Morgunblaðið - 12.08.1966, Síða 12
MORCUNBLADIÐ
Fostudagur 12. ágúst 1966
12
Fundahöld um
framtíð Nigeríu
Lagos, Nígeríu, 11. ágúst, NTB.
FULLTRÚAR frá hinum ýmsu
héruðum Nígeriu luku í dag
fyrsta fundi sínum af nokkrum,
■em fyrirhugaðir eru til þess að
ákveða, hvemig háttað skuli
stjórn Nígeríu í framtíðinni —
Óeirðir
í Indlandi
tegna matvœlaskorts
Shillong, 10. ágúst — NTB:
FJÖLDI manns særðist og nokkr
ir biðu bana í dag er lögreglu-
menn gripu til skotvopna til að
dreifa mannfjölda, sem réðist að
stjórnarskrifstofunum í Shillong
í fylkinu Assam. Aðför þessi kom
á eftir kröfugöngu, sem stúdent-
ar skipulögðu og var ætluð til
andmæla gegn matvælaskortin-
um í fylkinu og hækkandi verð-
lagi á matvöru. Ekki er enn vit-
að hvert mannfall varð í óeirð-
um þessum.
í bænum Sibsagar í Assam
kom einnig til óe'irða í dag og
herma fregnir að þar hafi tveir
særzt er lögreglumenn gripu til
skotvopna að dreifa mannfjölda
hvort haldið skuli áfram tilraun-
um Johnson Aguiyi Ironsis, hers-
höfðingja, til að sameina lands-
hlutana undir eina sterka mið-
stjórn — eða tekið á ný upp
gamla formið, þar sem landinu
var skipt í ríki, er höfðu tals-
verða sjálfstjórn í eigin málum.
Þessi fyrsti fundur, sem hald-
inn var í Lagos, var nánast að-
eins til undirbúnings frekari við-
ræðum um mál þetta, sem ljóst
er, að verður afar erfitt viðfangs.
Segja fréttamenn, að mikil tor-
tryggni hafi ríkt á fundinum og
andrúmsloftið þar hafi síður en
svo boðað skjóta lausn málsins.
Viðræður fóru fram fyrir luktum
dyrum.
Stjórnmálasviptingarnar í Níg-
eríu að undanförnu hafa mjög
orðið til þess að auka mislyndi
og úlfúð milli hinna einstöku
landshluta og talið er næsta ólík-
legt, að haldið verði áfram til-
raunum Ironsis til að sameina
landshlutana undir sterkri mið-
stjórn.
Ekkert hefur enn verið sagt
af opimberri hálfu um örlög Ir-
onsis, en allt bendir til þess, að
því er áreiðanlegar heimildir
herma, að hinar óstaðfestu fregn-
ir um að hann hafi verið drep-
inn, hafi við sterk rök að styðj-
ast.
1 hinu nýja iðnaðarhúsnæði.
Fyrsta iðnaðarhúsnœðið
i hverfi Iðngarða opnað
í DAG verður fyrsta iðnaðarhús
næðið í hvcrfi Iðngarða h.f. við
Suðurlandshraut opnað, og er
það viðgerðarverkstæði Sveins
Egilssonar og Co. sem flytur alla
starfsemi sína þangað. Frétta-
menn Mbl. áttu leið þarna fram
hjá fyrir skömmu. og notuðu þeir
þá tækifærið til þess að líta á
bygginguna og rabba stuttlega
við Þórð Jasonarson, byggingar-
meistara.
Þórður tjáði okkur að bygg-
ingin væri 61 metri að lengd og
20 metrar á breidd, eða um 1200
fermetrar. Hann kvað byggingu
þá sem nú væri risin aðeins vera
fyrsta áfangann, því að síðar
ætti að rísa til viðbótar tveir
sams konar skálar við hlið þessa,
auk þess sem fyrir framan ætti
að rísa tveggja til þriggja hæða
samföst skrifstofubygging. Yrði
byggingin fullgerð um 3600 fer-
metrar. Það var byrjað á bygg-
ingunni í fyrravor, og hefur bygg
ingin því verið rúmt ár í smíð-
um.
Verkstæðið virðist vera mjög
fullkomið við fyrstu sýn. í því
eru níu bifreiðalyftur, þar af sex
nýjar, fimm 1% tonns og ein 3%
tonn, sem einungis er ætluð til
skoðunar. Lyftur þessar hafa ver
ið í notkun á nokkrum verk-
stæðum hér sl. tvö ár, en þetta
verkstæði mun vera hið fyrsta,
sem byggt er upp á þeim.
Gólfplata hússins er skorin nið
ur í margar smærri plötur með
sérstökum þennsluraufum á
milli, sem kemur í veg fyrir að
platan springi, í henni eru tvær
gryfjur og djúp renna eftir endi-
langri plötunni. Önnur gryfjan
er við innksyrsludyrnar, og þar
eru allar bifreiðir þvegnar áður
en viðgerð fer fram. Hin gryfj-
an er eingöngu ætluð fyrir
bremsustillingar, og verður sér
stökum vélum til þess komið fyr
ir niður í henni. í rennunni eru
allmörg loítgöt með nokkru milli
bili, og er ætlunin að tengja út
blástursrör bifreiða þar við, og
losna þá algjöblega við gasloft.
Vélaverkstæðið hefur verið af
markað sérstaklega í bygging-
unni með skilrúmi, og á enginn
hávaði frá sjálfu verkstæðinu að
berast þar inn. f norðurenda
hússins hefur einnig verið inn-
réttað talsvert, bæði fyrir skrif-
stofur, og afgreiðslu, en allar-
innréttingar í húsinu eru aðeins
til bráðabirgða.
Frá setningu mótsins í gærmorgun.
Fimmtugasta þing Alþjóðasam-
taka háskólakvenna sett í gær
FIMMTUGASTA þing Alþjóða-
samtaka háskólakvenna hófst
kl. 9 í gærmorgun í hátíðasal
Háskóla tslands. Forseti samtak-
anna, dr. A. K. Hottel setti mótið.
Þá tók til máls frú Ingibjörg
Guðmundsdóttir, form. Félags ís-
lenzkra háskólakvenna og Kven-
stúdentafélags íslands og bauð
hún erlenda gesti velkomna. Síð-
an rakti hún stuttlega sögu lands
ins allt frá landnámstíð. Að lok-
um sagði frú Ingibjörg að það
væri einlæg ósk islenzkra há-
skólakvenna að dvöl hinna er-
lendu gesta hér yrði sem ánægju-
legust og þeir hyrfu héðan brott
með bjartar minningar. Þá voru
fjármál samtakanna rædd og for-
menn hinna ýmsu fastanefnda
gáfu skýrslur. — I gærkvöldi
sátu erlendu þáttakendurnir boð
íslenzkra háskólakvenna í Þjóð-
leikhúskjallaranum.
Alþjóðasamtök háskólakvenna
voru stofnuð árið 19I20 og telja
nú um 202 þúsund meðlimi 50
þjóða. Samtök þessi láta hvers
kyns menningarmál til sin taka.
Þau beita sér einkum fyrir auk-
inni menntun kvenna og veita
þeim styrki til menntunar og
rannsókna. Starfa þau í nánu
sambandi við Sameinuðu þjóð-
irnar. Þá hafa samtökin á snær-
um sínum margs kyns hjálpar-
starfsemi svo sem aðstoð við
flóttamenn.
Félag íslenzkra háskólakvenna
gerðist aðili að samtökunum ár-
ið 1928, en þetta er í fyrsta
skiptið sem fulltrúafundur sam-
takanna er haldinn hér á landi.
Alls taka þátt í mótinu 70 er-
lendar háskólakonur frá 26 lönd-
um, þar af 27 fulltrúar. Þá sitja
þingið 36 íslenzkir áheyrnarfull-
trúar.
í dag sitja þátttakendur teboð
'bandaríska sendiráðsins að lokn-
um fundarstörfum. Á morgun
fara þeir í stutta skemmtiferð
m.a. til Þingvalla í boði íslenzku
háskólakvennanna og á sunnu-
dagskvöld sitja þeir heimboð
þeirra. Á mánudag heldur
menntamálaráðherra þeim kvöld
verðarboð. Þá verður farið í
ferðalög að mótinu loknu. Geta
þátttakendur valið á milli fimm
daga ferðar um Norðurland og
þriggja daga ferðar um Snæ-
fellsnes. Mótinu lýkur n.k. mánu
dag.
— Dauðaslys
Framhald af bls. 32.
eldur í sinu um allan skemmti-
garðinn. Fólk hópaðist saman
fyrir framan rennibrautina, en
stjórnendurnir höfðu áður fengið
skipun um að láta ekkert uppi
til þess að koma í veg fyrir að
hræðsla gripi um sig. Renni-
brautin var þegar tekin úr um-
ferð og var ekki tekin í notkun
aftur fyrr en á fimmtudag. Rann
sók málsins var fengin lögregl-
unni, sem hélt eftir tveimur
skipsverjum af Helgafelli og
nokkrum öðrum farþegum í vagn
inum, svo að unnt væri að hafa
þá sem vitni.
Lögfræðingur 1 Kaupmanna-
höfn, sem var í vagninum sagði
lögreglunni, að Hilmar hefði
tvisvar reynt að standa upp, en
félagi hans, sem sat við hlið
hans, hafi í bæði skipti reynt að
hindra það — en árangurslaus.
Ekki er vitað, hvort Hilmar
hafði lesið aðvörunarskilti, sem
hangir við rásmark brautarinnar
en þar stendur bæði á dönsku,
svo og á helztu tungumálunum,
að bannað sé að rísa á fætur með
an á ferðinni stendur.
Staðfest er, að ekki hefur ver
ið um tæknilegan galla í braut
inni að ræða, sem hefði getað
valdið álysinu.
Slysið varpaði skugga yfir
allt það sem fram fór í skemmti-
garðinum og hætt var við venju
legu flugeldasýningu um lokun-
artíma garðsins.
M.s. Helgafell hefur verið að
losa vörur í höfninni í Kaup-
mannahöfn, en þangað kom skip
ið frá Árósum. í gær ríkti þar
sorg og sr. Jónas Gíslason dvaldi
um borð í skipinu í gær. Kista
Hilmars mun verða flutt heim
við fyrsta tækifæri.
— Rytgaard.
— Söltunarsild
Framhald af bls. 2.
síld af þremur bátum. Eru sílti
arskipin Helga og Viðey hæst og
jöfn með 229 tonn. Síldin er stór
og feit en mikið slegin vegna
brælu, sem var á heimleiðinnL
í gærdag var saltað á einu
plani 700 uppsaltaðar tunnur.
Var það fyrsta söltunarsíld sum
arsins. f nótt er siðan von á Báru
með 80 tonn og Ögra með 130
tonn af sbltunarsíld, sem skipin
fengu á miðunum 120—140 mílur
suðaustur af Gerpi.
— Fréttaritari
DESJAMÝRI, 11. ágúst: —
Fyrsta söltunarsíldin á sumr-
inu barst til Borgarfjarðar eystri
í dag með vélbátnum Bjarma.
Var hann með 35 tonn af ágætri
söltunarsíld. Síldin er þó nokk-
uð slegin vegna sjógangs, sem
báturinn hreppti á heimleiðinni.
Vonandi verður þetta ekki
einnig síðasta síldin á sumrinu,
því lítið var orðið um atvinnu
hér 1 héraðinu. — FréttaritarL