Morgunblaðið - 12.08.1966, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 12.08.1966, Blaðsíða 19
TOstuíagur 19. ágflst Í958 MORCUNBLAÐIÐ 19 Einar Þórðarson afgreiðslum. IViimiirig F. 15. júlí 1880. D. 7. ágúst 198G FYRIR nokkrum árum fórum við Þorsteinn Einarsson tþrótta- fulltrúi, saman suður Kjöl af landsmóti UMFÍ að Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu. Vornóttin var fögur og útsýn- ið dásamlegt, er kom suður yfir og nálgast tóku gangnaslóðir Hreppa- og Biskupstungna- tnanna. „Hér á pabbi margar góðar minningar. Mig langar til að fara með honum um þessar slóðir, áð- ur en hann deyr,“ mælti Þor- steinn. Ekki veit ég, hvort Þorsteinn gaf sér tíma til þessa mitt í sín- um miklu önnum, en oft vitjáði hann föður síns og gladdi hann og^tuddi af sonarlegri rækt, sem og móður sína. Hygg ég, áð þau systkinin öll hafi reynzt foréldr- um sínum ágæta vel. En nú hafa þáttaskil Það er einkennileg tilfinning að geta ekki lengur komið tli pabba og glatt hann með sigrum sínum, hresst hann og notið með hon- um sameiginlegra mininga, þakk að honum, fært honum á hné Ibörn sín og barnabörn, hið unga líf og nýjan heim æsku og íþrótt ar, fegurðar landsins og mann- lífsins í sameiginlegri nautn kyn slóðanna. En Guðs laun bregðast ekki. Faðerni mannlegt á sér þar fyr- irmynd og fullkomnun og bænir og þakkir góðra barna munu enn foera ávexti og stuðla að eilífum samfundum af efnivi'ð hins góða liðinnar tíðar og í ljóma fagurra fyrirheita. —O— Einar er fæddur að Efra-Seli í Stokkseyrarhrepi 15. júlí 1880. Foreldrar hans voru Þórður Jóns son silfursmiður og bóndi frá Högnastöðum í Hrunamanna- ihreppi og kona hans, Margrét Jónsdóttir frá Hreiðri í Holta- Ihreppi. Þórður Jónsson var mjög hag- Hrunamannahreppi, sonur Jóns bónda að Högnastöðum. Einn for feðra hans kom frá Smiðjuhóli í Álftaneshreppi í Mýrasýslu og settist að í Syðra-Langhoiti í Hrunamannahreppi. Þórður Jónsson var mjög hag- ur. Smíðaði og skar signet, bita- fjalir og útbjó brennimerki. Mun hugur hans hafa meir stáðið til slikrar iðju en sjómennsku og landbúnaöar. Ivíargrét Jónsdóttir var fædd í Hreiðri í Holtahreppi, Rangár- vallasýslu. Hún var Víkings- lækjarættar, frá Steinkrossi á Rangárvöllum. Forfeður hennar foárust út að Gíslholti í Holtum. Jón bóndi í Hreiðri var Guð- mundsson, bónda í Gíslholti. — Kona Jóns var Sigríður Jóns- dóttir. Þau eignuðust 7 börn sem upp komust: Bergstein bónda í Raftholti; Sigurjón síðar bónda í Hreiðri; Guðmund, bónda á Þverlæk og síðar á Eyrarfoakka; Einar, sem bjó á Eyrarbakka; auk Margrétar voru tvær dætur sem báðar dóu ógiftar og barn- lausar. Þau Margrét og Þórður hófu búskap í Traðarholti á Stokkseyri, þá I Móhúsum en lengst af bjuggu þau að Efra- Seli á Stokkseyri. Þau hjón eign- uðust 14 börn. Af þeim komumst 10 til fullorðins ára. Fimm dætur og fimm synir. Dæturnar: Krist- ín, Ingibjörg og Sigríður giftust allar og voru búsettar hér í Reykjavík. María giftist ekki og var víða í vinnumennsku, lengst af á Skeiðum og á Stokkseyri. Helga, sem var elzt systranna, bjó með syni sínum hér í Reykja vík og hin seinustu ár í Mos- fellssveit. Allar eru þær nú látn- ar. Helga lézt á nítugasta ald- ursári í sl. mánuði og var jarð- sungin frá Lágafellskirkju þann 16. júlí sL Synirnir eru: Markús bóndi að Grímsfjósum á Stokkseyri; Jón, sem lengi var verkstjóri hjá Reykjavíkurborg; Bjarni, var vélamaður hjá grjótnámi Reykja víkurborgar; Þórður, sem var um tíma bóndi í Biskupstungum, en starfar nú sem birgðavörður hjá Byggingarfélaginu Brú í Reykjavík. Allir eru þeir bræður dugnað- armenn, sem hafa verið eftirsót- ir starfsmenn. Þó þeir séu allir orðnir háaldraðir, Markús t.d. 92 ára, bera þeir aldurinn vel. Ein- ar er sá bræðranna, sem fyrstur hverfur af sjónarsviðinu. Einar missti fö'ður sinn 10 ára gamall. Var hann fyrst eftir frá- fall föður síns í fóstri hjá Ein- ari í Garðhúsum á Stokkseyri. Þaðan fór hann til móðurforóð- ur sins Bergsteins, sem bjó að Raftholti í Holtahreppi. Berst hann síðan austan úr Holtum og upp í Hrunamannahrepp að Grafarbakka til Hróbjartar Hannessonar. Hjá Hróbjarti bónda er Einar vinnumaður til 24 ára aldurs, að hann ræðst að Hæli til Gests Einarssonar. Þótti bændum Gestur sprengja upp kauptexta, er hann réði Einar til sín fyrir 200 krónur og 2 hestfóð- ur í árslaun. Meðan Einar var á Grafar- bakka, var hann sem þá tiðkað- ist með vinnumenn sendur til sjó róðra á vetrarvertíð, vorvertíð á skútur eða til vorróðra af Suð- urnesjum. Tvö vor réri hann t.d. af Vatnsleysuströnd hjá for- manni sem elti uppi enska tog- ara og fékk hjá þeim bolfisk, sem þeir annars köstuðu, í skipt- um fyrir ýmsan varning. I vist hjá Gesti fór hann viða um Suð- urland í verzlunarerindum. Einar var bráðger og var ekki orðinn gamall er hann þótti sterkur, snar og fylginn sér enda þannig skapi farinn, að hann var ekki á því að láta hlut sinn. Hann vandist snemma á að glíma og þótti afburða glímu- maður, sem hann fékk oft að reyna sig í í áningastöðum í göngum t.d. Gránunesi, þar sem fundum Norðlendinga og Sunn- lendinga bar saman og í land- legum í Þorlákshöfn. Sigurði Greipssyni er enn minnisstæður glímufræknleikur Einars, en Sig urður, sem þá var barn að aldri sá hann glíma er Einar vann að brúarsmíði brúarinnar yfir Tungufljót. Einar átti margar góðar endur minningar frá sjóróðrum í Þor- lákshöfn en engu minni ljóma bar á endurminningar hans frá smalamennsku á Hrunamanna- afrétt, er leiðin lá inn að Seiðisá á Kjalvegi um Kerlingafjöll og Kisubotna eða frá fjárleitum á Gnúpverjaafrétti í Lönguleit inn fyrir Fjórðungssand alla leið inn í Nauthaga við Arnarfell eitt randfjalla Hofsjökuls. Fyrir tápmikið ungmenni, sem alizt hafði upp víð harðneskju og fjÖlbreytileg störf við sjó og í sveit, voru átökin við árina, færið og seglbúnað eða taum- haldið á ólmum gæðing fram til fjalla hápunktar allra karl- mennskurauna, sem iljuðu á gamals aldri en voru slíkar þor- anraunir, sem hver sá er þolað hafði var mótaður af alla ævi. Þrekið og trúmennska urðu eigindir, sem hver og einn varð til að bera, ef hann átti að standa upp úr meðalmennsku og ver'ða eftirsóttur, sem vinnumaður. — Átökin urðu þessum ungmenn- um nauðsyn en um leið ánægja, svo þeir gátu síðar rætt um „fag- urt“ vinnulag og „falleg" hand- tök eins og menn nú ræða um list. Árið 1907 flytur Einar til Reykjavíkur. Hann gengur í fyrstu að þeirri verkamanna- vinnu sem býðst. Hann vann við lagningu fyrstu vatnsveitunnar um Reykjavík og við lagningu gasleiðslanna og um skeið er hann kyndari í Gasstöð Reykja- víkur. Ur kyndarastarfinu fer hann til norsks manns, sem þá rak lifrarbræðslu hjá Bakkabúð. Árið 1911 gerist hann utanbúð- armáður við verzlun Gunnars Gunnarssonar og er sú verzlun hættir ræðst hann 1917 að Höphnersverzlun í Reykjavík. Árið 1927 gerist hann bifreiða- stjóri á eigin bifreið þar til 1932, að hann ræðst til Smjörlíkisgerð arinnar Ljómi. Er smjörlíkis- gerðirnar stofna sameiginlega af- greiðslu um 1939, er hann ráð- inn afgreiðslumaður þeirra. — Gegndi hann því starfi fram til vors 1962. Samhliða þessum dag- legu störfum gegndi Einar dyra- varðarstörfum í Nýja-Bíó í 33 ár og í Slökkviliði Reykjavíkur var hann starfandi í um 30 ár. Barð- ist hann við eld margra stór- bruna í Reykjavík frá 1909 er vatn eða sjór var borinn á eld- inn í strigafötum og dælur voru knúðar með handafli. Einar er einn stofnenda Verk- stjórafélags Reykjavíkur. Hann var 1958 kjörinn heiðursfélagi þess félags. Þegar Einar kom að Hæli í Gnúpverjahreppi, varð hann samvista þar á því ágæta heim- ili Guðríði Eiríksdóttur (f. 22. nóv. 1883), frændkonu Margrét- ar Gísladóttur konu Gests. Guð- ríður hafði flutzt að Hæli með einn bróður sinn, er þau systkini misstu móður sína 1904. Að Hæli heitbundust þau Guð- ríður og Einar. Þau gengu í hjónaband í Reykjavík 12. maí 1908. í Reykjavík bjuggu þáu lengi g Kárastíg 8 en hin síðustu ár bjuggu þau áð Stórholti z.1 og þar andaðist Guðríður 14. jan. sl. Þau hjón eignuðust 8 börn. Tvö dóu nýfædd en þau, sem upp komust voru: Ólafur Haf- steinn gagnfræðaskólakennari, kvæntur Grétu Guðjónsdóttur; Þorsteinn íþrótafulltrúi, kvænt- ur Ásdísi Jesdóttur; Sigríður Hulda, gift Þorfoirni Jóhannes- syni kaupmanni; Ragnheiður Esther gift Sigfúsi Sigurðssyni deildarstjóra við Kaupfélag Ár- nesinga; Guðríður Ingibjörg gift Þórhalli Þorlákssyni stórkaup- manni; Hrafnhildur Margrét, sem lézt 1964 og var gift Her- manni Bridde bakarmeistara. Þá ólu þau hjón upp dótturbarn sitt, Hörn Harðardóttur. Einar Þórðarson var, starfsins maður og traustur og hollur hús bændum sínum ávallt, allt frá unglingsárum, er honum voru fengin þýðingarmikil trúnaðar- störf til þess að leysa af hendi og þá einatt tekinn fram yfir aðra sér eldri og reyndari menn. Húsbændur Einars kunnu ávallt áð meta dygga þjónustu hans og launuðu sumir hverjir þannig, að til fyrirmyndar má telja, nú síðari árin einmitt er hann hafði látið af störfurrt, sem raunar varð ekki fyrr en hann var kominn á níræðisaldur. Störfin léku í höndum Ein- ari; hann var íþróttamaður við verk sín, snyrtimennska hans bar af og áhuginn eins og hann ætti sjálfur það, sem hann hafði með höndum. Fjölskyldan var stór, tímarnir erfiðir, heilsan ekki án áfalla, en öllu var siglt farsællega í heila höfn. Verkin voru unnin af innri hvöt með glöðu geði; takmarkið var og lifandi í vitund Einars. Það var að vera sjálfstæ’ður maður og skapa sínum nánustu aðstöðu til að fá notið sín á heimili þeirra hjóna og er út í lífið kæmi. Á skólaárum mínum kom ég oft á heimili þeirra Einars Þórð- arsonar og hans ágætu konu Guðríðar Eiríksdóttur, með því að við Þorsteinn sonur þeirra vorum skólabræður. Ekki get ég sagt, að ég kynnt- ist heimilisföðurnum neitt náið. Hann var sjaldan heima, vann mörg dagsverk langan vinnudag, kom ekki heim fyrr en um há- nótt og fór til vinnu sinnar á morgnana fyrir allar aldir, alltaf mættur þar löngu á'ður en vinna skyldi hefjast. HeimilisrekSturinn I þrengri merkingu þess orðs hvíldi á hús- freyjunní og með eðliskostum sínum ágætum, mótaði hún meira heimilisbraginn, þar eð húsbóndinn var allan daginn og alla daga var óslitið bundinn við störfin að heiman. Þau hjónin voru samhent um að stuðla &ð velferð barna sinna. Ein fyrsta vitneskjan, er Guð- ríði barst um tilvonandi eigin- mann sinn var, að hann hefði borið af öðrum ungum mönn- um á leikmóti á Hvítárbökkum. Ekki var hann nafngreindur fyr- ir henni, en einkenndur með lit flíkur, er hann klæddist. Er hún var orðin þjónusta hans, fann hún glímubúninginn með hinum tilgreinda lit i plögg um Einars. Var Einar nókkur skartmaður og hún tilhaldskona, fríð og glæsileg. Hann bar af ungum mönnum, hreyfingar mjúkar og snarar, og var hann garpslegur um fram flesta. Hélt hann reisn fram undir það síð- asta. Þau hjón þóttu snemma af- bragð annarra. För þeirra gegnum lífið varð og fögur og giftusamleg. Mér er í minni hve allt var eins á heimili Einars, hvort sem hann var heima eða ekki. Festa hans og æskuhugur var ávallt andblær, heimilis hans og þeirra hjóna. Einar var alvörumaður, en glaðsinna um leið og gamansam- ur. Barátta lífsins hafði meitlað svipinn, en prú'ðmannleg mildi var með *í för. Þau hjónin bæði örfúðu börn sín til hollra íþrótta og skemmt- unar. Húsfoóndanum var ríkur í huga námsframi þeim til handa og hvers kyns menninagnþroski. Erfitt árferði, veikindi og aðrir ytri erfiðleikar eins og gengur, skyldi ekki loka þeim leiðum. Hljóðfæris var aflað og söngur ómaði og glatt og gott andrúms- loft var innan dyra. En umfram allt var hugurinn sterkur er að því laut: Að standa sig. Á mannamóti fjölmennu felldi Einar yfirlætismann á auga- bragði með eldsnöggu glímutaki. Hugur hans var óbrigðull að berjast til sigurs. En sóknin var vörn og varðveizla. Þegar Einar Þórðarson nú kveður börn sín, aðra sína nánustu, og okkur vini sína, er manndómur og karl- mennska eiginleikar innan sjón- arhrings okkar meira en ef hans hefði ekki notið við i lífi okkar, með og öðrum mannkostum mildinnar og kærleikans. Þegar vermenn úr uppsveitum Árnessýslu héldu til sjóróðra suður með sjó um síðustu alda- mót, áðu þeir einat á Þingvöll- um. Námu þeir þá stundum staðar í Almannagjá og sungu ættjarð- arljóð. Bergmál hamraveggjar- ins bar raddir þeirra nú þagn- aðar flestar út yfir vellina og vatnið. Þegar góður íslendingur hylzt mold ættjarðarinnar, geymir harpa landsins hljóminn ævi hans, og hjörtu okkar fyllast þakklæti og ásetningi að reynast verðug börn góðra feðra og mæðra. Guð blessi minningu Einars Þórðarsonar og ástvini hans. Eiríkur J. Eiríksson. . t MEÐ Einari Þórðarsyni er fall- inn í valinn heilsteyptur og sann ur drengskaparmaður. Einari Þórðarsyni kvnntist ég fyrst er ég gerðist brunavörður á Slökkvi stöð Reykjavíkur árið 1921. Ein- ar var þá liðsmaður í varaliði slökkviliðsins, og átti eftir að vera það enn um mörg ár. Það fór ekki fram hjá neinum, sem kynntist Einari, að þar fór eng inn meðaimaður og að leiðsögn hans myndi holl og góð hverj- um er þiggja vildi. Hugprúðux, djarfur og karl- mannlegur gekk hann að starfi sínu, sem slökkviliðsmaður hverju sinni, hvort sem við lít— inn eða stóran eld var að stríða, oft reyndi þá. ekki síður en nú þegar slökkviliðið býr við betri skilyrði að mörgu leyti —■ á styrk ’iðsmanna og baráttu- þrek, og var Einar einn þeirra, sem aldrei brást, þar sem til átaka koro á hættunnar stund. Og þó við ættum stundum tapað stríð, má þó minnast margra sigra frá þeitn árum í baráttunni við eldinn. «em 'unnir voru und ir stjórn Péturs Ingimundarson ar slökkviliðsstjóra, sem var með afbrigðum góður stjórnandi, og heppinn í starfi. Ég mun alHaf minnast Einars Þórðarsonar, sem eins af hinum gömlu slökkviliðshetjum þessara ára, manna, sem nú eru allir komnir á efri ár. og margir horfn ir yfir möðuna tniklu. Einar I’órðarson var hár og herðabreiður, svipmikill og virðu legur hvar sem á hann var litið. Trúr og staðfastur í orði og verki. Og því var gott að eiga hann fyrir vin. Blessuð sé minning Einars Þórðarsonar. Kfjartan Ólafsson. Kona sem unnið hefur við verzlun, óskast, þarf að geta unnið sjálfstætt. — Upplýsingar um aldur og fyrri störf, leggist inn á afgr. Mbl. fjrir 15. ágúst, merkt: „Verzlunarstarf — 4599“. Skriístofustúlka Framtíðaratvinna Skýrsluvinnsla Ottós A. Michelsen vill ráða stúlku til starfa við götun IBM spjalda. — Vélritunar- kunnátta æskileg. — Yngri eu 17 ára koma ekki til greina. — Hentugur vinnutími. Umsóknareyðublaða má vitja á skrifstofu vora að Klapparstíg 27. IBM á íslandi OTTO A MICHELSEN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.