Morgunblaðið - 15.09.1966, Page 12

Morgunblaðið - 15.09.1966, Page 12
MORGUNBLADIÐ FWmwhi<Saj*ur !». sept. 1909 (jH Skýrsla Efnahagsstofnunarinnar til Hagráðs þaer gera í Reykjavík. Raunverulegar tekjur kvœntra verka- og sjó- og iðnaðarmanna eru reiknaðar með þrenns kon- ar hætti: 1) atvinnutekjur færð ar til fasts verðlags samkvæmt ▼ísitölu neyzluvöruverðlags, þar sem sleppt er húsnæðiskostnaði, beinum sköttum og fjölskyldu- butum úr vísitölu framfærslu- kostnaðar, 2) atvinnutekjur um- reiknaðar samkvæmt vísitölu framfærslukostnaðar, og 3) ráð- stöfunartekjur umreiknaðar samkvæmt vísitölu neyzluvöru- verðlags. Samkvæmt fyrsta reikingshættinum er ekkert til- lit tekið til breytinga á beinum sköttum og fjölskyldubótum, samkvæmt öðrum eru þær breyt ingar vegnar á grundvelli þýð- ingar þeirra í vísitölu fram- færslukostnaðar, en samkvæmt þriðja hættinum eru breyting- arnar teknar til greina þegar við útreikning teknanna. Upphæð meðalatvinnutekna hækkar ár frá ári allt tíma- bilið, en þó tiltölulega lítið ár- ið 1961. Raunverulegar tekjur aukast einnig, og yfirleitt mjög ört, öll árin nema 1961, en þá er niðurstaðan nokkuð tvíræð, eftir því við hvaða mælikvarða er stuðzt, þar sem á því ári bar talsvert á milli hækkunar vísitölu neyzluvöruverðlags og framfærslukostnaðar í heild. Beinir skattar reiknast í vísi- tölu framfærslukostnaðar eftir greiðslumánuðum. Lækkun þeirra á árinu 1960 kom þannig fram í septembermánuði það ár og hafði mest áhrif á meðal- tal ársins á eftir, 1961. Verður þetta til þess, að umreikningur atvinnutekna samkvæmt vísi- MAÐUR kemur í manns stað er jafnan sagt, þegar einhver fellur frá. Vitaskuld er það svo. Lífið hefur sinn gang, elfur tím- ans streymir áfram, þungt og miskunnarlaust. Við lifum máske í dag en erum öll að morgni. En einhvernveginn er það svo, að mér finnst, að sæti Hendriks vinar míns Ottóssonar verði ald- rei skipað. Hann var ógleymanlegur mað- ur. Orð eru fátækleg, segja í raun inni ekki neitt, og ég finn, hve óumræðilega snauður ég er, þeg ar ég reyni að festa á blað þess- ar línur um svo ágætan mann. Æviatriði hans verða ekki rakin hér, — það er ugglaust gert ann- ars staðar og miklu betur en ég gæti gert. Þetta eiga aðeins að vera kveðjuorð, ekki minningargrein, kveðja frá samstarfsmanni í ára- tug, — orðvana er sá, sem reyn- ir að minnast svo fágæts mans, — svo mikillar manneskju. Hann var sui generis. Henrik Ottósson var fyrst og fremst manneskja, ef ég skil það orð rétt. Sárastur harmur býr með vandamönnum Hendriks, og þá fyrst konu hans, frú Henny, sem reyndist honum svo traustur föru nautur á vegferð lífsins, en engu að síður er fráfall hans missir okKar allra, sem vorum svo lán- söm að hafa þekkt hann. Lánsöm af því að kynni af Hendrik Ottós syni gátu ekki verið nema á einn veg: mannbætandi, göfgandi. Hendrik Ottósson var háttvís drengskaparmaður, sem engum vildi illt, — öllum gott. í huga mínum hæfa honum bezt orð Lincolns, sem sögð voru fyrir rúmri öld: „With malice toward none; with charity for all“, sem tölu framfærslukostnaðar sýnir 2.7% aukningu rauntekna á ár- inu 1961, en umreikningur sam- kvæmt vísitölu neyzluvöruverð- lags, sem ekki tekur tillit til lækkunar skattanna, sýnir jafn- mikla lækkun rauntekna eins og hin umreikningurinn sýnir hækkun, þ.e. 2.7%. Ráðstöfunar tekjurnar sýna mjög svipaða niðurstöðu og umreikningurinn á grundvelli vísitölu neyzluvöru verðlags (2.9% lækkun). Stafar þetta af því, að við útreikning ráðstöfunartekna er miðað við þá gjaldskyldu, sem myndast við álagningu hvers almanaksárs. Ahrif skattalækkunarinnar koma því fyrst fram í ráðstöf- unartekjum ársins 1960, en ekki ársins 1961. Stöðnun eða lækkun rauntekna árið 1961, eftir því við hvora visitöluna er miðað, stafaði eink um af hinu langa verkfalli það ár, en að nokkru af stöðnun kaupmáttar launa á vinnustund. Verkfallið hafði mest áhrif á tekjur verkamanna og iðnaðar- manna í Reykjavík og í minna mæli á meðaltekjur ■ þessara stétta fyrir allt landið, en raun- tekjur sjómanna hækkuðu nokk uð, enda voru síldveiðar þá tekn ar að glæðast að mun. Öll önnur ár tímabilsins, þ.e. árin 1962-1965, hefur orðið til- tölulega jöfn og mikil aukning raunveruxegi a atvinnu-og ráð- stöfunartekna. Nokkru minnst varð þó aukningin árið 1963. Stafaði það að mestu af stöðn- un sjómannatekna á því ári vegna nokkurs afturkipps síld- veiða. En auk þess þyngdist álagning tekjuskatta nokkuð á því ári. ef til vill mætti segja þannig á íslenzku: Engum hatur. Öllum góðvild. Thorolf Smith. t HEINDRIK Ottósson var starfs- maður fréttastofu Ríkisútvarps- ins í 20 ár. Hann var áhugasam- ur, fjölfróður og ritfær. Hann var líka ljúfmenni í samvinnu, léttur í lund, hjálpfús og ólatur til verka, hvort sem þau heyrðu honum til, beinlínis og strang- lega, eða hann hljóp undir bagg- ann þegar þörf var annarsstað- ar. Hann var því vinsæll maður, hvort sem menn voru honum ann ars sammála eða ekki, og Henrik var, þegar á fyrri árum sínum, einsteyptur og heilsteyptur mað- ur í lífsstefnu sinni og þjóðmála skoðunum. Sló þá oft í brýnu og hann fór sínu fram, en vinir hans og.félagar oft öðru, án þess að til vinslita kæmi. Hann varð ungur þaullesinn í pólitískum, socialistiskum fræðum sínum og byltingasögunni og þekkti per- sónulega nokkra framámenn byltingaráranna í Evrópu. Hann lét einnig fleiri félagsmál til sín taka, s.s. bindindismál hér áður meir og ýmis mannréttinda og tryggingamál. Áhugi hans á sögu og málvísindum kom snemma fram og af málfræði, einkum samanburðarmálfræði, hafði hann mikið yndi alla tíð. Hann hafði gluggað í mörg mál og nokkur þeirra las hann og skildi vel eða talaði sum, fleiri og fjar- lægari tungur en menn leggja hér almennt stund á. Á seinni árum hneigðist hugur hans að menningar- og trúarsögu Austur landa og flutti hann stundum Aukning raunverulegra at- vinnu- og ráðstöfunartekna yf- ir allt fimm ára tímabilið frá 1960 til 1965 hefur verið frá 33% til 44% eftir því við hvaða mælikvarða er miðað, en það samsvarar frá 5.9% til 7.6% aukningu til jafnaðar á ári. A sama tíma jukust raunveruleg- ar þjóðartekjur á mann um 32%, eða um 5.7% á ári til jafn- aðar. Munur hinna þriggja mælikvarða á tekjuþróun laun- þega stafar að mestu af hinu sérstæða hlutfalli atvinnu- og ráðstöfunartekna annars vegar og þjóðartekna hins vegar á árinu 1961. Sé reiknað frá því ári, telst heildaraukningin yfir fjögur árin frá 1961 til 1965 vera 37% til 41% og meðalaukn- ingin á ári 8% til 9%. Aukning raunverulegra þjóðartekna á mann var á sama tíma 6.3%. Samkvæmt þeim tölum, sem hér hafa verið tilfærðar, hafa rauntekjur launþega á umræddu tímabili aukizt nokkru meira en raunverulegar þjóðartekjur. Hæpið er þó að draga af þessu þá ályktun, að hlutdeild laun- | þega í þjóðartekjum hafi auk- izt verulega. Allir eru þessir útreikningar óvissu undirorpn- ir og taka verður sérstaklega tillit til þess, að upplýsingar um tekjuþróun launþega eru fengn ar úr framtölum tekna til skatts og sennilegt má telja, að þessi framtöl hafi batnað nokkuð síð- ustu árin. Getur þetta, a.m.k. að einhverju leyti, skýrt þann mismun, sem hér keir.ur fram á milli þróunar tekna og þjóð- artekna. Á hinn bóginn mun það sizt of langt gengið að telja að vöxtur raunverulegra tekna útvarpserindi um þau efni. Hendrik Ottósson var á yngri árum sínum forkunnar vel máli farinn, ákafamaður í málflutn- ingi, fimur og fjörugur. Seinna lagði hann að mestu af þessa ræðumennsku og opin- ber afskipti sín af þjóðmálum, nema helzt á tímamótum, þegar rifja skyldi upp gamla daga. Það varð eftirlæti hans á seinni ár- um að rifja upp æsku sína og sögu Reykjavíkur — sem auðvit- að var saga úr Vesturbænum. Hann skrifaði ljómandi fallegar og léttar bækur um æskuminn- ingar sínar og þær urðu vin- sælar, eins og verða mátti og komu víða við, bæði gamanmál og alvarleg átök og örlög manna. Hann átti gott heimili og ágæta konu. Hendrik Ottósson hafði nú verið veikur um all- langt skeið og farinn að kröftum, en kom þó í fréttastofuna þegar hann gat, venjulega glaður og reifur. Það var hann alla tíð í eðli sínu, og áhugasamur human isti, með hugann við menn og málefni um víða veröld og Vesturbæinn. í honum höfðu brotizt mörg mestu umbrot sam- tíma hans, hann var lifandi þátt- takandi í stríði síns tíma í blóma lífs síns og einbeittur en hóf- samur áhorfandi er á árin leið. Hann var góður drengur og ágætur félagi og sérkennilegur maður. Vilhjálmur Þ. Gíslason. launþega, hvort sem um atvinnu tekjur eða ráðstöfunartekjur er að ræða, svari mjög nálægt því til vaxtar raunverulegra þjóðartekna á þessu tímabili. Enda þótt hlutfall tekna laun þega og þjóðartekna hafi þannig að öllum líkindum tekið litlum breytingum, þegar yfir allt tíma bilið 1960-1965 er litið, hefur það þó breytzt talsvert einstök ár timabilsins og var auk þess nokkuð sérstætt við upphaf þess. Árið 1960 var hlutfallið metið á föstu verð'agi laun- þegum hagstæðara en nokkurt annað ár, sem skýrslur ná til, þ.e.a.s. allt frá árinu 1948. Mið- að við 100 árið 1948 var hlut- fall atvinnutekna c>g þjóðar- tekna árið 1960 102.8. en ráð- stöfunartekna og þjóðart.ekna 103.5. (Að vísu var hlutfall at- vinnutekna og þjóðartekna ár- ið 1959 ennþá hagstæðara, 105.9, en þá var skattlagningin aftur á móti óhagstæðari, svo að hlut fall ráðstöfunartekna og þjóðar tekna varð 98.6). Tekjuhlutföllin 1948 mörkuð- ust af hinum sérstöku skiiyrð- um eftir styrjöldina. Voru þau launþegum mun hagstæðari en allt árabilið 1950-1958. Tekju- hlutföllin 1960 voru með svip- uðum hætti undir áhrifum verð falls útflutningsafurða það ár, en það verðfall urðu atvinnuveg- irnir að bera án þess að það kæmi niður á launþegum. Arið 1961 færðist hlutfallið launþeg- um í óhag, ekki sízt vegna þess, að viðskiptakjör færðust aftur til þess, sem áður hafði verið. En öll hin árin, 1962-1965, færð- ist hlutfallið launþegum í hag. Þó hækkuðu ráðstöfunartekjur ársins 1963 lítið eitt minna en þjóðartekjur og svo til jafn- mikið og þjóðartekjur 1964. Helztu breytingarnar gerðust árið 1962, þegar þjóðartekjur á mann hækkuðu um tæp 7%, en atvinnu- og ráðstöfunartekj- ur frá 8.5 til tæpra 10%, og ár- ið 1965, þegar hliðstæðar hækk- anir voru 7% samanborið við 11 til 13%. En síðustu árin ber sennilega að draga nokkuð úr afstöðubreytingunni vegna fram talsbóta, eins og að framan get- ur. Innbyrðis hlutföll milli tekna þeirra starfsstétta, sem úrtak- ið nær til, hafa haldizt lítið breyttir yfir allt tímabilið, að því undanteknu, að sjómenn náðu um 15% forskoti árið 1961 og hafa að mestu haldið því síð- an. Þess ber þó að gæta, að töl- urnar sýna meðaltal tekna síld- arsjqpianna, sem hafa hækkað mjög mikið, og tekna annarra sjómanna, sem hafa tæplega gert betur en halda til jafns við aðrar launatekjur. Iðnaðarmenn náðu einnig nokkru forskoti fram yfir verkamenn framan af, en það jafnaðist á árin 1964. Mjög lítill munur er á þróun tekna í Reykjavík og á landinu í heild, að öðru leyti en því, að sjómanna- tekjur í Reykjavík hafa aukizt nokkru örar en annars staðar. 5. Þróun kaupgjalds. Þróun samningsbundins kaup gjalds er að jafnaði þýðingar- mesti þátturinn í þróun atvinnu tekna. Talsverður munur er þó oft á þróun kauptaxta og at- vinnutekna, þar sem aðrir þætt- ir í tekjuþróuninni en kaup- gjaldið sjálft breytast oft veru- lega. Verður nánar að því vik- ið hér á eftir, hvern þátt breyt- ingar kauptaxta hafa átt í þróun atvinnutekna á undanfömum árum og hver áhrif annarra þátta hafi verið. Samtök starfsstétta og atvinnu rekenda eiga beina aðild að ákvörðun samningsbundinna kauptaxta, en geta aðeins haft óbein áhrif á aðra þætti í tekju þróuninni. Kauptaxtarnir og kaupmáttur þeirra marka al- menn lágmarkskjör í hverri grein. Aðrir þættir í myndun teknanna eru hins vegar ýmist háðir auknu vinnuframlagi eða ýmsum sérstökum, jafnvel ein- staklingsbundnum skilyrðum. Kauptaxtarnir hafa þannig mikla grundvallarþýðingu, bæði sem almenn og ófrávíkjanleg krafa á hendur atvinnuvegunum og sem mörkun almennra lág- markslífskjara launþega við til- tekið vinnuframlag. Á hinn bóg inn sýnir þróun þeirra ekki all- ar breytingar á tekjum og lifs- kjörum launþega né heldur á kostnaði atvinnurekstrarins. Undanfarin ár hefur verið unnið allmikið að því að koma upp úrvinnslu úr kjarasamning um stéttarsamtaka. Hingað til hefur það starf verið unnið í Efnahagsstofnuninni, en Kjara- rannsóknarnefnd hefur tekið að sér að sinna því framvegis. Helztu niðurstöður þessarar úr- vinnnslu koma fram í töflum 8-10 Ná þær t>l kaupgjaldsþróunar verkafólks og iðnaðarmanna og rekja þróunina í ársmeðaltöl- um vísitalna kauptaxta og kaup máttar. Meðalhækkun taxt- anna á ári frá 1960 til 1965 reynist tæp 15%, og einnig mjög svipuð þessu, sé reiknað til 1. júní 1966. Sé miðað við árið 1961 í stað 1960, er hækk- unin nokkru meiri, eða um 17%. Reiknað milli tímamarka frá upphafi verðstöðvunar 1. marz 1959 til 1. júní 1966 er hækk- unin aftur á móti nokkru minni, eða tæp 13%. Til samanburðar má geta þess, að meðalhækkun kaupgjalds í iðnaðarlöndum Vestur-Evrópu hefur verið um 8% á ári frá 1960-1965. Þar er þó miðað við raunverulegar kaupgreiðslur, en ekki taxta. Verulegur stígandi hefur ver- ið í kaupgjaldshækkuninni fram til 1964. Meðalkauphækkun verkafólks og iðnaðarmanna frá fyrra ári var 7% árið 1961, 13.7% 1962, 15.0% 1963, 23.3% 1964. Meðalhækkun ársins 1965 var nokkru minni, 11.6% hækkun grunnlauna og 15.5% með verð- lagsuppbót. Fram að 1. júní þessa árs er hækkunin frá með- altali fyrra árs 19.6% með verð lagsuppbót. Reiknuð með þess- um hætti kemur kaupgjalds- hækkunin að miklu leyti fram árið eftir að hún gerist. Þanmg mælist meðalhækkun ársins 1964 mest, eða 23.3%, enda þótt lang- minnstar hækkanir verði á bvf ári. Stafar það af hinni miklu hækkun í desember 1963, sem félJ að svo til engu leyti á það ár, en aftur á móti á allt árið á eftir. En kaupgjaldshækkuuin sett fram með þessum hætti er að sjálfsögðu sambærileg við hækkun verðlags og tekna milli ára. Allt tímabilið frá 1960 hefur kaupmætti meðalkaupsins á vinnustund þokað fram við vísi- tölu framfærslukostnaðar, þ.e. að meðtöldum áhrifum beinna skatta og fjölskyldubóta. Aukn- ing kaupmáttarins var tiltölu- lega hægifyrstu þrjú árin, 1961- 1963, eða 1.9% að meðaltali ' á ári, en hefur verið stórstíg síð- ari árin, 3.4% árið 1964, 7.9% 1965, og um 8% frá fyrra ári hinn 1. júní 1966. Meðalhækkun þessara þriggja ára gæti sam- kvæmt þessu orðið um 6.5% á ári. Alls hefur kaupmættinum samkvæmt vísitölu framfærslu- kostnaðar skilað fram um tæp 28% frá 1960 til 1. júní 1966, er samsvarar 4.2% meðalaukn- ingu á ári. Aukning kaupmáttarins skilar nokkru hægar fram sé miðað við vísitölu neyzluvöruverðlags. Meginhluti þess mismunar kem- ur þó fram á fyrsta árinu, þ.e. á milli áranna 1960 og 1961, þegar gætir verulegra áhrifa af lækkun beinna skatta og aukn- Framhald á bls. 25 Að Hendrik Ottóssyni látnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.