Morgunblaðið - 16.09.1966, Side 1
32 siOur
53. árgangur
210. tbl
. — {(p,
feptember 1966
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Gemini 11 lenti vel
Fyrsta fullkomna sjálfstýrða
lendingin hjá geimfari
Cape Kennedy, 15. september
NTB—AP.
BANDARÍSKU geimfararnir
Pet-e Conrad og Richard Gordon
framkvæmdu í dag fyrstu full-
komlega stjálfstýrðu lendinguna
í sögu geimferðanna, er þeir
lentu á Atlantsbafinu heilir á
húfi rétt fyrir austan Kennedy-
höfða, aðeins 2,4 km frá flug-
móðurskipinu Quam eftir
þriggja daga mjög vel heppnað
ferðalag um geiminn. Gemini-11
tilraunin er talin vera ein bezt
heppnaða til þess og áform
Bandaríkjamaima til þess að
senda mannað geimfar til tungis
ins hefur ineð Gemini 11 tekið
stór skref fram á við á mörg-
um sviðum.
Conrad og Gordon höfðu verið
71 klst. og 15 mín. úti í geimn-
um, frá þvi að þeim var skotið
á loft frá Kennedy höfða s.L
mánudag. Lendingin í dag fór
fram að öllu leyti undir stjórn
reikniheila um borð í geimfar-
inu og hún var nákvæmari en
lending nokkurs geimfars til
þessa. Sást vel til geimfarsins
frá Quam, er geimfarið lenti um
700 sjómilur frá strönd Florida.
Fyrra nákvæmnismet varðandi
lendingu hafði áður verið sett
af áhöfn Geinini 9, en hún hafði
lent 5,6 km frá sínum fyrirfram
ákveðna lendingarstað.
Hið einn, sem ekki tókst sam-
kv. áætlun í þessari geimferð,
var s.l. þrlðiudag, er í ljós kom,
Framhald á bls. 31
7i
EINS cg frá hefur verið
skýrt, voru í fyrradag undir-|
ritaðir í Washington láns-,
samningar milli Alþjóða-
bankans og Landsvirkjunar-1
innar. Samkvæmt þeim samn-l
ingum lánai Alþjóðabankinn|
Landsvirkjun fjárhæð er svar,
ar til 18 millj. Bandaríkja-
dollara, til virkjunarfram-
kvæmda við Búrfell. Lánið er
veitt gegn sjálfskuldarábyrgð,
ríkissj óos og var samtímis
undirritaður sérstakur ríkis-
ábyrgðarsamningur þar af
lútandi milli ríkissjóðs og Al-
þjóðabankans.
Myndin ei tekin við undir-
ritun samninganna og sjást á
henni sitjandi frá vinstri:
Pétur Thorsteinsson sendi-
herra, er ritaði undir af hálfu
ríkissjóðs, J. Burke Knapp
bankastjóri, er undirritaði af
hálfu Alþjóðabankans og dr.
Jóhannes Nordal er ritaði
undir af hálfu Landsvirkjun-
ar.
Standandi eru tveir af 4
bankastjórum Alþjóðabank-Í
ans þeir Vilhjálmur Þór og/
Odd Hckedal. J
De Gaulle:
Frokkland mun
eignost
vetnissprengju
París, 15. sept. NTB.
DE GAULLE forseti hrósaði í
dag mjög þeim framförum, sem
franskir vísindamenn hafa náð í
því skyni að búa til vetnis-
sprengju. Sagði hann, að þetta
myndi hafa mikla þýðingu fyrir
Frakkland og heimsfriðinn. Sá
dagur nálgast, sagði forsetinn,
að Frakkland mun ráða yfir
vetnisvopni og þar með sá dagur,
að enginn mun þora að ráðast
á okkur.
De Gaulle forseti sagði þetta,
er hann gerði frönsku stjórninni
grein fyrir hinni þriggja vikna
löngu ferð sinni til Franska
Sómalilands, Eþiopíu, Kambodiu
°g ýmsra eyja í Suður-Kyrrahafi.
Fyrr í þessari viku kom hann
til tilraunasvæðis þess á Kyrra-
hafi, þar sem á að sprengja fyrstu
vetnissprengj u Frakka sennilega
einhvern tímann á árinu 1966.
Ráðstefnu brezku samveld-
islandanna lokiö
Frakkland og Kína harðlega
gagnrýnd fyrir kjarnorku-
vopnatilraunir
London, 15. ágúst. NTB-AP
RÁÐSTEFNU brezku samveldis-
landanna lauk í dag. í lok henn-
ar birtu leiðtogar 22 samveldis-
ríkja sámeiginlega yfirlýsingu,
þar sem Frakkland og kínverska
alþýðulýðveldið eru gagnrýnd
harðlega fyrir að framkvæma til
raunir í andrúmsloftinu með
kjarnorkusprengingar. í Rhóde-
síumálinu, sem verið hefur eitt
helzta verkefni ráðstefnunnar,
var vísað til sérstakrar yfirlýs-
ingar, sem birt var s.l. miðviku-
dag, og þar sem gerð var grein
fyrir harðari stefnu Breta gagn-
vart rikisstjórn Ian Smiths.
1 yfirlýsingunni skoruðu leið-
togarnir, sem eru fulltrúar 750
milljón manna víðs vegar úr
heiminum eða um 25% allra
jarðarbúa, á öll ríki heims að
banna tilraunir með kjarnorku-
vopn. Ennfremur er skorað á
Frakkland og kínverska alþýðu-
lýðveldið að taka þátt í hinni
alþjóðlegu afvopnunarráðstefnu.
I yfirlýsingunni segir ennfrem
ur, að samveldislöndin mu
halda áfram að gera það sem
í þeirra valdi stendur til þess að
friður komist á í Vietnam. Þá
kemur það fram, að flest sam-
veldislöndin eru þeirrar skoðun-
ar, að Sameinpðu þjóðirnar eigi
að afnema umboð Suður-Afríku
yfir Suðvestur-Afríku, en síðan
eigi Sameinuðu þjóðirnar að fara
með stjórn landsins unz það
verður sjálfstætt.
í fréttum frá London segir, að
Framhald á bls. 31
Nýi húskóli
í Danmörku
Óðinsvéum, 15. sept. — NTB
ÞRIÐJI háskóli Danmerkur var
í dag vígður í Óðinsvéum. 1
byrjun verða þar 180 stúdent-
ar, en á komandi árum á há-
skólinn að stækka til þess að
létta á hinum tveimur yfirfullu
háskólum í Kaupmannahöfn og
Árósum. K.B. Andersen, kennslu
málaráðherra, lagði samt áherzlu
á það í vígsluræðu sinni, að
Óðinsvéa-háskóli ætti að starfa
eins sjálfstætt og unnt væri.
Elzti háskóli Danmerkur er^
Kaupmannahafnarháskóli, sem
stofaður var árið 1479. Það var
ekki fyrr en 1929, að annar há-
skóli, Árósaháskóli, var stofnað-
ur. Við vígslu háskólans í Óðins
véum í dag voru m.a. viðstödd
dönsku konungshjónin og Bene-
dikte, prinsessa.
20 manns fórust á Norðursjó
er Vestur-Þýzkur kafbátur
sökk þar í fyrradag
Haag, 15. september — NTB-AP
LÍTILL vestur-þýzkur kafbátur
sökk í Norðursjó í gær og að-
eins einn maður af 21 manns
áhöfn virðist hafa komizt lífs
af.
Ekki varð kunnugt um skips-
tapann fyrr en í morgun, er
Aðgerðir vesfurþýzku stjórnarinnar gegn verðbólguþróun:
Dregið skal úr opinberum gjöldum
og eftirlit aukið með verðhækkunum
Bonn, 15. sept. — NTB-AP
LUDWIG Erhard, kanzlari
Vestur-Þýzkalands, lagði í
gær fyrir Sambandsþingið til
lögur stjórnarinnar, sem
miða að því að treysta efna
hagslíf landsins. Dregið skal
úr opinberum gjöldum, eft.ir
lit verður aukið með verð-
lagshækkunum og hvatt verð
ur til fjárfestingar í arðbær-
um framleiðslugreinum.
Erhard beindi þeim tilmæl-
um til þingmanna að afgreiða
frumvarpið íljótlega, svo að
ekki þyrfti að koma til
ástands svipað því, sem orð-
ið hefði í öðrum löndum —
„ég þarf ekki að nefna nein
nöfn í því sambandi“, sagði
hann, en hélt áfram, að stjórn
in óskaði ekki eftir að g'rípa
þyrfti til þess ráðs að binda
kaup og verðlag eða herða
eftirlit með gjaldeyri.
Kristilegi demókrataflokk-
urinn hefur þegar sámþykkt
ráðstafanir Erhards, en til
þess að frumvarpið verði að
lögum, þarf meiri hluta %
þingmanna, þvi að frumvarp-
ið felur í sér stjórnarskrár-
breytingu. Vegna þessa geta
jafnaðarmenn stöðvað fram-
gang frumvarpsins, ef þeir
eru því mótfallnir.
Að undanförnu hafa stjórn
ir margra sambandsríkjanna’
verið gagnrýndar harðlega
fyrir of mikla eyðslusemi, og
vék Erhard að þeim í ræðu
sinni og sagði þar: „Við get-
um ekki eytt meiru en við
vinnum fyrir.“ Sagði kanzlar
inn ennfremur, að frumvarp-
inu væri ætlað að miða að
meiri stöðugleika í efnahags
málum, en ekki aðeins að
leysa þau vandamál sem brýn
ast bæri að leysa.
brezki togarinn „St. Martin" frá
Lowestoft tilkynnti, að hann
hefði bjargað einum manni af
kafbátnum „Hai“, en samkv.
upplýsingum mannsins hafði bát
urinn sokkið um kl. 18 í gærw
Maðurinn, sem bjargað var, heit
ir Silberhaben og var bátsmað-
ur. Sagðist honum svo frá, að
skyndilega hefði sjór tekið að
streyma inn í vélarrúm kafbáts
ins, er þeir voru í nágrenni við
Doggerbank.
Átta menn, sem voru á þilfari,
björguðu sér í fyrstu með því
að stökkva fyrir borð. Skipverj-
ar á St. Martin töldu sig hafa
séð fjóra menn í sjónum, en ekki
hefur verið greint frá því, að
þeir hafi náð fleiri mönnum um
borð, né önnur skip orðið mann-
anna vör.
Varnarmálaráðuneytið í Bonn
staðfesti í morgun, að kafbátsins
væri saknað. Hefði hann sokkið.^
eftir að leki kom að honum. '
Hefði þegar í stað verið hafin
þátttöku skipa og þyrlna frá V-
umfangsmikil leit að honum með
Þýzkalandi, Bretlandi, Hollandi
og Danmörku og stýrði tundur-
spillirinn Bayern leitinni.
Kafbáturinn sem sökk, var
smíðaður í síðari heimsstyrjöld-
inni en var sökkt í Eystrasaiti
rétt fyrir stríðslok. Honum var
Framhald á bls. 31