Morgunblaðið - 16.09.1966, Blaðsíða 7
Fðstudagur 16. sept. 1966
MORGU NBLAÐIÐ
Einsetumaður í Hornvík
Hér birtist mynd af útskor-
inni vegghillu og eru áletruð
á hana með gotneskum stöf-
um þessi spakmæli: „Mikið
má ef vill“, „Sjón er sögu
ríkari", „Er á meðan er“,
„Góðar stundir". — Eins og
sjá má, er vegghilla þessi hin
fallegasta að allri gerð, hún
er með góðu geymslu hólfi
fyrir innan útskurðar-flötinn,
og auk þess er hún læst að
neðan, með læsingu, sem ekki
sést þó á hana sé horft. —
Smíðisgrip þennan gerði hag-
leiksmaðurinn Sumarliði
Betúelsson, sem í mörg ár
bjó í Höfn í Hornvík, á Strönd
um, og var þar hin síðari ár
einsetumaður á föðurleifð
sinni, þar sem heimahagar
hans og æskustöðvar voru,
þar steig hann fyrstu sporin
og þar eyddi hann mestum
hluta starfsáranna, og þar
eru allar hans rætur, svo mik-
il var átthagatryggð hans, að
hann var með þeim síðustu
er yfirgáfu þennan útkjálka-
litoKNKÍÁáfi
stað við yzta haf, þar sem
dökkir hamramúlar gnæfa við
himinn og aldan köld kyrjar
lag sitt við hleinar og sker —
Þegar ekki var annað verk-
efni fyrir hendi, fékst Sumar
liði við útskurð. — Ekki halði
hann önnur verkfæri við út-
skurð sinn, en einn lítinn dólk
— í vegghillur og aðra- þá
hluti, sem hann skar út, not-
aði hann heimafenginn efni-
við, rekavið, sem barst upp •
flæðarmálið í Hornvík. —
Gerðist Sumarliði hinn mesti
hagleiks maður við útskurð
og má víða sjá handverk hans
var hann að jafnaði hálfan
mánuð með hverja hillu, enda
var þetta ígripa vinna að
kvöldlagi, er hann hafði lok-
ið búsýslustörfum.
Ingibjörg Guðjónsdóttir.
VI8UK0RM
Fá eru mín fræði
fjarri goðaglans
Lítil lífsins gæði
á lukkunni er stanz.
Skalli.
Þann 3. sept. voru gefin saman
í hjónaband af séra Árelíusi
Níelssyni ungfrú Sigríður
Nicolaidóttir og Magnús Gunnars
son. Heimili þeirra er 362
Stamfodham Road Westerhope
Newcastle Upon Tyne England.
(Nýja myndastofan Laugavegi
43b sími 15-1-25).
Laugardaginn 27. ágúst opin-
beruðu trúlofun sína ungfrú Þór-
unn Ingólfsdóttir, Nóatúni 27. og
Stefán Bergsson, Álfheimum 70.
Laugardaginn 3. sept. voru gef
in saman í hjónaband í Kaup-
mannahöfn af séra Jónasi Gísla-
syni, ungfrú Elín Óskarsdóttir
frá Vestmannaeyjum og Eysteinn
Hafberg, verkfræðingur, Rvík.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Elínbjörg Þorbjarn-
ardóttir, Harrastöðum Dalasýslu
og Hörður Elíasson stýrimaður,
Skólaveg 24, Vestmannaeyjum.
víkur heldur fund í Miðhæjar-
skólanum föstudaginn 16. sept.
kl. 8.30 Inngangur um portið.
Rætt verður um stofnun mat-
stofu.
sambandið
Kristniboðs-
2. September voru gefin sam-
ann í hjónaband af séra Óskari
J. Þorlákssyni, ungfrú Edda
Sigfúsdóttir, Egilsstöðum og
Valdimar Benidiktsson Vopna-
firði. Nú til heimilis Hallveigar-
stræti 6. (Loftur h.f. ljósmynda-
stofa, Ingólfsstræti 6)
FRETTIR
Kvenfélag Bústaðasóknar. Á-
ríðandi skyndifundur verður
haldinn í Réttarholtsskóla mánu-
dagskvöld kl. 8. Stjórnin.
Merkjasala Menningar- og
minningarsjóðs kvenna verður
laugardaginn 17. september.
Merki verða afhent á eftirtöldum
stöðum: Álftamýrarskóla, Hlíða-
skóla, Laugalækjarskóla, Mela-
skóla, Mýrarhúsaskóla, Vestur-
bæjarskóla, Vogaskóla og á skrif
stofu félagsins, Laufásvegi 3.
Kristileg samkoma verður í
samkomusalnum Mjóuhlíð 16
sunnudagskvöldið 18. september
kl. 8. Allt fólk hjartanlega vel-
komið.
Náttúrulækningafélag Reykja-
lllllllinintmáf
Sjálfboðaliðar við Bústaðakirkju.
— Áríðandi er að sem flestir mæti á laugardagsmorguninn.
Vinna þarf allan daginn. Hafið með klaufhamar og eða kúebin.
Túnþökur til sölu
nýskornar. Upplýsingar í
síma 22564 og 41806.
Lítill ódýr sendiferðabíll
eða Station óskast. Uppl. í
síma 30249.
Keflavík
Óska eftir íbúð, tvennt í
heimili. Húshjálp eða barna
gæzla kemur til greina.
Upplýsingar í síma -7567.
Bíll — Sjónvarp
Trabant Station ’64—’66
óskast til kaups. Til sölu
nýtt mjög vandað 25” sjón-
varpstæki. Uppl. í síma
51499.
Rafmagnsþvottapottur
óskast, helzt Rafha. Upp-
lýsingcir í síma 35852.
Vantar 4ra herb. íbúð
með húsgögnum. Vil taka á
leigu íbúð með húsgögnuin
í 7 mán. frá 1. nóv. nk.
Góðri meðferð húsmuna
heitið. Uppl. í síma 36384.
Herbergi óskast
Tvær ungar, reglusamar
stúlkur vantar herbergi ná-
lægt Miðbænum frá 20.
sept. Tilboð sendist afgr.
Mbl. merkt „Miðbær 4952“
fyrir mánudag 19. sept.
Til sölu
er hús í Kópavogi og 5
herb. íbúð í Hlíðunum. Fé-
lagsmenn hafa forkaupsrétt
lögum samkvæmt.
Byggingarsamvinnufélag
Reykjavíkur.
Hjúkrunarkonu
vantar 2ja herb. íbúð 1. okt.
sem næst Heilsuverndar-
stöðinni. Tvennt fullorðið
í heimili. Uppl. í sima
15095 eftir kl. 13.
Garnútsala
Enn fæst garn á 15, 19 og
25 kr. hnotan.
HOF, Laugavegi 4.
Miðstöðvarkerfi
Kemisk-hreinsum kísil- og
ryðmyndun í miðstöðvar-
kerfi, án þess að taka ofn-
ana frá. Uppl. í síma 33349.
Stúlkur
Stúlkur óskast til af-
greiðslu í veitingasal, sæl-
gætisbúð, við bakstur og
eldhússtarfa sem fyrst.
Hótel Tryggvaskáli, Self.
Keflavík
Stúlka óskast til afgreiðslu
starfa.
Tóbaksbúðin, Aðalgötu 4.
Ráðskona óskast í sveit
Má hafa með sér 1—2 börn.
Upplýsingar í síma 22927
kl. 7—9 í kvöld.
Tækifæriskaup
Vetrarkápur með skinnum,
svartar og biúnar, á kr.
"2200,-. Svartir kvöldkjólar
á kr. 700,-. Prjónakjólar,
margir litir, á kr. 8.00,-.
Laufið, Laugaveg 2.
A T H U G IÐ f,
Þegar miðað er við útbreiðslu.
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
Krisunuoossamoanuio. Á sam-
komunni í kvöld kl. 8.30 í Betan-
íu talar séra Frank M. Halldórs-
son. Allir velkomnir.
Kristniboðssambandið. Á sam-
komunni í kvöld kl. 8.30 í Beta-
níu tala Ástráður Sigursteindórs
son, skólastjóri og Konráð Þor-
steinsson, pípulagningamaður.
Árbæjarsafn lokað. Hópferðir
tilkynnist í síma 18000 fyrst um
sinn.
Háteigssókn
Munið fjársöfnunina til Há- i
teigskirkju. Tekið á móti gjöfum
í kirkjunni daglega kl. 5 — 7 og
8 — 9.
Kvenstafur
á viSligötum
í gær kom að máli við Mbl.
kona, Guðbjörg Kristjánsdóttir
og sagði, að einhver hefði tekið
í misgripum, staf sinn, rauðleit-
an, í kjörbúð Silla & Valda í
Austurstræti, og skilið eftir ann
an svartan nokkuð styttri. Kvað
hún vera um kvenstaf að ræða
í báðum tilfellum. Nú biður
Guðbjörg viðkomandi vinsamleg
ast að koma heim til sín að
Garðastræti 11, neðstu hæð, og
hafa skipti á stöfum.
Vorohlutaverzlun vor
verður lokuð laugardag og mánudag
vegna flutninga.
Opnum þriðjudag að
Hringbraut 121
(vesturenda).
JÓN LOFTSSON SF.
* * ■
SÍMVIRKJAIMAM
Póst- og símamálastjórnin vill laka nemendur í
símvirkjun 1. okt. nk. — Umsækjendur skulu hafa
lokið gagnfræðaprófi. — Inntökupróf 1 ensku,
dönsku og reikningi verða haldin dagana 22. og 23.
sept. nk. — Umsóknir ásamt prófskírteinum skulu
hafa borizt póst- og símamálastjórninni fyrir
20. september. — Nánari upplýsingar í síma 11000.
Póst- og .símamálastjórnin, 13 .sept. 1966.
Jarðýtd
óskast keypt gegn staðgreiðslu. — Tilboð sendist
afgr. Mbl. Reykjavík, merkt: „Jarðýta til sölu —
4681“ fyrir lok þessa mánaðar, er tilgreini tegund
vélar, stærð og lægsta verð ásamt upplýsingum um
aldur vélarinnar og ástand.
t
Jfes.