Morgunblaðið - 12.08.1966, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.08.1966, Blaðsíða 30
30 MORCU N BLAÐIÐ FBstudagur 12. ágúst 1966 Akureyringar í öðru sæti eftir sigur yfir á Akureyri í gærkvöidi 1:0 AKUREYRINGAR sigruðu KR með 1 marki gegn engu á Akur- eyri í gærkvöldi. Áttu Akureyr- ingar meira í leiknum og verð- skulduðu sigurinn. Hafa Akur- eyringar möguleika til að blanda sér í stríðið um íslandsmeistara- titilinn, en vonir KR-inga eru nú næstum að engu orðnar að halda íslandsmeistaratign sinni. í>að var gott veður og sólskin og fremur hlýtt á Akureyri í gærkvöld og léku KR-ingar und- an andvara og sól í byrjun. Náðu íþeir sinum bezta leikkafla í fyrri hluta fyrri háifleiks. Sóttu KR- ingar þá öllu meira en náðu ekki að skapa hættuleg tækifæri við mark Akureyringa. Leikurinn jafnaðist síðan smám saman og var vel leikinn af beggja hálfu. A 22. mín varð mikil hætta við mark KR en þeim tókst að bægja henni frá. Nokkru síðar fékk Eyleifur mjög gott tækifæri en hitti ekki knöttinn er hann hafði skapað sér góða aðstöðu til að skora. Á fyrstu mínútu síðari hálf- leiks mistókst félaga hans Bald- vin Baldvinssyni sem rétt fyrir hlé kom inn fyrir Hörð Markan. Komst Baldvin einn innfyrir Sigurvegorinn týndisl í nhorf- endnshnrnnn MARARÞONHLAUP Sam- veldisleikanna fór fram í Kingston í gær. 26 ára gamall Skoti, Kim Alder sigraði. Hlaupið var mjög dramatískt, því er Alder kom að leikvang inum þar sem endamarkið var, var honum sagt rangt til vegar af starfsmönnum hlaupsins. Hljóp hann nokk- ur hundruð metra áður en hann sjálfur áttaði sig á vit leysunni.Varð hann síðan að troðast gegnum áhorfenda- skara er safnast hafði saman og ryðja sér braut inn á völl inn. En forskot hans var nóg til þess að hann sigraði samt. / Má segja að hann hafi verið I vel að sigrinum kominn en I ekki munaði nema 5.2 sek- á honum og næsta manni. Tími Alders var 2:22.07.8 en Adcocks Englandi hljóp á 2:22.13.0. í>eir voru í sér- flokki. vörn Akureyringa — en skaut langt framhjá. Á 7. mínútu var hætta við KR markið en pressa Akureyringa rann út í sandinn. KR-ingar ná sókn en Samúel markvörður bjargar af öryggi. Á 17. mínútu er dæmd auka- spyrna á KR rétt utan víta- teigs. Sævar sendi til Magnúsar Jónatanssonar, sem átti þrumu- skot í þverslá og aftur var skotið hörkuskoti en Guðmundur varði mjög vel. Aftur á 20. mínútu tókst honum að forða marki með því að lyfta góðu skoti yfir slá. Akureyringar höfðu á þessum kafla góð tök á leiknum og á 25. mínútu skoraði Kári eina mark leiksins. Fjör færðist í KR-liðið við markið en það nægði þeim ekki og undir lokiii voru Akur- eyringar aftur sterkari aðilinn. Úrslitin eru sanngjörn eftir gangi leiksins. Bezti maður KR var Ellert en hjá heimamönnum var Kári mjög góður og Magnús átti og góðan leik. Grétar Norðfjörð dæmdi og fórst það vel. Leiðinlegt er að heyra ijót hróp áhorfenda til dómara í tíma og ótíma og ann- að sem mjög er ámœlisvert er að leikmenn skuli ekki mæta í númeruðum búningum eða vera kynntir fyrir áhorfendum. KR- ingar leika ekki nema einu sinni á Akureyri á sumri og er hægt að ætlast til að heimafóik þekki „stjörnurnar“. Harka í 3. deitd Og b-lið j Út ,stóru" félaganna slegin / Bikarkeppninni 3. DEILD i knattspyrnu var stofnuð í vor og leika þar í sum- ar 4 félög. Er keppnin, sem er tvöföld, þ.e.a.s. leikið er heima og heiman, iangt komin, en þar er mikill barátta og óvissa ríkj- andi um það hvaða félag tekur sæti í 2. deild næsta ár. Liðin sem í 3. deild leika eru Skallagrímur í Borgarnesi, UMF. Ölfuss, UMF Selfoss og UMF Skagafjarðar. Tvö iiðanna eiga eftir einn leik en hin tvö eiga tvo leiki eftir. Staðan í deild- inni er nú þannig. L U J T Mörk S Selfoss 5 3 0 2 13-7 6 Skallagrimur 4 2 0 2 8-5 4 Skagafjörður 4 2 0 2 7-7 4 Öifus 5 2 0 3 4-13 4 Þá er einnig hafin Bikarkeppni Ksí. Sextán félög senda 22 lið til keppninnar, sem er með sama fyrirkomulagi og áður að 1. deildarliðin koma ekki inn í keppnina fyrr en 2 hinna eru eft ir ósigruð en hin fallin úr leik samkv. útsláttarfyrirkomulagi keppninnar. Léikirnir sem búnir eru eru þessir: ÍBÍ — Þór 3-2 Þróttur b — Keflavik b 3-2 FH — Akranes b 3-1 Víkingur — Fram b 3-1 Fram a — Breiðablik 5-1 Seifoss gaf leikinn við Vái b. Á innanhúsmótinu fékk Birgir FH hamingjuóskirnar .Verður það eins á utanhússmótinu? Sigrsr FH í 11. sinn? Úrslitaleikir í íslandsmótinu í útihand- knattleik um helgina ÍSLANDSMÓTINU í útihand- knattleik lýkur um þessa heigi. í dag, á morgun og á sunnudag iara fram aliir leikir í 2. flokki kvenna, en síðdegis á sunnudag- inn verða lirslit í meistaraflokki karla og kvenna og 2. flokki kvenna, en það eru allir keppnis flokkar mótsins. í 2. flolcki kvenna eru 8 þátt- tökulið. Verða fjórir leikir í dag Þróttur gerði jafntefli við Akranes I 1 ÞRÓTTUR krækti sér í eitt stig í gærkveldi á Laugardalsvellin um í leiknutn á móti Akurnes- ingum. I.eikiuinn var heldur sviplaus í tieiid, end þótt bæði liðin tækju góða spretti inn á milli og má segja að jafnteflið 1:1 hafi verið ákaflega sann- gjörn úrslit. Þróttur sótt’ heldur meira í Enn glöddust Frakkar ENN voru það einungis Frakk- ar sem gátu glaðst á heimsmeist aramóti skiðamanna í Chile. Marielle Goitschel, tvítug að aldri, tryggði sér tvo heims- meistaratitla. Hún sigraði i stór svigi og vann einnig titilinn í samanlögðum Alpagreinum. Þetta er í 3. sinn sem hún vinnur titilinn í samanlögðu. Fyrst vann hún hann 16 ára göm ul og síðan lék hún listina aftur á OL í Innsbruck. Þá vann hún einnig gull í stórsvigi og silfur í svigi. Á mótinu nú var§S hún að bíða í nokkra daga í spenning. Hún var önnur í svigi og einnig í bruni. Marielle fór hina 1210 m löngu braut á 1:22.64 mín. Fall- hæð var 349 m og hliðin 39. Önnur varð Zimmerman Aust- urríki á 1:23.81 og 3. Steurer Frakkl. á 1:23.92. byrjun, og þegar um 15 mín. voru liðnar af leiknum skoraði Axel fyrir Þr>.lt, en Carl Berg man dæmdi það rétlilega af þar sem brotið bafði verið á Einari markverði rétt áður. Akurnesing ar sóttu síðan heldur í sig veðr- ið, og áttu nokkui ágæt upphlaup en þó engin tiltakanlega hættu- leg. En á 35. mín. leiksins komst Jens einr. og óhindraður inn fyr ir varnarvegg Akurnesinga eftir geysileg varnarmistök Boga mið varðar, en skotið lenti í fótum Einars markvarðar. Mjög klaufa legt hjá Jens. Aðeins minútu síðar ná Akur nesingar góðu upphlaupi á vinstri væng vallarins, og Rún- ar v. útherji Akurnesinga sendi knöttinn vel fyrir markið. Bene dikt framvörður kom aðvífandi og sendi knöttinn viðstöðulaust i netið með föstu skoti og óverj andi fvrir Guttorm Þróttarmark vörð. Litlu siðar náðu Akurnes- ingar aftur góðu upphlaupi, sem lauk með íöstu skoti frá Guð- jóni Guðmundssyni af löngu færi en knötturinn lenti í stönginni. Rétt fyrir lok hálfleiksins fékk Björn Láius.son knöttinn í góðri aðstöðu til þess að skora, en skotið var algjörlega misheppn- að, og knötturinn náði ekki einu sinni að renna út fyrir enda- mörk valiarins. Þróttarar hófu strax mikla sókn í síðari hálfleik, og á 6. mín óð Axel fram með knöttinn og sendi góða sendingu inn í vítateiginn Þar var þá fyrir Halidór íramvörður og skoraði hann auðveldlega. Eftir þetta mark fór heldur að dofna yfir Sta&an STAÐAN i gær: í 1. deild eftir leikina Akureyri — - KR 1:0 Akranes — Þróttur 1:1 Valur 8 5 1 2 18:11 11 Akureyri 8 3 3 2 12:14 9 Keflavik 7 3 2 2 14:9 8 Akranes 7 2 3 2 9:8 .7 KR 7 2 2 3 12:10 6 Þróttur 7 0 3 4 7:20 3 á morgun og árdegis á sii' nu- dag. Kl. 16,30 á sunnudaginn verða svo úrslitin Auk 2. flokks leikjanna á laugardag leika Vík- ingur og Haukar í m.fl. karla. í m.fl. kvenna keppa til úr- slita Valur og Fram, en þau lið eru bæði taplaus í mótinu til þessa. Sama er að segja um Fram og FH í m.fl karla, sem mætast í hreinum úrslitaleik. Baráttan stendur urn það hvort FH sigrar í 11. sinn í röð eða hvort Fram tekst að stöðva sigurgöngu FH. Ármann sér um mótið og fara leikirnir fram á svæði félagsins við Sigtún. leiknum, og var lítið um skemmtileg augnablik þar til um 10 mín. voru eftir. Leikur- inn var þó fremur jafn allan þennan tíma, en á 38. mín. komst Jens aftur inri fyrir vörn Akur- nesinga og náði að skjóta, en Einar var á verði og tókst að handsama knöttinn á síðustu stundu. Akurnesingar höfðu held ur ekki sagt sitt síðasta orð, því að rétt fyrir leikslok. náðu þeir miklu upnhlaupi, Jón Leósson sendi háa sendingu inn í vítateig Þróttar og Matthías náði að skalla, en Outtormur bjargaði vel. Þróttur svndi það í þessum leik að beir geta burizt ef þeir vilja, og oft og tíðum náðu þeir upp ágaúum samleiksköflum, sem uppskáru á hmn bóginn minna en veiið skyldi. Ómar bar af leikmönnum Þróltar, var allt af staddur þar sem þörfin var mest fyrir hann. og byggði vel upp. Halldi r átti einnig ágætan leik, og sömu sögu er að segja um Guttorm í markinu, sem Framhald á bls. 31

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.