Morgunblaðið - 12.08.1966, Page 2

Morgunblaðið - 12.08.1966, Page 2
2 MOAGUNBLAÐIÐ PBstudagur 12. Sgðst 1966 Mikil söltunarsíld veiðist fyrir Austf jörðum Spáúómar Jakobs Jakobssonar fiskifræð- ings ræfast MIKn. OC góð síld veiðist nú 120—140 mílur suðanstur af Gerpi. Virðist hér vera að ræt- ast fyrr en varði spádómur Ja- kobs Jakobssonar fiskifræðings, en hann sagði í viðtali við Mbl. fyrir sköminu. að miklar líkur væri á að sí'din hiypi í torfur seinnihluta þessa mánaðar, en hingað til hefur hún verið mjög dreifð og erfið viðureignar. Síldin er stór og falleg eins og fyrr sagði, en mikil áta er í henni og þolir hún þvi alllanga geymslu. Margir söltunarstaðir fyrir Austfjörðum fengu í gær- v dag fyrstu söltunarsíld sumars- ins og hafði Mbl samband við fréttaritara sína á þcssum stöð um í ga>r. Fara umsagnir þeirra hér á eftir: RAUFARHÖFN, 11. ágúst: — Saltað var af tíu síldveiðiskip um á fimm söltunarstöðvum í alla nótt og fram á dag. Síldin var stór og feit og nýttist vel, þrátt fyrir að hún væri sólar- hrings görnul, en hún var yfir- leitt geymd í ís. Þessi síld veidd ist öll 90 mílur suðvestur af Jan Mayen. Nú hafa verið saltaðar á Rauf arhöfn 26.4?7 tunnur síldar og skiptist söltunin bannig niður á stöðvarnar. Norðursíld 6.588 tunnur, Bcrgir h f. 5.404, Sild h.f. 3.850, Óðinn 3.753, Óskarsstöð 2.529, Björg h.f. 2.70.1, Hafsilfur h.f. 1.570 og Möl s.f. 32 t-unnur. í bræðslu hafa nú farið 30.000 lestir. í morgun fréttist af Haf- erninum, síldarflutningaskipi SR á leið til Siglufjarðar með síld, þó ekki fullhlaðið. Síldina tók skipið við Jan Mayen. Að öllum líkindum verður ekki saltað á Raufarhöfn í kvöld, því öll sildarskip haida nú á mið in fyrir Austfjörðum. Komu í dag tvær flugvélar frá Reykjavík, að sækja síldarstúlkur hér á Rauf arhöfn, sem fara til starfa á sölt unarstöðvar á Austfjörðum. — Einar. SEYÐISFIR»I. 11. ágúst: — Nú eru að rætast spádómur Jakobs Jakobssonar, fiskifræð- ings, sem birtur var í Mbl. fyrir fáeinum dógum. í nótt fengu mörg skip stór og góð köst 120— 140 mílur suðaustur af Gerpi. Virðist þarna vera um mikla síld að ræða. Hér á Sevðisfirði eru 18 skip, að landa scltunarsild og er nú saltað á öilum söltunarstöðvum. Bátunum hefur gengið misjafn- lega, þar sem vont er í sjóinn á leiðinni til lands af miðunum og hefur síidin slegizt í sumum bátunum. Ilún er stór og falleg, en full af átu og þolir því illa geymslu. — Sveinn. STÖÐVARFÍRÐI, 11. ágúst: — Fyrsta síld sumarsins kom hing að til Stöðvarfjarðar í dag, en hana veiddi Heimir 130 mílur út af Austfjörðum á þeim slóðum, þar sem margir síldarbátanna halda sig nú. Áður hafa verið saltaðar fáeinar tunnur og frem ur lítið hefur verið brætt í síld arbræðslunni hér. Heimir kom hingað með 200 tonn af ágætri síld, en ekki verð ur sagt um hvernig hún nýtist, þegar byrjað verður að salta í dag á söltunarstöðinni Steðja h.f. — FréttaritarL FÁSKRÚÐSFIRÐI, 11. ágúst: — í dag er saitað á tveimur sölt- unarstöðvum hér á Fáskrúðsfirði Framhald á bls. 12. Abba Eban á blaðamannafunðinum í gær, Smáríki geta, þrátt fyrir smæð sína, unnið að heimsfriði sagði Abba Eban á blaðamanna- fundi i gær UTANRÍKISRÁÐHERRA ísra- els, hr. Abba Eban lauk í morg un opinberri heimsókn sinni til íslands í boði ríkisstjórnar ís- Iands. Samkvæmt fréttatilkynn- ingu frá utanríkisráðuneytinu átti utanríkisráðherrann „við- töl við forseta íslands, forsæt- isráðherra og utanríkisráðherra. 1 samræðum þessum kom fram ánægja með náin samskifti ís- lands og ísrael, enda byggjast þau á góðri vináttu og gagn- kvæmum skilningi. Utanríkisráð herramir athuguðu á ný tengsl Iandanna á sviði efnahags- og menningarmála og ræddu um möguleika á því að auka þau og efla". meðlimur, sagði Mr. Eban. Hann sagði aukin viðskifti landa Efna hagsbandalagsins og ísraels nauðsynleg. Um stríðið í Víet-nam vildi utanríkisráðherrann ekki annað segja en það, að ísraelsmenn vonuðust til þess að friði yrði skjótt komið á, og að allir aðil- af gætu setzt niður og rætt deilu mál sín friðsamlega. Að lokum sagði Mr. Eban Eban að hann og kona hans færu heim eftir ánægjulega ferð, sem kynnt hefur þeim feg urð landsins og gefið þeim stutta svipmynd af íslenzka fólk inu og menningu þess. Hann sagði einnig, að Israel væri þakklátt íslendingum fyrir vin- semd og stuðning sýndan á al- þjóðavettvangi. — Tina Sparibairkimir, slitnir og snáðir með nokkurri ösku og olíublettum. Stolnu sparibauku”'"!! skilað ÞAÐ V AR nokkuð sérstæður atburður, sem átti sér stað fyrir skemmstu. Þremur spari baukum þriggja ungra barna, sem stolið hafði verið fyrir ári, var skilað aftur með öllu sem í þeim var. Móðir barn- anna hefir beðið blaðið að senda þeim, sem hér var að verki þakkir fyrir skilsem- ina. Forsaga þessa máls er sú að kona ein býr að Fossvogs- bletti 32 með þremur börnum sínum. Heitir hún Birna Ein- arsdóttir. Hún sagði okkur svo frá að fyrir um það bil ári hafi verið brotizt inn í hús sitt um bjarta sumarnótt, er hún var að heiman. Er þetta lítið hús og hafði þjófurinn komizt inn urn glugga og sá- ust um.rnerki á glugganum. Ekkert var tekið í húsinu nema þrír sparibaukar barn anna. Var talsvert af pening- um í þeim öllum. Birna sá ekki ástæðu til að kæra verkn aðinn til lögreglunnar þar sem ekki hvarf annað en bauk amir. Nú skeður það fyrir nokkr um dögum að Birna er að hreinsa kolaofn, sem er í húsi hennar oe tekur hún öskuna og setur í poka og fer með hann út í geymslu, sem er áföst við húsið. í fyrradag fór hún svo að hreinsa til í geymslunni og var þá að at- huga í pokann um leið og hon um var hent. Glampaði þá á eitthvað í öskunni. Kom þá í ljós að þarna voru spari- baukarnir komnir. Baukarn- ir voru orðnir snjáðir og slitn ir á brúnum, dálítið beyglað- ir og olíuklessur á þeim. Benti allt til þess að þeir hefðu leg ið í bíl um lengri tíma. Á tímabilinu höfðu krakkarnir eignazt nýja sparibauka. — Baukarnir sem hurfu voru all ir óslitnir og einn þeirra nýr er þeir voru teknir. Annað sá ekki á baukunum, utan hvað sýnilegt var að reynt hafði verið að opna einn þeirra, en það sýnilega ekki tekizt. Tveir baukanna voru rauð- ir, en einn blár, allir frá Landsbanka íslands. Birna kvaðst furðu lostin yfir þessu atviki og bað hún blaðið að skila þakklæti til hins „fróma“ gripdeildar- manns, sem þarna hafði ver- ið að verki. Hr Eban sagði í gær á blaða- mannafundi að fsrael og ísland gætu bæði, þrátt fyrir smæð sína, unnið að heimsfriði og betri skilningi og ahknum vin- áttuböndum þjóða á milli. Að- spurður um sambúð ísraels við Arabíuríkin, sagðist hann von- ast til að ríkin gætu smám sam- an komið á betra samstarfi, en eins og stæði byggju þau hlið við hiið án verulegra árekstra og án vináttu. Þó sagði utanríkis ráðherrann, að fsrael væri til viðræðna við Arabaríkin um betri sambúð og grundvöll fyrir sameiginlegri virðingu ríkjanna á milli. Ráðherrann sagði, að fsrael hefði mjög góða sambúð við Afríkuríkin, bæði viðskifta- lega og menningarlega. Á ári hverju koma um eitt þúsund manns til náms í ísrael frá hin- um ýmsu ríkjum Afríku og um 300 ísraelskir sérfræðingar í landbúnaði, verkfræði og öðrum greinum fara til starfs í Afríku. Nú hefur fsrael stjórnmálasam- band við 29 Afríkuríki. fsrael hefur áhuga á að ganga í Efnahagsbandalagið sem auka- í GÆRDAG gengu þrír stjórnar menn í Félagi íslenzkra ung- templara á fund stjórnar Vernd- ar og afhcntu félaginu að gjöf 10 þúsund krónur með þeirri ósk að upphæðinni yrði varið til þess að efla fræðslu við vinnuhælið að Litla-Hi auni. Samtökin Vernd veita þeim föngum hjálp. sem látnir hafa verið lausir og hjálpa þeim til þess að breyta um líferni. Séra Árelíus Níelsson, formað ur íslenzkra ungtemplara, tjáði blaðinu í gærkvöidi að islenzkir Framhald af bls. 1 kvaðst ekkert hafa minnzt á fósturlátið við mann sínn, af ótta við. að hann færi þá frá sér. Þvert á móti hafði hún keypt barnavagn og haldið áfram að klæðast, sem væri hún með barni. í september las húr. grein í vikublaði um barnsrán — fékk þaðan hug- myndina og fór að eins og frá var skýrt í greininni. Connie Andersen staðhæfði fyrir rétt inum, að hún hefði farið að hugsa um að skila barninu aftur, eftir að hún heyrði og sá föður Tinu litlu í sjónvarp- inu. Frú Andersen játaði að hafa gerzt sek um „frelsissvipt- ingu“ en neitaði að hafa brot ið ákvæði hegningarlöggj af- arinnar er fjallar um „lang- varandi frelsissviptingu" og við liggur þyngri refsing. Rétt urinn taldi hana hinsvegar seka um „langvarandi frels- issviptingu“, en tók, sem fyrr segir, tillit til þess, að hún átti í sálarstríði um þessar mundir. ungtemplarar ættu sér enga ósk betri, en að styðja ýmis konar starfsemi, sem veitt væri utan- garðsfólki þjóðfélagsins stuðn- ing og hjálp. Frú Þóra Einarsdóttir, formað ur Verndar, veitti gjöfinni við- töku og sagði frá því, að ákveðið hafi verið að gera smíðastofu á hælinu, þar sem fangarnir gætu unnið við smíðar í tómstundum sínum og gat þess um leið að heppilegt gæti verið að nota þessa fjárhæð til tækjakaupa í smíðastofuna. 1 "■ Ungtemplarar gefa Vernd 10 jbús. kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.