Morgunblaðið - 15.09.1966, Side 21

Morgunblaðið - 15.09.1966, Side 21
Ffmmtudfagur 13. sept. 1939 MORGUNBLAÐIÐ 2! Sjötug: Morgrét Guðmunds Eskifirði dóttir TÍMINN líður hratt og er mér sízt láandi þótt ég efi að mín ágæta vinkona sé orðin 70 ára. Bæði er það að mér finnst er ég lít til baka ekki svo ýkjalangt síðan við vorum saman á Eski- firði og hún þá í blóma lífsins og svo hitt að útlitið segir allt annað. Maður áttar sig ekki á breyttum tímum. í mínum upp- vexti þóttu þeir er náð höfðu sextugsaldri orðnir gamlir en nú er það bezti aldurinn. Þannig hefir mér farið. Mér finnst nú allir svo ungir. En tímamerkjun- um breytir enginn. Gott skap lengir lífið og það hefir áþreif- anlega sannazt á Margréti, því ekki minnist ég þess að hafa nokkru sinni hitt hana öðruvísi en í góðu skapi. Þar fyrir er ekki sagt að hún hafi ekki getað skipt skapi, en hún hefur jafnan haft lag á að beita því þannig að sómi var að. Ég man marga erf- iða tíma heima þegar ég var að komast á legg. Margrét þekkti vel þessa tíma en lét ekki baslið smækka sig heldur horfði fram og sigraði. Ég á margar góðar minningar sem tengdar eru afmælisbarn- inu. Mamma og hún voru miklir vinir og því kom hún oftar til okkar en margur annar. Var þá oft glatt á hjalla, engin lognmolla og drungi. Nei, það var hressandi blær í kring um Margréti og enn þann dag í dag heldur hún öllu sínu, glaðværðinni og elskuleg- heitunum. Þeir eiginleikar fylgja henni og endast. Margrét er fædd á Eskifirði og þar hefir hún alla tíð átt heima. Henni er byggðarlagið kært. Mörgum ferðamanninum þykir þar þröngt um sig og fjöllin of nærri og víst er um það að þau minnka sólskinið sem streymir um bæ- inn, en þar eru margar fallegar hæðir sem gaman er að horfa af og þarf ekki langt að leita þeirra. En hvað um þetta. Sjóndeildar- hringur Margrétar er víður og nær þarna langt út yfir. Hún er af góðu bergi brotin. Foreldrar hennar Björg Jónasdóttir, Sím- onarsonar á Svínaskála og Guð- mundur Ásbjarnarson fríkirkju- prestur »settu um langan tíma þann svip á Eskifjörð sem seint mun gleymast. Heimilið var eitt af öndvegisheimilum og stóð jafnan með glæsibrag. Guðmund- ur fór alltof fljótt og var öllum harmdauði. Sérstaklega Margréti sem var hans uppáhald. En þá var sýnd stllling og styrkur. Það er mér í minni. Björg hóf þá gistihúsrekstur sem ennþá er við líði og annaðist hann af miklum dugnaði til dán- ardægurs, en hún varð rúmlega 90 ára. Börnin hennar fylgdu þar vel á eftir. Margrét giftist árið 1928 Auðbirni Emilssyni málara- meistara. Hann er látinn fyrir nokkrum árum. Þau eiga tvo drengi sem dvelja með móður sinni á Eskifirði. Er það hennar lífshamingja að fylgjast með vel- gengni þeirra. Nú þegar ég lít yfir farinn veg þá er margs góðs að minnast sem of langt yrði upp að telja enda ekki tilgangur þessara fáu orða. En efst er þakklætið fyrir að hafa jafnan átt svo marga góða samferðamenn á lífsleiðinni. Það er stærsta hamingja hvers og eins. Það er enginn svikinn af vin- áttu Margrétar Guðmundsjjóttur, því hennar ánægja felst í að geta orðið að liði. Góðvild hennar er alkunn. Ég er einn þeirra mörgu sem á þessum degi senda henni hlýj- ar þakklætiskveðjur og óska henni alls hins bezta í komandi framtíð og okkur þess að eiga hana enn um langan tíma á með- al okkar. Árni Helgason. IJtsölunni er lokið Nýjar vörur komnar. Litla Sköbúðin Laugavegi 38. Til sölu Ársgamall SAAB, árgerð 1965. Litur. grænn. - Verð kr. 165,000,- Til sýnis í dag við SAAB umboðið, Langholtsvegi 118, sem veitir all- ar frekari upplýsingar. Tónlistarskóli Skólinn tekur til starfa 1. október — Kennslu- greinar: píanó, fiðla, selló, orgel, Dlásturshljóðfæri, tónfræði alls konar, tónlistarsaga. — Foreldrum 6—8 ára barna skal sérstaklega bent á músikfönd- urdeild, sem starfar á eftirmiðdögum. Innritun og upplýsingar hjá skólastjóra kl. 17—19 daglega. Simar 50914 og 51904. Skólastjóri. VERZLUNARSTARF VILJUM RAÐA mann til afgreiðslu i herrafataverzhm, ennfremur afgreiðslustúlku með nckkra málakunnáttu. Starfsmannahald SÍS. 5TARFSMANNAHALD i.w Skartið yðar fegursta LANCÖME fegrunarvörurnar gera fagrar konur fegurri. Fást eingöngu hjá: SÁPUHÚSINU ÓCÚLUS TÍZKUSKÓLA ANDREU Hafnarfjarðar Apóteki. 2 ára ábyrgð 5 iafnaðargreiðslur Olivetti skólaritvélar eru ekki dýrar, en til þess að allir geti eignazt beztu skólaritvél- arnar, bjóðum við kaupendum að fá þær með 5 jöfnum afborgunum. olivetti Yfirburða gæði og skrifthæfni Olivetti ferðaritvéla skipa þeim í fremsta sæti á heimsmarkaðinum. Við bjóðum yður þrjár gerðir Olivetti ferðaritvéla, sem allar eru frábærar að gæðum og styrkleika. Fullkomin viðgerðarþjónusta á eigin verkstæði. G. HELGASON og MELSTEÐ HF. Rauðarárstíg 1. — Sími 11644.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.