliti stjórn- málasérfræðinga, vísbending um að Indónesíustjórn hafi viður- kennt þá skoðun Malaysíu- stjórnar, að íibúarnir hafi þegar látið í ljós vilja um að tilheyra Malaysiu. — Ákvæðið sé hins vegar sett inn til þess að skera úr um þetta endanlega og leggja á þáð áherzlu, að hvorug þjóðin hafi orðið að láta undan hinni. Búizt er við kosningum á land- svæðunum tveimur í marz eða apríl næsta ár. Tun Abdul Razak sagði, er samkomulagið hafði verið undir- ritað, að það væri sigur fyrir bæði ríkin. Kvaðst hann vona, að stjórn Indónésíu tæki upp sam- vinnu v?ð stjórn Malaysíu með Framhald á bls. 31 sem furstinn verður meðal viðstaddra. • Síðdegisblaðið „France Soir“ i París segir í dag, að de Gaulle hafi ætlað að reyna að hitta Ho Chi Minh, forseta N-Vietnam, að máli i Kambodiu, en Peking- stjórnin hafi komið í veg fyrir, að svo gæti orðið. Af hálfij^ frönsku stjórnarinnar er þessi fregn blaðsins sögð ósönn — slík ar viðræður hafi aldrei komið til tals. Hamborgarblaðið „Die Welt“ segir hinsvegar í dag, að de Gaulle hafi aliakkað boð Ho Chi Minhs um viðræður, er hann fékk um það vitn- eskju, af leynilegri skýrslu frá Hanoi, að stjórnin þar muni ekki hvika frá afstöðu sinni í Vietnam-málinu. De Gaulle kemur til Kam- bodia 31. ágúst og verður þar til 3. september. Er talið, að hann muni áður reyna að fá Banda- ríkjastjórn til þess að gera veru- legar tilslakanir svo að unnt sý að koma á friðarviðræðufi. Er haft eftir heimildum innan frönsku stjórnarinnar að forset- inn sé orðinn mjög uggandi um, að Vietnam styrjöldin verði að Framhald á bls. 3*1 Brú hrundi Kanada 8 fórust '> I Ottawa. 11. ágúst AP-NTB: STÓR BRÚ, sem verið var að smíða yfir fljót í nágrenni Ott- awa, hrundi í gærkveldi með þeim afleiðingum, að a.m.k. átta menn biðu bana og um 50 særð- ust. Um 170 manns voru að vinna við brúna, er slysið varð og steyptust þeir flestir með henni í fljótið, um tólf metra fall. Var enn nokkurra saknað, er siðast fréttist. Dæmd í 2ja ára fangelsi fyrir að ræna Tinu Wiegel í D A G var kveðinn upp dómur í undirrétti í máli Connie Birgit Andersen — konunnar, sem rændi stúlkubarninu, Tinu Wieg- el, í desember sl. Var hún dæmd í tveggja ára fang- elsi, en hálfs árs vist henn- ar í gæzluvarðhaldi kemur til frádráttar frá þeim tíma. Hin ákærða var sek fund in um brot á ákvæði hegn- ingarlöggjafarinnar er fjallar um „langvarandi frelsissviptingu" en tekið tillit til þess við dómsupp- kvaðningu, að hún var ekki í sálrænu jafnvægi, er hún rændi barninu. Frú Andersen beygði sig undir þennan dóm réttarins. Réttarhöldin hófust í Kaup- mannahöfn í dag með því að sækjandi rnálsins H. Christian sen skýrði í stórum dráttum frá gangi málsins, allt frá því Tina litla var tekin úr barna- vagni sinum 14. desember sl. og þar til hún fannst á heim- ili Connie Andersen 12. jan- úar. Þá skýrði ákærða frá ýmsum atriðum í lífi sínu frá því hún hætti skólagöngu 14 ára að aldri og tók að stunda ýmis störf. Húr, kvaðst hafa orðið barnshafandi 18 ára að aldri og þá reynt að fyrirfara sér. Eiginmanninum núver- andi hafði hún kynnzt í árslok 1963 og orðið barnshafandi í febrúar 1965. Ekki skýrði hún honum frá því fyrr en í maí. í ágústménuði missti hún fóstrið og var í þrjá eða fjóra daga frá vinnu — en hún vann þá í kaffistofu. Hún Framh. á bls. 2

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.