Morgunblaðið - 16.09.1966, Page 2
2
NORCU N BLADIÐ
Fostudagur 16. sept. 196t>
Verii að flytja vélar í nýja
dælustöð við Bolholt
— Búast má v/ð nokkrum truflunum
á hitaveitukerfinu á meðon
JÓHANNES Zöega, hitaveitu-
*" stjóri Reykjavíkurborgar, boðaöi
fréttamenn blaða og útvarps á
sinn fund í gær og skýrði þá frá
og sýndi þær helztu framkvæmd
ir sem nú eru á döfinni hjá hita-
veitunni.
Jóhannes sagði, að þessa dag-
ana væru að hefjast ýmsar teng-
ingar á aðalæðum Hitaveitu
Reykjavíkur og mætti því búast
við truflunum á rekstri hennar
í hluta dreifikerfisins við og við
næstu vikunnar af þeim sökum.
Nú væri verið að reisa nýja
millidælustöð við Bolholt, sem
kæmi til með að taka við ölla
vatninu frá borholum í borgar-
landinu .Stöðin væri nú í bráða-
birgðaskýli á Kaupmannstóni,
neðan við innsta hluta Lauga-
vegs. Yrðu vélar fluttar þaðan
^og í nýja húsið i næstu viku og
”” gæti þá orðið lækka'ður þrýst-
ingur á nokkrum svæðum ,
nokkra daga. Auk vélanna sem
fyrir eru, yrði bætt við tveim
nýjum og öflugum dælum og
værf þegar lokið vinnu við að
setja þær niður. í>á væri nýju
millidælustöðinni einnig ætlað
að vera dreifistöð fyrir norðan-
verð Holtin.
Safnæðakerfið frá borholum
að millidælustöð. sem lægi ofan-
jarðar um jarðhitasvæðið hefði
nú verið endurnýjað vegna flutn
ings stöðvarinnar og yrði nú
neðanjarðar. Tenging holanna
við nýju safnæðarnar væri þeg-
ar hafin og færi ekki hjá því, að
stundum yrðu 2—3 borholur ó-
virkar á meðan tengingin fæii
fram.
Þá ætti ennfremur að skipta
um dælur í borholunum. Hefði
það verið ætlunin að gera það í
júlí-ágústmánuði en það hefði
dregizt úr hömlu að fá dælurnar
Hestur ’
leggst
áfé
Bæ, Skagaíirði, 15. sept.
SÁ einstæði atburður gerðist
á bæ einum hér í Skagafirði,
að hestur lagðist á fé, en slíkt
vita menn ekki að gerazt hafi
hér áður.
Var hann búinn að bíta og
sparka tvær kindur, og var
með þá þriðju er til hans sást
og var hann stöðvaður.
— B.J.
afgreiddar utanlands frá. Miklir
erfiðleikar hefðu verið á rekstri
borholudælanna undanfarin ár,
þar sem erfiðlega gengi að fá
dælur fyrir kalt vatn, en hinn
hái hiti vatnsins leiddi það af
sér, að steinflísar eða leir, sem
stundum losnaði úr borholu-
veggjunum, skemmdi áslegur
dælanna. >að hefði vissulega ver
ið æskilegra ef þessar frám-
kvæmdir hefðu farið fram fyrr
í sumar og segja mætti, að nú
væru orðin síðustu forvöð fyrir
þessar framkvæmdir.
Þá hefði annar hitaveitugeym-
irinn sem byggja á á Öskjuhlíg
átt að vera tilbúinn 1. okt. —
Verktakinn er tekið hafði að sér
undirstöður hans hefði hinsveg-
ar ekki getað skilað af sér verK-
inu fyrr en hálfum öðrum mán-
uði á eftir áætlun og mætti því
búast við að það drægist í nær
jafnlangan tíma að hann yrði
tilbúinn, eða fram í nóvember.
Með tilkomu nýja geymisins
mundu miðlunarmöguleikar auK-
ast a'ð miklum mun. Gömlu
geymarnir væru nú orðnir alltof
litlir fyrir allt dreifikerfi Hita-
veitunnar, sérstaklega í snögg-
um veðrabrigðum og eins ef bh-
anir yrðu á dælum. Geymarnir
sem hvor um sig er um 700 fei-
metrar að flatarmáli og 13 metra
háir koma til með að taka um
9000 rúmmetra hvor. Taka ætti
seinni geymirinn í notkun á
næsta ári. Geymarnir yrðu úr
stáli og er það Stálsmiðjan sem
sér um uppsetningu þeirra. At-
hyglisvert við byggingu þeirra
er það, að vatni verður dælt í þá
jafnóðum og vinnupöllum og þaki
þannig fleytt upp, jafnframt því
sem þéttleiki þeirra er reyndur.
Einnig væri nú að ljúka við-
gerð á stærri katlinum í vara-
stöðinni við Elliðaár og ykist þá
verulega afl þeirrar stöðvar til
aðstoðarhitunar. Ketill þessi
hefði verið óstarfhæfur í nær
tvö ár.
Aðspurður sagði hitaveitu-
stjóri að vatnsmagnið sem
Hitaveitan hefði yfir að ráða
væri nú um 540 sek lítrar. Frá
Mossfellsveitunni kæmu um 300
sek. lítrar af 80 gráðu heitu
vatni og frá Reykjavíkursvæð-
inu kæmu um 240 sek. lítrar af
130 gráðu heitu vatni. Vatns-
magn þetta annaði ekki þeirri
þörf sem núverandi kerfi segði
til um, og yrði því að nota
kyndistöðina til upphitunar þeg
ar álagið væri mest. >ví yrði
ekki hægt að tengja þau hverfi
sem nú væru, eða ættu að bygg-
ast upp inn á hitaveitukerfið.
Ekki væri hægt að spá um það
hvenær framkvæmdir hæfust á
Hengilssvæðinu, en talið væri að
virkjun þess mundi borga sig
fjárhagslega, ef það yrði tilbúið
á árunum 1970—1971. Við
Hengil hefðu verið gerðar til-
raunir í sumar og hefði árang-
ur þeirra verið mjög jákvæður
Boruð hefði verið um 800 metra
djúp hola og hefði fengizt 260
gráðu heitt vatn þegar komið
var niður á 720 metra dýpi.
Hitaveitustjóri sagði, að hin
nýja dælustöð og miðlunargeym
ar á Öskuhlíð kæmu til með
að bæta til muna ástandið í
gamla miðbænum. Á meðan
unnið væri að þeim fram-
kvæmdum sem ofan greinir væri
ekki komizt hjá því, að nokkur
truflun yrði á rekstri Hitaveit-
unnar, en að sjálfsögðu yrðu
menn ekki fyrir meiri óþægind-
um en nauðsyn krefði.
Sendinefnd
íslands ú
allsherjnrþingi
S.Þ.
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
izt eftirfarandi fréttatilkynning
frá utanríkisráffuneytinu:
Sendinefnd íslands í upphafi
21. allsherjarþings Sameinuðu
þjóðanna verður þannig skipuð:
Emil Jónsson, utanríkisráðherra,
formaður
Hannes Kjartansson, sendiherra,
varaformaður,
Benedikt Gröndal, ritstjóri,
Jóhannes Elíasson, bankastjóri,
Kristján Albertsson, sendiráðu-
nautur,
Friðjón Þórðarson, sýslu-
maður, — og
Haraldur Kröyer, sendiráðun.
Síld í frystingu
i Reykjavík
f GÆR barst frystihúsi Júpíter
og Mars allsæmileg síld úr hát-
unum Hrafni Sveinbjarnarsyni
og Þórkötlu ,og fór hún í fryst-
ingu.
Hér var um að ræða 400-500
tunnur, en aflan fengu bátarmr
norð-austur af Garðskaga. Fyrir
nokkrum dögum bárust frystihús
inu nokkrar tunnur af síld af
sömu bátum, og fór hún einig
í frystingu.
Jóhann Hafstein, iðnaðarmálaráðherra, og kona hans, frú Ragn-
heiður, heimsóttu Iðnsýriinguna í gær .Dvöldust ráðherrahjónin
í rúma tvo tíma á sýningunni og skoðuðu sýningarstúkurnar, *
fylgd Iðnsýningarnefndar. — Þetta er í annað sinn er iðnaðar-
málaráðherra heimsótti sýninguna, en hann flutti ræðu við opnun
tennar þann 30. ágúst r.l. — Á myndinni sést Jóhann Hafstein
ásamt Pétri Ottesen, fyrrv. alþingismanni, fyrir framan sýningar-
stúku Sláturfélags Suðurlands.
Eftir að salta 50 þús t
upp í gerða samninga
MBL. hafði í gær samband við
Síldarútvegsnefnd og spurðist
fyrir um livernig gengi með sölt
un á síld til þess að mögulegt
væri að standa við gerða samn-
inga við erlendar viðskiptaþjóð-
ir á þessu sviði. Samkvæmt
þeim tölum sem nefndin hafði
frá því á þriðjudag sl. hafði þá
verið saltaðar rúmar 316 þúsund
tunnur, og þá eftir að salta um
50 þúsund tunnur til þess að
staðið hefði verið alla samninga.
Að því er Jón Stefánsson hjá
Síldarútvegsnefnd á Siglufirði
tjáði Mbl. í gær hafði þá verið
saltað af hznni venjulegu salt-
síld 76.400 tunnur, en í samning-
um er gert ráð fyrir um 80 þús-
und tunnur. Aí svokallaðri
„special-síld“ höfðu verið salt-
aðar um 19 þús. tunnur en til
LÆGÐIN kom hratt vestan
yfir Græniand i gær, var all-
hvasst og rigning Vestan-
lands, en búizt var við, að
upp mundi stytta síðastliðna
nótt og kólna við NV eða
V-átt.
Fjölgun sfrætisvagna-
ferða í Árbæjarhverfi
— eigi síðar en 1. nóv. n.k.
STRÆTISVAGNAR Reykjavíkur
munu í næsta mánuði eða í síð-
asta lagi hinn 1. nóv. n.k. hefja
akstur á nýrri strætisvagnaleið í
Árbæjarhverfi og mun hún fyrst
um sinn liggja um Rofabæ á
Seláshæð og þar snúið við, en
síðar, þegar aðstæður leyfa, mun
vagninn aka Rofabæ á enda.
Þegar þessi nýja leið hefst munu
strætisvagnaferðir í Árbæjar-
hverfið verða á 30—40 mínútna
fresti, en nú ekur Lögbergsvagn-
inn um hverfið á einnar til
tveggja klst. fresti eftir því hvort
um annatíma er að ræða eða
ekki. Gert er ráð fyrir, að vagn-
inn á hinni nýju leið aki eina
ferð á klst.
Þessar upplýsingar komu fram
í ræðu Birgis ísl. Gunnarssonar,
á fundi borgarstjórnar í gær.
Borgarfulltrúarnir Jón Snorri
Þorleifsson (K) og Einar Ágústs
son (F) lögðu mikla áherzlu á
nauðsyn þess að bæta nú þegar
úr strætisvagnaþjónustu vð Ár-
bæjarhverfð og Smálönd, enda
flyttist fólk nú óðum í Árbæjar
hverfið.
þess að fulnægja samningum
þarf 43 þúsund tunnur. Af syk-
ur- og kryddsíld höfðu verið
saltaðar 240 þúsund tunnur, en
þar vantar á um 24 þúsund tunn
ur til þess að staðið hefði verið
við samnirigana.
Mbl. aflaði sér ennfremur upp
lýsingar um það að allt sæti við
það sama í samningagerð íslands
og Rússlands varðandi sölu á
saltsíld til Rússlands.
Vegomólastjóri
ó róðstefnu
um vegamól
f NÆSTU viku hefst í London
ráðstefna samtakanna Inter-
national Road Federation, en
slíkar ráðstefnur eru haldnar
fjórða hvert ár, og er á þeim rætt
alls kyns mál er lúta að vegum.
Af hálfu íslands munu sitja
þessa ráðstefnu þeir Sigurður
Jóhannsson, vegamálastjóri. og
Brynjólfur Ingólfsson, ráðuneyt-
isstjóri. >etta er í annað sinn,
sem vegamálastjóri situr siika
ráðstefnu.
Vegalagning ofan Ár-
bæjarhverfis langt komin
AÐ undanförnu hefur verið unn
ið að lagningu nýs vegar ofan
Árbæjarhverfisins, sem á að
taka við þeirri miklu umferð,
sem nú fer um Rofabæ. Á borg-
arstjórnarfundi í gær, skýrði sett
ur borgarstjóri, Gunnlaugur Pél
ursson frá því, að búið væri af
ryðja fyrir veginum og fylla upf
í mikinn hluta hans en eftir vær:
að tengja hann við Suðurlands-
braut.