Morgunblaðið - 12.08.1966, Side 20

Morgunblaðið - 12.08.1966, Side 20
20 MORCU NBLAÐIÐ Fðstudagur 12. ágúst 1966 SAMBAND UNGRA SJÁLFSTÆÐISMANNA ÆSKAN OG FRAMTÍÐIN RITSTJÓRAR: SIGURÐUR HAFSTEIN OG VALUR VALSSON Með ungu fólki ú Siglufirði Skemmliferð í Norð- urlandskjörd. Vestra UNGIR Siálfstaeðismenn í norð- urlandskjcrdæmi vestra ráðgera að efna til skemmtiferðar laug- ardaginn 20. ágúst n.k. Er um þessar mundir unnið af kappi við skipulagningu og undirbún- tng ferðarinnar. Félögin er að ferð þessari standa eru félög ungra Sjálístæðismanna á Siglu firði, Skagafirði, Sauðárkróki og A.-Húnavatnssýslu. Ráðgert er að lagt verði af stað frá Siglu- firði snemma morguns þann 20. og ekið að Ketilási þar sem hóp- urinn sameinast þátttakendum frá Ólafs'irði og að síðan bætist fleira fólk við víða í Skagafirði ©g á Sauðárkróki. Úr Skagafirði verður haldið I A.-Húnavatassýslu en þar taka á móti hórnum félagar úr F.U.S. Jörundi. Yerður kaffi drukkið á fögrum stað og skemmtiatriði fara fram. Úr A.-Hún.- verður haldið yfir í V.-Hún. og m. a. ekið fyrir Vatnsnes, en það er mjög rómað fyrir fegurð sína. Frá Vatnsresi er íerðinni heitið á Blönduós, þar sem ferðafólk- inu gefst tækifæri til þátttöku £ héraðsmóti Sjálfstæðismanna þar. Að hérað.smótinu loknu verður haldið heimleiðis. Ekki er að efa að ferð þessi verði hin skemmtilegasta og er ástæða til að hvetja Sjálfstæðis- menn til almennrar þátttöku, í þessari glæsilegu ferð og munu allar nánari upplýsingar verða auglýstar innan skamms. Þess má geta að lckum að sú ný- breytni verður tekin upp að hafa skemmtiatriði í bílunum á leiðinnL Rætt um starf F. II. S. ftffarðar Unga fólkiff skemmtir sér og dansar nýjustu dansana. að lokum skora á ungt fólk í 'í----------------------- Hvaff vilt þú segja Jóhann um rekstrargrundvöllinn sem gjaldkeri félagsins? Hann verður að teljast nokk- uð góður. Að sjálfsögðu miðum við reksturinn eingöngu við það að hann sé . hallalaus, og lánar Sjálfstæðisflokkurinn hús sitt í því skyni án endurgjalds. Hljóm sveitin „Stormar", sem starfa mun með okkur í sumar, er ein göngu ráðin upp á áhættuþókn- un þ. e. hún fær allan aðgangs- eyri, en borgar af því skemmt- annaskatt og fleira. Annar reksturskostnaður greiðist með ágóða af veitingum. f>ví miður er húsið full lítið og allur kostn aður þar af leiðandi tiltölulega mikill, þannig að verð á aðgöngu miðum og veitingum er hærra en við hefðum kosið. En um það tjáir ekki að fást og við munum ótrauðir halda áfram á þeirri braut, sem nú hefur verið mörk uð. Siglufirði að leggja okkur lið að megni bæði hvað almenna starfrækslu og skemmtiefni við- víkur. Sterr. Bl. Strondasýsla og A-Barðastr.sýsla AÐALFTJNDIR félaga ungra Sjálfstæðismanna í Strandasýslu og A-Barðastrandarsýslu voru haldnir dagana 29. og 30. júlí sL Aðalfundur F.U.S. í Stranda- sýslu var haldinn á Hólmavík 29. júlí. Formaður félagsins var kjörinn Guðjón Jónsson, bóndL Gestsstöðum, en aðrir í stjóm voru kosnir þeir Einar Magnús- son, bóndi, Hvítuhlíð; Jakob Þorvaldss., verkamaður; Drangs- nesi; Sigurgeir Guðmundsson, bifrstj., Drangsnesi og Vígþór Jörundsson, skólastjórL Hólma- vík. Fjöldi nýrra félaga gekk í félagið á þessum aðalfundi. Hafiff þiff í hyggju að gera starfsemina fölbreyttari, er fram líffa stundir? Eins og Björn gat um áðan, er allt hér á byrjunarstigi og ekki eins vel úr garði gert og æskilegt hefði verið. En ef að- sóknin verður jafn góð hér eftir sem hingað til, þá er fyrirhugað að koma með skemmtiþætti og ýmislegt annað til tilbreytingar Það ber sérstaklega að hafa í huga í því sambandi að þó allt gangi vel í sumar með óbreyttu fyrirkomulagi er mun meiri nauðsyn á því að hafa vetrar- starfsemina í góðu lagi, Hún þarf bæði að vera fölbreyttari og líflegri tií þess að geta komið að nokkru gagni. Því viljum við Skemmtiferð F. U. S. í Árnessýslu FÉLAG ungra Sjálfstæðismanna í Árnessýslu mun efna til hinn- ar árlegu sumarferðar sinnar um næstu helgi, iþ.e. 13.—14. ágúst. Lagt verður af stað kl. 2 e.'h. á laugardag frá Selfossi og haldið til uppsveita Rang- árvallasýslu. Um kvöldið mun verða tjaldað i Drætti. Daginn gftir verður ekið um sveitirnar og m.a. komið að Keldum á Rang árvpilum. Til Selfoss mun syo verða komið að kveldi sunnu- dags. Sumarferðir eins og þessi hafa veri'ð fastur þáttur í starf- semi ungra Sjálfstæðismanna I Árnessýslu undanfarin ár og ver ið mjög vinsælar og önnur fé- lög ungra Sjálfstæðismanna oft slegizt í hópinn með Árnesing- um. Til þessa hefur oftást ver- ið haldið í Þórsníörk néma á síð- asta árL er farið var á sumar- mót Sambands ungra Sjálfstæð- ismanna í HiúsafellsskógL Sjá nánar um ferð þessa I auglýsingu á blaðsíðu 23. I sé á byrjunarstigi, þá hefur að- sóknin verið mjög góð, og við höfum ástæðu til þess að líta björtum augum til framtíðar- innar. Aðalfundur F.U.S. í A-Barða- strandarsýslu var haldinn á Reykhólum 30. júlí. Form. félags- ins var kjörinn Erlingur Magnús- son, bifrstj. Melbæ, en aðrir i stjórn þau Ingimundur Magnús- son, hreppstj., Hábæ; Magnús Jónsson, verkam., Seljanesi; Ól- ína Jónsdóttir, húsfrú, Miðhús- um og Páll Jónsson, verkam., Reykhólum. Framkvæmdastjóri Sambands ungra Sjálfstœðismanna, Sævar Björn Kolbeinsson, sat síðari fundinn sem fulltrúi S.U.S., en dagana áður hafði hann heim- sótt félagið í Strandasýslu. Á Siglufirði hafa ungir sjálf- stæðismenn tekið upp þá ný- breytni í félagsstörfum sínum, að gangast fyrir danskvöldi í Sjálfstæðishúsinu einu sinni í viku eða oftar. Þetta framtak hefur að vonum vakið nokkra athygi, og þótti fréttamanni S. U. S.-síðunnar því rétt að Hvenær hófuff þiff þessa starf- semi Björn, og hver er tilgangur hennar? Snemma sumars var málinu hreyft í fyrsta sinn á stjórnar- fundi hjá okkur og raunar á- kveðið þá að hefjast handa, en af óviðráðanlegum ástæðum töfð ust framkvæmdir nokkuð, eða Stjórn F.U.S. Njarffar. Frá vins tri: Þórhallur Daníelsson, ritari; Björn Jónasson, form; Jóhann Ólafsson, gjaldkerL líta inn á eitt slíkt kvöld og hafa tal af helztu forustumönn- um þar, með ljósmyndara sér til styrktar. Stjórn Njarðar, félags ungra Sjálfstæðismanna á Siglufirði er skipuð’ þeim Birni Jónassyni, Jóhanni Ólafssyni og Þórhalli Daníelssyni. Þegar við komum á staðinn, var þar þröngt á þingi og hvergi afdrep fyrir forvitna fréttasnápa nema í eldhúsinu. Þangað tókst okkur um síðir að stefna stjóminni til þess að Bvara nokkrum spurningum, og við ræddum fyrst við formann félagsins Björn Jónasson. þar til um miðjan júlí s. 1. það sem aðallega vakir fyrir okkur með þessari starfsemi er að bæta aðstöðu ungs fólks til þess að koma saman og skemmta sér samkvæmt tímans kröfum. Til þess að gera starfræksluna mögu lega og meira lifandi eru öll störf unnin af sjálfboðaliðum ungu fólki á aldur við það, sem skemmtir sér hér aðallega. Þetta er ekki einungis hagkvæmt fyr- irkomulag heldur stuðlar það að auknum kynnum manna í milli, en eitt höfuð markmið okkar er að sálfsögðu að efla kynni meðals ungs fólks, er fjörðinn byggir. Þó segja megi að allt varðandi þetta fyrirtæki Hljómsveitin Stormar, ein vinsælasta unglingahljómsveit á Norff urlandi um þessar mundir sér um fjöriff á skemmtunum F.U.S. Njarffar á Siglufirffi. Ljósm.: Steingrímur Kristinsson. En svo viff víkjum talinu að þér Þórhallur hvað finnst þér um áhuga félagsmanna og starfs vilja? Áhugi félagsmanna er mikill og mjög vel hefur gengið að fá menn til þess að starfa með okk ur. Þó væri fengur í að fá fleiri og raunar sem flesta, því þá er þeim mun meira hægt að gera.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.