Morgunblaðið - 12.08.1966, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 12.08.1966, Blaðsíða 28
28 MORCUNBLAÐIÐ 1 Föstudagur 12. ágúst 1966 FÁLKAFLUG EFTIR DAPHNE DU MAURIER rðmbuðu á barminum, hlæjandi og syngjandi. I>arna hafa sjálf- sagt verið einir fimmtíu eða hundrað. Mér fannst ég vera svd lítill og svo einmana. En allt í einu kom bíll, með blæstri og hávaða úr áttinni frá háskólan- um. Stúdentarnir viku til beggja handa, til að hleypa honum áfram. Einn pilturinn missti jafn vægið og datt niður í skálina. Múgurinn rak upp hláturöskur, og þegar sá, sem náð hafði í mig, fór að taka þátt á hávað- anum, losaði hann takið á mér. Ég hleyþti mér í kút og reif mig lausan. Bíllinn hélt hægt áfram. !>að var þessi Alfa- Romeo, með Aldo við stýrið. En hjá honum, veifandi hendi og brosandi til stúdentanna, sem dreifðu sér, er þeir sáu hann, var sjálfur deildarstjórinn í V og_H, Elia prófessor. Ég flýtti mér út úr hópmun og inn í smugu, sem lá frá Ross- ini-götu yfír í Draumagötu. Hér var allt með kyrrð. Enginn var þarna á götunni nema einn ein- mana köttur, sem stökk upp á garðvegg, er hann sá mig. Ég opnaði hliðið gekk stíginn að dyrunum og hringdi. Dyrnar opnuðust eftir nokkra stund — það var stúlkan, sem hafði bor- ið fram matinn kvöldinu áður. — Frú Butali við? spurði ég. ■— Því miður, herra minn, frú in er ekki heima. Hún fór til Rómar snemma í morgun. — Ég glápti á hana eins og bjáni. —T. Til Rómar? Ég hélt ekki, að hún ætlaði þangað fyrr en seinna í vikunni. Það hélt ég heldur ekki. En ég fann, að hún var farin, þegar ég kom, eldsnemma í morgun. Hún skildi eftir miða til- mín, iþar sem sagði að hún hefði orðið að fara fyrirvara- laust. : — Hef.ur prófessornum þá versnað? —r Það hef ég enga hugmynd um. Húrt nefndi það ekkert. . Ég leit framhjá henni og á tómt húsið. Sökum fjarveru frú arinnar skorti það þegar alla hlýju og alla töfra. — Þakka yður fyrir, sagði ég. — _Það eru engin skilaboð. ' Ég gekk svo alla löngu leið- ipa heim til mín en forðaðist Lífstorgið. Á þessari leið voru engir stúdentar á ferli, og þeir sem eg hitti, voru bara venju- legir borgarar sem voru á ferð f 'eigin érindum. Þegar ég kom í fMíkjálsgötu, sá ég, að dyrnar á :rir.' 24 Voru fullar af fólki. Þar yar Gino, Mario og einn eða t’imir aðrir og svo var þarna jPáolo Pasquale og systir hans. Þégar hún sá mig, hljóp hún til og greíp í aðra höndina á mér. Hefuíðu heyrt það nýj- ’ asta? sagði hún. Ég andvarpaði. Kemur enn, hugsaði ég. — Ég hef víst ekki heyrt neitt annað í allan dag, sagði ég, — jafnvel bækurnar í hillunum voru fullar af því. Það hefur verið brotizt inn í kvenstúdentagarðinn og allar stelpurnar eru óléttar. — Nú, það? Hver kærir sig um það. Ég vona, að ungfrú Rizzio eignist tvíbura..... Nei, það er annað. Formaður Lista- ráðsins hefur boðið eins mörg- um V og H-stúdentum og það vilja, að taka þátt í hátíðinni —■ og þetta á að vera sama sem yfirlýsing hans um, að hann kenni ekki okkur um þetta, sem gerðist í nótt. Elia prófessor hef ur tekið boðinu fyrir okkar hönd, og svo á að verða fundur í kvöld, í gamla leikhúsinu við Meratotorgið. Við förum öll héð- an og þú verður að koma með okkur. Hún leit á mig brosandi. Og nú kom bróðir hennar líka. — Æ, komdu, sagði hann. — Eng inn veit, hver þú ert. Þetta er viðburður, sem enginn ætti að missa af. Við erum öll æst í að heyra, hvað Donati prófessor hef ur að segja. Mér fannst ég þegar vita, hvað það mundi verða. 13. kafli. ÞaS átti að opna leikhúsdyrn- ar klukkan níu. Við átum fyrst kvöldverð hjá Silvani, og lögð- um síðan af stað stundarfjórð- ungi fyrir níu. Lífstorgið var þegar alþakið stúdentum, sem komu út öllum áttum inn á torg ið, og héldu nú áfram í einni fylkingu eftir Leikhúsgötu til leikhússins jálfs. Ég missti brátt sjónar af Gino og félögum hans, en Pasquale-systkinin gættu þess vel og verða ekki viðskila við mig, en gengu sitt hvorum megin við mig og mér fannst ég vera eins og leikbrúða, sem borin væri áfram. Þetta leikhús hafði aldrei verið mikið notað í tíð föður míns. Stundum voru haldnir þarna hljómleikar og söngverk uppfærð, svo var kannski upplestur hjá einhverju bókmenntagoði — en að öðru leyti stóð það þarna, sem minn- isvarði yfir húsameistarann, lítt þekktur af ferðamönnum og jafnvel sjálfum borgurunum í Ruffano. En í dag, að því er Pasquale-systkinin tjáðu mér, var allt þetta orðið breytt. Svo var rektornum og Listaráðfor- manninum fyrir að þakka, þá var leikhúsið nú í notkun allt ár ið um kring. Þar voru fyrirlestr ar, leikir, hljómleikar, sýningar og jafnvel dansleikir innan þessara virðulegu veggja. Þegar við komum, beið þétt- | skipaður hópur eftir að komast J inn. Paolo var þar í hópnum, ein beittur á svip, að reyna að oln- boga sig áfram, en við Caterina fylgdum í kjölfar hans. Þetta var góðlyndur hópur, skrafandi og hlæjandi og ýtti okkur á móti, og ég velti því fyrir mér, hvernig þetta vonda skap frá því fyrir skömmu, hefði tekið svona mikilli breytingu, en þá mundi ég, að þarna voru engir andstæðingar — þetta voru allt VogE Nú var lostið upp miklu ópi þegar dyrnar voru opnaðar, og Paolo, sem hélt í handlegginn á mér, dró mig og Caterinu litlu með valdi inn um dyrnar. — Ekki missir sá, sem fyrstur fær, kallaði einhver þarna úti í dyr- unum. — Þeir, sem fyrstir verða inn, nái sér í sæti og haldi í það. Salurinn var sem óðast að fyllast, og skellirnir í sætunum, þegar þeim var smellt niður, bergmáluðu við loftið, en svo hvarf þetta alveg fyrir stúdent- unum, sem voru uppi á leiksvið inu. Þeir voru vopnaðir gítör- um, trumbum og hvers kyns hrossabrestum og sungu dægur- lög dagsins, við miklar undir- tektir áheyrenda, sem skemmtu sér prýðilega. □--------------□ 39 □--------------D — Hvað stendur til? spurði Paolo einn stúdent, sem var að dansa í ganginum hjá okkur. — Ætlar enginn að halda ræðu? — Spurðu ekki mig, svaraði unglingurinn og hélt áfram dansi sínum. — Við erum boðin og meira veit ég ekki. — Hver er að súta það? Við skulum bara njóta þess, eins og bezt gengur, hló Caterina, og svo fór hún að dansa fyrir fram an mig, með óvæntum yndis- þokka. Ég átti að vera þrjátíu ára á næsta afmælisdegi mínum og mér fannst ég ekki vera yngri. Þegar ég var stúdent í Torino hafði ég dansað hvað sem fyrir kom eins og hver annar, en það var fyrir ellefu árum. Farar- stjóri fær enga æfingu í hinum göfugri listum. Ég ruggaði mér fram og aftur til þess að verða ekki alveg að kvikindi innan um þessa samkomu, en ég vissi vel, að hreyfingar mínar voru stirð- legar. Fyrirgangurinn þarna var óskaplegur. Öllum virtist sama um allt. Mér hló hugur er mér datt í hug, að Carla Raspa hefði sjálfsagt líka haft gaman af þessu, hversu mjög sem hún þótt ist fyrirlíta V og H-stúdentana, en ég gat engan séð þarna inni, sem gæti hugsanlega verið úr kennaraliðinu. Þetta voru allt stúdentar og óhæfilega ungir. — Sjáðu, sagði Paolo allt i einu. — Þetta hlýtur að vera Donati sjálfur? Hann sem tekur þarna við trommunum! Ég sneri baki að leiksviðinu og var að reyna að fylgjast með dansi systur hans, en við þessi orð Paolos, sneri ég mér við. Þetta var eins og hann sagði. Aldo hafði sýnilega komið inn á pallinn, án þess að nokkur tæki eftir og hafði nú tekið sæti stúdentsins með trumburnar, og lamdi nú á þær eins og snill- ingur. Gítarleikararnir og þeir, sem voru með hrossabrestina sneru sér nú að honum, og söng urinn og ópin færðust í aukana, svo að ekki heyrðist mannsins mál, og áheyrendurnir, sem sáu, hver þetta var, klöppuðu í hrifn ingu og færðu sig nær pallinum. Ekkert hefði getað verið ólíkara inngöngu hans í hertogahöllina, sem ég hafði horft á á laugardag inn. I kvöld voru engin blys, eng inn lífvörður, ekkert dularfullt Aldo gaf fjandann í stöðu sína og blandaði sér in í stúdentahóp inn. Framkoma hans og tímasetn ing voru hárnákvæm. Ég fór að hugsa um, hvenær og hvernig hann hefði fengið þessa hug- mynd. — Þú skilur, sagði Caterina, — við höfum öll vanmetið hann. Ég hélt, að hann væri hátt upp yfir allt hafinn, eins og hinir prófessorarnir. En horfðu nú bara á hann........ horfðu bara! Hann gæti eins vel verið ein- hver okkar. - Ég vissi, að hann var ekki raunverulega gamall, sagði Paolo. — Og hann er nú heldur ekki orðinn meira en fertugur. En þetta hlýtur að vera af því að við höfum aldrei haft neitt samband við hann og hann hef- ur verið alveg fyrir utan okkar hóp. — En hann er núna í okkar hóp, sagði Caterina, — sama hvað hver segir. Hraðinn í tónlistinni fór vax- andi og allir áheyrendur vögg- uðu sér og dilluðu eftir hljóð- fallinu. En svo þegar hámarks- hraðanum var náð, kom loka- sveiflan. Tónlistin steinþagnaði. Aldo gekk fremst fram á pallinn og einn gítarleikarinn var kom- inn með stól handa honum án þess, að ég vissi hvaðan. — Jæja, þið öll saman! sagði Aldo. — Ég er búinn. Nú skul- um við tala saman. Hann hneig niður í stólinn og þerraði á sér ennið. Hlátur og samúðarkliður heyrðist frá áheyrendunum. Hann brosti og leit upp, en benti síðan þeim, sem stóðu eða sátu á fremstu bekkjunum að koma nær og safnast kring um sig. Ég tók eft ir því, að dregið hafði úr birt- unni í salnum ,og eitthvert óséð ljós varpaði birtu á andlit hans og svo á þá, sem næstir honum stóðu. Aldo notaði engan hljóð- nema. Hann talaði hátt og skýrt, en það gat ekki á neinn hátt kallast upplestur. Það var rétt eins og hann væri að skrafa við þá sem næstir honum stóðu. — Við ættum að gera þetta oftar, sagði hann, og var enn að þerra á sér enni. — En gall- inn er bara sá, að ég hef svo nauman tíma. Það er allt í lagi fyrir ykkur, því að þið getið sleppt ykkur hvenær sem þið viljið og um helgar — þar er ég ekki að tala um það, sem gerð ist í gærkvöldi — það tölum við um seinna — en fyrir aum- ingja með magasár eins og sjálf an mig, sem eyði hálfum degi í að karpa við tuttugu árum eldri prófessora, sem þumbast við og vilja ekki gera Ruffano og háskólann svolítið nýtízku- legri — þá verður aldrei tæki- færi til að leppa sér. Einhver verður að rísa upp í þessum ryk fallna háskóla, og það ætla ég að gera, allt þangað til ég verð rekinn. Nú glumdu við hlátrasköll, en hann leit bara kringum sig og lézt vera hissa. — Nei, mér er fúlasta alvara, sagði hann. — Ef þeir gætu losn að við mig, mundu þeir gera það. Alveg eins og þeir mundu vilja losna við ykkur — öll þessi fimmtán hundruð, eða hvað þið nú eruð — ég hef ekki tölurnar hjá mér, en það mun láta nærri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.